Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 „Lifandi gyðja“, Kumari, tekur hér þátt í trúarhátíð í Katmandú, höfuðborg Nepals. Hefð er fyrir því í Kat- mandú-dal að velja Kumari-gyðju úr röðum ungra stúlkna. Kumari þýðir „hrein mey“ og stúlkan sem verður fyrir valinu er álitin holdtekja gyðjunnar Taleju þar til hún byrjar að hafa tíðir. Þá er gyðjan talin fara úr líkama stúlkunnar og ný Kumari-gyðja er valin. Gyðjan dvelur í nær algerri einangrun í lítilli höll í Kat- mandú og fær aðeins að fara út á hátíðisdögum þegar hún er höfð til sýnis í vagni sínum á götum Katmandú, með þykkan farða og í skrautbúningi. Kumari-gyðjan er sögð þurfa að vera með „flekk- lausan líkama, bringu eins og ljón og læri eins og hjartardýr“. Þótt stúlka uppfylli þetta skilyrði er ekki víst að hún verði fyrir valinu, því sagt er að hún þurfi að sanna hugrekki sitt með því að dvelja eina nótt í her- bergi með höfðum fórnardýra án þess að gráta. Núverandi Kumari, Matina Shakya, var þriggja ára þegar hún varð fyrir valinu í október 2008 og tók við af ellefu ára gamalli stúlku. Ríkisstjórn maóista, sem tók við völdunum í Nepal eftir að konungdæmið var afnum- ið, heimilaði að haldið yrði í þessa hefð. Reuters Dvelur í nær algerri einangrun í höll í Katmandú Stúlkan álitin holdtekja gyðju Franski kvikmyndaleikarinn Eric Cantona, sem gerði garðinn frægan í fótboltanum með Manchester United, virðist nú ætla að hasla sér völl í stjórnmálunum. Cantona stefnir að því að vera í framboði í forsetakosningunum í Frakklandi í apríl og maí, að sögn franska dag- blaðsins Liberation. Til þess að geta boðið sig fram þarf hann að safna undirskriftum 500 kjörinna fulltrúa á þingi Frakklands og í sveitarstjórnum. Ólíklegt þykir að Cantona fái mikið fylgi verði hann í framboði og sjálfur segir hann að megin- markmiðið sé ekki að fá for- setaembættið, heldur að berjast fyrir málstað „gleymdra fjöl- skyldna“ í Frakklandi. Can- tona kveðst einkum ætla að beita sér fyrir úrbótum í húsnæðis- málum. Cantona í forsetaframboð? Eric Cantona Frakkland Breska stjórnin hefur lagt blessun sína yfir áætlun um nýtt hrað- lestakerfi þrátt fyrir harða and- stöðu umhverfisverndarsamtaka. Áætlað er að lestakerfið kosti jafn- virði 6.300 milljarða króna. Gert er ráð fyrir því að fyrsti áfanginn, milli London og Birmingham, verði tekinn í notkun árið 2026 og kerfið á síðar að ná til borga í norðan- verðu Englandi. Ferðatíminn með lestum milli London og Birm- ingham á að styttast um tæpan helming. Hraðlestakerfi samþykkt Bretland Reuters Umdeilt Hraðlestirnar eiga að fara um þetta svæði. 24 ára kona hefur verið handtekin og ákærð fyrir tilraun til að stela nýfæddu barni á sjúkrahúsi á Nýja- Sjálandi. Konan er sögð hafa blekkt fjölskyldu sína, þóst vera barnshaf- andi og farið á fæðingardeild sjúkrahússins í þeim tilgangi að stela barni. Eiginmaður konunnar hafði ekið henni á sjúkrahúsið í þeirri trú að hún væri að fara þang- að til að fæða barn. Hjúkrunar- fræðingi tókst að stöðva konuna þegar hún reyndi að laumast út úr fæðingardeildinni með tveggja daga gamalt barn. Stjórnendur sjúkrahússins sögðu að öryggis- reglur sjúkrahússins yrðu endur- skoðaðar vegna málsins. Nýja-Sjáland Reyndi að stela kornabarni Fylgstu með Ebbu útbúa einfalda og bragðgóða heilsurétti í MBL sjónvarpi á hverjum miðvikudegi. - heilsuréttir Okkar markmið er að gera betur við ALLA okkar viðskiptavini Þjónusta við heyrnarlausa/heyrnarskerta á að vera til staðar á sem flestum sviðum samfélagsins. Í sérverslun á fagþjón- usta að vera til staðar fyrir alla sem þangað leita. Við hjá Optical Studio, sérverslun með gleraugu, linsur og sjón- mælingar viljum leggja okkar af mörkum á þessu sviði. Heiða Millý Torfadóttir, táknmálstúlkur og starfsmaður hjá Optical Studio Smáralind til margra ára, veitir heyrnar- lausum/heyrnarskertum aðstoð við sjónmælingar, linsumát- anir og kennslu við notkun á linsum. Auk þess veitir hún ráðgjöf við val á umgjörðum og glerjum. Nánari upplýsingar og tímapantanir í sjónmælingar (fyrir heyrnarlausa/heyrnarskerta) hjá Heiðu Millý í síma 695-2619 og í netfangið heidamilly@opticalstudio.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.