Morgunblaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Síðustu dagahafa komið fram tvær skýrslur um Vaðlaheiðargöng og eru að ýmsu leyti ólíkar. Sam- kvæmt annarri skýrslunni munu veggjöld ekki geta stað- ið undir kostnaði við gerð ganganna auk þess sem líklegt sé að göngin verði mun dýrari en áætlanir geri ráð fyrir. Hin skýrslan, sú sem fyrrverandi fjármálaráðherra pantaði, er ekki eins neikvæð. Þar kemur engu að síður fram að fjár- hagsleg áhætta sé mikil og að nokkrar líkur séu á að ganga- gerðin mundi ekki standa und- ir sér, en forsenda innanríkis- ráðherra fyrir því að hleypa framkvæmdinni af stað er ein- mitt að göngin standi undir sér án stuðnings ríkisins. Þetta er vitaskuld allt sam- an athyglisvert fyrir áhuga- menn um Vaðlaheiðargöng, sem vissulega yrðu mikil sam- göngubót fyrir Norðaustur- land, og einnig fyrir áhuga- menn um aðhald í ríkisfjármálum. Fyrir áhuga- menn um opna og gagnsæja stjórn- sýslu eða vinnu- brögð á Alþingi og í Stjórnarráði eru það þó ekki fyrr- nefndar tvær skýrslur sem mestan áhuga vekja. Það er þriðja skýrslan, sú sem enn hefur ekki verið pöntuð vegna þess að beiðnin um hana situr föst í forsætisnefnd Alþingis að kröfu fyrrverandi fjár- málaráðherra, sem er áhuga- verðust í þessu tilliti. Skýrslan sem umhverfis- og samgöngunefnd vildi að Hag- fræðistofnun Háskóla Íslands yrði fengin til að skrifa en ekki hefur fengist leyfi til að panta er sú sem segir mest um vinnubrögðin hjá ráðamönn- um þjóðarinnar í dag. Í öllu talinu um gagnsæi og fagleg vinnubrögð er ætlunin að kom- ast hjá því að fá skýrslu frá Hagfræðistofnun þrátt fyrir eindreginn vilja þingnefndar. Hvað veldur því að forsætis- nefnd að kröfu fjármálaráð- herra sest á slíka skýrslu- beiðni? Sú skýrsla sem óskrifuð er segir mikla sögu um stjórnarhættina} Þriðja skýrslan Samtök at-vinnulífsinshafa skrifað Jóhönnu Sigurð- ardóttur og frá- beðið sér fleiri lof- orð frá ríkis- stjórninni. Þetta er sennilega í fyrsta sinn í rúmlega aldar sögu Stjórnarráðsins sem slíkt gerist. En það á sínar skýringar eins og fram kem- ur í bréfi samtakanna: „Fjöl- mörg áform ríkisstjórnar- innar hafa ekki náð fram að ganga. Af 36 atriðum sem tal- in eru upp hafa 24 ekki verið efnd, eða í tveimur þriðju til- vika, í sjö atriðum hafa mál gengið eftir eins og um var talað en í fimm atriðum eru mál enn í gangi og gæti hugs- anlega lokið farsællega. Af- drifaríkast er að fjárfestingar í atvinnulífi og opinberar framkvæmdir hafa ekki auk- ist eins og lagt var upp með. Samstarf ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins er af- ar mikilvægt til þess að stuðla að farsælum fram- gangi efnahags- og atvinnu- mála. Því miður hefur ríkis- stjórnin ekki tekið þetta samstarf alvarlega svo sem bæði má merkja af van- efndum á Stöðugleikasátt- málanum frá júní 2009 og yfirlýsingu vegna samning- anna 5. maí sl.“ Sjötíu prósenta svikahlutfall hlýt- ur að vera með því allra hæsta sem þekkist í sam- skiptum svo þýð- ingarmikilla aðila. Það er helst hægt að nálgast hærra svikahlutfall með því að skoða hin einstæðu svik VG við sína flokksmenn og kjósendur í Evrópumálum, en slíka viðmiðun vill enginn hafa. Og sama dag og þetta einstæða afþökkunarbréf lof- orða er sent ríkisstjórninni hefur fjölmennt verkalýðs- félag á Vesturlandi ályktað að ríkisstjórnin ætti að segja af sér hið snarasta. Og svo er komið að jafnharðdrægur fylgisveinn Samfylkingar sem forseti ASÍ treystir sér ekki til að verja svikaferil ríkisstjórnarinnar gagnvart félögum og samtökum innan þess. Hann beinir því athygl- inni að því að tala niður krón- una og halda á lofti þeirri hugmynd að evran sé ennþá eftirsóknarverður kostur, hinn sanni bjargvættur þjóða í efnahagslegum bögglingi. Menn hljóta að þurfa þétta eyrnatappa og myrkvunar- tjöld til að komast algjörlega hjá því að fá fréttir úr evru- landi vilji þeir klappa þennan steininn áfram, úr því sem komið er. Samtökum atvinnu- lífsins þykir sjötíu prósenta svikahlut- fall heldur hátt} Afþakka loforð H ún er ekki geðsleg tilhugsunin um andlitslaust vald sem hefur vit fyrir þegnunum, segir þeim hvað þeim sé fyrir bestu og tal- ar niður til þeirra. Það er nær ómögulegt að ímynda sér að einhver kjósi slíkt vald yfir sig. Samt gerist það stundum. Og þetta vald lét á sér kræla í Reykjavík sunnudag einn fyrir skömmu. Borgarbúar vöknuðu upp við það að komin var gríðarleg hálka og ófærð, þannig að ekki var óhætt að hætta sér út í bíltúr eða í göngu- ferð. Það er á slíkum stundum sem óbreyttir borgarar gera ósjálfrátt ráð fyrir að þau borgaryfirvöld sem þeir hafa kosið til valda bregðist við. En það var helgi og borgaryfir- völd kusu að sofa fram eftir. Þegar fréttastof- um tókst loks að vekja borgaryfirvöld brugð- ust þau illa við að vera vakin af værum blundi. Þeim tókst þó að senda frá sér skriflega yfirlýsingu sem er þess eðlis að maður spyr sig hver sé höfundur þessa hrokafulla samsetnings. Sá sem samdi yfirlýsinguna þjá- ist annaðhvort illilega af valdhroka eða hefur verið í sér- lega erfiðu fýlukasti þennan sunnudag. Allavega lýsir yf- irlýsingin dæmalausu yfirlæti. Skilaboðin voru þau að borgaryfirvöldum hefði ekki þótt skynsamlegt að bregð- ast við mikilli hálku og ófærð – sem er náttúrlega afar sérkennileg skýring. Svo var gefið í og sagt að rétt væri að hafa í huga að það væri helgi. Þess vegna hefði al- menningur lítið að gera og ætti því að geta gefið sér betri tíma til að komast á milli staða og auk þess væri umferðin minni en á virkum dögum. Hvers konar skilaboð eru þetta til borgar- búa? Á þessum degi fór fjöldi manns á slysa- varðstofu, umferð tepptist og borgarbúar áttu margir í stórfelldum vanda. Það skap- aðist hætta á götum Reykjavíkur og borgar- yfirvöld gerðu ekkert til að koma í veg fyrir hana. Þessi sömu borgaryfirvöld tala svo beinlínis niður til borgarbúa og segja að ekki hafi tekið því að gera neitt vegna þess að það var sunnudagur. Þetta er sérkennilegt sam- bland af hroka og leti. Engin stjórnvöld eru svo merkileg að þeim leyfist að sýna kjósendum lítilsvirðingu og dónaskap. Borgarstjórinn, Jón Gnarr, virðist hafa áttað sig á þessu og hefur síðustu daga sýnt vott af iðrun – nokkuð sem er ekki al- gengt að sjá í fari ráðamanna. Vonandi hefur hann áttað sig á því að borgaryfivöld bera ákveðna ábyrgð og hún fellur ekki úr gildi á sunnudögum. Næst þegar kemur að því að borgaryfirvöld þurfa að senda fjölmiðlum skriflega skýringu ættu þau að gæta þess að vera vel vakandi þegar hún er samin, fara vel yfir orðalagið og skoða hvort þar sé farið eftir sjálfsögðum kurteisisreglum. Það er einfaldlega óþolandi þegar ráða- menn tala til fólks eins og þeir séu að tala við illa siðaðan lýð sem sé stöðugt til vandræða og sem alltaf þurfi að hafa vit fyrir. Slíkir ráðamenn eiga helst skilið að missa starfið sem fyrst. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Valdhroki í borginni STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Margir ökumenn á höfuð-borgarsvæðinu hafabrugðist við slæmrifærð undanfarið með því að flýja í öryggi nagladekkjanna. Þau hjólbarðaverkstæði sem Morg- unblaðið hafði samband við í gær hafa öll merkt meiri sölu á nagla- dekkjum en síðustu ár en þróunin hefur verið sú að bíleigendur færi sig í auknum mæli yfir á vetrar- eða heilsársdekk. Sturla Pétursson, eigandi Gúmmívinnslustofunnar í Skipholti, segir nagladekkjasöluna hafa aukist mikið vegna þess hve lengi snjór og hálka hafa legið yfir borginni. „Það var minni sala í haust en eftir að allur þessi snjór og hálka kom hefur hún verið mikil. Það kom líka mikill kippur á milli hátíðanna. Þetta er töluvert meira en síðustu ár. Þetta er búið að vera mjög gott fyrir hjólabarðasala,“ segir hann. Hjá hjólbarðaþjónustunni Sóln- ingu er svipaða sögu að segja að sögn Sigurðar Björnssonar, sölu- stjóra fyrirtækisins. Salan á nagla- dekkjum og nöglum hafi farið hægt af stað í haust en orðið mun meiri en þeir hafi átt von á. Þannig hafi fyrir- tækið fengið þrjár sendingar af nöglum frá því í haust en venjulega hefur það tekið eina sendingu á vetri. „Þetta tíðarfar virðist bjóða vel upp á naglana,“ segir Sigurður. Heilsársdekkin duga ekki „Það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir nagla á blautt svell eins og hefur verið hér út um allt,“ segir Stefán Ásgrímsson, ritstjóri FÍB- blaðsins og -vefjarins. Hann segir félagið fyrst og fremst mæla með góðum vetrardekkjum, helst negld- um, sem eru sérstaklega gerð fyrir vetrarakstur við aðstæður eins og þær sem ríkt hafa á landinu undan- farið. „Nagladekkin eru öryggisbún- aður. Þau veita smágrip þegar skil- yrðin eru verst og það er blautur ís. Að vera á ónegldu í svoleiðis færi uppi á heiði í hliðarvindi, það er bara ekkert sniðugt. Við teljum mannslíf meira virði en malbikið í götunum.“ Stefán segir heilsársdekkin ekki duga því þau séu oft aðeins sumardekk með grófu mynstri. Gúmmíblandan sé harðari en í vetrardekkjum, hún harðni í kulda og verði þá flughál. „Galdurinn við góð vetrardekk er að hafa efni í slitfletinum sem er mjúkt þótt það sé kalt, sem heldur mýktinni og hefur samt þokkalega gott slitþol,“ segir hann. Það séu helst stóru dekkjafram- leiðendurnir sem hafi tekist þetta ágætlega og öruggast sé fyrir bíleig- endur að kaupa þau dekk. Fólk vanrækir ástandsskoðun dekkja Ástand dekkja getur haft áhrif á stöðu þeirra ökumanna sem lenda í óhöppum en Sigrún A. Þorsteins- dóttir, forvarnarfulltrúi hjá VÍS, segir það ekki algengt að tjónþoli fái verri bætur vegna slæmra dekkja. Það sé eitt af því sem sé skoðað í al- varlegum umferðarslysum. Ekki hafi verið mikið af þeim í tíðarfarinu undanfarið en þeim mun meira um smápústra. „Það er nokkuð áber- andi á þeim bílum sem koma í tjónaskoðunar- stöðina okkar hvað margir eru á illa búnum dekkjum, bæði fólksbílar og jeppar. Þetta eru sumardekk, mikið slitin dekk og nagladekk þar sem þarf að leita að nögl- Nagladekkin snúa aftur í hálku og snjó Morgunblaðið/Sigurgeir S. Ófærð Mörgum hefur orðið hált á svellinu undanfarnar vikur og fest bíla sína. Sala á nagladekkjum hefur aukist töluvert með slæmri tíð í vetur. Umferðarslys hafa aukist mjög vegna færðarinnar undanfarna daga og vikur en að sögn Sig- rúnar A. Þorsteinsdóttur, for- varnarfulltrúa hjá VÍS, liggja tölur enn ekki fyrir þar sem það tekur skýrslur einhverja daga að berast tryggingafélög- unum. Dæmi eru um það í hálkunni undanfarið að mannlausir og kyrrstæðir bílar hafi runnið á aðra á bílastæðum. Sigrún segir að í slíkum til- fellum sé tjónið ekki bótaskylt úr ábyrgðartryggingu bílsins þar sem hann sé ekki í notkun. Ef bíllinn sem rennur sé í kaskó taki sú trygging á tjóninu og eig- andi bílsins sem runnið er á þurfi að leita í sína kaskó- tryggingu. Kyrrstæðir bílar á ferð HÁLKUSLYSUM FJÖLGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.