Morgunblaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2012
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Bakú. AFP. | Ráðgert er að Söngva-
keppni Evrópu, Evróvisjón, verði
haldin í glæsilegri tónlistarhöll,
Kristalshöllinni, sem verið er að
reisa í Bakú, höfuðborg Aserbaíd-
sjans. Ásakanir um að yfirvöld í
borginni hafi brotið á mannrétt-
indum borgarbúa til að reisa höllina
og fleiri byggingar í grennd við hana
hafa varpað skugga á undirbúning
keppninnar.
Stjórnvöld í Aserbaídsjan ætla að
nota olíuauð landsins til að halda
söngvakeppnina með miklum glæsi-
brag og líta á hana sem frábært
tækifæri til landkynningar. Aserba-
ídsjan er í jaðri Evrópu og hefur
einkum verið þekkt fyrir olíu-
útflutning sinn, pólitískt umrót eftir
hrun Sovétríkjanna og stríðið við
Armeníu sem blossaði upp í lok ní-
unda áratugar aldarinnar sem leið
um héraðið Nagorno-Karabakh.
„Þessi viðburður mun hafa mjög
jákvæð áhrif á ímynd Aserbaíd-
sjans,“ sagði menningar- og ferða-
málaráðherra landsins, Abulfas
Garajev.
Hundruð fjölskyldna
flutt á brott
Ekki eru þó allir jafnánægðir með
framkvæmdirnar á svæðinu þar sem
tónlistarhöllin er að rísa. Mannrétt-
indahreyfingar segja að yfirvöld í
Bakú hafi knúið hundruð fjölskyldna
til að flytja úr byggingum sem rifnar
voru niður til að hægt yrði að reisa
glæsihúsin á svæðinu. Fólkið hafi
fengið bætur sem dugi ekki fyrir
sambærilegu húsnæði í miðborginni.
„Þrýstingurinn hefur verið af
ýmsu tagi,“ segir Zohrab Ismailov,
talsmaður hreyfingar sem hefur
mótmælt meintum mannréttinda-
brotum í tengslum við framkvæmd-
irnar. Hann segir að yfirvöldin hafi
meðal annars lokað fyrir gas, raf-
magn og vatn til að knýja fólk til að
fallast á að flytja úr húsnæðinu.
Yfirvöldin neita þessum ásök-
unum og leggja áherslu á að fram-
kvæmdirnar á svæðinu tengist ekki
söngvakeppninni beint, heldur séu
þær þáttur í nauðsynlegri uppbygg-
ingu á svæðinu. „Ákveðnir hópar eru
að reyna að gera ótengda hluti að
pólitísku deilumáli og tengja þá við
Söngvakeppni Evrópu,“ sagði Ali
Hasanov, háttsettur embættismaður
í ríkisstjórn Ílhams Alíjevs, forseta
Aserbaídsjans.
Bíða útburðar
Lífeyrisþeginn Minara Iskende-
rova býr með dóttur sinni og syni í
síðasta fjölbýlishúsinu nálægt fram-
kvæmdasvæðinu. Margir af íbúum
fjölbýlishússins hafa flutt þaðan og
húsið er í niðurníðslu. „Ég tek það
sem er að gerast mjög nærri mér,“
segir hún. „Frá því að þetta byrjaði
hefur blóðþrýstingurinn hækkað og
ég á við veikindi að stríða.“
Natalía Alíbekova, annar lífeyris-
þegi í húsinu, kveðst búast við því að
hún verði borin út á næstunni. „Ég
mun minnast heimilisins, sem ég
glataði, í hvert sinn sem söngva-
keppnin er haldin.“
bogi@mbl.is
Reuters
Evróvisjóngleði Asersku söngvararnir geðþekku Ell og Nikki fagna eftir
að hafa sigrað í Söngvakeppni Evrópu í Düsseldorf 14. maí.
Meint mannréttindabrot
varpa skugga á flottheitin
Deilt um tónlistarhöll og fleiri glæsihús í Evróvisjónborg
Kristalshöllin Þannig á tónlistar-
höllin í Bakú að líta út.
Heimilislaust fólk í Holesovice-hverfi í Prag
bauð kuldanum byrginn í gær og svaf undir Lib-
bensky-brúnni, stór grýlukerti skreyta brúna.
Miklir kuldar þjaka nú mestan hluta Austur-
Evrópu og er vitað um minnst 60 manns sem
hafa látist af völdum þeirra, að sögn yfirvalda í
umræddum löndum. Sums staðar hefur herinn
verið látinn dreifa mat og lyfjum og setja upp
bráðabirgðaskýli handa heimilislausum.
Reuters
En allir mega víst sofa undir brúnni
Miklir kuldar í A-Evrópu og heimilislausir í vanda
Utanríkisráðherra Pakistans, Hina
Rabbani Khar, neitaði í gær ásök-
unum, sem fram koma í leynilegri
skýrslu Atlantshafsbandalagsins,
um að pakistanskar öryggisstofnanir
hafi aðstoðað talibana í Afganistan.
Utanríkisráðherrann sagði á
blaðamannafundi í Kabúl með
starfsbróður sínum frá Afganistan
að ásakanirnar í skýrslunni væru
„gamalt vín í enn eldri flösku“.
Breska ríkisútvarpið, BBC, segir
að í skýrslunni komi fram að pakist-
anskar öryggisstofnanir aðstoði tal-
ibana sem voru við völd í Afganistan
þar til stjórn þeirra var steypt af
stóli árið 2001 í innrás fjölþjóðlegs
herliðs undir stjórn Bandaríkjanna.
Skýrslan byggist á upplýsingum sem
fengust í 27.000 yfirheyrslum yfir
meira en 4.000 föngum úr röðum tal-
ibana og al-Qaeda.
Vita hvar leiðtogarnir fela sig
BBC segir að í skýrslunni séu
tengsl pakistönsku leyniþjónustunn-
ar ISI og talibana afhjúpuð alger-
lega í fyrsta skipti. Pakistanska
leyniþjónustan viti hvar æðstu leið-
togar talibana haldi sig. „Háttsettir
fulltrúar talibana, svo sem Nasir-
uddin Haqqani, dvelja enn í næsta
nágrenni við höfuðstöðvar ISI í Ísl-
amabad,“ segi meðal annars í skýrsl-
unni.
Að sögn BBC kemur einnig fram í
skýrslunni að uppreisnarmenn úr
röðum talibana láta engan bilbug á
sér finna og njóta mikils stuðnings
meðal Afgana. bogi@mbl.is
Reuters
Utanríkisráðherrann Hina Rabbani
Khar ræðir við blaðamenn í Kabúl.
Leyniþjónusta
Pakistans sögð
hjálpa talibönum
Pakistanar neita
ásökunum í leynilegri
skýrslu NATO
Vísindamönnum
við Berkeley-
háskóla í Kali-
forníu hefur tek-
ist að nota heila-
bylgjur til að
„lesa“ orð og þar
með hugsanir
sjúklings sem
ekki getur tjáð
sig með tali, að
sögn BBC.
Sagt er frá tilrauninni í vefritinu
PLoS Biology. Rannsóknarteymið
fylgdist með STG-heilabylgjum frá
15 sjúklingum meðan framkvæmd
var á þeim skurðaðgerð vegna floga-
veiki eða heilaæxlis en um leið var
leikin hljóðupptaka þar sem nokkrir
einstaklingar lásu upp orð eða setn-
ingar. Síðan þurfti að greina hvar í
flóknum heilabylgjum sjúklinganna
mátti greina viðbrögð við upplestr-
inum, hvaða hlutar heilans svöruðu
hverri bylgjulengd.
Ljóst er að takist mönnum að
þróa þessa aðferð frekar mun hún
geta komið að gagni fyrir fólk í dái,
gert því kleift að eiga samskipti við
annað fólk. Í fyrra tókst að láta fólk
með elektróður á höfðinu, tengdar
heilanum, færa bendil á skjá einfald-
lega með því að hugsa um hljóm
ákveðinna sérhljóða. kjon@mbl.is
Gátu end-
urskapað
hugsun
Heilabylgjur
mældar.
Vísindamenn lásu
orð í heilabylgjum