Morgunblaðið - 11.01.2012, Page 4

Morgunblaðið - 11.01.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 Nemendur í 9. bekk Vogaskóla í Reykjavík fengu í gær afhentar Kindle lestölvur, eða „Kyndil“ eins og þær eru stundum kallaðar, til afnota. Næstu mánuðina verður fylgst með því hvernig tölvurnar nýtast þeim í námi og verður m.a. kannað hvort lestraráhugi aukist. Nokkrir piltar í skólanum skrýddust spariklæðnaði af þessu tilefni og voru sammála um að þetta væri gott framtak. Einn þeirra, Guðmundur Atli, sagði það vera kost að lítið tæki kæmi í stað þungra bókastafla. „En ég veit ekki hvort þetta skiptir svo miklu máli í náminu,“ bætti hann við. Nýir tímar gengu í garð hjá nemendum í 9. bekk Vogaskóla í gær Morgunblaðið/Sigurgeir S. Kampakátir með Kyndilinn Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hjá þjóðskrá er að hefjast vinna við lagfæringar á hugbúnaði til að hægt verði að birta óskammstöfuð nöfn sem flestra í tölvukerfi þjóðskrár. Forstöðumaður þjóðskrár- og gæða- sviðs segir þó ekki hægt að fullyrða um hvenær breytingarnar nái fram að ganga, það sé meðal annars háð fjármagni sem fáist til verksins. Einungis er hægt að birta full- skrifuð nöfn sem hafa 31 staf eða stafabil eða minna. Gripið er til reglna um skammstöfun nafna, ef nöfnin eru lengri og ekki næst sam- komulag við foreldra. Eftir að leyft var að skíra þremur nöfnum og millinafni og kenna börn við bæði móður sína og föður hefur fjölgað þeim tilvikum sem nafna- svæðið í þjóðskránni dugar ekki til. Þessu lenti sambýlisfólkið Krist- mundur Guðmundsson og Margrét Sigríður Guðjónsdóttir í þegar þau tilkynntu til þjóðskrár nafn dóttur sinnar sem þau nefndu Jóhönnu Sig- ríði Kristmundsdóttur. Í nafninu er 31 stafur og tvö bil og því tveimur stöfuð ofaukið. Þeim var neitað um að stytta föðurnafnið í Kristmundsd. þar sem ekki má stytta fyrsta eig- innafn og síðara kenninafn en boðið að skrá hana Jóhönnu S. Krist- mundsdóttur eða Jóhönnu Sigr. Kristmundsdóttur. Sólveig J. Guðmundsdóttir, for- stöðumaður þjóðskrár- og gæða- sviðs, tekur fram í upphafi samtals þar sem skýringa er leitað að fullt nafn landsmanna sé skráð í þjóð- skrá, þótt ekki sé hægt að birta nema 31 staf í tölvukerfinu. Þannig séu vottorð sem þjóðskrá gefur út með fullu nafni. Eins vegabréf að því hámarki sem þar gildi sem er 38 staf- ir. Hún segir að gera þurfi breyting- ar á tölvukerfinu til að stækka nafna- svæðið. Það kosti vinnu og fjármuni. Segir Sólveig að unnið sé að und- irbúningi lagfæringa. Það sé á áætl- un ársins en hún treystir sér ekki til segja hvenær þeim ljúki. Tilfinningamál hjá mörgum Nöfn barna eru tilfinningamál, eins og starfsfólk þjóðskrár finnur oft fyrir þegar biðja þarf fólk að stytta nöfn fyrir birtingu í tölvukerf- inu. Jóhanna Sigríður Kristmunds- dóttir er gott dæmi um það. Hún er nefnd eftir móðurömmu sinni sem fallin er frá og fellur foreldrum því illa að þurfa að breyta nafninu. Kristmundur hallast helst að því að þau velji skammstöfun á síðara eig- innafninu og dóttirin verði skráð Jó- hanna S. Kristmundsdóttir. Nafnið of langt fyrir þjóðskrá  Unnið að breytingum á tölvukerfi þjóðskrár til að hægt sé að fullskrifa fleiri nöfn  Skammstafa þarf síðara eiginnafn Jóhönnu Sigríðar Kristmundsdóttur sem gefið var nafn látinnar ömmu sinnar Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Frá því Bauhaus auglýsti eftir starfsfólki í 60-80 störf í bygginga- vöruverslun fyrirtækisins í Reykja- vík og þar til í gær höfðu hátt í 1.200 manns sent inn umsókn. Enn er vika eftir af umsóknarfrestinum. „Þetta er rosalega jákvætt og við erum mjög kát,“ segir Halldór Ó. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Bauhaus á Íslandi. Umsóknirnar séu miklu fleiri en hann hafi búist við. Hann telur að ástæðan fyrir þessum mikla fjölda umsókna sé m.a. sú að töluvert hafi verið rætt um Bauhaus undanfarin ár og að fólk skynji að þetta verði spennandi vinnustaður. Þegar auglýst var eftir starfs- fólki í september 2008 sóttu 1.250 manns um 150 störf. Ekki er búið að taka saman hvert hlutfall karla og kvenna er í hópi umsækjenda. Halldór segir að merkja megi töluverðan mun eftir deildum. Þannig hafi fleiri konur sótt um störf á skrifstofu en fleiri karlar vilji vinna í verkfæradeild. „Það eru ekki margar konur sem sækja um þar.“ Umsóknarfrestur rennur út 18. janúar og Halldór gerir ráð fyrir að fleiri umsóknir bætist við þangað til. Starfsmenn Bauhaus hér á landi, í samvinnu við starfsmanna- deildina ytra, fari yfir umsóknirnar í sameiningu. Nýir starfsmenn munu síðan koma til starfa 1. mars. Stefnt er að því að opna verslun Bauhaus á vormánuðum og að sögn Halldór er allur undirbúningur á áætlun. Tæplega 1.200 manns hafa sótt um störf hjá Bauhaus  Konur sækja frekar um á skrifstofu  Karlar í verkfærin Morgunblaðið/Sigurgeir S. Bauhaus Fjöldi umsókna borist. Utanrík- isráðherra kynnti í gær ríkisstjórn- inni ákvörðun sína um að ráða Tim Ward QC til að vera aðal- málflytjandi í samningsbrota- málinu sem Eft- irlitsstofnun EFTA hefur höfðað vegna ábyrgðar á lágmarkstrygg- ingu á Icesave-reikningunum. Tim Ward er starfandi lögmaður við lög- mannsstofuna Monckton Chambers í London og hefur m.a. flutt mörg mál fyrir Evrópudómstólnum. Málflytjandi ráðinn til að verja Ísland Sex tómir gámar fuku af Selfossi, gámaskipi Eim- skipafélagsins, í brjáluðu veðri í fyrrinótt. Skipið var á leið á Grundartanga en í gærmorgun þegar birti varð skipstjóri þess var að nokkra gáma vantaði. Í tilkynningu frá lögreglu var talið að gámana, sem eru 20 feta langir, ræki í átt að Kjalarnesi. Beðið var með að reyna að end- urheimta gámana þar til þá ræki á land. Öllum þar til bærum yfirvöld- um var tilkynnt um málið og sjófar- endur látnir vita af gámunum í sjónum. Sex gámar fuku af Selfossi og í sjóinn Allt að sex heiti geta verið í nöfnum barna sem skírð eru eða nefnd. Samkvæmt reglu- gerð skulu fyrsta eiginnafn og síðara kenninafn ávallt halda sér. Ef ekki næst samkomulag við foreldra barna um skráningu nafna kveður reglugerð sem innanríkisráðuneytið gaf út á síðasta ári um að fyrst skuli skammstafa millinafn, ef á þarf að halda, næst fyrra kenninafn, þá þriðja eiginnafn og loks ann- að eiginnafn. Millinöfn stytt SKAMMSTÖFUN NAFNA – fyrst og fre mst ódýr! OPIÐ LENGUR! 10-20 Breyttur opnunartími á Akranesi, Bíldshöfða og Granda Opið alla daga frá kl. 10-20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.