Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 Sherlock Holmes í útgáfu Guy Ritchies er svo langt frá þeirri per- sónu sem Arthur Conan Doyle skapaði að ástæða er til að velta fyrir sér hversvegna í ósköpunum karakterinn er bendlaður við hann. En kannski er nafnið á hetju Doyle söluvara enda er persóna hans samkvæmt International Movie Data Base (IMDB) vinsælasta skáldaða persóna bíómynda í sög- unni með 224 bíómyndir fram- leiddar um sig. Í meðförum Guy Ritchie er Hol- mes bardagasnillingur sem lúskrar á beljökum og hópum illmenna. Meira í ætt við James Bond 19. aldarinnar. Það gerir glímurnar mjög frábrugðnar þeim sem les- endur þekkja úr bókum Doyle þar sem hinn gáfaði Holmes glímir vitsmunalega við prófessor Mori- arty. Í bókunum fer ansi lítið fyrir kung-fu hæfileikum þess barda- gaglaða Holmes sem er í þessari bíómynd. Það gerir myndina ekk- ert verri en hún er byggð á sömu formúlu og Bond myndirnar, bara sett í 150 ára gamlan búning. Það er samt alltaf svolítið undarlegt að láta 21. aldar karaktera með 21. aldar húmor, lífssýn og skoðanir leika í búningum frá 19. öld en það venst. Þetta er önnur myndin í þessum flokki og er þetta hressileg form- úlumynd með skemmtilegum trikk- um og sjónrænum leikjum. Robert Downey Jr. og Jude Law fara ágætlega með sín hlutverk, sem Holmes og Watson þótt þeir gætu alveg eins heitið 007 og 008. Myndin byrjar á dularfullum hryðjuverkaárásum í Frakklandi og Þýskalandi sem stjórnleysingjum er kennt um. En í raun er það hinn gáfaði en illi Moriarty sem stendur að baki þeim. Hann er búinn að eignast stóran hlut í vopnafram- leiðslufyrirtækjum og er að hjálpa þessum þjóðum til að fara í stríð við hvor aðra. Enda er það ljóst að þær munu hvort eð er fara í stríð fyrr eða seinna og allt í lagi að hjálpa þeim til þess að gera það þegar fyrirtæki Moriarty hentar það. Þessa hjálpsemi Moriartys skilur Holmes sem illmennsku og eig- ingirni og setur líf sitt og vina sinna í hættu við að afstýra því að áform hans nái fram að ganga. Fyrir utan tvö aðalhlutverk karl- anna þá er illmennið Moriarty þokkalega stórt hlutverk sem Ja- red Harris fer ágætlega með. Hin töfrandi leikkona Rachel McAdams passar kannski ekki al- veg í hlutverk sitt sem er bless- unarlega frekar lítið og innkoma Noomi Rapace í myndinni nær ekki heldur að draga hana upp í ein- hvern annan gæðaflokk en sem fína formúlumynd sem er alveg hægt að horfa á og njóta ef menn vita hvað þeir eru að kaupa sig inn á. bbbnn Leikstjóri Guy Ritchie Leikarar: Robert Downey, Jude Law, Þríeykið Sherlock Holmes og Watson með dúndurkvendið Noomi Rapace í hlutverki sígaunakonunnar Sim. KVIKMYNDIR BÖRKUR GUNNARSSON Fín formúlumynd um Holmes Rætt hefur verið um sjónvarps- þætti, byggða á Star Wars- myndunum, í nokkur ár en lítt hef- ur þokast vegna fjármagnsskorts. Þættirnir eru hins vegar komnir með titill, Star Wars: Underworld, að sögn framleiðandans, Ricks McCallums. Sögusvið þáttanna er á milli kafla III og IV, það er mynd- anna Revenge of the Sith og A New Hope og verður fylgst með upp- vaxtarárum Loga Geimgengils. McCallum segist þurfa fimm milljónir dala á hvern þátt eigi þetta að ganga upp; segist spenna greipar næstu misserin. „Þetta mun hafast. Vonandi lifi ég nógu lengi til að sjá þetta.“ Ungur Logi veltir örlögum alheimsins fyrir sér á heimaplánetunni, Tatooine. Star Wars-sjónvarpsþættir? Útsendarar kvikmyndaritsins Emp- ire gripu leikarann Tom Hiddleston glóðvolgan á frumsýningu mynd- arinnar War Horse á dögunum og spurðu hann út í framhaldið á Thor, ofurmennamyndinni sem Kenneth Branagh leikstýrði. Hiddleston leikur Loka í fyrri myndinni og gat hann staðfest að tökur færu í gang í London í sumar og leikstjóri yrði Alan Taylor, sem er þekktur fyrir að hafa leikstýrt sjónvarpsþáttum á borð við The Sopranos og Lost. Illur Tom Hiddleston sem Loki. Loki ræðir um framhaldið á Thor SHERLOCK HOLMES 2 kl. 5:20 - 8 - 10 - 10:40 - 10:50 2D 12 SHERLOCK HOLMES 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D VIP NEW YEAR´S EVE kl. 5:50 - 8 - 8:20 - 10:30 2D L MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 5:20 - 8 - 10:50 2D 12 FJÖRFISKARNIR Ísl. tal kl. 5:50 2D L HAROLD & KUMAR Með texta kl. 8 2D 16 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 3D L / ÁLFABAKKA SHERLOCK HOLMES 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D 12 MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 8 - 9:30 - 10:45 2D 12 NEW YEAR´S EVE kl. 8 - 10:30 2D L FJÖRFISKARNIR Ísl. tal kl. 5:30 2D L STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 2D L HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 7:20 3D 16 HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 5:10 2D L / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK / AKUREYRI / SELFOSSI SHERLOCK HOLMES 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D 12 MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 8 - 10:40 2D 12 NEW YEAR´S EVE kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D L FJÖRFISKARNIR Ísl. tal kl. 5:50 2D L SHERLOCK HOLMES 2 kl. 8 - 10:30 2D 12 MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 10:30 2D 12 NEW YEAR´S EVE kl. 8 2D L SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK NÆSTU SÝNINGAR Á FÖSTUDAG 100/100 -ENTERTAINMENT WEEKLY -THE HOLLYWOOD REPORTER HHHH TOM CRUISE, SIMON PEGG, PAULA PATTON OG JEREMY RENNER Í BESTU HASARMYND ÁRSINS! H.V.A. - FBL HHHH "FLOTTUR HASAR." H.S.S. - MBL HHH HHHH „STÆRRI, BETRI OG FYNDNARI.“ - EMPIRE HHHH - KVIKMYNDIR.IS/ SÉÐ OG HEYRT EINSTAKUR LEIKHÓPUR FRÁ LEIKSTJÓRA PRETTY WOMAN OGVALENTINE'S DAY Sarah Jessica PARKER Jessica BIEL Ashton KUTCHER Zac EFFRON Michelle PFEIFFER Robert DE NIRO Halle BERRY Sofia VERGARA Katherine HEIGL Josh DUHAMEL Hilary SWANK Jon BON JOVI Abigail BRESLIN Chris "Ludacris" BRIDGES Hector ELIZONDO Seth MEYERS Lea MICHELE Til SCHWEIGER SHERLOCK HOLMES 2 kl. 8 - 10:40 2D 12 MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 8 - 10:50 2D 12 SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI Pure Ebba - heilsuréttir Ebba Guðný sýnir þér hvernig hægt er að matreiða hollan og góðan mat með lítilli fyrirhöfn. Fylgstu með í MBL sjónvarpi alla miðvikudaga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.