Morgunblaðið - 18.01.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.01.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2012 FYRIR HEIM ILIÐ! ÓDÝRT – fyrst og fremst ódýr! Hjörtur J. Guðmundsson Sigrún Rósa Björnsdóttir Samkvæmt stefnu slitastjórnar Landsbanka Íslands hefur sjö fyrr- verandi stjórnendum bankans verið stefnt til þess að greiða skaðabætur auk 25 vátryggingafélaga sem gáfu út ábyrgðartryggingar fyrir stjórn- armenn og stjórnendur bankans. Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri Kristjánssyni, fyrrverandi banka- stjórum Landsbanka Íslands, er stefnt, fjórum af fimm fyrrverandi bankaráðsmönnum bankans, þeim Kjartani Gunnarssyni, Svöfu Grön- feldt, Andra Sveinssyni og Þorgeiri Baldurssyni, og Jóni Þorsteini Odd- leifssyni, fyrrverandi forstöðumanni fjárstýringar Landsbanka Íslands. „Gerð er krafa um að hinir stefndu stjórnendur greiði stefn- anda skaðabætur vegna gáleysis sem leiddi til þess að greiddir voru verulegir fjármunir út úr Lands- banka Íslands hinn 6. október 2008 þegar fyrir lá að bankinn var ógjald- fær,“ segir í stefnunni. Þann dag, sem hafi verið síðasti starfsdagur bankans áður en hann var tekinn yfir af Fjármálaeftirlit- inu, hafi umtalsverðir fjármunir runnið frá honum og til verðbréfa- sjóða Landsvaka hf., Straums- Burðaráss fjárfestingarbanka hf. og MP fjárfestingarbanka. Krefjast nær 46 milljarða Slitastjórnin krefur fyrrverandi stjórnendur og stjórnarmenn bank- ans um rúmlega 31 milljarð króna. Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri Kristjánssyni, Kjartani Gunnars- syni, Andra Sveinssyni, Þorgeiri Baldurssyni og Svövu Grönfeldt er stefnt in solidum til greiðslu 14,1 milljarðs króna, 10,5 milljóna bandaríkjadala og 10,8 milljóna evra, sem eru alls um 17,1 milljarður kr. Krafist er vaxta, verðtryggingar og dráttarvaxta. Þá er Jóni Þor- steini Oddleifssyni stefnt in solidum ásamt sexmenningunum til greiðslu 11,1 milljarðs kr. og á þriðja tug vá- tryggjenda er stefnt til greiðslu nær 18 milljarða kr. með sjömenningun- um. Kröfuhæðin er alls um 46 millj- arðar kr. á núverandi gengi. Fram kemur í stefnunni að miðað við sölugengi Seðlabanka Íslands 6. október 2008 hafi samtals runnið jafnvirði um 34,7 milljarða króna út úr Landsbanka Íslands og til þessara félaga. Kröfur sem keyptar hafi ver- ið af Landsvaka hafi verið á umtals- verðu yfirverði og greiðslur til Straums og MP banka hafi verið greiddar eftir að Geir H. Haarde, þá- verandi forsætisráðherra, hafi til- kynnt um yfirvofandi hrun íslenska bankakerfisins og eftir að bankanum hafði verið lokað þennan dag. Bankinn ógjaldfær „Á því er byggt að bankaráðs- mönnum, bankastjórum og forstöðu- manni fjárstýringar Landsbanka Ís- lands hafi verið eða mátt vera ljóst að frá 29. september 2008, þegar til- kynnt var um fyrirhugaða yfirtöku íslenska ríkisins á Glitni banka hf., hafi legið fyrir að Landsbanki Ís- lands var í verulegum fjárhagslegum erfiðleikum og uppfyllti ekki kröfur um eigið fé,“ segir í stefnunni. Þá segir að á þeim degi þegar um- ræddar greiðslur áttu sér stað hafi Landsbanki Íslands verið ógjaldfær meðal annars að kröfu breska fjár- málaeftirlitsins um taf- arlausa greiðslu á 200 milljónum punda til þess að styðja við útflæði fjár- muna af Icesave- innlánsreikn- ingunum í Bretlandi. Stefna sjö fyrrver- andi stjórnendum  Slitastjórn Landsbankans krefst skaðabóta vegna gáleysis Morgunblaðið/Kristinn Bankastjórar Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson eru meðal þeirra sjö fyrrverandi stjórnenda Landsbanka Íslands sem stefnt er. BAKSVIÐ Egill Ólafsson egol@mbl.is Ein af ástæðum þess að atvinnuleysi hefur minnkað hægar á Suður- nesjum en í öðrum landshlutum er að mikið framboð er af leiguhúsnæði á Suðurnesjum á lægra verði en á höfuðborgarsvæðinu. Atvinnulaust fólk leitar eftir því að komast í ódýr- ari leigu og flytur því á Suðurnesin. Þetta segir Hjördís Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fé- lagssviðs Reykjanesbæjar. Atvinnuleysi hefur lengi verið meira á Suðurnesjum en í öðrum landshlutum. Það mælist núna 13,1% og þó að það sé minna en fyr- ir ári er batinn þar hægari en í öðr- um landshlutum. Hjördís segir að ýmislegt skýri þetta mikla atvinnuleysi á Suður- nesjum. Atvinnulífið hafi orðið fyrir miklu áfalli þegar varnarliðið fór frá landinu. Ný atvinnutækifæri sem menn hafi bundið vonir við hafi ekki skilað sér. Ennfremur sé ljóst að húsaleiga á Suðurnesjum sé lægri en á höfuðborgarsvæðinu og því leiti fólk þaðan eftir því að komast á Suðurnesin í ódýrari leigu. Þar sé talsvert mikið framboð af leigu- húsnæði. Hluti leigjenda hafi ekki vinnu. Hjördís segir að þessu fylgi mikið álag fyrir félagsmálakerfið á Suður- nesjum því atvinnuleysið sé oft ekki eini vandinn sem fólk eigi við að stríða. Missir bætur eftir að hafa verið án vinnu í 4 ár Hjördís segist hafa miklar áhyggjur af þeim einstaklingum sem hafi verið án atvinnu í fjögur ár og hafi dottið eða séu að detta út af atvinnuleysisskrá, en samkvæmt lögum fellur bótaréttur niður þegar fólk hefur verið á atvinnuleysisskrá í fjögur ár. Ef einstaklingur í þess- ari stöðu á maka sem er með vinnu á viðkomandi ekki rétt á fjárhags- aðstoð frá bænum og því lækka tekjur fjölskyldunnar um 160 þús- und krónur á mánuði. Hjördís segir að þessar fjölskyldur eigi mjög erf- itt. „Það sem þarf að gerast er að það fjölgi atvinnutækifærum á Suður- nesjum. Þá batnar fjárhagsstaða fjölskyldanna og það skilar sér til sveitarfélagsins í formi meiri skatt- tekna og jafnframt minnka útgjöld til félagsmála,“ segir Hjördís og bættir við að þrátt fyrir allt sé seigla í fólki. Fólk treysti því að verkefni eins og gagnaver á Ásbrú og kísilverksmiðja í Helguvík verði að veruleika fyrr en seinna. Leita í ódýrara húsnæði á Suðurnesjum  Um 13% atvinnuleysi á svæðinu Morgunblaðið/Kristinn Atvinnuleysi Atvinnuástandið á Suðurnesjum er ekki gott. Erfitt atvinnuástand » Þegar ástandið var verst á Suðurnesjum fór atvinnuleysið upp í 15%, en í desember mældist það 12,8%. » Það er fyrst og fremst at- vinnuleysi meðal karla sem hefur minnkað. Atvinnuleysi meðal kvenna mældist 13,8% sem er aðeins meira en fyrir ári. » Réttur til greiðslu atvinnu- leysisbóta var í 4 ár, en dæmi er um að fólk hafi fullnýtt þennan rétt og sé dottið út af bótum. Kjartan Gunnarsson, fyrrver- andi bankaráðsmaður í Lands- banka Íslands, hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af stefnu slitastjórnar Landsbankans á hendur honum þar sem hann segir það mat sitt og lögmanna sinna að málshöfðunin standist ekki skoðun. Hann segist ekki kvíða niðurstöðu dómstóla í málinu og tekur fram að þær greiðslur sem málið varði hafi ekki komið á nokkru stigi til um- fjöllunar hjá bankaráði enda ekki þess eðlis að þær ættu er- indi þangað. Kjartan segir að Landsbank- inn hafi verið gjaldfær í upphafi dags 6. október 2008. „Bankinn átti nægt fé í íslenskum krónum og beiðni um gjaldeyrisaðstoð var til afgreiðslu hjá Seðla- banka Íslands. Forsendur til að loka bankanum í upphafi þess dags voru því alls ekki fyrir hendi og slík aðgerð hefði skað- að bæði bankann sjálfan gríðar- lega og sett af stað keðju- verkun með ófyrirséðum afleiðingum.“ Stenst ekki skoðun KVÍÐIR EKKI NIÐURSTÖÐUM Kjartan Gunnarsson Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Vatns- og fráveitugjöld Orkuveitu Reykjavíkur hækkuðu til samræm- is við byggingavísitölu um 10,69% um áramót miðað við gjaldskrá 1. maí 2011 en um 18% miðað við jan- úar 2011. Fráveitugjald fyrir 100 fm íbúð í Reykjavík er liðlega 40 þúsund krónur og vatnsgjaldið um 25 þúsund eða um 10 þúsund kr. hækkun milli ára. Orkuveitan tók við innheimtu vatns- og fráveitugjalda í fyrra en áður höfðu þau verið innheimt með fasteignagjöldum sveitarfélaga. Orkuveitan á og rekur vatnsveit- una í Reykjavík, á Akranesi, í Borgarbyggð og á Álftanesi en nú bætist við innheimta á vatnsgjöld- um í Stykkishólmi, Grundarfirði, Hvalfjarðarsveit og Úthlíð í Bisk- upstungum. Fasteignamat og stærð Áður tók fráveitugjaldið eða hol- ræsagjaldið mið af fasteignamati en eftir að OR tók við inn- heimtunni hefur einnig verið miðað við stærð húsnæðis rétt eins og með vatnsgjaldið. Um er að ræða fastagjald á hverja matseiningu í fasteignamati og hins vegar er ákveðið gjald fyrir hvern fermetra húsnæðis. Fráveitugjaldið fyrir 100 fm íbúð hækkaði um 3.878 kr. og vatns- gjaldið um 2.420 kr. Fastagjaldið í Reykjavík er 8.263,17 kr. í ár og breytilega gjaldið 318,95 kr. á hvern fermetra. Í fyrra hækkaði fráveitugjaldið um 18,5% í Reykjavík miðað við 2010. Um 82% húseigna í borginni eru minni en 200 fm og hækkaði fráveitugjald þeirra um 12% að meðaltali. Gjöld OR hækkuð um 18%  Greiða þarf 65 þús. kr. fyrir 100 fm íbúð í Reykjavík Vatns- og fráveitugjöld OR Íbúð í 2011 2012 Reykjavík Vatnsgjald Fráveitugjald Samtals Vatnsgjald Fráveitugjald Samtals Mism. ISK Mism.% 100 m2 22.639 32.528 55.167 25.059 40.158 65.217 10.050 18% 250 m2 49.639 71.281 120.920 54.945 88.001 142.945 22.026 18%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.