Morgunblaðið - 03.02.2012, Side 17
Þriggja daga þjóðarsorg
» Lýst var yfir þriggja daga
þjóðarsorg í Egyptalandi vegna
blóðsúthellinganna.
» Öllum leikjum í efstu deild
egypskra fótboltaliða var frest-
að um óákveðinn tíma.
» Stjórn knattspyrnu-
sambandsins var leyst upp og
skýrt var frá því að saksókn-
arar myndu yfirheyra stjórnar-
mennina.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Háttsettum embættismönnum í
hafnarborginni Port Said í Egypta-
landi var vikið frá í gær eftir óeirðir
sem kostuðu 74 manns lífið á fót-
boltavelli í borginni í fyrrakvöld.
Yfir 150 manns særðust í óeirð-
unum sem hófust þegar stuðnings-
menn heimaliðsins al-Masry réðust
inn á fótboltavöllinn til að fagna sigri
þess á liðinu al-Ahly frá Kaíró. Fáir
lögreglumenn voru á leikvangnum
þótt oft hefði komið til átaka á milli
stuðningsmanna liðanna. Hermt er
að lögreglumennirnir hafi lítið eða
jafnvel ekkert reynt að stöðva átök-
in.
Hörðustu stuðningsmenn al-Ahly
voru mjög áberandi í mótmælunum á
Tahrir-torgi í byltingunni í Kaíró
fyrir ári. Fram hafa því komið
samsæriskenningar um að stuðn-
ingsmenn Hosnis Mubaraks, fyrr-
verandi forseta Egyptalands, hafi
staðið fyrir óeirðunum til að refsa
stuðningsmönnum fótboltaliðsins
fyrir þátttökuna í byltingunni.
Mikil reiði er meðal íbúa Kaíró
vegna blóðbaðsins. Stuðningsmenn
liðsins söfnuðust saman í borginni í
gær til að mótmæla framgöngu lög-
reglunnar.
Mikil reiði vegna
mannskæðra óeirða
Stuðningsmenn Hosnis Mubaraks bendlaðir við óeirðir
sem kostuðu 74 manns lífið á fótboltaleikvangi í Egyptalandi
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
Naut stangar karlmann á versta stað á kyndilmessuhá-
tíð, eða hreinsunarhátíð Maríu, í bænum Tlacotalpan í
Mexíkó. Hátíðin er haldin í minningu þess þegar María
lét hreinsast í helgidómnum eftir fæðingu Krists. Venja
er að nautum sé sleppt á götum bæjarins á trúarhátíð-
inni sem stendur í viku á þessum slóðum.
Reuters
Hreðjastang á hreinsunarhátíð
Að minnsta kosti 160 manns hafa dáið af völdum vetrarkulda í Evrópu frá
því í vikunni sem leið, flestir þeirra í Úkraínu þar sem 63 hafa látið lífið.
Tugir þúsunda Úkraínumanna dvelja í rúmlega 2.000 bráðabirgðaskýlum
sem ætluð eru fátækum landsmönnum til að hjálpa þeim að lifa kuldana af.
Búlgaría
–30°C
Tíu látnir
Serbía
–33°C
Sjö látnir
Bosnía &
Hersegóvína
–31°C
Einn látinn
Lettland
–30°C
Tíu látnir
Tékkland
–20°C
Einn látinn
Slóvakía
–24°C
Einn látinn
Rúmenía
–30°C
22 látnir
Úkraína
–33°C
63 látnir
Þýska-
land
–33°C
Pólland
–30°C
29 látnir
Úkraína
Rúmenía
Pólland
Dauðsföll af
völdum kulda
frá 28. janúar
MANNSKÆÐIR VETRARKULDAR
Heimildir: Reuters, fréttir fjölmiðla í Austur-Evrópu.
Litháen
–30°C
Níu látnir
Á annað hundrað látnir
25 ára dansari frá Moldóvu, Dom-
nica Cemortan, hefur sagt við
skýrslutöku að hún sé ástfangin af
skipstjóra skemmtiferðaskipsins
Costa Concordia og hún hafi verið
gestur hans í brú skipsins þegar
það steytti á skeri. Hann hafi boðið
henni í brúna til að sjá skipið sigla
nálægt eyjunni Giglio.
Ítalskir fjölmiðlar hafa einnig
skýrt frá því að kafarar hafi fundið
hluti í eigu konunnar í klefa skip-
stjórans. Skipstjórinn, sem er 52
ára, giftur og á eina dóttur, hefur
verið ákærður fyrir manndráp af
gáleysi. Sautján lík hafa fundist í
skipinu eða í sjónum og fimmtán til
viðbótar eru taldir af.
Rannsókn sjóslyssins á Ítalíu
Ástfangin af skipstjóranum
Vísindamenn telja að hægt verði að
sjá fyrir eldgos í nokkrum af stærstu
eldstöðvum jarðar nokkrum áratug-
um áður en þau gjósa, að því er fram
kemur á fréttavef breska ríkis-
útvarpsins.
BBC segir að niðurstöður rann-
sókna jarðvísindamanna á berg-
kristöllum á grísku eyjunni Santor-
ini bendi til þess að áður en svonefnd
„ofureldgos“ hefjist safnist mikið
magn bergkviku fyrir í eldstöðv-
unum og hægt sé að greina fyrirboð-
ana snemma með því að beita nú-
tímatækni.
Í ofureldgosunum fara saman
mikið magn gosefna og mikill styrk-
leiki; þau eru mjög efnismikil og efn-
ið gýs upp á stuttum tíma, að því er
fram kemur á vísindavefnum. Ösku-
skýin í slíkum gosum eru svo firna-
mikil að þau geta breytt loftslaginu á
jörðinni í langan tíma.
Vísindamennirnir lýsa eldgos-
unum sem „öskjumyndandi gosum“,
en öskjur myndast við það að þakið
yfir kvikuþró brestur og landspilda
fellur niður í hana. Jafnframt verður
mikið sprengigos þegar bergkvikan
þeysist upp, að því er fram kemur á
vísindavefnum.
Stærstu eldstöðvarnar eru stund-
um nefndar ofureldfjöll. Að sögn
BBC geta slíkar eldstöðvar verið
óvirkar í hundruð þúsunda ára áður
en þær gjósa. Vísindamenn hafi talið
að hægt verði að sjá slík eldgos fyrir
með nokkurra mánaða fyrirvara
með jarðskjálftamælum og öðrum
tækjum en nýja rannsóknin bendi til
þess að hægt verði að sjá fyrirboð-
ana miklu fyrr. „Þegar eldfjöll vakna
og bergkvikan byrjar að streyma
upp á yfirborðið, þannig að sprungur
myndast í bergið, sendir hún frá sér
merki,“ hefur BBC eftir einum vís-
indamannanna, Tim Druitt, við
Blaise Pascal-háskóla í Frakklandi.
Hann bætir því við að rannsóknin
bendi til þess að bergkvikan safnist
fyrir í áratugi áður en eldgos hefjist.
Druitt segir að vegna loftslags-
áhrifanna sem slík eldgos hafi sé
mjög mikilvægt að geta séð þau fyrir
mörgum árum – frekar en mánuðum
– áður en hamfarirnar verða.
Öskjumyndandi eldgos hafa orðið
víða um heim en talið er að allar
ofureldstöðvarnar séu nú óvirkar, að
sögn BBC. Slíkar eldstöðvar eru
m.a. í Yellowstone-þjóðgarðinum í
Bandaríkjunum og Campanian-
lægðinni á Ítalíu, auk Santorini og
nálægra eyja. Eldgos varð á Santor-
ini um 1470 fyrir Krist og lengi hefur
verið talið að það hafi eytt mínósku
menningunni á eynni Krít, en það
hefur verið dregið í efa. bogi@mbl.is
Sjá má ofureldgos fyrir
miklu fyrr en talið var
Bergkvikan talin safnast fyrir í nokkra áratugi
Reuters
Hamfarir Ofureldgos gæti haft mik-
il áhrif á loftslag jarðar.
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um Tísku og förðun
föstudaginn 17. febrúar.
Í blaðinu verður fjallað um tískuna vorið
2012 í förðun, snyrtingu, og fatnaði auk
umhirðu húðarinnar, dekur og fleira.
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 13. febrúar.
LifunTíska
og fö
rðun
Tíska & förðun
SÉRBLAÐ