Morgunblaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2012 Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Erlingur Aðalsteinsson fyrr- verandi formaður STAK er fall- inn frá langt fyrir aldur fram. Ég kynntist Erlingi fyrst þegar ég var við störf á launaskrif- stofu Akureyrarbæjar á árun- um milli 1970 og 1980. Þegar ég svo hætti að vinna þar eftir fæðingu tveggja yngri barna minna, bankaði Erlingur upp á og bauð mér tímavinnu fyrir STAK. Ég tók þessu fagnandi og þótti gott að geta litið upp úr bleyjuþvotti og sest við rit- vélina stöku sinnum. Erlingur kom þá heim til mín með upp- kast af bréfum fyrir félagið sem ég átti svo að vélrita og senda út. Smátt og smátt stækkaði svo þetta starf og vann ég á skrifstofu STAK í mörg ár með mörgum formönn- um. Erlingur var einstaklega ró- legur maður og hafði góða nær- Erlingur Aðalsteinsson ✝ Erlingur Frið-rik Að- alsteinsson fæddist á Akureyri 21. apríl 1946. Hann lést á Akureyri 23. jan- úar 2012. Útför Erlings fór fram frá Akureyr- arkirkju 30. janúar 2012. veru. Hann var formaður STAK í mörg ár og stóð í kjarasamninga- stappi fyrir fé- lagsmenn sína í enn fleiri ár. Hann hélt alltaf ró sinni þó oft væri heitt í kolunum á fundum. Aðeins einu sinni minnist ég þess að hann hafi hækkað róminn örlítið, en þá var honum aldeilis nóg boðið við þau við- brögð sem gagnaðilinn sýndi einhverju máli. Við Erlingur unnum með mörgu góðu fólki á þessum fyrstu árum skrifstofu STAK. Alltaf var Erlingur jafn rólegur og yfirvegaður þó svo aðrir, sem voru að vinna með honum væru orðnir æstir og reiðir, enda sagði hann oft setningu sem hefur fylgt mér æ síðan: „Um leið og þú reiðist byrjar þú að tapa.“ Erlingur vann mikið fyrir Lífeyrissjóð starfsmanna Akur- eyrarbæjar og kunni og vissi allt um lög og reglur sjóðsins. Enginn kom að tómum kofun- um hjá honum varðandi þau mál. Leiðir okkar Erlings hafa ekki legið saman mörg síðustu ár, en fyrir stuttu hitti ég hann í vinnunni minni, kátan og hressan og gátum við þá spjall- að aðeins og minnst gamla tím- ans, fjölluðum meðal annars um yfirvofandi vinnudeilu leik- skólakennara. Í ljós kom að hann hafði engu gleymt og var inni í öllu þessu máli. Ekki datt mér í hug þá að þetta væri í síðasta spjallið okkar Erlings. Elsku Lára, þú átt alla mína samúð. Hvíl í friði, Erlingur. Halldóra Sævarsdóttir. Í sorginni ómar eitt sumarblítt lag, þó er sólsetur, lífsdags þíns kveld. Því er kveðjunnar stund, og við krjúpum í dag í klökkva við minningareld. Orð eru fátæk en innar þeim skín það allt sem við fáum ei gleymt. Allt sem við þáðum, öll samfylgd þín á sér líf, er í hug okkar geymt. Í góðvinahóp, þitt var gleðinnar mál eins þó gustaði um hjarta þitt kalt. Því hljómar nú voldugt og sorgblítt í sál eitt sólskinsljóð, – þökk fyrir allt. (B.B.) Fallinn er frá félagi Erlingur en honum kynntist ég fyrst þegar ég gerðist trúnaðarmað- ur en þá var hann formaður STAK, Starfsmannafélags Ak- ureyrarbæjar. Á þessum árum gegndi hann mörgum trúnaðar- störfum fyrir STAK (nú KJÖL- UR, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu). Hann var formaður STAK frá 1979 til 1982, formaður samninganefnd- ar og átti sæti í kjaranefnd STAK og Akureyrarbæjar frá 1978 til 1989. Fulltrúi félagsins var hann á þingum BSRB frá 1976 til 1988 og áheyrnar- fulltrúi í stjórn BSRB frá 1979 til 1982, sá eini sem hefur haft þá stöðu þar sem þing BSRB tók þá ákvörðun 1979 að fulltrúi frá STAK sæti stjórn- arfundi BSRB. Erlingur var fulltrúi STAK í stjórn Lífeyrissjóðs starfs- manna Akureyrarbæjar, LSA frá 1982 til 1994. Þá eru ótaldar ýmsar nefndir og ráð sem hann sat í bæði fyrir félagið og sem fulltrúi þess hjá BSRB og hjá Akureyrarbæ. Erlingur var á margan hátt frumkvöðull í kjarasamningagerð og skipu- lagningu og starfsemi stéttar- félaga. Hann var mjög heið- arlegur, rólegur og yfirvegaður með ríka réttlætiskennd, mikill hugsuður og sá út fyrir sínar raðir. Hann barðist gegn lág- launastefnu og sá hvaða áhrif launamismunurinn hefði á allt samfélagið í heild. Hann vildi gera sanngjarnar kaupkröfur sem hægt væri að standa fast á og ná settum markmiðum. Við sem unnum með honum á þess- um tíma dáðumst að því hve hann tók gagnrýni frá félögun- um af mikilli yfirvegun, en að okkar mati var hún oftar en ekki ósanngjörn. Gagnrýni svaraði hann með rökum og út- skýringum og fór yfir málin svo þeir sem deildu hvað mest urðu að taka málefnalega af- stöðu en ekki persónulega eins og allt of oft vill verða. Þegar ég tók sæti hans í stjórn LSA fór Erlingur yfir öll málefni sjóðsins og lagði þar með góðan grunn að minni þekkingu í lífeyrismálum og á ég honum mikið að þakka. Þeg- ar Erlingur lét af störfum hjá Akureyrarbæ dró hann sig út úr starfi fyrir STAK og sneri sér að sínum hugðarefnum sem hann hafði ekki haft mikinn tíma til að sinna, því það vita þeir sem unnu með honum að hann var mjög ósérhlífinn og gaf félaginu mikið af tíma sín- um. Fyrir hönd KJALAR stétt- arfélags, áður STAK, eru Er- lingi færðar kærar þakkir fyrir hans góðu störf í þágu félags- ins, minning hans mun lifa. Láru eiginkonu hans, börn- um þeirra og fjölskyldu sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður. Við kveðjum Óskar Pál, sam- starfsmann okkar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Hugur okkar er hjá þér, El- ísabet. Guð mun veita þér styrk á þessum erfiðu tímum. Elsku Elísabet og fjölskylda: Hugur okkar er hjá ykkur. Óskar Páll Daníelsson ✝ Óskar PállDaníelsson fæddist í Hafn- arfirði 18. október 1979. Hann lést af slysförum 12. jan- úar 2012. Útför Óskars Páls fór fram frá Hafnarfjarð- arkirkju 23. janúar 2012. Hvíldu í friði, kæri vinur. F.h. samstarfs- manna þinna og fjöl- skyldu þinnar í Logalandi, María Kristín Jónsdóttir. Dagur míns heims varð sem kolsvört nótt, hann hvarf eins og stjarna í morg- unbjarma. (E.B.) Þessar ljóðahendingar komu mér í hug er ég heyrði lát Óskars Páls Daníelssonar og um slysið, sem til þess leiddi. Óskari kynnt- ist ég fyrir 14 árum er ég hóf sambúð með móður hans. Óskar kom mér fyrir sjónir sem hæglát- ur og prúður drengur með ákveðnar skoðanir, sem hann setti fram með góðum rökum. Þrátt fyrir djúpt þenkjandi mann hafði Óskar góðan húmor, sem hann átti ekki langt að sækja. Okkur er fyrirmunað að skilja tilganginn þegar ungt fólk er tek- ið í burtu frá okkur. Við spyrjum en fáum engin svör. Þótt sam- verustundunum hafi farið fækk- andi síðustu árin, var hlýja hans söm í hvert sinn er við hittumst. Nú að leiðarlokum stendur eftir minning um heilsteyptan mann og góðan dreng. Eiginkonu, dóttur, foreldrum og öllum ættingjum sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Óskars Páls Daníelssonar. Ég kveð þig með kærleikum góði, þig drenginn minn dána með ljóði en ekki í síðasta sinn. (S.G.S.) Vigfús Helgason. Mig langar í fáum orðum að minnast Guðrúnar Jósefsdóttur, móðursystur minnar sem lést á Húsavík þann 20. janúar síðast lið- inn. Guðrún, eða Dúa eins og hún var oftast kölluð, var næstelst af fjórum systkinum. Dúa var fædd og uppalin á Dalvík og bjó þar þangað til hún flutti með foreldr- um sínum og systkinum til Húsa- víkur. Á margan hátt er systkina- hópur móður minnar ólíkur, en líklega áttu þau þó meira sameig- inlegt og segja má að ákveðnir þættir hafi verið ríkjandi í eðli þeirra allra. Einkenni þeirra allra er heiðarleiki, dugnaður, ósér- hlífni og vandvirkni . Það átti að vanda sig við allt sem maður tók sér fyrir hendur og skila af sér góðu verki. Þetta átti sannarlega við um Dúu frænku mína. Hún átti myndarlegan barna- hóp, hugsaði vel um heimilið og vann auk þess ýmis störf utan heimilis. Á þessum tíma voru all- flestar konur heimavinnandi hús- mæður og barnahópurinn oftast stór. Heimilisstörfin voru mörg og tímann þurfti að nota vel. Dúa var bæði frænka mín og nágranni, því hún bjó alla tíð við hliðina á for- eldrum mínum og samgangur var mikill á milli heimilanna. Auk þess átti Lovísa móðir hennar og amma mín heimili hjá móður minni og Guðrún Jósefsdóttir ✝ Guðrún Jós-efsdóttir fædd- ist á Böggviss- töðum í Svarfaðardal 27. desember 1935. Hún lést á heimili sínu, Hjarðarhóli 8 á Húsavík, 20. jan- úar 2012. Útför Guðrúnar fór fram frá Húsa- víkurkirkju 28. jan- úar 2012. þess vegna urðu tengslin enn meiri. Margar notalegar bernskuminningar streyma fram þessa dagana, minningar um Dúu sem leit inn í kaffisopa og spjall, svona smástund áð- ur en hún fór yfir aftur til að setja upp hádegismatinn, mamma og Dúa að laga hárið á hvor annarri, undir- búa fermingarveislur og taka snið af fötum, því á þeim tíma var mest allur fatnaður saumaður heima. Seinni árin gáfust svo tilefni til að hittast og eiga saman góða stund, eins og í útskriftarveislu dóttur okkur síðastliðið vor og á „súpu- degi“ hjá Jónu systur síðasta sum- ar. Það var alltaf notalegt að hitta Dúu, hún var hress og lét vel af sér, jafnvel þegar heilsan var ekki upp á það besta. Hún kvartaði aldrei og vol og víl var ekki til í hennar orðaforða. Dúa hafði áhuga á fólkinu sínu og fjölskyldunni og það var gott að ræða við hana, því hún var góður hlustandi. Það mátti líka treysta því að hlutirnir færu ekki lengra, því hún var mjög þagmælsk. Það sem hún vissi og heyrði geymdi hún hjá sér. Síðasta árið var Dúu frekar erfitt. Hún missti Kristján eiginmann sinn fyrir tæplega ári og átti í erfiðum veikindum síð- ustu mánuði. Ég veit að frænka mín hefði ekki viljað að um hana væru skrifaðar langar greinar né lofræður. Ég læt því staðar numið hér en veit að hún hefur fengið góða heimkomu. Góður Guð geymi Dúu og minningu hennar. Börnum hennar og afkomendum, ásamt fjölskyldum sendi ég ein- lægar samúðarkveðjur. Klara Matthíasdóttir og fjölskylda. Við veiðihúsið á silungasvæðinu í Vatnsdal eru menn á þönum þeg- ar Einar og Stefán Bjarni renna loks í hlað. Sól skín í heiði og úr andlitum manna. Nú skal veitt af fullum þunga! Þó liggur Einari ekkert á því að veiða. Honum liggur meira á því að vera. Ég man ekki hvort við veidd- um marga fiska í þessari Vatns- dalsferð en ég man að við veidd- um skemmtilega. Eina vaktina tókst Braga að lokka Stefán Bjarna upp í bílinn til sín og þá þótti Einari skárra en ekkert að hafa mig með sér í rauða trukkn- um fram hjá Þingeyrarkirkju, niður á „Brandaranes hið versta“, gegnum flæðarnar og alla leið niður á sandana nærri ósnum þar sem stóru bleikjurnar lóna. Hann talaði um börnin sín. Orðin ilmuðu af umhyggju. Var- irnar vöknuðu í takt við blikandi augun. Og svo kom býsna stór- kallalegur hlátur, eins og til að slá striki yfir allt. Sumarið áður hafði hann hald- ið okkur ógleymanlega rjúpna- veislu við Ölvesvatn á Skaga. Kom með marga fugla í Ár- mannabláum plastkassa. Á mínu heimili hafði ég vanist því að rjúpur væru jólamatur en Einari var ekki lagið að binda bagga sína sömu hnútum og samferð- Einar Helgi Sigurðsson ✝ Einar HelgiSigurðsson fæddist á Akureyri 8. nóvember 1947. Hann lést 15. jan- úar 2012. Einar Helgi var jarðsunginn frá Grafarvogskirkju 26. janúar 2012. armennirnir. Hjá honum voru rjúpur allt eins jónsmess- umatur. Nokkru seinna sótti ég hann í iðn- aðarhúsnæði í Kópavogi og við á leið í Hlíðarvatn. Ef ég man rétt þá var hann á náttfötunum þegar mig bar að garði. Átti eftir að hafa sig til að mestu. En það tók skamma stund að tína á sig spjarirnar, gá hvort ekki væru allar nauðþurftir í veiðitöskunni og hrinda þessu út í bíl. Einar var svangur og okkur lá aldrei mikið á, enda víst að innan tíðar yrðu allir pokar fullir af feitri Hlíðarvatnsbleikju. Við fórum því í mat til mömmu hans. Indæl kona bar fyrir okkur strákana ljúffengan mat – mig minnir að það hafi verið hangiket með upp- stúf – en kannski er það draum- sýn. Og undir miðnætti í Vatns- dalnum dregur hann úr pússi sínu einn skuggalegan skoteld. Jörðin sefur. Fuglarnir blunda. Flóðið er spegill. Búfénaður mókir í blíðri kyrrð. Veiðimenn dorma – þegar flugeldasýning Einars brestur á við hús silungs- veiðimanna. Húsið nötrar. Grað- hestar flýja til fjalla. Vötnin gár- ast. Fuglar ærast. Stöku kvöldsvæfur veiðimaður fær sting fyrir hjartað. Um draumabláa ágústnótt hefur Ein- ar snúið tilveru okkar á hvolf. Þessi blíðeygi veiðimaður verður sem blikandi flugeldur í huga okkar sem þekktum hann. Blessuð sé minning um góðan dreng. Ragnar Hólm Ragnarsson. Elsku langafi. Við vorum heppnir að hittast og þekkjast í fjögur ár því að einu sinni þegar þú varst næstum því farinn til Guðs þá var ég á leiðinni í heiminn. En svo fór að þú komst heill á húfi frá Spáni og ég kom heill á húfi í þennan heim og við urðum mestu mátar. Ég var lát- inn heita Guðmann og ber því sama nafn og þú og pabbi minn. Við heimsóttum ykkur lang- ömmu oft í Grindavík, fyrst á Vík- urbrautina og svo í nýja húsið. Þú varst alltaf á þínum stað við sjón- varpið og stundum varst þú að reykja þó að þú mættir það auð- vitað ekki. Hvorugur okkar talaði mikið en samt náðum við vel sam- an. Við vorum báðir bolta-áhuga- menn og það var alveg sama um Bjarni Guðmann Ágústsson ✝ Bjarni Guð-mann Ágústs- son fæddist í Grindavík 9. des- ember 1931. Hann lést á heimili sínu 14. janúar 2012. Útför Bjarna fór fram frá Grinda- víkurkirkju 24. jan- úar 2012. hvernig bolta var rætt. Einu sinni horfðum við saman á golf í sjónvarpinu, þá var ég á öðru ald- ursári og fékk að sitja hjá þér í hæg- indastólnum. Heils- an var upp og ofan hjá þér, en mikið var gott að þú gast kom- ið keyrandi með langömmu í afmælið mitt til Reykjavíkur síðasta sum- ar. Ég er líka svo heppinn að eiga margar ljósmyndir af okkur sam- an, ýmist með langömmu eða með Jóni afa og Bjarna pabba, við fjórir saman í Grindavík. Þannig mun ég muna þig og í framtíðinni hlusta á foreldra mína segja frá þér og okkar kynnum. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Guðmann Brimar Bjarnason Kristínarson, 4 ára. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.