Morgunblaðið - 18.01.2012, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
5 3
6 9
8
1 3
1 4 7
3 6 5 9
3
7 8 9 4
5 8 9 4 7 6
5 7 9 1
7 1 9 2
9 2 6 5
8 4
7
1 4
2 1
6 2 5
4 8 5 7
6
6 9 5
2 4 8
2 6
1
8 9 3 7
1 5
7 6 8 4 3
2 7 6
9 7 3 6 1 5 2 4 8
4 8 5 2 3 7 9 6 1
2 6 1 8 4 9 7 5 3
8 1 4 9 6 2 3 7 5
7 5 2 4 8 3 6 1 9
6 3 9 5 7 1 8 2 4
3 2 7 1 9 4 5 8 6
5 4 6 3 2 8 1 9 7
1 9 8 7 5 6 4 3 2
3 8 1 4 5 6 7 2 9
9 5 7 2 1 8 4 3 6
6 4 2 7 9 3 1 5 8
2 9 8 1 6 7 3 4 5
4 7 6 5 3 2 8 9 1
1 3 5 9 8 4 6 7 2
8 2 9 3 7 1 5 6 4
5 1 3 6 4 9 2 8 7
7 6 4 8 2 5 9 1 3
8 9 1 3 2 5 6 7 4
5 7 6 9 8 4 2 1 3
3 4 2 7 1 6 9 8 5
9 3 7 1 6 8 4 5 2
1 2 5 4 9 7 8 3 6
4 6 8 5 3 2 7 9 1
6 1 3 8 4 9 5 2 7
2 5 9 6 7 3 1 4 8
7 8 4 2 5 1 3 6 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 18. janúar,
18. dagur ársins 2012
Orð dagsins: Og þótt þér elskið þá,
sem yður elska, hvaða þökk eigið þér
fyrir það? Syndarar elska þá líka, sem
þá elska. (Lk. 6, 32.)
Fyrir rúmum hundrað árumspáði bandaríski verkfræðing-
urinn John Elfreth Watkins því að
árið 2000 yrðu til stafrænar mynda-
vélar og hægt yrði að senda ljós-
myndir heimshorna á milli. Sömu-
leiðis yrðu til sjónvörp og sýnt yrði
beint frá atburðum um hnattkúluna
alla. Spá Watkins var rifjuð upp í
liðinni viku og vakti nokkra athygli.
Breska ríkisútvarpið, BBC, notaði
tækifærið og fékk fólk til að segja
fyrir um árið 2112. Hugmyndum
þess var síðan raðað upp eftir því
hve líklegt væri að þær gengju eft-
ir.
x x x
Efst á lista reyndist sú hugmyndað eftir hundrað ár yrðu út-
höfin vettvangur umfangsmikillar
ræktunar, ekki bara á fiski heldur
einnig þörungum, til þess að næra
tíu milljarða manna.
Í öðru sæti var spá um að hægt
yrði að eiga samskipti með hugs-
anaflutningum. Í þriðja sæti var sú
hugmynd að vegna framfara í erfða-
rannsóknum og verkfræði vélmenna
yrði hægt að búa til ótrúlega
greindar mannverur, sem væru
ódauðlegar. Leik lokið, segir í sviga
fyrir aftan þessa hugmynd. Í fjórða
sæti var síðan spá um að maðurinn
yrði búinn að ná stjórn á veðrinu.
Of dýrt yrði að stjórna veðrinu al-
farið, en tæknin yrði notuð til að
koma í veg fyrir tjón, sem hlýst af
ofsaveðri á borð við fellibylji.
x x x
Fleiri hugmyndir náðu inn álistann. Einhver lagði til að
eftir hundrað ár yrði búið að tengja
almenning við tölvur til að láta heil-
ann starfa hraðar. Annar taldi að
aðeins yrðu eftir þrjú tungumál í
heiminum, enska, spænska og
mandarín. Enn annar spáði því að
eftir hundrað ár hefði eyðimörkum
jarðar verið breytt í regnskóga. Þá
kom upp sú framtíðarsýn að sátt-
máli hjónabandsins myndi víkja fyr-
ir árssamningum í samböndum ein-
staklinga. Ekki fylgdi sögunni hvort
í þessum samningum yrðu endur-
nýjunarákvæði. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 vitið, 8 verkfærið,
9 aldna, 10 fákur, 11 vinnu-
vél, 13 dáð, 15 rými, 18 fer-
ill, 21 kvendýr, 22 hrelli, 23
sundfuglinn, 24 flygill.
Lóðrétt | 2 alda, 3 afkomanda,
4 ráfa, 5 lykt, 6 þvottasnúra, 7
umrót, 12 ögn, 14 illmenni, 15
leiðsla, 16 skakkafall, 17 al, 18
batna, 19 býsn, 20 vinna.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 beita, 4 gómur, 7 lilja, 8 lokan, 9 ref, 11 sóði, 13 hani,
14 lemja, 15 þjál, 17 múgs, 20 óra, 22 aftan, 23 ræfil, 24 Arnar,
25 afræð.
Lóðrétt: 1 belgs, 2 illúð, 3 atar, 4 golf, 5 mykja, 6 rindi, 10 eim-
ur, 12 ill, 13 ham, 15 þjaka, 16 áttan, 18 úlfur, 19 sálað, 20 ónar,
21 arða.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
(2) Sveitakeppni með Rubens. N-NS.
Norður
♠Á86
♥5
♦ÁK10942
♣1065
Vestur Austur
♠K942 ♠G103
♥1073 ♥KG92
♦D5 ♦G876
♣ÁG83 ♣D2
Suður
♠D75
♥ÁD864
♦3
♣K974
Suður spilar 3G.
Jeff Rubens, ritstjóri The Bridge
World, býður lesandanum að taka sér
sæti í norður og opna á 1♦, Standard.
Makker í suður svarar með 1♥, les-
andinn segir 2♦ og suður 2G – áskor-
un í þrjú. Hvað á að gera?
Rubens: „Þetta er spurning um
grimma hækkun í 3G eða mjúka til-
færslu í 3♦. Ég mæli með að reyna
3G í ljósi millispilanna í tígli – tíunnar
og níunnar. Ef tígullinn skilar fimm
slögum og ♠Á þeim sjötta er makker
vorkunnarlaust að sjá um afganginn.
Bregðist tígullinn, hins vegar, er hætt
við að 3G fari marga niður. Þess
vegna kemur síst til greina að sitja í
2G, því þar er ágóðinn lítill, en áhætt-
an mikil.“
Í þessari legu fríast tígullinn og ní-
undi slagurinn skilar sér með útspili í
svörtum lit.
18. janúar 1937
Snjódýpt í Reykjavík mældist
55 sentimetrar sem er það
mesta síðan mælingar hófust í
borginni. „Fannkoman hefur
verið geysimikil,“ sagði Morg-
unblaðið og gat þess að fjögur
hundruð manns hefðu unnið
að snjómokstri á götum bæjar-
ins.
18. janúar 1968
Leigubílstjóri á fimmtugsaldri
var skotinn til bana í bifreið
sinni í Reykjavík. Rannsókn
málsins var umfangsmikil en
enginn fundinn sekur.
18. janúar 1986
Flugfreyjur gleymdust þegar
vél Flugleiða fór frá Reykja-
vík til Egilsstaða. Vélin var yf-
ir Þingvöllum þegar þetta
kom í ljós og var henni snúið
við til Reykjavíkur og flug-
freyjurnar sóttar.
18. janúar 2003
Vefútgáfa Íslendingabókar
var opnuð almenningi. Á
fyrstu klukkustundinni sóttu
þrjú þúsund manns um að-
gang og tugir þúsunda næstu
daga. Í Íslendingabók eru upp-
lýsingar um 95% Íslendinga
síðustu þrjár aldir og helming
allra frá landnámi.
18. janúar 2009
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, 33 ára, var kosinn for-
maður Framsóknarflokksins
með 449 atkvæðum. Höskuld-
ur Þórhallsson hlaut 340 at-
kvæði.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Ég elska afmæli!“ svarar Margrét Jónsdóttir glöð í
bragði, þegar hún er innt eftir stemningunni fyrir
55 ára afmælisdeginum og rifjar upp fimmtugs-
afmælisveisluna, sem var víst svo mögnuð að enn er
um hana rætt. „Þá hélt ég rosa veislu, leigði sal og
var með mat og vín og veislustjóra og allt saman,“
segir Gréta, eins og hún er kölluð. „Það mættu um
hundrað manns og mig langaði að bjóða fleirum. En
það var fyrir kreppuna,“ bætir hún við. Í ár hyggst
Margrét hins vegar halda upp á afmælið á huggu-
legu nótunum og ætlar út að borða með syni sínum, sem er 16 ára.
Þau tvö bralla ýmislegt saman, eru m.a. í Facebook-hópi aukaleikara
og hafa leikið í fjölda sjónvarpsþátta og bíómynda en það var á erfiðum
tímamótum sem leikaradraumar Margrétar rættust.
„Ég varð 54 ára atvinnulaus í fyrsta skipti á ævinni,“ útskýrir Gréta,
sem er bæði menntaskólakennari og þroskaþjálfi og á aðeins eitt orð yf-
ir það leiðindaástand. „Það er ömurlegt! Ég hef alltaf unnið á tveimur
eða þremur stöðum í einu og elska að vinna. Það vantar ekki viljann,“
segir hún ákveðin. Það er þó stutt í gleðina og góða skapið og Gréta læt-
ur sér alls ekki leiðast heldur sinnir áhugamálunum af eldmóði þegar
hún er ekki á fullu í atvinnuleit. holmfridur@mbl.iss
Margrét Jónsdóttir er 55 ára í dag
Afmælisbarn í aðalhlutverki
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
18. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.19 3,3 7.41 1,2 13.47 3,1 20.07 1,2 10.49 16.28
Ísafjörður 3.27 1,7 9.52 0,6 15.43 1,7 22.14 0,5 11.19 16.08
Siglufjörður 5.53 1,1 12.02 0,3 18.31 1,0 11.03 15.50
Djúpivogur 4.38 0,5 10.37 1,5 16.52 0,5 23.33 1,7 10.25 15.51
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Fólk hlustar þegar þú talar, en í dag
læturðu meira gott af þér leiða með því að
hlusta. Læknaðu gömul sár með því að vera
fyrstur til þess að fyrirgefa.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú átt ekki að lúffa fyrir öðrum með
hluti sem þú hefur sterka trú á. Drífið í hlut-
unum og hamrið járnið meðan það er heitt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er fyrirhyggja fólgin í því að
láta nýtt fólk sanna sig áður en þú gerir upp
hug þinn til þess. Afgreiðið málið strax og á
heiðarlegan hátt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það þýðir lítið að stinga við fótum
þegar allt er á fleygiferð í kringum þig. Not-
aðu kvöldið fyrir sjálfan þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Gefðu þér tíma til að leysa málin áður
en þau vaxa þér yfir höfuð. Þú munt eiga
hreinskilnislegar samræður við vini þína og
kunningja í dag.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nú ert tíminn til að viðra vandamál
sem þú hefur lengi falið. Flas er ekki til fagn-
aðar og það á við á öllum sviðum, hvað svo
sem þér finnst málið lítilvægt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ættir að fylgjast vel með einhverjum
sem er tortrygginn í þinn garð. Sá tími kem-
ur að þú munt geta sagt hug þinn allan.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Láttu þér ekki detta í hug að þú
getir ekki unnið þau verk sem þér hafa verið
falin. Nú kemur sér vel að eiga góða sam-
starfsmenn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Heiðraðu ímyndunarafl þitt með
því að gefa því pláss, tíma og athygli. Ekki
reyna að draga mat annarra í efa.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Mundu að fæstir hlutir eru sem
þeir sýnast og að sjaldan veldur einn þá
tveir deila. Láttu þetta ekki slá þig út af lag-
inu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Kona í fjölskyldunni leggur að þér
að grípa til óvenjulegrar heilsubótar. Fólk
freistast til þess að beita áróðri til þess að
hafa áhrif á aðra.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ef þú átt lausa stund aflögu máttu
vita, að þeir eru margir sem þurfa á aðstoð
að halda. Gættu þess vandlega að enginn
hlunnfari þig í viðskiptum.
Stjörnuspá
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9.
h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12. Rbd2
Rc6 13. Rf1 Bb7 14. Rg3 g6 15. Bh6
Hfe8 16. Dd2 Kh8 17. Bb3 c4 18. Bc2
Had8 19. d5 Rb8 20. a4 Rbd7 21. Rg5
Kg8 22. axb5 axb5 23. f4 Ha8 24. f5
Hxa1 25. Hxa1 Bf8 26. Rf3 Bxh6 27.
Dxh6 Db6+ 28. Kh2 Ha8 29. Hf1 Ha2
30. fxg6 hxg6 31. Rh4 Dd8
Staðan kom upp á Skákþingi Reykja-
víkur, Kornax-mótinu, sem stendur nú
yfir í húsakynnum Taflfélags Reykja-
víkur. Alþjóðlegi meistarinn Bragi Þor-
finnsson (2.426) hafði hvítt gegn Ólafi
Gísla Jónssyni (1.870). 32. Rxg6! fxg6
33. Dxg6+ Kh8 34. Dh6+ Kg8 35. Dg6+
nákvæmara hefði verið að leika 35. Rh5.
35. … Kh8 36. Rh5 Rxh5 betra var að
leika 36. … Dg8. 37. Dxh5+ Kg8 38.
Dg6+ Kh8 39. Hf7 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.