Morgunblaðið - 03.02.2012, Side 10
Dans Ástrós
og Matthias í
góðri sveiflu
á Reykjavík-
urleikunum
fyrir
skemmstu.
Þau eru aðeins 17 ára en á mikilli
siglingu í dansheiminum. Ástrós og
Matthias dansa alla virka daga og
keppa flestar helgar fyrir
Frakkland úti í heimi.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Tilfinningin sem fylgir því að dansaer ólýsanleg. Ég hverf inn í minn eig-in heim þar sem ekkert er nema ég,dansfélagi minn og dansinn. Þetta
snýst líka um hvernig ég tjái mínar tilfinn-
ingar. Og að vilja ná árangri. Þetta er það
sem ég er góð í og ég vil komast langt í því.
Keppnisskapið þarf vissulega að vera til
staðar. Og það er nauðsynlegt að hafa sjálfs-
aga,“ segir Ástrós Traustadóttir sem er aðeins
17 ára en hún og dansherrann hennar og jafn-
aldri, hinn franski Matthias Allain, sigruðu í
latino-dönsum í sínum aldursflokki á Reykja-
víkurleikunum (Reykjavik International Gam-
es) sem nýlega voru haldnir hér.
Er ég sjálfur í dansinum
Matthias hefur dansað lengur en Ást-
rós, eða frá því hann var ellefu ára. „Mér
líst rosalega vel á Ástrós sem dansfélaga en
reynsla okkar saman er enn svo stutt, við
þurfum að dansa saman lengur til að ná enn
betri árangri. Við höfum verið að keppa und-
anfarna mánuði um alla Evrópu með góðum
árangri, við unnum til dæmis bikarmót
Frakklands í okkar flokki sem heitir Youth,
en elstu keppendur þar eru 17 ára eins og
við. Það er stíft prógramm framundan hjá
okkur, við munum keppa úti fyrir Frakkland
hverja einustu helgi fram til 18. mars. Evr-
ópumeistaramótið er í mars og svo komum við
til Íslands í sumar til að æfa og vinna. Síðan
förum við til Kína á heimsmeistaramótið í nóv-
ember. Dansinn er líf mitt, framtíð mín og
ástríða mín. Þegar ég dansa þá er ég full-
komlega ég sjálfur,“ segir Matthias sem er
mikill listamaður og málar olíumálverk í frí-
stundum sínum.
Meiri möguleikar í útlöndum
Ástrós flutti út til Frakklands snemma
síðastliðið haust til þess að geta dansað með
Matthiasi. „Ég vildi eitthvað meira en það sem
hægt er að gera hér heima, því það eru miklu
meiri möguleikar úti. Það er stutt og ódýrt að
ferðast til annarra Evrópulanda frá Frakk-
landi og fyrir vikið keppum við á miklu fleiri
mótum en íslensk pör hafa tækifæri til sem
búa hér heima. Það er líka mjög áríðandi að
vera sem mest sýnilegur í þessum heimi ef
maður ætlar að ná árangri. Og reynslan er
ómetanleg. Þetta síðasta ár okkar í Youth er
rosalega mikilvægt fyrir okkur, og núna ein-
Dansinn er líf
okkar og ástríða
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Care Collection þvottaefni, sérstaklega
framleitt fyrir Miele þvottavélar
Íslenskt stjórnborð
Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar
Fer betur með þvottinn
Þvottavél, verð frá kr. 184.500
Þurrkari, verð frá kr. 158.400
Farðu alla leið með Miele
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í Þýskalandi í 108 ár.
Miele þvottavélar og þurrkarar eru framleidd til að endast.
Sparaðu með Miele
Það er fínt að geta gert hlutina al-
mennt frekar auðveldlega. Eins og
t.d. að taka til í fataskápnum eða
raða saman fatnaði þannig að heild-
arútkoman verði góð. Á vefsíðunni
realsimple.com undir beauty & fas-
hion er að finna góð og einföld tísku-
ráð. Þar er meðal annars hægt að
lesa góð ráð um hvað helst sé ráðleg-
ast að eyða litlu eða miklu í í fata-
skápnum. Mælt er með því að kaupa
sér boli og annað sem maður er í
næst sér fremur ódýrt. Enda þvær
maður slíkar flíkur oftar en aðrar og
þær endast því ekki endilega lengi.
Gallabuxur er mælt með því að eyða
meira aðeins í. Enda er endalaust
hægt að raða saman við gallabuxur
skyrtum og bolum. Þær eru klassísk
eign í fataskápinn og ágætt að eiga
nokkrar til skiptanna. Mælt er með
að vanda sig við kaup á nærfötum en
eyða minna í „skemmtistaðaskó“.
Vefsíðan www.realsimple.com
Morgunblaðið/Kristján
Skótau Það er auðvelt að sanka að sér fallegum fatnaði og skóm.
Góð ráð við fatakaup
Í verkinu Skrímslið litla systir mín
fá börn að taka þátt og upplifa í
miklu návígi töfra leikhúss, tón-
listar og myndlistar. Sagan segir
af myrkfælnum strák sem ferðast
gegnum skuggalega skóga, um
dimmar drekaslóðir, alla leið út á
heimsenda og lærir í leiðinni að
elska litlu systur sína.
Í verkinu býður höfundur þess
og flytjandi, Helga Arnalds, börn-
unum inn í hvítan pappírsheim þar
sem . pappírinn lifnar smám sam-
an við og verður að persónum
sögunnar. Eftir sýninguna fá börn-
in svo tækifæri til að skapa úr
pappírnum sem notaður var í sýn-
ingunni undir handleiðslu Helgu
og Evu Signýjar Berger, sem báðar
eru myndlistamenn. Charlotte Bö-
ving er leikstjóri og Eivör Páls-
dóttir er stjóri er höfundur og
flytjandi tónlistar en Páll Guð-
mundsson er hljóðfærasmiður og
Jóhann Birgir Bjarnason ljósa-
hönnuður.
Endilega…
…sjáið lítið skrímsli
Skrímsli Fígúrur á pappír lifna við.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ljósmynd/ Örvar Moller