Morgunblaðið - 03.02.2012, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.02.2012, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Skúli Hansen skulih@mbl.is „Heildaryfirlitið sýnir það að upplif- un notenda af Barnahúsi er jákvæð,“ segir Anna Kristín Newton réttarsál- fræðingur, en hún mun í dag kynna skýrslu sína um reynslu barna og ungmenna af þjónustu Barnahúss. Kynning á skýrslunni fer fram frá klukkan 15:00 til 16:00 í stofu HT-103 í Háskóla Íslands. Að sögn Önnu Kristínar er hægt að tvískipta niðurstöðum skýrslunnar eftir því hvort börn fóru í skýrslutöku í Barnahúsi eða fyrir dómstóli og bera saman upplifun bæði barnanna og forráðamanna þeirra á þessum tveimur stöðum. „Þar kemur í raun og veru sú niðurstaða fram að þó svo að þau hafi ekkert endilega verið óánægð með dómstólana þá voru þau ánægðari með allt í Barnahúsi,“ segir Anna Kristín. Skýrslan var, að sögn Önnu Krist- ínar, þannig byggð upp að börn undir 18 ára aldri voru ekki spurð álits en í staðinn var haft samband við forráða- menn þeirra og þeir beðnir um að meta bæði sína eigin upplifun sem og það hvernig þeir töldu að börn þeirra hefðu upplifað þjónustuna. „En svo var haft samband við krakka sem voru orðnir 18 ára þegar rannsóknin fór fram,“ segir Anna Kristín, að- spurð hvernig skýrslan var unnin og bætir við að úrtak rannsóknarinnar sem lá að baki skýrslunni hafi verið um það bil þriðjungur allra þeirra mála sem komu upp árin 2007-2009. Umhverfið skiptir miklu máli „Í mínum huga þýðir þetta að ef við erum að hugsa um velferð barna og ungmenna, að veita þeim alúð og hjálpa þeim í gegnum svona erfiða reynslu sem skýrslutaka er ef grunur leikur á um að þau hafi sætt kyn- ferðisofbeldi, þá er Barnahús best til þess fallið að mati notenda,“ segir Anna Kristín, aðspurð hvað niður- stöður skýrslunnar merki í hennar huga. Anna Kristín segir það fyrst og fremst vera ytra umhverfið sem skilji að þá aðstöðu sem er til staðar hjá dómstólum og þá aðstöðu sem Barna- hús býður upp á. Hún nefnir sem dæmi að hlutir á borð við staðsetn- ingu, húsgögn, aðstöðu og afþreyingu skipti máli í þessu samhengi. „Það að ganga inn í dómhúsið í Reykjavík getur maður ímyndað sér að sé svo- lítið öðruvísi nálgun fyrir barn en að ganga inn í einbýlishús í íbúða- hverfi,“ segir Anna Kristín en tekur þó fram að upplýsingagjöfin sem not- endurnir fá, bæði fyrir og eftir skýrslutöku, skipti hér meginmáli. Anna Kristín bendir jafnframt á að í skýrslunni komi fram að þeim notendum Barnahúss sem eru á ung- lingsaldri finnist vanta aðstöðu sem er meira aðgreinanleg frá þeirri að- stöðu sem yngstu börnin nota, um- hverfið sé að þeirra mati að ein- hverju leyti of barnalegt. Hún leggur til að meira verði gert fyrir unglinga í Barnahúsi ef það á að sinna þeim þar. Ánægðari með skýrslutökur í Barnahúsi  Góð upplýsingagjöf skiptir meginmáli Morgunblaðið/G.Rúnar Umhverfi Börnum líður almennt séð betur í skýrslutöku í Barnahúsi. Skýrslutaka » Skýrslan var unnin af sál- fræðingunum Önnu Kristínu Newton og Elínu Hjaltadóttur fyrir Barnaverndarstofu. » Þörf er á betri aðstöðu fyrir skýrslutökur á unglingum. » Bæði börn og forráðamenn þeirra segja aðstöðuna í Barnahúsi vera betri en þá að- stöðu sem dómstólar bjóða upp á. Dómshús eru að mörgu leyti of formlegir staðir fyrir svona skýrslutökur. Skúli Hansen skulih@mbl.is Verslunarkeðjan Nóatún hefur ákveðið að hætta sólarhrings- afgreiðslu í verslunum sínum. Breyt- ingarnar tóku gildi hinn 1. febrúar en framvegis verða allar verslanir Nóatúns opnar frá klukkan átta á morgnana til miðnættis. „Í núgildandi kjarasamningum er hækkun launa það mikil að forsend- urnar fyrir því að þetta gangi upp, án þess að vöruverð sé hækkað, eru að okkar mati brostnar,“ segir Bjarni Friðrik Jóhannesson, rekstrarstjóri Nóatúns, spurður um ástæður þess að afgreiðslutímanum var breytt. „Það er lykilatriði í okkar ákvörð- un að við viljum ekki halda þessum afgreiðslutíma úti með því að hækka vöruverð.“ Að sögn Bjarna er yfirvinnuálag samkvæmt núverandi kjarasamn- ingum 40% en á næsta ári mun það hækka upp í 45%. Þá er gert ráð fyr- ir frekari hækkunum á álaginu undir lok samningsins. Bjarni segir þessar auknu álögur gera það að verkum að Nóatún geti ekki haldið úti sólar- hringsþjónustu í verslunum sínum. „Við bentum á það þegar umræð- ur voru um kjarasamninga á vett- vangi Samtaka verslunar og þjón- ustu, að þetta væri verulega íþyngjandi fyrir þennan afgreiðslu- tíma hjá verslunum,“ segir Bjarni. Að sögn Gunnars Inga Sigurðs- sonar, framkvæmdastjóra Hag- kaupa, hefur ekki komið til álita að hætta sólarhringsþjónustu í þeim þremur verslunum þar sem hún er nú veitt. Áfram opið hjá Hagkaupum „Viðskiptavinir okkar eru ánægðir og á meðan svo er og það svarar kostnaði að halda verslununum opn- um munum við halda áfram með þetta,“ segir Gunnar Ingi. Hann bætir við að ekki komi til greina að hækka verðlag í verslunum keðjunnar til þess að halda úti sólar- hringsþjónustu. „Við sjáum ekki fram á neinar breytingar á þessu hjá okkur,“ segir Stefán Ragnar Guðjónsson, for- Hættir með sólar- hringsafgreiðslu  Nóatún segir aukinn launakostnað setja strik í reikninginn Morgunblaðið/Þorkell Afgreiðslutími Nóatún hætti um mánaðamótin að bjóða viðskiptavinum sínum upp á sólarhringsþjónustu vegna vaxandi launakostnaðar. Allar matvöruverslanir keðjunnar verða framvegis opnar frá átta að morgni til miðnættis. stöðumaður innkaupa- & markaðs- sviðs Nettó, aðspurður hvort til standi að breyta afgreiðslutíma í Mjódd en þar er opið allan sólar- hringinn. „Salan er það mikil að það er engin ástæða til þess að skerða afgreiðslu- tímann aftur.“ Spurður út í áhrif aukins launa- kostnaðar segir Stefán Ragnar að slíkt kalli á aukna hagræðingu hjá fyrirtækinu enda væri það af og frá að hleypa slíkum kostnaði út í vöru- verðið. „Þetta mál er til skoðunar hjá okk- ur,“ segir Brynja Blanda Brynleifs- dóttir, fjármálstjóri Office 1, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Öryggisverðir sem ráðnir voru sem verktakar frá Öryggisfélaginu mynduðu stóran hluta næturafgreiðslumanna verslana Nóatúns. Að sögn Bjarna Frið- riks Jóhannessonar, rekstrarstjóra Nóatúns, mun verslunarkeðjan ekki halda áfram að ráða til sín verktaka í þessi störf í kjölfar breytinganna á af- greiðslutíma verslananna. Sverrir Friðriksson, framkvæmdastjóri Öryggisfélagsins, segir tekjumissi fyrirtækisins vegna þessa vera töluverðan. „Við færum eitthvað fólk á milli staða en það verða einhverjir sem missa vinnuna,“ segir Sverrir, aðspurður hvaða áhrif þetta hafi á starfsmannamál hjá Öryggisfélaginu. Að sögn Sverris er fyrirtækið með starfsmenn að störfum hjá Hag- kaupum en félagið sér einnig um alla öryggisgæslu í tónlistarhúsinu Hörpu. Einhverjir gætu misst vinnuna MIKILL TEKJUMISSIR FYRIR ÖRYGGISFÉLAGIÐ 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012 „Við teljum okkur eiga einhverja möguleika á að hagræða enn betur, en hitt er þá að skera niður enn frek- ar,“ segir G. Pétur Matthíasson hjá Vegagerðinni. Óvenju snjóþungur vetur á landinu hefur aukið kostnað Vegagerðarinnar við snjómokstur. Gert var ráð fyrir um 1.600 milljónum í vetrarþjónustu í fyrra en kostnaður varð 2.200 milljónir króna, umfram- kostnaður 600 milljónum meiri en í fyrra í vetrarþjónustunni. „Við erum búnir að hagræða gríðarlega í sumar- og vetrarþjónustunni og höfum farið úr rúmum fimm milljörðum í rúmlega þrjá frá árinu 2007,“ segir Pétur. Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra sagði í Morgunblaðinu í gær að þessi aukni kostnaður kæmi til með að bitna á öðrum fram- kvæmdum. Hann hefur óskað eftir greinargerð frá Vegagerðinni. Pétur segir ljóst að viðhald og þjónusta þoli ekki mikið meiri niður- skurð en þetta sé líka spurning um hversu hátt þjónustustig þjóðfélagið vilji sjá. Hann segir mögulegan niður- skurð ekki eiga að koma niður á ný- framkvæmdum, þar sem ákvarðað sé á fjárlögum hversu mikið fé fari til þess málaflokks og svo viðhalds og þjónustu. Vegagerðin geti ekki flutt fé þar á milli, nema þá fyrir atbeina Alþingis. sigrunrosa@mbl.is Hagræða eða skera meira niður  Kostnaður Vegagerðarinnar vegna vetrarþjónustu í fyrra 2,2 milljarðar Einar K. Guð- finnsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, segir fráleitt að láta Vegagerðina gjalda erfiðs tíðarfars með niðurskurði á framlögum til vegamála, líkt og innanrík- isráðherra hafi sagt líklegt. „Þetta kemur ekki til greina,“ segir Einar. Útvega verði fjármagn til að bregðast við þessum óvanalegu að- stæðum. „Til að setja þetta í samhengi þá er verið að tala um 600 milljónir króna. Í sam- gönguáætlun er gert ráð fyrir 500 milljónum í alla tengivegi á landinu.“ Þarf fjármagn VEGAGERÐ Einar K. Guðfinnsson Til sölu er grásleppu- og krókaleyfisbáturinn Ásgeir ÞH 198. Skrn. 1790. Bátnum fylgir grásleppuleyfi og úthald, 180 net. Í bátnum er 120 ha Fordvél, árg. 2010, keyrð 600 tíma. Upplýsingar í síma 893 2591.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.