Vikublaðið Gestur - 18.12.1955, Blaðsíða 14

Vikublaðið Gestur - 18.12.1955, Blaðsíða 14
14 G E S T U R_ HJÁ MANNÆTUM A NYJU-GUINEU Eftir ANDRÉ DUPEYRAT. Aldrei of þreyttir til að dansa! Villimennirnir eru líkastir stórum börnum — og verður það bezt séð af því smá-atviki, sem nú skal greint frá. Á íerðalagi kom ég ásamt íylgdarmönnum mínum að Wafo- kos, sem er lítið þorp — kofarnir álíka margir og stafirnir í nafninu. Það stóð fremst frammi á klettanöf, og manni til hægri handar breiddi Dilava-dalurinn úr sér. Burðarmenn mínir skeyttu yndis- lögru útsýninu engu. Þeir skunduðu beina leið til ráðhússins, sem húkti hrörlegt á háskalegum staurunum. Net sín strengdu þeir úr loftinu og niður á gólf, þangað til húsið lí'ktist einna helzt gamalli hlöðu alþakinni köngulóarvefum. Eldarnir höfðu þegar verið kveiktir, og bláar reyksúlurnar teygðu sig letilega upp um laufþakið í áttina til himins. Ég haíði tekið mér bólfestu í kofa, sem mér hafði litizt vel á, þótt hann væri enn í byggingu. Höfðinginn sjálfur átti hann, og hafði ég greitt honum tóbaksskífu í leigu. Við glampann frá vasaljósi mínu settist ég við að lesa vasa-. Itók mína, þegar ég heyrði ógreinilegan söng úr nærliggjandi kofum. Þetta var góðs viti. „Aperi Domino .. Nokkrir helztu virðingarmennirnir úr hópi manna minna komu til híbýlis míns, og komu sér makindalega fyrir, eins og apar, á hækjum sínum umhverfis bjálkastoðirnar. Djúp þögn. Þeir skiptust á augnagotum, meðan þeir kepptust við að þegja, þangað til sá hugrakkasti stóð á fætur. „Faðir, mig langar til að biðja þig smábónar; mennirnir sendu okkur til að spyrja þig, hvort þeir mættu stíga dans, fólkinu í' þessu héraði til heiðurs“. Hvað þá? Hvort þeir mættu dansa? Hvað var sjálfsagðara? Það var ánægjuleg sönnun þess, að þeir væru mettir og ánægðir — auk þess, sem það veitti mér öflugan stuðning í deilum við þá daginn eftir. Ég var néfnilega viss um, að einhver þeirra myndi koma stynjandi til mín og segja örvæntingarfullur í lraman: „Ó, mig verkjar svo hræðilega í allan skrokkinn — ég get ekki gengið lengral" Og þá gæti ég sett upp minn hörkulegasta svip: „Þú segir ósatt — þú dansaðir í gær — þá 'varstu ekki jþreyttur!" „Það er alveg satt“, myndi hann segja og hlaupa af stað eins og kanína, laus við alla þreytu eftir röksemdafærslu mlna. En nú tóku söngvararnir að bergmála um hæðirnar. Tvö hundruð manna danshópur kom syngjandi fullurn hálsi, baðandi út öllum öngum, inn á torgið, hljóp það á enda, sneri aftur við í hendingskasti, án þess hljómfallið breyttist og þeyttist aftur til baka á ótrúlegum hraða, og endurtók hlaupin að nýju. Eld- urinn varpaði bjarma á bronslita vöðvana, sjáöldrin voru gal- opin af hrifningu, það skein í hvítar, glampandi tennurnar. Munnarnir voru opnir, og barkakýlin skulfu eins og orgel- pípur . . . Nú var áliðið kvölds. Lengst uppi yfir okkur skein rauður máninn á mjólkurlitum himni, sem titraði af stjarnamergð. Þrátt fyrir allt sigraði kyrrðin þá smám saman. Og í stað ntannaradda, heyrðist innan skamms einungis gjallandi, til- breytingarlaust jarm lambanna — og ég féll í væran svefn. „Go-go-gooooo ...“. Það lá við, að ég félli út úr hengirúminu. Var þegar risinn nýr dagur? Þegar ég hafði kveikt á eldspýtu, komst ég að raun um, að þorpshaninn — afkomandi einhverra trúboðahænsna í fyrndinni — myndi vera bannsettur hrekkjalómur, því að klukkan var að- eins eitt eftir miðnætti. Ég lokaði augunum aftur. En, því miður! Ég var ekki sá eini, sem hafði vaknað . . . hafði ég ekki sagt daginn áður, að við legðum af stað við fyrsta hanagal? Og þeir rnenn mínir, sem rumskað höfðu við galið í hrekkjadýrinu, fóru strax á stjá. Það hafði ekkert að segja, Lágu margir þungt haldnir dögum saman, þótt veikin legðist misjafnlega á fólk. Á Draflastöðum lögðust flestir eða allir. Lá taðan óhreyfð á túninu. Á Ánastöð- um hafði veikin hins vegar gert lítið vart við sig. Stefán bóndi gerir sér hægt um hönd, er hann liafði lokið við að hirða sitt tún, fer ásamt öllu heimafólki sínu yfir að Draflastöðum'og hirðir allt hey fyrir fón. Ekki vildi hann neina borgun þiggja fyrir greiðann. Báðir eru bæirnir i Möðru- vallasókn. Nokkru síðar voru þeir Stefán og Jón báðir við niessu á Möðruvöllum. Er svo sagt, að Jón hafi verið eitt- livað hreifur af víni, eins og hann var oft á mannamótum. Þennan sunnudag lagði prestur út af sögunni um misk- tinnsama Samverjann. Þegar liann hafði lokið við að lesa ræðutexta sinn, sagði Jón sterki svo hátt, að heyra mátti um alla kirkjuna: „Stefán minn á Ánastöðum var nú sá, sem miskunnverkið gerði á mér“. Át.tu ýmsir bágt með að verjast brosi, þótt engar trufl- anir yrðu á messunni, því að allir fundu, að þakklætiskennd Jóns var innileg, og brauzt fram á hátíðlegri stund. Ekki sagði Jón fleira meðan á mess- unni stóð. Fyrirbæn. Um tíma bjuggu í nágrenni Jóns u ng hjón, sem höfðu misst nokkur börn sín nýfædd. Eitt sinn fæddist þeirn sonur, og var prestur þegar sóttur til þess að skíra barnið, þar eð hjónin óttuðust, að eins myndi fara og í önnur skipti. Viðstaddir skírnina voru nokkrir nágrannar, þar á með-' al Jón á Draflastöðum. Þegar skírninni var lokið, bað Jón konuna, sem hélt á barninu, að lofa sér að halda á því um stund. Varð konan við þeim tilmælum. Byrgði Jón þá andlit sitt yfir höfði barnsins nokkra stund, rétti konunni það síð- an og sagði stundarhátt með alvöruþunga: „Það skal verða úrsuða úr því milli guðs míns og mín ef þetta barn deyr“. Drengur þessi lifði á full- orðinsár, en ekkert annað af börnum þeirra hjóna. * * *

x

Vikublaðið Gestur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.