Morgunblaðið - 03.02.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
Glæsilegir
bolir
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Ný sending af bolum.
Margir litir.
Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík
sími 568 2870 | www.friendtex.is
LAGERSALA AÐEINS
FÖSTUDAG OG LAUGARDAG
V
e
rð
s
e
m
þ
ú
h
e
fu
r
e
k
k
i
s
é
ð
á
ð
u
r
3 stk. buxur kr. 5.000,-
eða velur 3 flottar flíkur
og greiðir kr. 6.000,-
t.d. peysu, skyrtu, pils, jakka.
Vetrarjakkar kr. 5.900,-
Jakkar frá kr. 2.900,-
Opnunartími LAGERSÖLU föstud. – laugard. 12-18
Bjarni Þórðarson
tryggingastærðfræð-
ingur lést á Landspítal-
anum við Hringbraut,
fimmtudaginn 2. febr-
úar s.l., 75 ára að aldri.
Bjarni fæddist í
Reykjavík 5. ágúst
1936. Hann var sonur
hjónanna Valgerðar Jó-
hannesdóttur og Þórð-
ar Bjarnasonar bókara.
Bjarni lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
1956, fyrrihlutaprófi í
verkfræði frá Háskóla
Íslands 1960 og cand. act. prófi í
tryggingastærðfræði frá Kaup-
mannahafnarháskóla 1964. Hann
rak eigin ráðgjafastofu frá 1966-
1973 og var jafnframt fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
tryggingafélaga 1967-1973. Bjarni
hóf störf sem aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Íslenskrar endur-
tryggingar 1974 og var fram-
kvæmdastjóri þar 1979-2008.
Starfaði sem ráðgef-
andi tryggingastærð-
fræðingur frá árinu
2000 fyrir lífeyrissjóði
og tryggingafélög.
Bjarni tók mjög
virkan þátt í ýmsum
hagsmunasamtökum
tryggingafélaga, líf-
eyrissjóða og annarra
félaga. Var m.a. for-
maður Landsambands
lífeyrissjóða frá 1969
til 1984. Sat í stjórn
Sambands íslenskra
tryggingafélaga 1985-
2000, þar af sem for-
maður 1986-1988. Hann sat einnig í
stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar um
árabil.
Bjarni var virkur félagi í Rótarý-
klúbbi Hafnarfjarðar, og var um-
dæmisstjóri Rótarý-hreyfingarinnar
á Íslandi 2003-2004.
Bjarni lætur eftir sig eiginkonu,
Kristínu Guðmundsdóttur lífeinda-
fræðing, og þrjár dætur, Þórdísi,
Hildi og Valgerði.
Andlát
Bjarni Þórðarson
Svarta stálkeilan á granítsteininum, minnisvarði
um borgaralega óhlýðni, er skúlptúr eftir spænska
listamanninn Santiago Sierra. Hún er enn á sínum
stað á Austurvelli, framan við Alþingishúsið.
Steinninn var settur upp á þriggja ára afmæli búsá-
haldabyltingarinnar svonefndu í janúar og var hluti
af gjörningi listamannsins í boði Listasafns Reykja-
víkur. Sierra er þekktur fyrir ádeilu á kapítalískt
markaðshagkerfi. Soffía Karlsdóttir, kynningar-
stjóri hjá Listasafninu, segir að verkið muni standa
fram til 15. apríl þegar vetrardagskrá safnsins lýk-
ur en ekki hafi verið tekin ákvörðun um næstu
skref. kjon@mbl.is
Svarta keilan stendur á
Austurvelli fram í apríl
Minnisvarði um
borgaralega óhlýðni
Morgunblaðið/Ómar
Svarta keilan Minnisvarði um borgaralega óhlýðni sem mun standa á Austurvelli fram í apríl.
Áletrun Sierra deilir á kapítalískt markaðshagkerfi.
Ögmundur Jón-
asson innanríkis-
ráðherra hefur
ákveðið að Ísland
innleiði ekki
þjónustu-
tilskipun um
póstinn. Norð-
menn tóku í
haust sömu
ákvörðun. Þetta felur í sér að tekn-
ar verða upp viðræður við ESB um
að þjónustutilskipun varðandi póst-
inn heyri ekki undir EES-
samninginn.
Ögmundur sagði í umræðum á
Alþingi í gær um fjarskiptaáætlun
að hann hefði alltaf verið mjög á
móti einkavæðingu póstsins. Í áætl-
uninni segir að „innleidd verði eftir
þörfum tilskipun ESB varðandi
opnun póstmarkaða“.
Nokkrir þingmenn spurðu hvað
þetta fæli í sér.
„Þetta er talið vera loðið orðalag
og ég er sammála því,“ sagði Ög-
mundur. „Það hefur verið vísað til
þess að Íslendingar ættu að fara að
dæmi Norðmanna sem telja að
þjónustutilskipun varðandi póstinn
eigi ekki að heyra undir EES-
samninginn. Norðmenn hafa tekið
upp viðræður og óskað eftir frekari
viðræðum við Evrópusambandið
um þetta efni. Ég get skýrt frá því
að þetta hafa Íslendingar líka
ákveðið að gera.
Fulltrúi innanríkisráðuneytisins,
sem kemur að þessum samningum,
fór með þau skilaboð í utanríkis-
ráðuneytið í (gærmorgun) að við
vildum fylgja dæmi Norðmanna
hvað þetta snertir og kanna hvort
við getum komið tilskipuninni um
póstmál undan EES-samningnum.
Við munum hafa hliðsjón af því sem
Norðmenn gera í þessum efnum.
Þetta tel ég vera afar mikilvægt
mál og er algerlega sammála þeim
þingmönnum sem hafa gagnrýnt
innleiðingu á þjónustutilskipunni
um póstinn. Við erum að reisa hér
varnir á þessu sviði.“
Hafnar
EES-tilskip-
un um póst
Íslendingar fylgja
dæmi Norðmanna
Strætó bs. hlaut í gær Forvarnar-
verðlaun VÍS 2012 á ráðstefnunni
Forvarnir í fyrirrúmi. Einnig voru
Íslensk Ameríska - ISAM og Norð-
urþingi veittar viðurkenningar fyrir
góðan árangur. Forvarnarverðlaun-
in eru veitt fyrir framúrskarandi og
fyrirmyndar-forvarnir. Í tilkynningu
segir að um 300 tjón hafi verið á ári
hjá Strætó bs. áður en farið var í
markvissar aðgerðir til að fækka
þeim. Á síðasta ári urðu 82 tjón eða
um 73% færri en áður var algengt.
Hin fyrirtækin sem fengu viður-
kenningu stóðu sig líka vel. Hjá Ís-
lensk Ameríska - ISAM vinnur öflug
liðsheild stöðugt að því að bæta
hvers kyns öryggi og eldvarnir.
Heildarforvarnareinkunn Norður-
þings hefur hækkað hratt, ekki síst
vegna aukinnar öryggisvitundar
starfsmanna, betri brunavarna og
bættrar umgengni.
Tjónum hefur
fækkað um
meira en 70%
Morgunblaðið/Heiddi
Strætó Sannarlega til fyrirmyndar.
Karlar sem ætla að taka þátt í árveknis- og fjáröflunar-
átaki Krabbameinsfélagsins vegna karlmanna og
krabbameina ættu að fara að huga að skeggsöfnun því
Mottumars verður hleypt af stokkunum 1. mars. Átakið
er tvíþætt, árveknisátak og fjáröflunarátak. Kepp-
endur skrá sig til leiks á vefsíðunni karlmennog-
krabbamein.is. Opnað verður fyrir skráningu í lok
febrúar og þar er einnig safnað áheitum til styrktar
Krabbameinsfélaginu. Hægt er að taka þátt bæði sem
einstaklingar og lið. Einn af hverjum þremur karl-
mönnum fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Róbert Gunnarsson
Mánuður í að Mottumars hefjist
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is