Morgunblaðið - 11.01.2012, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 11.01.2012, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 Þegar farið er yfir áramótaræður forseta og forsætisráðherra Ís- lands mátti heyra að þau töluðu um Rúss- land og Kína og norð- urskautið, en lítið var sagt um Evrópusam- bandið. Fjármálaráðherra sagði við þessi tímamót að ekki væri hægt að taka upp erlenda mynt, fyrr en við kæmum aga á eigin fjármálastjórn og eins og þjóðin veit hefur Íslendingum aldrei tekist að hafa aga á ríkisút- gjöldum heldur aðlagað þjóðina að sí- felldum gengisfellingum, þannig að þjóðin gerir upp með jöfnu millibili óráðsíuskuldir ríkisins með eign- arýrnun á bæði fé og fasteignum. Rekstrargrundvöllur fyrirtækja hef- ur enginn verið, nema þeirra sem eru í útflutningsgeiranum. Íslendingar hafa lengi haldið að lé- leg efnahagsstjórn væri sérgrein okkar, en það er löngu liðin tíð. Þegar alþjóðlegu auðhringarnir höfðu að mestu flutt framleiðslu sína til lág- launalanda og hættu að greiða skatta til þjóðríkjanna sem þau voru kennd við voru góð ráð dýr. Stjórn- málamenn lögðust þá í lánavíking til að bæta upp skattamissinn og héldu áfram að gefa út skulda- bréf, sem brjáluðu bank- arnir keyptu, þar til bankakreppan hófst 2008. Þá uppgötvaðist að skuldir landa hvíta mannsins voru löngu orðnar ósjálfbærar. Lít- ið var aðhafst í fyrstu, en beðið eftir því að ósýni- lega höndin myndi laga ástandið, en nú er svo komið að Evrópusam- bandið veit ekki hvort það er að koma eða fara. Það eina sem hægt er að gera er að prenta meiri peninga fyrir bankana og fá síðan sömu banka til að kaupa rík- isskuldabréf. Auðlindir eru engar og vonleysið hefur tekið við. Frægustu hagspámenn segja að það taki 15-20 ár fyrir Evrópusambandið að jafna sig, en bæta við, að eftir þann tíma muni hagvöxtur í Suðaustur-Asíu hafa aukist um 20% , þannig að erfiðara verði að koma sér á legg fyrir þjóðir sem eru 350 milljónir manna, en ráða yfir minna landsvæði en Grænland. Þegar talað er um útþenslu ríkis- bákna í ofangreindum löndum má ekki tala um einn veigamesta þáttinn, en oft er loforðalista stjórnmála- manna kennt um. Best er að skíra þennan leyniþátt með aðstæðum í Sádi-Arabíu. Þar er fjölkvæni og eignast konungborið fólk mörg afkvæmi, nú er svo komið að um 5000 prinsar eru í Sádi-Arabíu, sem allir eru settir á olíuspenann. Al- menningur fær aðeins til nauðþurfta, herinn fær þó meira því hann stendur vörð um þjóðskipulagið. Embættismenn og aðrir háttsettir ríkisstarfsmenn eignast líka litla prinsa og prinsessur sem þarf að koma fyrir í kerfinu og helst í Bruss- el, því þar eru forréttindin. Þetta er að vísu miklu hægari þróun en í Ar- abíunni, en þó komið yfir þolmörk og nú þegar verið er að skera niður eru það fyrst og fremst ófaglærðir sem missa vinnuna. Við Íslendingar þurfum að endur- skoða okkar heimssýn og hætta að elta Evrópusambandið, villuljós Sam- fylkingarinnar, því það er margt sem er að breytast í nágrenni við okkur. Bretar neituðu síðustu úrræðum Evrópusambandsins, sem hefur vissa þýðingu. Bretar eru í góðu sambandi við gamla samveldið, Kanada, Ástr- alía o.fl. og fjármála-kerfið í London er vel tengt í Singapúr og Hong Kong. Skoskir þjóðernissinnar vilja fá fullt sjálfstæði og stefnir í að svo verði í fyllingu tímans. Grænland stefnir að fullu sjálfstæði, þegar færi gefst og heinar miklu auðlindir þess fara að skaffa tekjur. Þegar sendinefnd frá Evrópusambandinu kom til Græn- lands og léði máls á því að Grænland kæmi aftur í Evrópusambandið, svör- uðu Grænlendingar því að þeir væru ekki fleiri en 54.000 og það væri ekki nægur mannskapur til að fást við skrifræðið. Noregur er EEA-land eins og við, Svíar og Danir hafa ekki tekið upp evruna og eru hræddir um að þurfa að taka þátt í óraunhæfri björgun evr- unnar. Mín hugmynd er sú að við Íslend- ingar byrjum að beita okkur fyrir nýju ríkjasambandi á gömlu EFTA- nótunum, Norðurlönd, England, Grænland og Kanada. Allar þessar þjóðir eru staðsettar við Norður-Atlantshaf og gætu tekið þátt í þeirri þróun sem verður vegna loftslagsbreytinga. Allar þessar þjóðir hafa góðan hag-grunn til að byggja á og eru gamlar samstarfsþjóðir. Ég tel einn mann hæfari öðrum til að leiða þessa þróun, en það er hr. Ólafur Ragnar Grímsson, þá er hann verður fyrrverandi forseti Íslands. Ný veraldarskipan Eftir Elías Krist- jánsson »Mín hugmynd er sú að við Íslendingar byrjum að beita okkur fyrir nýju ríkjasam- bandi á gömlu EFTA- nótunum, Norðurlönd, England, Grænland og Kanada. Elías Kristjánsson Höfundur er forstjóri. Fjöldi heimila á Ís- landi hefur vonlausa skuldastöðu vegna stökkbreytinga á verð- tryggðum húsnæð- islánum sem bundin eru vísitölu neyslu- verðs. Þá er ég ekki að tala um þá sem skuld- settu sig langt umfram greiðslugetu – stjórn- völd og fjármálastofn- anir bjuggu til leið til að bjarga þeim enda fyrirfram séð að kröfurnar væru tapaðar. Hér er sjónum beint að þeim sem keyptu húsnæði 2006-2008, fóru varlega og lögðu fram umtalsverðan eigin sparnað við kaupin, hafa staðið í skil- um með greiðslur af láni en tíma- spursmál hve lengi það gengur. Vegna gífurlegrar þenslu vísitölu neysluverðs til verðtryggingar lána á síðustu fjórum árum hefur ráð- deildarsamt fólk tapað milljónum króna og mánaðarlegar afborganir lána hækkað gífurlega. Undirrituð er í hópi þeirra sem sitja við þetta borð. Það er réttmæt krafa að færa niður höfuðstól verðtryggðra hús- næðislána og breyta forsendum verðtryggingar vegna forsendu- brests. Kynda stjórnvöld undir vanda heimilanna? Af yfirlýsingum Jóhönnu Sigurð- ardóttur, forsætisráðherra, má ráða að ríkisstjórnin ætlar ekki að bregð- ast við vanda heimilanna með raun- hæfum lausnum vegna stórfelldra hækkana vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Verðbólgubálið er nánast handstýrt með aðgerðum og aðgerðaleysi núverandi ríkisstjórnar sem hefur kynt undir vísitölu neysluverðs með stórfelldum hækk- unum á vörum og þjón- ustu hins opinbera ásamt stóraukinni skatttekju. Slíkt er á allra vitorði. Í svari efnahags- og við- skiptaráðherra við fyr- irspurn Margrétar Tryggvadóttur, alþing- ismanns, kemur fram að áhrif skattahækk- ana og annarra auk- inna álaga af hálfu ríkisins sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs, frá febr- úar 2009 til október 2010, hafi hækk- að verðtryggð fasteignalán heim- ilanna um 15,6 milljarða króna. Af fréttum má ráða að stjórnvöld halda áfram uppteknum hætti og kynda undir verðtryggingu – afleið- ingarnar brenna á heimilunum í landinu. Við slíkt verður ekki unað. Á hvaða stoðum er verðtrygging húsnæðislána reist? Hagsmunasamtök heimilanna sendu kvörtun til umboðsmanns Al- þingis og umboðsmaður krafði seðla- bankastjóra skýringa á reglum sem heimila verðtryggingu á höfuðstól lána. Í svari Seðlabankans er vísað til löggjafar (nr. 38/2001) þar er áskilið að greiðslurnar skuli verð- bæta. Hins vegar er vísað í reglur Seðlabankans (nr. 492/2001) sem kveða á um verðbættan höfuðstól lána, hvort tveggja samkvæmt vísi- tölu neysluverðs, efnislega leiði sama niðurstaða af báðum þessum reglum. Hagsmunasamtök heim- ilanna hafa bent á að efnislegur munur sé á þessum reiknisaðferð- unum, og það að bæta verðbótunum við höfuðstólinn og veita þar með viðbótarlán og uppreikna höfuðstól- inn mánaðarlega hafi ekki lagastoð. Niðurstaða umboðsmanns liggur ekki fyrir. Að binda verðbætur húsnæðislána við vísitölu neysluverðs er full- komlega órökrétt. Ljóst er að end- urskilgreina þarf forsendur verð- tryggingar og binda við raunhæf viðmið – með lagasetningu. Íbúðalánasjóður fer með stærstan hluta húsnæðislána Af greiðsluseðlum Íbúðalána- sjóðs, jafngreiðslulán, leggur sjóð- urinn fullar verðbætur á mán- aðarlegar afborganir og vexti sem staðgreitt er mánaðarlega. Jafn- framt bætir Íbúðalánasjóður verð- bótum við höfuðstól lánsins og upp- reiknar mánaðarlega. Höfuðstóllinn á húsnæðisláni mínu hækkaði um eina milljón króna árið 2011. Þá hafa mánaðarlegar afborganir hækkað um 37% vegna verðbóta á afborganir og vexti á síðustu fjórum árum, þ.e. viðbót sem nemur í dag á fjórða tug þúsunda á mánuði. Á sama tíma hef- ur höfuðstóllinn, þ.e. skuld mín við Íbúðalánasjóð hækkað um fleiri milljónir vegna hækkana vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Hin hliðin á þessu dæmi er sú að mitt eigið fé sem nam 35% af kaupverði íbúðar hefur nánast brunnið upp – eða með öðrum orðum, eign mín hef- ur verið gerð upptæk og millifærð á efnahagsreikning Íbúðalánasjóðs. Fjöldi heimila er í sömu stöðu. Hvað er til ráða? Ríkisstjórnin hefur ekki verið reiðubúin til að grípa til aðgerða og færa niður höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána og taka upp önnur raunhæf viðmið. Þar á bæ virðast aðrir hagsmunir en heimilanna vera í fyrirrúmi. Framkvæmd verðtrygg- ingar snýst um klára eignaupptöku – í þágu hvers? Hagsmunasamtök heimilanna hafa haldið uppi málefnalegri um- ræðu og baráttu. Í viðræðum við rík- isstjórnina árið 2010 lögðu samtökin fram tillögu til að bæta stöðu heimila með verðtryggð lán, þ.e. að verð- bótaþáttur verðtryggðra lána yrði lækkaður og miðað við janúar 2008, og takmarkist við efri mörk verð- bólgumarkmiðs Seðlabankans, að hámarki 4% á ári. Þessu hafnaði rík- isstjórnin en gekk að kröfum fjár- málafyritækja. Þessi krafa er ennþá til staðar í áskorun Hagsmuna- samtaka heimilanna sem liggur frammi og hátt í 38.000 manns hafa skrifað undir. Í nafni almanna- hagsmuna er krafist almennra og réttlátra leiðréttinga á stökk- breyttum lánum heimilanna (www.undirskrift.heimilin.is). Und- irrituð hvetur alla sem vilja breyta óviðunandi ástandi að skrifa undir þessa áskorun. Það hefur sýnt sig að röngum ákvörðunum stjórnvalda má hnekkja með samtakamætti og bar- áttu fólksins í landinu. Grípa þarf til raunhæfra aðgerða Eftir Hörpu Njáls » Stjórnvöld halda áfram uppteknum hætti og kynda undir verðtryggingu – afleið- ingarnar brenna á heim- ilunum í landinu. Við slíkt verður ekki unað. Harpa Njáls Höfundur er félagsfræðingur og fé- lagi í Hagsmunasamtökum heim- ilanna. Fyrir Alþingi liggur tillaga frá Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, um að Alþingi dragi til baka ákæru sína á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra. Það er með ólíkindum og reyndar illskiljanlegt hvað sumir menn láta hafa sig í að gera á (hinu háa) Al- þingi. Að fella niður ákæru á hendur valda- mesta manni þjóðarinnar, sem með vítaverðu andvaraleysi, kæruleysi, fram- kvæmdaleysi og jafnvel heimsku veldur stórum hluta þjóð- arinnar stórkostlegu tjóni er hneyksli og þeim aðilum til skamm- ar, sem að slíkri tillögu standa. Ég ætla með rökum og stað- reyndum að staðfesta þessa fullyrð- ingu mína. Í lögum um ráðherraábyrgð frá 1963 segir meðal annars eftirfar- andi: Í 1. gr. segir: Ráðherra ber ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum eftir því sem fyrir er mælt í stjórnarskrá og lögum þessum. Ákvæði almennra hegningarlaga um brot í opinberu starfi ná einnig til ráðherra eftir því sem við á. Í 2. gr, segir: Ráðherra má krefja ábyrgðar samkvæmt því sem fyrir er mælt í lögum þessum fyrir sér- hvert starf eða vanrækt starfa er hann hefur orðið sekur um ef málið er svo vaxið að hann af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi hefur farið í bága við stjórnarskrá lýð- veldisins önnur landslög eða að öðru leyti stofnað hagsmunum rík- isins í fyrirsjáanlega hættu Í 13. gr. segir: Hafi ráðherra bakað almenningi eða einstaklingi fjártjón með framkvæmd eða van- rækslu, o.s.fv. Þetta er aðeins hluti úr lögum um ráðherraábyrgð en í þeim eru skýlaus ákvæði um ábyrgð ráð- herra á gjörðum sínum. Að sjálfsögðu, eftir að Alþingi samþykkti að stefna æðstu emb- ættismönnum framkvæmdavalds- ins fyrir landsdóm, átti að ákæra alla ráðherrana í ríkisstjórn Geirs fyrir afglöp í starfi, en þó fyrst og fremst þá er þingnefndin nefndi og þar var Geir fremstur í flokki. Í 65 gr. Stjórnarskrár Íslands segir að allir séu jafnir fyrir lögum og njóti mannréttinda án tillits til trúarbragða, kynferðis, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, lit- arháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Svo til allir sem fara með manna- forráð í fyrirtækjum eða stofnunum bera ábyrgð á gjörðum sínum gagnvart þriðja aðila, einnig iðn- meistarar, skipstjórar, flugstjórar og jafnvel óþroskaður unglingur, 17 ára bílstjóri, sem af andvaraleysi og kæruleysi veldur fjártjóni eða manntjóni. Fyrir slíkt ábyrgð- arleysi í athöfnum eru menn ákærðir og dæmdir. Ef æðstu og valdamestu menn þjóðarinnar sæta engri ábyrgð fyr- ir þau afglöp í starfi, sem koma heilli þjóð í stórkostlegan vanda, hundruðum manna og kvenna fjár- tjóni svo skiptir milljörðum, fólks- flótta frá landinu og jafnvel mann- tjóni, þá er það svívirðing við réttlætisvitund þjóðarinnar. Þjóð- inni verður svo misboðið að fyr- irlitning hennar á pólitík verður al- ger. Alþingismenn eru ekki hátt skrif- aðir. Láti þeir það henda sig að meta meira flokkspólitíska sér- hagsmuni og brjóta þannig lög, sem þeir sjálfir hafa samið, þá er fokið í flest skjól hjá þessari þjóð. HAFSTEINN SIGURBJÖRNSSON, eldri borgari. Ábyrgðir Frá Hafsteini Sigurbjörnssyni Hafsteinn Sig- urbjörnsson Bréf til blaðsins Jólamót á Reyðarfirði Jólamót Bridgesambands Aust- urlands var haldið 30. desember 2011 á Reyðarfirði. Að þessu sinni tóku 16 pör þátt í mótinu. Efstu pör: Guttormur Kristmss. - Magnús Ásgrss. 53 Pálmi Kristmannss. - Þorsteinn Bergss. 46 Óttar Ámannsson - Skúli Sveinss. 28 Bridsdeild Félags eldri borg- ara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, mánudaginn 9. janúar. Spilað var á 13 borðum. Meðalskor: 312 stig. Árangur N-S: Axel Láruss. - Bergur Ingimundars. 404 Auðunn Guðmss. - Björn Árnason 367 Örn Ísebarn - Ragnar Björnsson 367 Árangur A-V: Bjarnar Ingimars - Albert Þorsteinss. 380 Oddur Jónsson - Óskar Ólafsson 369 Magnús Jónsson - Gunnar Jónsson 342 Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Sunnudaginn 8/1 var spilaður eins kvölds tvímenningur. Úrslit urðu þessi í Norður/Suður: Hulda Hjálmarsd. - Unnar A. Guðms. 213 Þorleifur Þórarins. - Haraldur Sverris.188 Oddur Hanness. - Árni Hannesson 188 Austur/Vestur: Berglj. Aðalstd.- Björgvin Kjartans. 202 Garðar Jónss. - Sigurjón Guðms. 197 Svanh. Gunnarsd.- Magnús Láruss. 187 Næsta sunnudag verður spilað- ur eins kvölds tvímenningur. Síðan hefst fimm kvölda tvímennings- keppni. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum klukk- an 19. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.