Morgunblaðið - 03.02.2012, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Áform lífeyrissjóðanna um að taka
þátt í gjaldeyrisútboðum Seðlabanka
Íslands á þessu ári fyrir allt að 200
milljónir evra með því að selja er-
lendar eignir sjóðanna og kaupa af-
landskrónur mælast ekki vel fyrir á
meðal aðila á fjármálamarkaði.
Aflandskrónurnar sem lífeyris-
sjóðirnir myndu kaupa í útboðum
Seðlabankans yrðu notaðar til kaupa
á ríkisskuldabréfum í krónum. Hagn-
aðinum af þeim viðskiptum yrði svo
ráðstafað til að mæta 2,8 milljarða
hlut lífeyrissjóðanna í fjármögnun
sérstakra vaxtabóta og um leið kæm-
ust sjóðirnir undan skattlagningu á
greiðslu lífeyris.
Viðmælendur Morgunblaðsins ótt-
ast hins vegar að með þessum hætti
séu lífeyrissjóðirnir að taka skamm-
tímahagsmuni fram yfir langtíma-
hagsmuni. Þorbjörn Atli Sveinsson,
forstöðumaður greiningardeildar Ar-
ion banka, segist í samtali við Morg-
unblaðið hafa miklar efasemdir um
ágæti þess að lífeyrissjóðirnir selji
erlendir eignir og kaupi aflandskrón-
ur. „Enn meiri sala á erlendum eign-
um lífeyrissjóðanna gengur í ber-
högg við einn mikilvægasta lærdóm
hrunsins – að hlutfall erlendra eigna
lífeyrissjóðanna var ekki nógu mikið
– og minnkar um leið áhættudreif-
ingu eignasafna sjóðanna. Að sama
skapi ríkir enn mikil óvissa um hve-
nær lífeyrissjóðirnir fái aftur tæki-
færi til að fjárfesta í erlendum verð-
bréfum.“
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins og jafnframt stjórnarformaður í
lífeyrissjóðnum Gildi, þriðja stærsta
lífeyrissjóði landsins, segir í samtali
við Morgunblaðið að þetta sé vissu-
lega ekki nein óskastaða sem sjóð-
irnir standi frammi fyrir. „Sjóðirnir
vilja komast undan þessari skatt-
heimtu en á sama tíma hefur ríkt tor-
tryggni um að taka þátt í útboðum
Seðlabankans vegna þeirrar óvissu
sem ríkir um hvenær gjaldeyrishöft-
unum verður aflétt.“ Að sögn Vil-
hjálms mun stjórn sjóðsins koma
saman í dag og taka afstöðu til þess
hvort rétt sé að taka þátt í væntan-
legum gjaldeyrisútboðum á þessu ári.
Einn viðmælandi Morgunblaðsins
bendir á að skattlagningin á lífeyr-
issjóði eigi aðeins að vera tímabund-
in. „Hins vegar er ljóst að það verður
mjög erfitt fyrir sjóðina að fjárfesta
erlendis næstu 5-7 árin. Vegna fárra
fjárfestingarkosta hérlendis eiga þeir
nú þegar 160 milljarða króna á inn-
stæðureikningum. Með því að selja
erlendan gjaldeyri fyrir aflandskrón-
ur eru sjóðirnir að taka enn eitt
skrefið í þá átt að setja öll eggin í
sömu körfu.“
Gengur í berhögg
við lærdóm hrunsins
Óttast að lífeyrissjóðirnir setji öll eggin í sömu körfu
Hlutfall erlendra eigna lífeyrissjóðan fer lækkandi
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Hlutfall erlendra eigna lífeyrisjóðanna
31. jan. 1997 30. nóv. 2011
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
22,34%
1,42%
Fjárfestinga-
félögin Bain
Capital og BC
Partners eru tal-
in þau einu sem
lögðu inn tilboð í
útboði á 77% hlut
slitastjórnar
Landsbankans
og Glitnis í
bresku smá-
sölukeðjunni Ice-
land Foods. Tilboðsfrestur rann út
á miðnætti á þriðjudaginn og er tal-
ið líklegt að tilboð fjárfestinga-
félaganna nemi hátt í 1,5 milljarða
punda, jafnvirði um 290 milljarða
króna.
Fram kemur í frétt breska dag-
blaðsins Independent að breska
verslunarkeðjan Morrisons hafi
ekki lagt fram tilboð í Iceland en
áhöld voru um hvort félagið gæti
keypt Iceland vegna samkeppnis-
sjónarmiða. Orðrómur hafði jafn-
framt verið um að bandaríska fjár-
festingafélagið Blackstone myndi
taka þátt í útboðinu, en samkvæmt
heimildum Independent virðist svo
ekki vera.
Forstjóri Iceland Foods, Malcolm
Walker, sem fer með 23% hlut í
keðjunni ásamt fleiri stjórnendum
Iceland, á rétt á að jafna hæsta til-
boðið sem berst. Samkvæmt hlut-
hafasamkomulagi hefur hann 40
daga til þess að jafna tilboðið.
Tveir sjóð-
ir buðu í
Iceland
Talið að 290
milljarðar fáist
Iceland Foods
Verðmæt eign.
Nýtt fyrirtæki er komið á markað
sem er ekki ósvipað smálánafyr-
irtækjunum Hraðpeningar og
Kredia. Fyrirtækið nefnist Múla
og býður upp á lán til einstaklinga
frá 1.000 krónum og allt að 100.000
krónum. Lánstími er allt að 30
dagar með möguleika á framleng-
ingu upp í 60 daga frá lántökudegi.
Vextirnir af láninu eru 1% prósent
á dag eða 365% vextir á ársgrund-
velli. Í samtali við Ævar Rafn
Björnsson, framkvæmdastjóra
Múla, segir hann að það sé tómt
mál að tala um vexti á ársgrund-
velli, því þeir láni ekki til eins árs.
„Vextir og kostnaður er með því
lægsta sem sést hefur í sambæri-
legri þjónustu í Evrópu,“ segir
Ævar Rafn. „Það sem meira er að
menn geta stytt lánstíma hvenær
sem er. Ef þú tekur 30 daga lán,
en hættir við eftir tvo daga og
borgar upp lánið, þá fellur restin
niður. Þú greiðir bara vextina fyrir
dagana tvo sem þú varst með lán-
ið.“
Aðspurður hvort hann telji ekki
að það sé tóm della hjá neytendum
að taka lán með jafn háum vöxtum
segir hann að það geti þvert á móti
borgað sig fjárhagslega fyrir fólk.
„Það eru mjög mörg dæmi um að
það borgi sig að taka slík lán enda
hagstæðara að greiða nokkurra
prósenta vexti en að borga van-
skilagjöld eða sektir sem geta tvö-
faldast ef þær eru ekki borgaðar í
tíma. Þú sérð að til dæmis stöðu-
mælasekt tvöfaldast á nokkrum
dögum. Við vonumst til þess að
fólk skipti við okkur á þessum for-
sendum. En ef fólk tekur lán til að
fjármagna skemmtanir og þess
háttar þá held ég að fyrirtækið
verði ekki langlíft. En það hefur
glatt okkur að við erum með breið-
an kúnnahóp. Yfir 60% kúnnanna
eru yfir þrítugt og það er jafn stór
kúnnahópur sem er yfir sextugt og
undir tvítugu. Við bjóðum ekki upp
á sms-lán og erum með greiðslu-
mat á kúnnum okkar að banda-
rískri fyrirmynd,“ segir Ævar
Rafn. borkur@mbl.is
Tómt mál að tala um ársvexti
Nýtt smálánafyrirtæki býður lán til
nokkurra daga en ársvextir eru 365%
Morgunblaðið/Heiddi
Smápeningar Hægt er að fá litlar
upphæðir lánaðar hjá Múla.
Þýski bankinn Deutsche Bank af-
skrifaði 407 milljónir evra, 66 millj-
arða króna, vegna Actavis á fjórða
fjórðungi síðasta árs. Uppgjör bank-
ans var undir væntingum á síðasta
ári.
Deutsche Bank, sem er stærsti
banki Þýskalands, hagnaðist um 147
milljónir evra, 24 milljarða króna,
sem er 76% minni hagnaður en árið á
undan enda lækkuðu hlutabréf í
bankanum á markaði í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
Deutsche Bank gekk almenn banka-
þjónusta vel á síðasta ári en skulda-
kreppan litaði afkomu fjárfestingar-
starfsemi hans.
Deutsche Bank hagnaðist um 4,3
milljarða evra á síðasta ári sem er
87% aukning á milli ára. Hagnaður-
inn er aðallega vegna afkomu Post-
bank og annarrar fjármálaþjónustu.
Deutsche Bank lánaði Actavis 4,7
milljarða evra þegar hann var bak-
hjarl Björgólfs Thors Björgólfssonar
er hann keypti aðra hluthafa út úr
Actavis árið 2007 með skuldsettri yf-
irtöku.
Deutsche Bank með minni
hagnað vegna Actavis
Bankinn þurfti að afskrifa 66 milljarða vegna Actavis
Klúður Afskriftir bankans útaf Act-
avis voru meiri en útaf Grikklandi.
● Flutningsmiðlunarfyrirtækið TVG-
Zimsen hefur gert samstarfssamning við
Modul Transport A/S um að sjá um alla
flugfrakt til og frá Danmörku, að því er
fram kemur í tilkynningu. Starfsstöðin í
Danmörku mun starfa undir nafni TVG-
Zimsen.
Jón Haukur Ísfeld, deildarstjóri flug-
flutninga hjá TVG-Zimsen, segir mjög
ánægjulegt að hefja samstarf við þetta
öfluga fyrirtæki. „Á þeim 30 árum sem
Modul Transport hefur verið starfrækt
hafa flutningar til og frá Íslandi ávallt ver-
ið stór hluti af starfsemi fyrirtækisins.“
TVG-Zimsen í samstarf
við danskt fyrirtæki
● Hrávörurisinn Glencore, einn stærsti
eigandi Century Aluminum sem á Norð-
urál, á í viðræðum við svissneska
námufyrirtækið Xstrata um samruna
félaganna að andvirði 80 milljarða
Bandaríkjadala.
Samkvæmt heimildum Financial
Times kann samkomulagið að verða
kynnt í byrjun næstu viku. Gengi bréfa í
Xstrata hækkaði um 10% í kjölfar frétta
af viðræðunum, á meðan gengi bréfa í
Glencore hækkaði um 5%.
Milljarða dala samruni
Glencore Stærsti eigandi Norðuráls.
● Hagnaður bandaríska útgáfufélags-
ins Times, sem meðal annars gefur út
dagblöðin New York Times, Boston
Globe og International Herald Tribune,
dróst saman um 12% á fjórða ársfjórð-
ungi en helsta skýringin er samdráttur í
auglýsingasölu í dagblöðum útgáfunnar
og léleg afkoma upplýsingavefjarins,
About.com.
Hagnaðurinn nam 58,9 milljónum
Bandaríkjadala, 7,3 milljarða króna.
Tekjurnar drógust saman um 2,8%.
Afkoma Times versnar
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,,-./
+01-21
+,,-.3
,+-.
,+-45.
+5-,,+
+22-53
+-3+,+
+04-,/
+3+-22
+,2-41
+01-5+
+,2-+,
,+-.32
,+-+10
+5-,.1
+21-,2
+-3+35
+04-5,
+3+-.5
,,,-,41,
+,2-22
+0/-,5
+,2-15
,+-5,3
,+-,++
+5-2,.
+21-3
+-3,+/
+0+-20
+3,-,2
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Vöxtum víxlað
Í umfjöllun um sparnað eldra fólks í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær
fylgdi með línurit sem sýndi vaxtaþróun frá 2009. Því miður víxlaðist til heiti
vaxtanna. Beðist er velvirðingar á mistökunum og birtist hér leiðrétt línurit.
Þróun vaxta frá ársbyrjun 2009
Heimild: VÍB - Eignastýringaþjónusta Íslandsbanka
25%
20%
15%
10%
5%
0%
1. jan. 2009 1. des. 2011
Óverðtryggð skuldabréf kjörvextir
Vaxtaþrep**
Stýrivextir
Tékkareikningur*
Innlánsvextir Seðlabankans
*Hæstu tékkareikningsvextir Íslandsbanka **Hæsta Vaxtaþrep
LEIÐRÉTT