Morgunblaðið - 11.01.2012, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 11.01.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 María Ólafsdóttir maria@mbl.is Þær Dýrleif Skjóldal ogRagnheiður Guðmunds-dóttir, betur þekktar semDilla og Heiða, gáfu nýver- ið út bókina Ungbarnanudd. Bókin er byggð á áratuga reynslu Dillu af ung- barnanuddi og skreytt með fallegum krílamyndum úr smiðju ljósmynd- arans Heiðu. Nuddaði soninn á hverju ári Dilla lærði nudd í Noregi á ár- unum 1986-1989. En þegar hún eign- aðist sitt fyrsta barn árið 1987 fékk hún gefins bók um ungbarnanudd. „Í fyrstu var þetta bara ætlað mér og syninum en eftir að þær kom- ust að þessu í ungbarnaeftirlitinu á Akureyri báðu þær um að fá að fylgj- ast með nuddinu. Það varð úr og eftir það báðu þær mig að kenna þetta á Akureyri sem ég gerði í ein 20 ár. Nú er ég í raun komin á annan hring og er farin að kenna ömmubörnum. Ömmurnar eru farnar að reka á eftir mæðrunum,“ segir Dilla í léttum dúr. Hún segir nuddið virka vel á þeim börnum sem það er prófað á en eins og komi fram í bókinni þá þurfi börn- in stundum að venjast þessu. „Það þarf að passa stað og stund og fylgjast með því hvernig barninu líður. Mikilvægt er að þeim sé ekki kalt og þau séu ekki orðin of svöng eða þreytt þannig að það ruglist ekki saman við hvort nuddið sé óþægilegt eða ekki. Stundum eru þau bara orðin dauðþreytt eða of svöng. Því varðar svo miklu að þekkja inn á rútínur hjá börnum og þekkja sitt barn. Þetta náttúrulega hjálpar til þess. En þau láta líka alveg vita ef eitthvað er óþægilegt,“ segir Dilla. Gott fyrir börn með kveisur Dilla segist hugsa nuddið þannig að það sé gott fyrir öll börn, ekki ein- göngu þau sem séu með einhverja kvilla. Hins vegar sé staðreynd að nuddið henti vel börnum sem séu með innantökur eða líði á einhvern hátt illa. „Börn sem eiga erfitt með að sætta sig við þennan yfirgang frá því að vera fóstur yfir í að vera barn hafa sérstaklega gott af þessu. Yfirleitt nýtist þetta kveisubörnum mjög vel og það tekur aðeins nokkrar vikur að losa þau úr þeim vítahring. Oft kunna börnin ekki að losa sig við loft. Eins getur verið að foreldrarnir kunni ekki að hafa þau á brjósti og börnin liggi þá þannig að þau gleypi of mikið af lofti í baráttu við að halda geirvört- unni upp í sér. Því þarf að skoða hvernig þau liggja á brjósti og hjálpa þeim síðan að losa sig við loftið,“ segir Dilla. Ekki á klukkunni Heiða hefur starfað sem ljós- myndari á Akureyri, þar sem hún býr ásamt eiginmanni og fjórum börnum, frá árinu 2004. Síðastliðin ár hefur hún sérhæft sig í að taka myndir af litlum krílum og segir myndatökur fyrir bókina hafa gengið vel. „Það gekk mjög vel að mynda því við gáfum okkur endalausan tíma. Kærleiksrík sam- vera með krílum Nuddarinn Dýrleif Skjóldal og ljósmyndarinn Ragnheiður Guðmundsdóttir taka höndum saman í fallega myndskreyttri bók sem kallast Nuddbókin. Þar er að finna leiðbeiningar um ungbarnanudd en það getur dregið úr ýmsum kvillum er hrjá börn, til að mynda magakveisu. Þær Dýrleif og Ragnheiður starfa báðar á Akureyri en þar hófst samstarf þeirra á ljósmyndasýningu Ragnheiðar. Samstarf Heiða og Dilla gáfu í sameiningu út Nuddbókina. Kósí Börnum finnst gott að láta nudda sig í þægilegu umhverfi. Mikið er til af skemmtilegum og kostulegum hlutum í henni veröld. Eitt af því eru minjagripir sem geta jú verið misfallegir. Á vefsíðunni shelf- ofshame.com gefur að líta nokkra slíka gripi. En nafnið gefur kannski til kynna að gripirnir væru best geymdir ofan í skúffu. Hvað um það. Á vefsíð- unni gefur að líta gripi frá Noregi, Skotlandi og Ítalíu svo fáein lönd séu nefnd. Aðstandendur síðunnar hafa viðað minjagripunum að sér hér og þar um heiminn en fólki er líka frjálst að senda inn minjagrip. Með hverri mynd fylgir skondinn texti og nú er bara að athuga í skúffuna og sjá hvort þú átt þar kannski eitthvað skemmtilega ósmekklegt til að setja á þína hillu. Vefsíðan www.//shelfofshame.com Morgunblaðið/Heiddi Bjórdósir Á ferðum fólks um heiminn viðar það að sér ýmsum hlutum. Skemmtilega ósmekklegt Atvinnu- og nýsköpunarhelgin í Reykjavík fer fram nú um helgina. Viðburðurinn er haldinn í þeim til- gangi að hjálpa einstaklingum að koma hugmyndum sínum í fram- kvæmd, en að helginni standa Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur og Landsbankinn í samstarfi við Reykja- víkurborg. Erlend fyrirmynd viðburðarins er StartupWeekend þar sem þátttak- endur mæta með eða án hugmyndar, skipta sér niður í teymi og vinna frá föstudegi til sunnudags við að byggja upp viðskiptahugmyndir. Markmiðið er að klára frumgerð, eða komast sem næst því að klára frumgerð af vörunni eða þjónustunni sem unnið er að yfir helgina. Fjölmargir sér- fróðir aðilar mæta yfir helgina og hjálpa þátttakendum við uppbygg- ingu hugmyndanna. Allir geta tekið þátt; þeir sem hafa hugmynd að vöru eða þjónustu og einnig þeir sem vilja hjálpa hugmyndum annarra við að verða að veruleika. Hugmyndir þátt- takenda geta verið margskonar og mislangt á veg komnar. Þátttaka er ókeypis en nánari upplýsingar má nálgast á anh.is. Endilega … … komdu með góða hugmynd Ljósmynd/norden.org Hönnun Hugmyndirnar geta verið af ýmsum toga og mislangt á veg komnar. Þjóðminjasafn Íslands í samstarfi við Krabbameinsfélagið, embætti landlæknis og Prentsmiðjuna Odda býður grunnskólanemendum í 7.-10. bekk að taka þátt í samkeppni um hönnun og gerð á nýju tóbaksvarn- arveggspjaldi, en samkeppnin er haldin í tilefni af sýningunni Þetta er allt sama tóbakið! sem nú stend- ur í Horni Þjóðminjasafnsins. Til mikils er að vinna en fyrir þrjú bestu veggspjöldin verða veittar spjaldtölvur og tónhlöður. Að auki ætlar Prentsmiðjan Oddi að prenta sigurveggspjaldið og mun það fara í dreifingu í grunnskóla og félags- miðstöðvar. Einnig munu allir þeir sem lenda í þremur efstu sætunum fá eintak af ritinu Hlutavelta tím- ans: menningararfur á Þjóðminja- safni. Tillögunum skal skilað annaðhvort á pappír til Þjóðminjasafns Íslands, Suðurgötu 41, 101 Reykjavík eða á tölvutæku formi á netfangið sam- keppni@thjodminjasafn.is eigi síðar en föstudaginn 27. janúar 2012. Veggspjöldin mega vera í stærð A3 eða A2 og þar skal koma fram boðskapur gegn hvers kyns tóbaks- notkun, til dæmis reykingum eða munntóbaksnotkun unglinga. Úrslit verða síðan kunngjörð á Safnanótt, föstudaginn 10. febrúar 2012. Veggspjaldasamkeppni grunnskólanema Gegn tóbaks- notkun Forvarnir Á veggspjöldunum verður boðskapur gegn hvers kyns tóbaksnotkun. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. ÞORRI NN 201 2 Þorrahlaðborð Nóatúns Sendum um land allt Gerum verðtilboð fyrir stærri þorrablót (50-500 manna) Upplýsingar í síma 822-7005 eða veislur@noatun.is ÞJÓÐLEG Á ÞORRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.