Vikublaðið Gestur - 04.12.1955, Síða 12

Vikublaðið Gestur - 04.12.1955, Síða 12
12 G E S T U R HJÁ MANNÆTUM Á NÝJU-GUINEU Eftir ANDRÉ DUPEYRAT. Framhald. Þessi háttur, að kvenfólkið hyggi af sér fingur til þess að sýna sorg sína eða gleði, er afar almennur meðal papúanna. ■Sérstaklega er hann notaður til þess að sýna sorg. Við hjarta- skerandi kveinstafi og örvæntingu, sem átti sér stað umhverfis látinn eiginmann eða son, kom fyrir, að móðir eða systir hins látna gerði um stund hlé á harmkvælunum, stóð upp af hækjum sínum og færði sig afsíðis, þannig, að allir gætu séð til hennar. Síðan hjó hún fingurlið af sér og sneri að því búnu aftur að grátinum. En blóðið ataði alla nærstadda. Ég hef hitt margar konur um fimmtugt — sem er mjög virtur aldur í þessu landi, — og vantaði þær tvo eða þrjá fingur á hvora hendi. Stubbarnir báru vitni um margar sorgir þeirra aumkvunarverðu ævi. Heimkoma Zavai. Tryllingurinn, sem kemur konunum til þess að höggva af sér fingur eða sýna sorg sína á annan villimannlegan hátt, getur jafnvel gengið svo langt, að konan ráði sér bana. Það sá ég einu sinni, þegar ég dvaldi nokkra daga í (þorpi skammt frá þorpi Golopui. Ungur maður, Zavai að nafni, gáf- aður og sterkur, en afar skapmikill, hafði lent í ótrúlegu ævin- týri. Nokkrum mánuðum áður hafði fulltrúi áströlsku stjórn- arinnar lagt leið sína um þessar slóðir í landkönnun. Zavai hafði fregnir af för hvíta mánnsins. Þar sem hann hafði samband við flesta nálæga kynþætti vegna flókinna fjölskyldutengsla, gat hann ferðast um all-víða án þess að eiga misþyrmingar á hættu. Hann hafði því gengið á fund hvíta mannsins og ráðið sig í þjónustu hans sem burðarmaður. Hann vakti brátt athygli á sér fyrir gáfur og hreysti, svo að liann varð við þeim tilmælum fulltrúans að gerast leiðsögu- maður hópsins. Ferðaðist hann með hópnum alla leið niður til strandarinnar — og var að heiman í þrjá—fjóra mánuði. Honum var heilsað sem hetju, þegar hann kom heim aftur. Áður en hann lagði í ferðalag sitt, hafði hann tekið sér konu, unga og fríða, sem þegar gekk með sitt fyrsta barn. Við heim- komu hans hafði enginn sýnt honum innilegri móttökur en unga konan, ausið yfir hann hrifningarópum og faðmlögum, snökti og hvers konar tilfinningum, sem yfirleitt geta brotizt út hjá þessu frumstæða fólki. En daginn eftir skipaðist veður í lofti. Á fjölmennum fundi í ráðhúsinu kvöldið áður hafði hann skýrt frá öllum þeim undrum, sem borið hafði fyrir augu hans í „landinu-handan-endamarka-veraldar“. í fyrsta lagi hafði hann sér svín, sem voru jafnstór og fjallið ,Jþarna“ og höfðu tvö spjót skagandi út úr hausnum (kýr), svo hafði liann séð húsveggi, sem voru sléttir eins og lófi manns, og sem náðu eins langt og frá þorpinu og lengst fram í dal. Þessi hús voru þakin himin- bláu efni, sem þeir hvítu höfðu áreiðanlega skorið niður úr himninum. Og svo stór voru húsin, að maður stóð á öndinni eftir að hafa gengið frá einu horni þess til annars. Þannig verða þá þjóðsögurnar til! Zavai hafði séð fjölmargt, hvað öðru furðulegra. Óendanlegt vatn, sem nötraði, þrumaði, sletti og var salt á bragðið. Hann viðurkenndi, að það hefði vakið ótta sinn. Á vatninu hafði 'hann séð lítil hús á hraðri hreyfingu, og gaf það frá sér hávaða ekki ósvipaðan því, þegar trumbur voru barðar, en miklu hærri. Hann hafði heyrt í öndum, sem lokaðir voru inni í litlum kassa og sungu og léku furðulega tónlist. Meðan á frásögninni stóð, létu áheyrendur undrun sína og aðdáun f Ijós með því að smella tungunni í góm með furðu- légasta hávaða. Blygðunartilfinning innfæddra. Þegar Zavai hafði að lokum sagt frá öllu, sem honum fannst markvert, spurði hann fregna úr þorpinu. Því miður fyrirfinn- ast alls staðar einhverjir, sem með óljósri frásögn sinni, þótt sannorð eigi að vera, vekja efa og reiði, með dylgjum og ill- girnislegum athugasemdum. En svo fór, að Zavai fékk illan grun um það, að kona hans hefði verið honum ótrú með ungum manni úr nágrannaþorpi. Zavai sagði ekki eitt einasta orð. Hann fór ekki heim í kofa sinn, heldur svaf í ráðhúsinu. Og þar sem mér hafði einnig verið búinn þar næturstaður, átti ég auðvelt með að sjá, í hvaða ham hann var. Snæmma næsta morgun vaknaði ég við hávær reiðiöskur. Það var Zavai, sem hellti óbótaskömmum yfir konu sína frá svölum ráðhússins. ' Lætin virtust í byrjun falla í sama jarðveginn og áður er hér lýst. Ég hallaði mér á hina hliðina og hugðist sofna á ný. En það var vonlaust. Hávaðinn í Zavai og kliðurinn í þorpsbúum, sem safnazt höfðu saman til þess að hlusta á hann, varnaði mér algerlega svefns. Zavai var kominn að öðrum þætti harmleiksins. Hann skamm- aðist enn af öllum kröftum, en var nú korninn að kofa sínum og hoppaði af reiði. Hann steytti hnefana í áttina til lokaðra dyranna, unz liann skyndilega þaut að þeim, reif þær upp á gátt og hvarf inn. Skömmu seinna barst til eyrna okkar vein konunnar. Skömmu seinna birtist Zavai aftur og dró konu sína á eftir sér, meðan hann lamdi hana miskunnarlaust. Hann dró hana þannig út á mitt torgið, en allir þorpsbúar slóu hring utan um þau hjónin. Þessi deila var einstaklega alvarlegs eðlis og það var þess virði að fylgjast vel með henni. Konan lá samanhnipruð á jörðinni og varði höfuð sitt fyrir höggunum. Skömmum mannsins svaraði hún ekki einu einasta orði, eða hreyfði sig vitund. Það var ógerningur að segja um, hvort hún var saklaus eða sek. Þögn hennar gat borið vott um hvort, sem var. Ég var í þann veginn að grípa fram í rás viðburðanna, þegar ég sá fram á, að Zavai myndi berja hana til bana. En skyndilega hætti hann barsmíðinni. Hann dró hana á fætur. Og skyndilega kom nokkuð óvænt fyrir. Með snöggum rykk svifti hann eina klæði hennar af henni, svo að hún stóð allsnakin í allra augsýn!

x

Vikublaðið Gestur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.