Morgunblaðið - 11.01.2012, Side 12
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Hvorki Lárus Welding, fyrrverandi
bankastjóri Glitnis, né Guðmundur
Hjaltason, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bank-
ans, mættu við þingfestingu málsins
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Þess í stað lögðu verjendur
þeirra fram yfirlýsingu um að þeir
neituðu sök í málinu.
Lárus er búsettur erlendis og er í
námi en Guðmundur var staddur er-
lendis, eftir því sem fram kom hjá
verjendum þeirra.
Lárus og Guðmundur Hjaltason
eru ákærðir fyrir stórfelld umboðs-
svik með því að hafa, 8. febrúar 2008,
stefnt fé Glitnis í stórfellda hættu
með því að lána Milestone 10 millj-
arða, án trygginga og ábyrgða. Lán-
ið var aldrei endurheimt og í ákæru
sérstaks saksóknara segir að lán-
veitingin hafi átt þátt í falli Glitnis
haustið 2008.
Þórður Bogason hrl., verjandi
Guðmundar, hafði fyrir þinghaldið í
gær óskað eftir afritum af úrskurð-
um um leyfi til hlerana á síma Guð-
mundar frá árinu 2008 og þar til
ákært var í málinu. Hólmsteinn
Gauti Sigurðsson saksóknari sagði
að engir slíkir úrskurðir sem vörð-
uðu Guðmund hefðu verið kveðnir
upp. Ekki hefðu heldur verið lagðar
fram beiðnir um símhlustanir. Hann
Neituðu ásökunum
um umboðssvik
Óskaði eftir úrskurðum um hleranir Engir úrskurðir til
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Sóknin Hólmsteinn Gauti Sigurðsson saksóknari með ráðgjafa sína til beggja handa, þá Jón Óttar Ólafsson og Guð-
mund Hauk Gunnarsson. Hólmsteinn Gauti sagði enga úrskurði til um símhlustanir hjá Guðmundi.
vildi í samtali við blaðamann ekki
upplýsa hvort slíkir úrskurðir hefðu
verið kveðnir upp varðandi Lárus.
Þá vildi verjandi Guðmundar ekki
ræða um tilefni þess að beiðni um
þessa úrskurði var lögð fram.
Dómarinn í málinu, Símon Sig-
valdason, gaf verjendum frest, til 28.
febrúar, til að skila greinargerðum.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Vörnin Óttar Pálsson, verjandi Lárusar Welding, og Þórður Bogason, verj-
andi Guðmundar Hjaltasonar, lögðu yfirlýsingar fyrir dóminn.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012
Ljósbjörg Petra María Sveinsdóttir, sem stofnaði Steina-
safn Petru á Stöðvarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Upp-
sölum á Fáskrúðsfirði í gærmorgun.
Petra var 89 ára gömul, fædd að Bæjarstöðum við
Stöðvarfjörð 24. desember 1922.
Petra giftist Jóni Ingimundarsyni árið 1945 og eign-
uðust þau fjögur börn; Ingimar, Svein Lárus, Elsu Lísu
og Þórkötlu sem öll lifa móður sína.
Jón lést 52 ára að aldri árið 1974. Sama dag og hann var
borinn til grafar ákvað Petra að opna heimili sitt á Stöðv-
arfirði, Sunnuhlíð, gestum og gangandi sem vildu skoða
steinasafnið hennar. Upp frá því hefur húsið verið safn og
lengi það fjölsóttasta á Austurlandi. Þangað koma mörg
þúsund manns á hverju ári. Það var þó áfram einkaheimili
Petru allt til ársins 2007 þegar hún flutti á hjúkr-
unarheimilið Uppsali. Hún fylgdist þó áfram vel með
safninu sem nú er rekið af börnum hennar og barnabörn-
um. Petra hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir söfnun sína
og safnastarf, m.a. riddarakross hinnar íslensku fálka-
orðu og hvatningarverðlaun Þróunarfélags Austurlands.
Petra safnaði steinum frá tvítugsaldri en steinasöfn-
unin hófst af alvöru árið 1946. Langflestir steinanna eru
frá nágrenni Stöðvarfjarðar og annars staðar úr fjórð-
ungnum. Hún leitaði nær ekkert að steinum í öðrum
landshlutum. Steinunum safnaði hún í bakpoka og gjarn-
an voru börnin hennar, barnabörn og vinir með í för.
Hún safnaði ýmsu öðru, s.s. pennum og lyklakippum.
Hún hafði einnig mikinn áhuga á fótbolta og fór á lands-
leiki ef færi gafst.
Petra Sveinsdóttir steinasafnari
Petra Sveinsdóttir í steinagarði sínum ásamt Ólafi Ragn-
ari Grímssyni, forseta Íslands, og Dorrit Moussaief.
Andlát
Látin er í Kaupmanna-
höfn systir Elísabeth,
96 ára að aldri. Hún
var ein Jósefssystra og
starfaði á St. Jósefs-
spítala í Landakoti frá
1945 til 1977. Þegar
systurnar seldu ríki og
borg spítalann árið
1977 flutti hún ásamt
öðrum Jósefssystrum í
systraheimilið í Garða-
bæ. Þar var hún til
1998 þegar flestar syst-
urnar fluttu á hvíldar-
heimili Jósefssystra í
Kaupmannahöfn. Hún
starfaði lengst af í eldhúsi og bakaríi
systranna og á efri árum fékkst hún
mikið við hannyrðir.
Systir Elísabeth var fædd 10.
febrúar 1915 í þorpi
nálægt Bozen í Suður-
Týrol. Hún gekk í
reglu St. Jósefssystra í
Kaupmannahöfn árið
1939 og vann reglu-
heitin 1945. Skömmu
eftir það hélt hún til Ís-
lands og var hér á landi
í 53 ár. Fyrir nokkrum
árum greindist hún
með æxli í maga og var
ekki unnt að fjarlægja
það með uppskurði.
Henni hrakaði mjög
upp úr miðjum desem-
ber sl. og hún lést síð-
degis hinn 21. desember. Jarðarför
hennar fór fram frá Immaculata-
kirkjunni í Kaupmannahöfn 29. des-
ember síðastliðinn.
Andlát
Systir Elísabeth
Skopmyndateiknarinn Sigmúnd Jó-
hannsson var í gær valinn Eyjamað-
ur ársins 2011 hjá vikublaðinu Frétt-
um. Sigmúnd, sem teiknaði
skopmyndir í Morgunblaðið um ára-
tugaskeið, fékk Fréttapýramídann
fyrir frumkvöðulsstarf í öryggismál-
um sjómanna auk þess að vera sam-
viska þjóðarinnar í gegnum teikn-
ingar sínar.
Fleiri voru verðlaunaðir og valdi
ritstjórn Frétta Margéti Láru Við-
arsdóttur íþróttamann ársins. Fyrir-
tæki ársins í Vestmannaeyjum er
Grímur kokkur og verðlaun fyrir
framlag til menningarmála í Vest-
mannaeyjum árið 2011 hlaut Kristín
Jóhannsdóttir, menningar- og mark-
aðsstjóri Vestmannaeyjabæjar, fyrir
að hafa ýtt Safnanótt úr vör.
Auk þess fengu skipstjórar og
áhöfn á Herjólfi og starfsmenn Flug-
félagsins Ernis blómvendi fyrir óeig-
ingjarnt starf í samgöngumálum síð-
asta ár.
Sigmúnd varð 80 ára á síðasta ári,
en hann er fæddur í Noregi 1931.
Kom til Íslands þriggja ára en faðir
hans var íslenskur og móðirin norsk.
Eiginkona Sigmúnds er Helga Ólafs-
dóttir og eiga þau tvo syni. Fyrir átti
Sigmúnd einn son.
Fyrsta skopteikning Sigmúnds
birist í Morgunblaðinu 25. febrúar
árið 1964 og tengdist fyrstu land-
göngu í Surtsey. Í Heimaeyjargosinu
árið 1973 varð Sigmúnd fastráðinn
við Morgunblaðið og teiknaði skop-
teikningar í blaðið allt til ársins
2008. Á vefnum sigmund.is getur að
líta teikningar hans sem birtust á
síðum Morgunblaðsins.
Sigmúnd er menntaður vélstjóri,
hefur hannað fiskvinnsluvélar og
fann m.a. upp sjálfvirkan sleppibún-
að gúmmíbjörgunarbáta.
Sigmúnd Eyja-
maður ársins
Verðlaunaður af blaðinu Fréttum
Ljósmynd/Eyjafréttir
Eyjar Sigmúnd með verðlaunin
ásamt Helgu Ólafsdóttur.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
Rýmum fyrir nýjum vörum.
Yfir 40 tegundir af flísum.
Mikil verðlækkun,
verð frá kr. 900 pr m2.
Einnig útlitsgallaðar vörur
á niðursettu verði!
Rýmingarsala
á flísum og fleiru
Gott verð fyrir alla
alltaf – í 10 ár