Morgunblaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2012
Styrmir Gunnarsson segir: „Þaðer óáran og vont andrúmsloft á
vettvangi stjórnmálanna. Þing-
menn sem eiga langa þingsetu að
baki muna ekki annað eins. Illindi
og heift einkenna samskipti fólks á
þeim vettvangi.“
Styrmir segir og í sömu grein áEvrópuvaktinni: „Það voru
mikil mistök að
Rannsóknarnefnd
Alþingis skyldi ekki
starfa fyrir opnum
tjöldum. Hún hefði
átt að efna til þeirr-
ar pólitísku vitna-
leiðslu, sem nú virð-
ist eiga að fara fram
fyrir landsdómi.
Þingmenn stjórn-arflokkanna
vilja efna til rann-
sóknar á einkavæð-
ingu bankanna, það
er að segja á hinni
fyrri einkavæðingu
en ekki þeirri, sem núverandi rík-
isstjórn stóð fyrir. Það er und-
arlegt.
Eigi slík rannsókn að fara framer eðlilegt að hún nái líka til
einkavæðingarinnar 2009.“
Allt er þetta satt og rétt.
Nú er talað um að réttast sé aðsvo kölluð „sannleiksnefnd“
verði sett á laggirnar.
Því ekki það.
Það fer ekki illa á því að Jóhannaog Steingrímur hafi forystu
um sérstaka nefnd til að leita sann-
leikans. Þau hafa ekkert til hans
spurt síðan að hann fór að heiman
1. febrúar 2009, með rauða skott-
húfu og kápuna á báðum öxlum.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Sannleiksleit
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Veður víða um heim 1.2., kl. 18.00
Reykjavík 1 léttskýjað
Bolungarvík 1 snjókoma
Akureyri 3 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 2 skýjað
Vestmannaeyjar 3 heiðskírt
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 6 þoka
Ósló -10 snjókoma
Kaupmannahöfn -2 snjókoma
Stokkhólmur -6 snjókoma
Helsinki -17 heiðskírt
Lúxemborg -3 heiðskírt
Brussel -2 heiðskírt
Dublin 2 léttskýjað
Glasgow 3 léttskýjað
London 2 heiðskírt
París -2 léttskýjað
Amsterdam -2 heiðskírt
Hamborg -3 léttskýjað
Berlín -7 heiðskírt
Vín -4 skýjað
Moskva -22 heiðskírt
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 8 skýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 5 léttskýjað
Aþena 2 skýjað
Winnipeg -7 alskýjað
Montreal -6 þoka
New York 12 skýjað
Chicago 3 alskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:07 17:17
ÍSAFJÖRÐUR 10:28 17:06
SIGLUFJÖRÐUR 10:11 16:48
DJÚPIVOGUR 9:40 16:42
Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki,
HS, hefur fengið vilyrði Guðbjarts
Hannessonar velferðarráðherra fyr-
ir auknu fjármagni á þessu ári. Ósk-
aði ráðherra eftir því að áform um að
loka sundlaug endurhæfingar-
sjúkrahúss og draga verulega úr
endurhæfingu yrðu dregin til baka.
Vegna niðurskurðar á fjárveitingum
til HS voru m.a. uppi áform um að
loka sundlauginni næsta haust.
Hafsteinn Sæmundsson, forstjóri
HS, segir ákvörðun ráðherra fagn-
aðarefni þar sem þungbært hefði
verið að grípa til aðgerða á borð við
að skera endurhæfinguna niður.
Stofnunin þarf eftir sem áður að
skera niður í rekstri ársins um 26
milljónir króna. Að sögn Hafsteins
er vonast til að endurskoðun á fjölda
hjúkrunarrýma leiði til frekari leið-
réttinga. Samkvæmt skýrslu sem
Capacent gerði í haust um sam-
anburð fjárveitinga til heilbrigð-
isstofnana kom í ljós að Skagfirð-
ingar og Þingeyingar báru verulega
skarðan hlut frá borði þegar skoð-
aður var fjöldi hjúkrunarrýma á
hverju landsvæði, borið saman við
reiknaða þörf í reiknireglu velferð-
arráðuneytisins.
Spurður hvort stofnunin þurfi eft-
ir sem áður að segja upp fólki segist
Hafsteinn ekki reikna með að þurfa
að segja upp mörgum, að mestu tak-
ist þetta gegnum starfsmannavelt-
una. bjb@mbl.is
Fá aukið
fjármagn
Hætt við lokun
sundlaugar HS
Ljósmynd/Óli Arnar
Sauðárkrókur Heilsugæsla, sjúkra-
hús og dvalarheimili Skagfirðinga.
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum í stjórn
félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
Um er að ræða annars vegar einstaklingskosningu til sjö sæta í stjórn og þriggja til vara og
hins vegar listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Skrifleg meðmæli 15 félagsmanna þarf
vegna einstaklingsframboðs til stjórnar. Til að listi sem borinn er fram gegn lista Uppstillingar-
nefndar sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 300 félagsmanna sem og skriflegt
samþykki frambjóðenda á listanum.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 16. febrúar 2012. Framboðum og
framboðslistum skal skila á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Frambjóðendum er bent á heimasíðu VR, www.vr.is, þar sem eyðublöð vegna framboða eru
aðgengileg og ítarlegari upplýsingar birtar um framboð bæði til stjórnar og trúnaðarráðs.
Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til
kjorstjorn@vr.is.
2. febrúar 2012
Kjörstjórn VR
Hefur þú áhuga á að
starfa í forystu VR?
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is