Vikublaðið Gestur - 18.12.1955, Side 1
Smásaga eftir Muriel Roy Bolton.
„IjÉR KVÆNIST fyrir jólin“, sagði
Madarne Sari, spákonan ílitla kaffihús-
inu — „ég sé alveg óvenjulega fallega
stúlku“.
„Hún er vonandi ljóshærð?“ spurði
Adain Hoyt með kaldhæðnislegri kurteisi,
meðan liann hét sjálfum sér því, að hérna
skyldi hann ekki borða oftar. Þessi áleitna
spákona fór hræðilega f taugarnar á hon-
um, þessi svörtu augu, glampandi hringir
og asnalegir spádómarnir.
„Hár hennar er mjög óvenjulega brúnt“,
svaraði Madame Sari. „Þér hittið hana
cftir stutta ferð á vatni. Ég sé hættur,
misskilning og gneista, sem rjúka. Hérna
er líka önnur kona, og eldri maður, ákaf-
lega ráðríkur. Til þess að öðlast brúði
yðar, verðið þér að bjóða honunt byrg-
inn“.
„Hvernig getið þér verið vissar um, að
ég sé ekki Iþegar kvæntur?" spurði Adam,
og var farið að líða all illa.
„Ég sé þctta allt í teblöðunum í boll-
anum", svaraði Madame Sari, eftir að
hafa litið á óstyrka, unga manninn, sent
lagaði glcraugun sín í sífellu, og roðnaði
í kinnum. Nei, hann var áreiðanlega ekki
kvæntur. En hann trúði heldur engu
orði af því, sem hún sagði, svo að hún
llýtti sér að bæta við:
„Áður en morgundagurinn rennur upp,
verðið þér búinn að fá mikilvægt bréf.
Þér munuð írétta af dauðsfalli innan fjöl-
skyldunnar, og yður mun tæmast arfur.
Þér munuð líka hafa tal af þeim, sem
þér helzt viljið forðazt . .. Nú skuluð
þér bara sjá, hvort þetta stendur ekki
heima“.
ADAM BORGAÐI og gekk út á göt-
una í áttina til skrifstofunnar, sem hann
vann á. Starf hans var að reikna nákvæm-
lega út, hversu miklu bensfni og olíu
langferðabifreiðar fyrirtækisins eyddu i
hverri ferð -- andstyggilcgt starf — og
hversu langt bifreiðarstjórarnir gætu ekið
án þess að ofþreytast!
„Afsakið!“ stundi Adam, þegar hann
rakst af alefli á annan vegfaranda á næsta
götuhorni. En honum varð á að glotta
við, þegar hann þekkti þar fjarskyldan
frænda sinn, Curtis Bowles, sem hann gat
ekki með nokkru móti þolað.
Curtis greip í jakkalafið hans.
„Hefurðu fengið bréfið frá mönnnu um
Framh. á bls. 4.
Spákona — ung hjörtu —
ást — jólaveizla — allt
þetta og margt fleira kem-
ur við þessa skemmtilegu
smásögu . . .
1. árg., 5. tölubl.
Reykjavík, 18. desember 1955.
Verð kr. 5,00