Morgunblaðið - 02.02.2012, Page 32
32 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2012
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VÚ
HÚ!
ÉG NÁÐI LOKSINS AÐ LOSA
HNÚTINN Á REIMINNI MINNI
ÞESSUM DEGI
VAR GREINILEGA
VEL VARIÐ
ÉG ÆTLA
AÐ HAFA KALLA
SEM VARA-
FORMANN
ÆI
NEI!
HVAÐ ER AÐ KALLA?
ÉG HELD AÐ HANN YRÐI
GÓÐUR VARAFORMAÐUR
ÆTLI ÞÚ HAFIR EKKI RÉTT
FYRIR ÞÉR, HANN GÆTI
HJÁLPAÐ OKKUR AÐ VINNA
HANN GÆTI LAÐAÐ AÐ
ATKVÆÐI FRÁ ÞEIM SEM
HAFA ENGAN PERSÓNULEIKA
HELGA, HRÓLFUR SAGÐI MÉR AÐ
SEGJA ÞÉR AÐ HONUM ÞYKIR LEITT AÐ HAFA
GERT ÞAÐ SEM HANN GERÐI. HANN BAÐ MIG
AÐ BIÐJA ÞIG FYRIRGEFNINGAR
HÚN
GAF MÉR
ENGIN BEIN
SVÖR
RUNÓLFUR,
HVAÐ ERTU
AÐ GERA MEÐ
ÞETTA
SKILTI?
ÉG FANN
ÞAÐ VIÐ
ÞJÓÐVEGINN
SEM ÉG
ÆTTLEIDDI
ÞÚ MÁTT EKKI
TAKA ÞETTA!
SKILTIÐ ER ÆTLAÐ
TIL ÞESS AÐ VARA
ÖKUMENN VIÐ ÞVÍ
AÐ ÞAÐ ERU
HREINDÝR Á FERÐ
HELDURÐU
AÐ ÞETTA
SKIPTI
NOKKUÐ
EINHVERJU
MÁLI? SKILTIÐ
ASNINN ÞINN!
LÁTTU MIG FÁ
ÉG
ÆTLA EKKI AÐ
SKJÓTA ÞIG MEÐ
GEISLUNUM
MÍNUM
ÞANNIG AÐ ÞÚ
HEFUR TEKIÐ SÖNSUM
ÉG
ÆTLA
FREKAR AÐ
KREMJA ÞIG!
EF OKKUR LANGAR Í GLERSKÁP FYRIR
POSTULÍNIÐ, ÞÁ ÆTTUM VIÐ AÐ FARA TIL
QUAINTSBURG Á FÖSTUDAGINN
ÞAÐ ER MIKIÐ AF
ANTÍKVERSLUNUM ÞAR. VIÐ
GÆTUM JAFNVEL GIST ÞAR
OG NOTIÐ HELGARINNAR
ÞIG LANGAR SEM SAGT EKKI
BARA Í SKÁP, HELDUR LÍKA Í FRÍ?
MAÐUR VERÐUR
AÐ LÆRA AÐ NJÓTA
FERÐALAGSINS
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, göngu-
hópur kl. 10.30. Myndlist/prjónakaffi kl.
13. Bókm.klúbbur kl. 13.15. Jóga kl. 18.
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9.
Botsía kl. 9.30. Helgistund kl. 10.30.
Handavinna kl. 13. Myndlist kl. 13.30.
Boðinn | Tréútskurður kl. 9, kl. 9.30
vatnsleikfimi, handavinna kl. 13, fé-
lagsvist/brids kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist, bókband,
skartgripagerð, leikfimi kl. 12:45, tölvu-
námskeið kl. 13:35, handavinna.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
bænastund kl. 9.30, vöfflukaffi kl. 13.
Listamaður mánaðarins.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.
Bænastund kl. 12.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í
dag kl. 13, bókmenntaklúbbur kl. 14.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefn.
kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15, málm- og silf-
ursmíði kl. 9.30, bókband kl. 13, bingó kl.
13.30, myndl.hópur kl. 16.10.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinna kl. 9, ganga kl. 10. Handavinna og
brids kl. 13. Jóga kl. 18.
Félagsmiðstöðin Sléttuvegi 11-13 |
Leikfimi kl. 9.10. Tungubrjótar í heim-
sókn kl. 14.
Félags- og íþróttastarf eldri borgara
Garðabæ | Qi gong kl. 8.10, vatns-
leikfimi kl. 12, handav/karlaleikfimi kl.
13, botsía kl. 14, kóræfing kl. 16.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15. Gler kl. 9.
Kaffispjall í krók kl. 10.30. Félagsvist
Skólabr. kl. 13.30. Karlakaffi í kirkju kl.
14.
Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund í
samstarfi við Fella- og Hólakirkju kl.
10.30. Fél. heyrnarlausra kl. 11. Frá hád.
búta/perlusaumur.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9. Leik-
fimi kl. 9:15, botsía kl. 10.30, forskorið
gler kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Þorrablót
10. febrúar, verð 4.500, hinn ástsæli
Raggi Bjarna syngur. Skráning hafin í
síma 411 2730 eða hjá Dóru á skrifstofu.
Hraunsel | Qi gong kl. 10, dýnuæfingar
Bjarkarhúsi kl. 11.20, glerskurður kl. 13,
pílukast og félagsvist kl. 13.30, vatns-
leikfimi kl. 14.40, tréútskurður í gamla
Lækjarskóla kl. 14, s. 555 0142.
Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10. Hann-
yrðir kl. 13. Félagsvist kl. 13.30, kaffisala.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50, myndlist kl. 9, morgunandakt með
sr. Pálma kl. 9.30, leikfimi kl. 10, Þegar
amma var ung kl. 10.50, sönghópur
Hjördísar kl. 13.30, línudans Ingu kl. 15.
Stund með prjónum á morgun, fös., kl.
9. Skrán. hafin í ferð til Garda/Tíról í
haust.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó kl. 17. Línu-
dans, hópur III, kl. 18 í Kópavogsskóla.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi
alla þriðjudaga og föstudaga kl. 9:30.
Listasmiðja alla fim. og fös. á Korpúlfs-
stöðum kl. 13:30.
Laugarneskirkja | Bjarni Gíslason,
fræðslufulltrúi Hjálparstarfs kirkj., kl. 14 í
safnaðarheimili með erindið Vatnið. Sig-
urbjörn Þorkelsson leiðir samveruna.
Kaffi og kökur.
Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9. Botsía
kl. 10. Upplestur kl. 11. Laus pláss í leir-
listarnámskeið kl. 9/13.
Vesturgata 7 | Setustofa kaffi kl. 9.
Handavinna kl. 9. Tiffany’s kl. 9:15. Leik-
fimi kl. 10:30. Hádegisverður kl. 11:30.
Tiffany’s/kóræfing kl. 13. Kaffiveitingar
kl. 14:30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Postulín,
bókband og smiðja kl. 9, morgunstund
kl. 9.30, botsía kl. 10, uppl. kl. 12.30,
handavinna, spil, stóladans kl. 13.
Steingrímur
og ESB
Ég heyrði Steingrím
J. Sigfússon agnúast
út í Vigdísi Hauks-
dóttur á Alþingi í
gær. Hún drægi ESB
inn í alla umræðu og
ekki mætti ræða
mengunarmál eða
neitt svo hún færi
ekki að skammast út í
blessað Evrópusam-
bandið. Af hverju get-
ur hún ekki þagað um
þetta mál og leyft
okkur að renna þegj-
andi og hljóðalaust
þar inn eins og aðrir sem kenna sig
við græna litinn? Auk þess sér ESB
okkur fyrir góðum leiðbeiningum
varðandi hreinlæti al-
mennings og minni
fyrirtækja, já hrein-
læti verður að vera.
Ég er þess líka per-
sónulega fullviss, að
ef Ísland væri jafn
hreint og heilindi
Steingríms þá þyrfti
Gnarrið ekki að bera
sand og möl á götur
bæjarins til að al-
menningi yrði ekki
hált á svellinu, því
það væri ekki um
marga hvíta bletti að
ræða.
Kristján Hall.
Velvakandi
Ást er…
… að breiða yfir börnin
og kyssa þau góða nótt.
Góðvinur Vísnahornsins ÁrmannÞorgrímsson komst nýverið á
níræðisaldur. Hann gerði að gamni
sínu á afmælisdaginn og orti:
Áður las ég lofnarblóm
í lundum ungra svanna.
Núna heyri aðeins óm
endurminninganna.
Friðrik Steingrímsson prjónaði
við vísuna:
Fráleitt kvíddu frændi því
að fenni slóð til svanna,
meðan logar eldur í
arni minninganna.
Björn Ingólfsson sendi hressilega
kveðju:
Alltaf jafn brattur, enginn sér
óþarfa bilbug á honum.
Á níunda tugnum Ármann er
með allan hugann hjá konum.
Davíð Hjálmar Haraldsson glett-
ist líka við afmælisbarnið:
Engu breytir afmælið;
Ármanns glóðir brenna.
Lífsreynd eyrun leggur við
ljúfu hjali kvenna.
Og Ármann klykkir út með:
Birtan vex og bráðum skín
blessuð sólin inn til mín
Ellin lítið á mér hrín
æskan seinni verður fín.
Óskar í Meðalheimi orti á sínum
tíma:
Af er nú sem áður var
á ævi minnar göngu.
Allar draumadísirnar
dauðar fyrir löngu.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af minningum og afmæli
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur