Morgunblaðið - 11.01.2012, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 11. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. „Erfiðast að segja 5 ára dóttur…“
2. Kate Middleton felldi tár
3. Fanney stendur í fæturna
4. Þung færð á höfuðborgarsvæðinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Dagana 27. janúar til 9. febrúar
stendur Græna ljósið ásamt öðrum
að Franskri kvikmyndahátíð í Há-
skólabíói. Að venju verða sýndar tíu
úrvalsmyndir og ber þar helst að
nefna opnunarmyndina, The Artist.
Frönsk kvik-
myndahátíð
Þýski house/
techno-
stuðboltinn Joac-
him Spieth spilar
á Faktorý á laug-
ardaginn. Spieth
rekur útgáfuna
Affin sem nýtur
mikillar virðingar
innan alþjóðlegu
danstónlistarsenunnar og hefur veg-
ur hennar vaxið hratt frá stofnun árið
2008. Einnig leika þeir Sean Danke
(Grétar G.) og Exos.
Joachim Spieth
spilar á Faktorý
Ný EP-plata með Mike Pollock eða
Michael Dean Odin Pollock & Sigga
Sig. er komin út á tonlist.is og gogo-
yoko. Hún er fjögurra
laga og það er
Synthadelia Re-
cords sem gefur út.
Innihaldið er blús-
kennt mjög en Pol-
lock gerði garð-
inn frægan með
Utangarðs-
mönnum á
sínum tíma.
Mike Pollock og Siggi
Sig. með plötu
Á fimmtudag Hæg vestlæg eða breytileg átt og bjart að mestu.
Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
Á föstudag Sunnan 10-18 m/s og rigning eða súld. Hlýnandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 8-15 á NA-horninu, annars frem-
ur hæg vestlæg átt. Dálítil él með N- og V- ströndinni, annars bjart
á köflum. Frost 0 til 8 stig.
VEÐUR
Björninn og Skautafélag
Reykjavíkur áttust við á Ís-
landsmótinu í íshokkí karla
í Egilshöllinni í gærkvöld.
Leikmenn Skautafélags
Reykjavíkur fögnuðu sigri,
7:4, en þeir höfðu und-
irtökin þrátt fyrir að Björn-
inn hefði skorað fyrsta
mark leiksins. Björninn, SR
og SA Víkingar eru í mikilli
baráttu um að komast í úr-
slitarimmuna um titilinn.
»2
Skautafélagið
fagnaði sigri
Guðjón Valur Sigurðsson þarf að fá
að pústa en vill ekki fara út af. Róbert
Gunnarsson skorar mörk sem virka
niðurdrepandi á andstæðinginn. Kári
Kristján Kristjánsson og Vignir Svav-
arsson hafa bætt sig heil-
mikið. Atli Hilmarsson fer yf-
ir kosti og galla
landsliðsmannanna fjögurra.
»3
Þarf að fá að pústa en
vill ekki fara út af
Tinna Jóhannsdóttir, kylfingur úr
Keili, stendur mjög vel að vígi fyrir
lokahringinn á úrtökumótinu fyrir
Evrópumótaröðina á La Manga á
Spáni. Tinna er í 5. sæti af 102 kepp-
endum á La Manga en um 35 kylf-
ingar komast áfram í lokaúrtöku-
mótið sem hefst 15. janúar. Tinna
hækkaði sig um þrjú sæti með góðri
spilamennsku í gær. »1
Tinna stendur vel að
vígi á La Manga
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við höldum okkar striki með allt.
Kjötsúpan var tilbúin klukkan hálf-
sex eða sex í morgun og við erum
tilbúin í útkall til að dæla olíu á snjó-
ruðningstækin, eins lengi og við kom-
umst uppeftir,“ segir Stefán Þormar
Guðmundsson, veitingamaður í Litlu
kaffistofunni við Suðurlandsveg.
Þótt Hellisheiði hafi verið lokuð frá
því í fyrrakvöld var opið í Litlu kaffi-
stofunni, eins og flesta daga ársins.
Ekki voru viðskiptin þó mikil, eins og
nærri má geta. „Þetta eru okkar
daufustu dagar, viðskiptin eru heldur
bágborin. Við getum þó aflað upplýs-
inga og miðlað þeim til viðskiptavina
og þeirra sem þó eru á ferðinni,“ seg-
ir Stefán.
Hafa verkefni að vinna
Þótt slæmt veður hafi verið um allt
land í gær og flestir vegir ófærir
vegna snjóa eða blindu var lítið um
útköll hjá björgunarsveitunum.
„Ég fer að halla mér núna, það er
ekkert annað að gera í stöðunni, en
býst við að taka við vaktinni aftur eft-
ir átta tíma,“ sagði Bjarni Gunnar Jó-
hannsson, félagi í björgunarsveitinni
Björg á Eyrarbakka, í gærmorgun.
Hann stóð með félaga sínum vaktina
í fyrrinótt við Þrengslavegamót og
Litlu kaffistofuna. Báðir eru þeir at-
vinnulausir og finnst gott að nota
tímann í eitthvað gagnlegt. „Maður
hefur þá verkefni til að sinna og er
ekki sofandi allan sólarhringinn,“
segir Bjarni.
Full vinna við ráðleggingar
Um kvöldið þurftu þeir að aðstoða
ökumenn með því að draga upp bíla
eða gefa start. Hellisheiðinni var lok-
að en umferðinni austur fyrir fjall
beint um Þrengslaveg og reynt að
halda honum opnum.
Nokkrir ökumenn töldu sig vera
það vel útbúnir að þeir gætu farið
Hellisheiðina en Bjarni segir að það
hafi verið misskilningur. Ekkert vit
hafi verið í því að hleypa mönnum yf-
ir. Segir hann að þeir hafi tekið því
vel. Þá var talsvert um útlendinga
sem ekki áttuðu sig á aðstæðum og
töldu sig geta farið austur að Gull-
fossi og Geysi eða í Mýrdal. „Það var
full vinna að ráðleggja ökumönnum,“
segir Bjarni.
Kjötsúpa löguð alla daga
Lítið að gera í Litlu kaffistofunni
þegar Hellisheiðin er lokuð
Morgunblaðið/Golli
Óveður Björgunarsveitarmenn frá Eyrarbakka stóðu vaktina við Þrengslavegamót og beindu umferðinni um Þrengslin enda Hellisheiðin ófær.
Margir útlendingar eru á ferð-
inni í vetur. Þeir reyna alla daga
við Hellisheiðina.
Stefán Þormar í Litlu kaffi-
stofunni segir að japönskum
ferðamönnum hafi brugðið
verulega þegar þeir óku inn í lít-
inn skafl við Litlu kaffistofuna í
gærmorgun og festu sig. „Þeir
urðu skelkaðir, greyin. Við sner-
um þeim til Reykjavíkur, sögð-
um að best væri fyrir þá að
verja deginum í höfuðborginni.“
Urðu skelk-
aðir, greyin
ÚTLENDINGAR Á FERÐINNI