Morgunblaðið - 03.02.2012, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Störfum við fiskvinnslu í Vest-
mannaeyjum hefur fjölgað á síðustu
árum. Mestu munar að hjá Vinnslu-
stöðinni störfuðu á síðasta ári að
meðaltali 238 manns við vinnslu á
fiski í landi. Fyrir aðeins fjórum ár-
um voru starfsmennirnir 100 færri,
eða 138 að meðaltali árið 2008. Fyr-
irtækið Godthaab í Nöf hefur fest
sig í sessi og þar starfa nú um 80
manns að staðaldri. Fyrr í vikunni
var því fagnað að áratugur er liðinn
síðan vinnsla á
fiski hófst hjá fyr-
irtækinu með 20
starfsmönnum.
Þegar mest er
umleikis yfir há-
sumarið er starfs-
mannafjöldi fyr-
irtækjanna enn
meiri en að fram-
an greinir.
Ýmsar orsakir
liggja að baki
fjölgun starfa í fiskvinnslu í Eyjum
og víðar, en fyrst og fremst hefur
hagstæð gengisþróun fyrir útflutn-
ingsgreinar stuðlað að þessari þró-
un. Fyrirtækin eru samkeppnishæf-
ari en áður með fisk, sem fluttur var
óunninn úr landi. Aflamark í ýsu hef-
ur dregist saman og einnig hafa
stjórnvöld viljað hamla gegn útflutn-
ingi á óunnum fiski og var m.a. sett á
5% útflutningsálag á fisk, sem vigt-
aður var í höfnum erlendis. Síðast en
ekki síst skiptir vinnsla makríls
miklu máli í þessu sambandi.
„Í hnotskurn er ástæða meiri
vinnslu í landi sú að það er einfald-
lega hagkvæmt og fiskvinnslan er
samkeppnisfærari en áður,“ segir
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar. „Árin 2003 til 2005 talaði ég
jafnvel um að leggja landvinnsluna
af, þar sem hlutfallslegur launa-
kostnaður hér gerði okkur ósam-
keppnisfær við markaði í Evrópu.
Nú er þessu öfugt farið og fisk-
vinnslan hefur eflst á nýjan leik á
sama tíma og útgerðin stendur
nokkurn veginn í stað.“
Aðspurður hvort kreppan ytra
hafi ekki áhrif á fisksölu héðan segir
Sigurgeir að enn sem komið er hafi
útflytjendur lítið fundið fyrir slíku.
„Við flytjum reyndar ekkert út á
Grikkland svo ég veit ekki hvernig
staðan er þar. Annars staðar í Evr-
ópu er fullt af fólki sem vill kaupa og
borða fisk, auk þess sem heilsubylgj-
ur hjálpa til í þeim efnum. Ef við
vöndum okkur og framleiðum góða
vöru eigum við að geta staðið okkur.
Áhyggjuefnið er hins vegar íslensk
stjórnvöld, því það er sannarlega
pólitísk áhætta í sjávarútvegi,“ segir
Sigurgeir.
Hjá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum
starfa að staðaldri 40-50 manns í
landi við vinnslu á bolfiski. Þessi
fjöldi er nokkuð stöðugur og ekki
miklar breytingar á starfs-
mannafjölda eftir árstímum.
Íslendingar í meirihluta
Því var fagnað í Godthaab í Nöf á
á miðvikudag að áratugur var þá lið-
inn frá því að fiskvinnsla hófst hjá
fyrirtækinu. Fimm hjón í Eyjum
stóðu að stofnun þess og höfðu sex
þeirra verið starfsmenn Ísfélags
Vestmannaeyja þegar frystihús þess
varð eldi að bráð í desember árið
2000. Þau ákváðu í kjölfarið að hefja
sjálfstæðan atvinnurekstur og hefur
starfsemin styrkst með hverju árinu
sem síðan er liðið.
„Landvinnsla hefur aukist mikið í
Eyjum síðustu ár,“ segir Einar
Bjarnason, skrifstofustjóri og einn
eigenda fyrirtækisins. Starfsmenn-
irnir eru nú 80 talsins, Íslendingar
að langstærstum hluta en 10-15 út-
lendingar sem búsettir eru í Eyjum
starfa þar einnig. Yfir hásumarið
síðustu ár þegar unnið er að heil-
frystingu makríls fer starfs-
mannafjöldinn yfir 120. Einar segir
að starfsmönnum hafi fjölgað um 10
frá 2008.
Hagstætt að fullvinna
„Við erum ekki með útgerð á okk-
ar vegum og treystum að mestu á
Eyjabáta sem við erum með í föstum
viðskiptum og kaupum fisk af öðrum
fyrirtækjum hérna. Við erum í sam-
keppni við fyrirtæki sem flytja út
óunninn fisk og bjóðum í hverri viku
í fisk á móti þeim, stundum fáum við
hann, stundum ekki. Umhverfið er
hagstætt um þessar mundir fyrir þá
sem standa í útflutningi og við telj-
um gengið vera rétt skráð, en það er
ekki víst að allir séu sammála því.
Núna er hagstætt að fullvinna
fiskinn hér heima,“ segir Einar.
Godthaab í Nöf býður upp á sendi-
þjónustu á fiski um allt land. Fólk
pantar vöruna þá á netinu og hún er
síðan flutt með Flytjanda og af-
greidd frá stöðvum þess fyrirtækis
víða um land. Einar segir þessa
þjónustu hafa vaxið ár frá ári og
skipti vissulega máli í rekstrinum,
þó svo að útflutningurinn sé burðar-
ásinn í starfseminni.
Vinnslunni vex fiskur um hrygg
Vinnslustöðin í Eyjum hefur fjölgað starfsmönnum í fiskvinnslu í landi um 100 frá því fyrir hrun
Godthaab í Nöf með 80 starfsmenn, en voru 20 þegar fyrirtækið tók til starfa fyrir áratug
Ljósmynd/Óskar Pétur
Kökur og kertaljós Starfsfólk og eigendur Godthaab í Nöf gerðu sér dagamun þegar tíu ára vinnsluafmæli var
fagnað, frá vinstri: Einar Bjarnason, Jón Ólafur Svansson, Sigurjón Óskarsson, Björn Þorgrímsson og Daði Pálsson.
Þegar kom að því að velja nafn á nýtt fisk-
vinnslufyrirtæki í Eyjum komu upp ýmsar
hugmyndir og þar á meðal nafnið Godtha-
ab en á bakvið það var nokkuð sérstök
saga.
Í kaffistofu Ísfélagsins var gamalt tré-
skilti til skrauts en skilti þetta var af
gamla Godthaabhúsinu í Vestmanna-
eyjum sem var í eigu Einars Sigurðssonar.
Áletrunin á skiltinu var Godthaab 1830.
Þegar slökkvistarfi var lokið í brunanum mikla í frystihúsi Ísfélagsins ár-
ið 2000 og farið var að huga að skemmdum kom í ljós að nánast allt var
brunnið sem brunnið gat, vinnslusalir voru rústir einar, flökunarvélar og
frystiskápar voru nánast járnhaugar, eldurinn hafði engu eirt, ekki fremur í
kaffistofunni en annars staðar. Eitt var það þó sem uppi stóð nánast
óskemmt eins og haldið hefði verið yfir því verndarhendi í öllum hremming-
unum, nefnilega gamla skiltið af Godthaabhúsinu. Út frá þessu kom hug-
myndin að nafni á fyrirtækið og ekki skemmdi fyrir merking orðsins þ.e.
Godthaab-Góðvon. Þar sem húsnæði félagsins á Garðavegi heitir Nöf, varð
nafnið Godthaab í Nöf fyrir valinu.
Skilti af gömlu húsi
VERNDARHENDI Í ÖLLUM HREMMINGUNUM
Bruninn í Ísfélaginu árið 2000.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Ákveðið var að fresta heimkomu leiguþyrl-
unnar Sýnar, þegar í ljós kom leki í vökva-
kerfi á aðalgírboxi við reglubundið eftirlit í
Færeyjum í gær. Landhelgisgæslan hefur
tekið þyrluna á leigu til þess að sinna leitar-,
björgunar- og eftirlitsstörfum og lagði hún af
stað frá Noregi í gærmorgun en millilenti í
Færeyjum um hádegisbil.
„Flugið frá Noregi gekk afar vel og þetta
var ekkert sem varð vart við í fluginu,“ segir
Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Vanda-
málið hafi komið í ljós þegar leggja átti aftur
af stað í loftið frá Færeyjum. „Þeir millilentu
til að taka eldsneyti en við skoðun fyrir flug-
tak sá flugvirkinn, sem er alltaf með í vélinni,
olíusmit,“ segir Hrafnhildur. Öryggisins
vegna hafi verið ákveðið að kanna málið nán-
ar. Hrafnhildur segir lekann ekki stórvægi-
legan en hugsanlega þurfi að fá varahlut til
að gera við hann. Þó sé von á þyrlunni heim í
dag og verði þær þá orðnar tvær; Sýn og
Gná. „Líf er í stórri skoðun í Noregi en þegar
hún kemur aftur þá verða þyrlurnar þrjár, að
minnsta kosti út árið, þar sem leiguþyrlan
var leigð til tólf mánaða,“ segir Hrafnhildur.
Líf sé væntanleg úr skoðuninni í lok mars
eða byrjun apríl.
Á ferð og flugi
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF,
hélt til Ítalíu á miðvikudagsmorgun en hún
verður við landamæraeftirlit fyrir Landa-
mærastofnun Evrópusambandsins á Miðjarð-
arhafi næsta mánuð. Stendur til að vélin fari í
annað slíkt verkefni seinna á árinu.
Þá er verið að undirbúa brottför nýja varð-
skipsins Þórs, en það mun á næstu dögum
sigla til Noregs til viðgerða. Er áætlað að
þær muni taka einhverjar vikur en Hrafn-
hildur segir ómögulegt að áætla viðgerðar-
tímann. Á meðan muni varðskipið Ægir sjá
um eftirlit á hafsvæðinu við Ísland en varð-
skipið Týr lagði á þriðjudag af stað til Ný-
fundnalands, þar sem það mun sinna eftirliti
út mars fyrir Fiskveiðieftirlitsstofnun Evr-
ópsambandsins.
Gert við leiguþyrluna í Færeyjum
Leka vart í vökvakerfi á aðalgírboxi Sýnar Þyrlan væntanleg til landsins í dag Varðskipið Þór
siglir til Noregs á næstu dögum TF-SIF við eftirlit á Miðjarðarhafi og Týr við Nýfundnaland
Flug Eftir að þyrlan Líf kemur úr skoðun
verða þyrlur Gæslunnar þrjár til áramóta.
TF-SYN
» Vélin á að leysa af TF-LIF sem er í
stórri skoðun í Noregi.
» Ekki varð vart við lekann á flugi en
hann sást við reglubundið eftirlit fyrir
flugtak í Færeyjum.
» Þegar TF-LIF kemur úr skoðun í lok
mars eða byrjun apríl verða þyrlurnar
þrjár til ársloka, en TF-SYN var tekin á
leigu til tólf mánaða.
Á fiskveiði-
árinu 2010-
2011, sem lauk
í lok ágúst,
voru flutt út
um 27.276
tonn af óunn-
um ísuðum
fiski á erlenda
markaði, samtals að verðmæti
um 10 milljarðar króna. Þetta
var þriðja árið í röð sem útflutn-
ingur á óunnum fiski dróst sam-
an á milli fiskveiðiára. Til sam-
anburðar voru flutt út 39.138
tonn á fiskveiðiárinu 2009/10
að verðmæti 13,4 milljarðar.
Af einstökum tegundum var
mest flutt út af gullkarfa á síð-
asta fiskveiðiári eða 6.244
tonn, það er þónokkru minna en
undangengin ár. Áfram var sam-
dráttur í útflutningi á ýsu sem
árin á undan hafði verið sú teg-
und sem mest var flutt út af en
á síðasta fiskveiðiári voru flutt
út 6.070 tonn. Þess má geta til
samanburðar að fiskveiðiárið
2008/09, voru flutt út 21.994
tonn af ýsu.
Nokkru minna var flutt út af
þorski eða 3.552 tonn saman-
borið við 4.925 tonn fiskveiði-
árið 2009/10 en samdrátturinn
er hlutfallslega ekki jafn mikill
og í ýsunni.
Minna flutt
út óunnið
GULLKARFI FÓR
UPP FYRIR ÝSUNA
Sigurgeir B.
Kristgeirsson