Morgunblaðið - 03.02.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
mán. - fös. 11-18:30 laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18
SUNNUDAGINN 5. FEBRÚAR
ÚTSÖLULOK
einfaldlega betri kostur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Framsögumenn á málþingi mál-
fundafélagsins Lögréttu, sem haldið
var í gær, voru sammála um að sím-
hleranir væru nauðsynlegt úrræði
við rannsóknir sakamála en nokkuð
bar á milli þegar svara átti spurning-
unni hvort þeim væri beitt of frjáls-
lega við rannsóknir lögreglu.
„Ég geri þá kröfu að það liggi und-
ir skýrir almannahagsmunir því það
á að túlka þetta þröngt,“ segir Brynj-
ar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og
formaður Lögmannafélagsins, sem
m.a. gagnrýndi símhleranir sérstaks
saksóknara í erindi sínu.
Brynjar hefur einnig gagnrýnt eft-
irlitsleysi með símhlerunum en Stef-
án Eiríksson, lögreglustjóri lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, sem
einnig flutti framsögu á málþinginu,
fjallaði um mikilvægi eftirlitsins í
framsögu sinni. „Hann er mjög baga-
legur, þessi skortur á eftirliti með
þessari starfsemi sem hefur verið
undanfarin ár,“ segir Stefán. „Það
opnar fyrir allra handa vangaveltur
um að lögreglan sé ekki að sinna
þessu í samræmi við lög og það er af-
ar rík og brýn þörf á að eftirlitið sé
virkt, ekki bara innan lögreglunnar
heldur hjá óháðum og utanaðkom-
andi aðila.“
Stefán sagði þarft að minna á að
það væru dómstólarnir sem heim-
iluðu hleranir og hefðu þannig eftirlit
með því að kröfur lögreglunnar um
hleranir stæðust lög en eftirlit með
framkvæmdinni væri á höndum rík-
issaksóknara. „Og það er ánægjulegt
að sjá að hann er að taka þetta föst-
um tökum núna,“ sagði hann.
holmfridur@mbl.is
Mikilvægt að eftirlit
með símhlerunum sé virkt
Rökræddu beitingu símhlerana og forsendur þeirra
Sprengju-
mannsins
enn leitað
Lögreglan leitar
enn að karlmanni
og hvítri Renault
Kangoo sendi-
bifreið í tengslum
við rannsókn á
sprengju sem
fannst neðst á
Hverfisgötu í
Reykjavík á
þriðjudags-
morgun. Mað-
urinn var í víðum, dökkbláum galla-
buxum og með lyklakippu hangandi í
buxunum. Hann var í dökkri úlpu og
mögulega í hettupeysu innan undir.
Maðurinn er þéttvaxinn og þung-
lamalegur. Hann er talinn vera á
miðjum aldri og meðalmaður á hæð.
Lögreglan lítur málið mjög alvar-
legum augum. Enn er óskað eftir
upplýsingum um fólk eða ökutæki á
svæðinu þar sem sprengjan fannst
snemma á þriðjudagsmorgun.
Þeim má koma á framfæri í síma
444-1000 en upplýsingar má einnig
senda í tölvupósti á netfangið abend-
ing@lrh.is. Sömuleiðis er hægt að
koma nafnlausum ábendingum á
framfæri í síma 800-5005.
Meintur
sprengjumaður.
Lögreglan óskar
eftir upplýsingum
Guðni Einarsson
Anna Lilja Þórisdóttir
Formlegar viðræður hófust í gær milli bæj-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar-
flokksins og Lista Kópavogsbúa um myndun
nýs meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs. Við-
ræðum verður haldið áfram eftir hádegi í
dag og svo áfram um helgina, að sögn Ár-
manns Kr. Ólafssonar, oddvita Sjálfstæðis-
flokksins í bæjarstjórn.
„Ég vonast til þess að þetta fari langt um
helgina,“ sagði Ármann. Hann sagði að búið
væri að fara aðeins yfir málefnin en ekki bú-
ið að ákveða neitt varðandi nefndir eða skipt-
ingu embætta.
Flokkarnir sem nú ræða myndun nýs
meirihluta eiga samtals sex bæjarfulltrúa af
ellefu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks eru fjórir
en Framsóknarflokkur og Listi Kópavogs-
búa eiga einn fulltrúa hvor. Það er því verið
að ræða myndun minnsta mögulega meiri-
hluta.
„Það þarf ekkert að vera slæmt,“ sagði Ár-
mann, spurður um þennan litla meirihluta. „Í
minnsta mögulega meirihluta verða allir að
standa saman.“
„Mér líst bara vel á þetta,“ sagði Gunnar I.
Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og
fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs. Hann
taldi góðan gang vera í viðræðunum og
kvaðst vona að þær tækju ekki marga daga.
Þegar fólk væri búið að ná saman þá tæki
þetta oft ekki langan tíma.
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi og oddviti
Framsóknarflokks í bæjarstjórn, vildi ekki
svara miklu um það í gær hvort flokkarnir
þrír næðu vel saman í viðræðunum. „Ég held
ró minni og læt verkin tala,“ sagði Ómar í
samtali við mbl.is. Hvað varðar verkaskipt-
ingu milli flokka og hver verði bæjarstjóri
sagði Ómar: „Það er búið að ræða ýmislegt.
En ég er ekki tilbúinn til að tjá mig meira.“
Sem kunnugt er slitnaði í fyrradag upp úr
viðræðum Sjálfstæðisflokks, VG og Samfylk-
ingar um myndun bæjarstjórnarmeirihluta.
Hvorki náðist í bæjarfulltrúa Lista Kópa-
vogsbúa né varafulltrúa listans í gærkvöldi.
Meirihluti að fæðast í Kópavogi
Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Listi Kópavogsbúa fóru í formlegar viðræður í gær
Oddviti sjálfstæðismanna vonast til þess að viðræður um nýjan meirihluta fari langt um helgina
Morgunblaðið/Ómar
Kópavogur Viðræður eru hafnar um myndun
nýs meirihluta í bæjarstjórn.
Skrifstofustjóri
borgarstjórnar
hefur sent Al-
þingi bréf þar
sem óskað er eft-
ir breytingu á
fasteignalögum,
þannig að hest-
hús, þaðan sem
ekki er rekin at-
vinnustarfsemi, verði aftur færð
undir a-lið álagningar, en undir hann
heyra m.a. íbúðarhúsnæði og sum-
arhús. Samkvæmt úrskurði yfirfast-
eignamatsnefndar frá árinu 2010 ber
að skattleggja hesthús sem atvinnu-
húsnæði en það þýðir að fast-
eignaskattur á meðalstórt hesthús
hækkar úr 16.265 kr. í 134.185 kr.
Borgaryfirvöld ákváðu að hækka
fasteignaskatta á hesthús í þéttbýli
til samræmis við úrskurð yfirfast-
eignamatsnefndar nú um áramótin
en hestafólk hefur mótmælt þeirri
ákvörðun. Borgin telur úrskurð
nefndarinnar þó ótvíræðan og því
verði að breyta lögunum en í þeim er
hvergi fjallað sérstaklega um hest-
hús. Í tilkynningu frá borginni segir
m.a. að í hesthúsum fari að megin-
stefnu fram frístundastarf og því
falli rök að því að setja þau í sama
skattflokk og t.d. sumarhús.
Hesthús í
flokk með
sumarhúsum
Vilja breyta lögum
Hestamaðurinn Sigurbjörn Bárðarson varð sextugur í
gær. Af því tilefni var hann heiðraður við setningu
fyrsta móts ársins í meistaradeildinni í hestaíþróttum
sem haldin er í Ölfushöllinni. Afmælissöngurinn var
sunginn fyrir afmælisbarnið sem á að baki glæsilegan
feril í hestamennskunni og er hvergi nærri hættur.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sextugur og sigursæll Sigurbjörn
Sigurbjörn Bárðarson heiðraður í upphafi meistaradeildarinnar
Spurður um dóm Hæstaréttar
frá því fyrr í vikunni, þar sem
dómurinn ávítaði ákæruvaldið
og héraðsdómara fyrir að fjalla
um upptökur af samtali milli
sakbornings og verjanda hans
athugasemdalaust, sagðist
Brynjar ekki telja að framferði
þeirra bryti gegn hegningar-
lögum.
„Þetta er hrikalega klaufa-
legt,“ sagði Brynjar. „En ég vil
bara flokka þetta sem mistök
þar til annað kemur í ljós.“
Klaufalegt
UPPTÖKUR