Morgunblaðið - 03.02.2012, Side 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
Ríkisútvarpið er
mikil stofnun að vöxt-
um með um 300 starfs-
menn og veltir árlega
um fimm milljörðum
króna. Þar er margt
samviskusamra og
hæfra starfsmanna
sem hafa þjónað því
vel. Það ber ægishjálm
yfir aðra íslenska fjöl-
miðla. Ríkisútvarpið
hefur ríkar skyldur,
ber að gæta sanngirni og óhlut-
drægni í fréttum og fréttatengdu
efni og kynna sjónarmið jafnt, eins
og segir í reglum. Hlutleysi á að
vera ein af grundvallarstoðum
RÚV. Margt hefur verið afburðavel
unnið af frábæru fólki; Jónas heit-
inn Jónasson ávann sér virðingu
þjóðar, Gísli Einarsson flytur líf-
legar fréttir af fólki úti á landi:
fjöldinn allur af góðu fólki gengur
daglega til starfa af samviskusemi
og virðingu.
En það er maðkur í mysunni. Fá-
menn klíka stýrir pólitískri umfjöll-
un, hroki og hlutdrægni hafa í vax-
andi mæli sett svip sinn á
stofnunina. Nýlega skrifaði útvarps-
tjóri Páll Magnússon (PM) í Morg-
unblaðið rætna grein sem brýtur
gegn öllum góðum siðum og hefðum
sem Ríkisútvarpið á að standa fyrir.
Útvarpsstjóri vitnaði í „gáfaðan og
góðviljaðan“ sjálfstæðismann og
dylgjaði um og svívirti ritstjóra
Morgunblaðsins sem hafði leyft sér
að gagnrýna fréttaflutning RÚV.
Útvarpsstjóri lauk pistli sínum með
orðum sem ekki verða túlkuð á ann-
an veg en ákall um að ritstjórinn í
Hádegismóum verði rekinn sem
allra fyrst. Athyglivert innlegg, í
ljósi allra brottrekstranna á RÚV.
Útvarpsstjórar hafa aldrei áður
gert sig seka um slík-
an dómgreindarbrest
né vanþekkingu á hlut-
verki sínu og stofn-
unar sinnar. En RÚV
er partur af valdi
hinna stjórnlyndu sem
nú ráða Íslandi. Út-
varpsstjóri endurnýj-
aði skotleyfi sem ráð-
herrar höfðu gefið út í
upphafi valdaferils
síns. Skotmark brenni-
merkt með sama hætti
og forsætisráðherra
brennimerkir þá sem ekki fylgja
réttri línu. Styrmir Gunnarsson hef-
ur bent á að þetta einkenni vinnu-
brögð hinna nýju valdhafa með
sama hætti og forðum gerðist í Sov-
étinu. Einn daginn eru það óþægir
þingmenn og ráðherrar, þann
næsta óæskilegir andmælendur.
Það skal fullyrt að ef útvarpsstjórar
BBC, NRK eða DR hefðu dregið
stofnanir sínar inn í pólitískan
leðjuslag líkt og PM gerir, þá hefðu
þeir umsvifalaust verið reknir. En
útvarpsstjóri veit sem er að hinir
stjórnlyndu valdhafar, sem nú
verma stóla Stjórnarráðsins, klappa
honum á kollinn fyrir viðvikið og
hann fær að lesa fréttir meðan hann
beygir sig undir vald þeirra.
Fámenn klíka hefur stolið
Ríkisútvarpinu
Þegar kemur að pólitískri um-
fjöllun hefur fámenn klíka stolið
Ríkisútvarpinu, sagði virtur og
sanngjarn sf-maður við mig á dög-
unum. Hann segir að RÚV hafi
undir stjórn PM hrakist til sífellt
meiri pólitískrar þátttöku: borg-
aralega sinnuðu fólki hafi verið út-
hýst; fréttastofu breytt í áróð-
urstofu pólitískra afla; pólitísk
umræða og bókmenntaumfjöllun
færð í hendur manns sem talar
bara við útvalda og heggur mann og
annan á vefsíðu sf-fólks; Kastljós
tyllir sér hlýðið á hné ráðherra og
hlýðir opinmynnt á kvöldsögur hin-
ar nýju. Stolið RÚV, er það ekki of
djúpt í árinni tekið? spurði ég. -
Nei, sagði þessi vinur minn og hélt
áfram. Fyrir nokkrum árum var
RÚV ötult við að taka viðtöl við
gangrýnendur ríkistjórna íhaldsins
og fór hamförum í kvótadómum, ör-
yrkjadómum, Íraksstríði, Baugs-
málum og átökum um Hæstarétt –
svo fátt sé nefnt. Prófessorar vestur
í Háskóla; Þórólfur Matthíasson,
Þorvaldur Gylfason, Gylfi Magn-
ússon, Stefán Ólafsson, Gunnar
Helgi Kristinsson – svo nokkrir séu
nefndir – voru aftur og aftur kall-
aðir upp í Efstaleiti til þess að and-
skotast í stjórnvöldum, lýsa
heimsku þeirra og getuleysi.
Áherslur RÚV fyrir nokkrum miss-
erum voru skýrar: það var frétt um
„hneyskli“ ráðherra, svo viðtal við
prófessor sem hafði allt á hornum
sér, þá Steingrím og kompaní og
loks var ráðherrann kallaður inn á
teppi í yfirheyrslu. Þegar vinstri
öflin tóku við lyklavöldum í Stjórn-
arráðinu snérust áherslur við: nú
eru fréttir um dugnað stjórnvalda
og stofnana, svo sóma-viðtöl við
ráðagóða ráðherra sem mæðulega
segjast vera að þrífa upp skítinn
eftir íhaldið. Prófessorarnir urðu
pólitískir vikapiltar og viðtöl við þá
snérust upp í lofgjörð um visku Jó-
hönnu og dugnað Steingríms enda
komnir í feit jobb. Þegar Ríkisend-
urskoðun gerði athugasemdir við
feluleiki prófessoranna vegna reikn-
inga var málið þaggað af áróð-
urstofunni í Efstaleiti. Rík-
isútvarpið er orðið að pólitískri
hjáleigu valdhafanna, sagði þessi
vinur minn.
Af Írak og Líbíu
Manstu Írak? spurði hann.
Pistill eftir pistil fullur vandlæt-
ingar var fluttur um „hneykslið“
þegar Davíð og Halldór lýstu póli-
tískum stuðningi við Bush og Blair
fyrir herförina í Írak án þess að
taka málið upp við utanríkisnefnd.
Þegar Jóhanna, Össur og Stein-
grímur lýstu stríði á hendur Líbíu
án þess að taka málið upp fyrir ut-
anríkisnefnd var málið þaggað. VG
fór í stríð þegar hreyfingin hafði
sögulegt tækifæri til að koma í veg
fyrir stríð! RÚV ruggar ekki bát
vina sinna! Er þetta fjölmiðill sam-
kvæmur sjálfum sér? spurði vinur
minn. Nei, auðvitað ekki, svaraði
ég. Einn daginn fer RÚV hamför-
um í gagnrýni á stjórnvöld, þann
næsta er RÚV orðið að málpípu
valdhafanna, sagði vinur minn.
Af Junkaragerði og Seðla-
banka
Pistill eftir pistil var fluttur um
„hagsmunapot“ Halldórs Ásgríms-
sonar vegna kvótatengsla en sér-
stakt „heilbrigðisvottorð“ gefið út
fyrir Steingrím þegar ættingjar
högnuðust vegna Kalmanstjarnar
og Júnkaragerðis. Auðvitað var
ekki rætt við þingmann sem gagn-
rýndi „dílinn“ á Alþingi. Þarf að
spyrja hvílíkum hamförum áróð-
ursstofan hefði farið ef ættingjar
Davíðs eða Halldórs hefðu hagnast
um tugi eða hundruð milljóna? Ég
varð að viðurkenna að það hefði
heyrst hljóð úr horni. Hvað hefði
gerst ef Davíð hefði farið í mál við
sjálfan sig líkt og Már hefur gert í
Seðlabankanum? spurði hann. Jú,
ég varð að viðurkenna þá hefði
rignt eldi og brennisteini. Kratinn
vinur minn hefur lög að mæla.
Af Evrópumálum og sjómanni
Vinur minn er Evró-skeptík, eins
og hann kýs að kalla sjálfan sig, þó
umfram allt lýðræðissinni. Þegar
fréttastofa RÚV var með úttekt á
Evrópuaðild og sjávarútvegi kvað
Evrópufræðingur upp úr um að
landsmenn hefðu ekkert að óttast
þó forræði fiskimiðanna færi til
Brussel. Auðvitað var ekki rætt við
„boring nei-fólk“ en fréttastofan
fann sjómann sem taldi evrópska
pólitíkusa betri en íslenska og þess
vegna sjálfsagt að ganga í ESB! Í
annarri „frétt“ um kosti aðildar
flutti sagnfræðingur langa tölu um
að landsmenn þyrftu ekki að óttast
að lokast inn í evrópsku stórríki.
Evrópa er ekkert að sameinast,
botnaði sagnfræðingurinn. Svona er
nú RÚV snoturt, sagði kratinn vin-
ur minn. Öll vötn falla til Dýra-
fjarðar, sagði ég. Kannski er Jó-
hanna í Dýrafirði að leita að
Hrafnseyri, botnaði vinur minn.
Þegar Davíð Oddsson hellti sér
yfir Jóhönnu og Steingrím í viðtali
við Morgunblaðið eftir brottrekst-
urinn úr Seðlabankanum gerði
áróðursstofan í Efstaleiti sérstaka
frétt um „ósannindamanninn og
lygarann“ Davíð Oddsson. Aldrei
gefa pakkinu sviðið; áróðursstofan
skal alltaf eiga síðasta orðið. Þetta
minnir á gamla Sovétið handan
Járntjalds, sagði vinur minn og
hristi sig. Þegar Bjarni Ben lagði
fram skattatillögur íhaldsins þá var
Björn Valur Gíslason sendur gegn
honum til að lýsa frati á þær. Íhald-
ið mátti ekki eiga sviðið. Það mátti
ekki ræða tillögurnar öðru vísi en
orðhákurinn sæti líka til borðs.
Stjórnarliðið verður að eiga lokaorð
og svo setjast litlu fréttamennirnir
á hné ráðherra og hlýða á kvöldsög-
ur um það hve allt sé á uppleið enda
vinni þeir myrkranna á milli. Svo
varpa þeir öndinni mæðulega og
fréttamaðurinn andvarpar.
Icesave-krafa verður að
íslenskri skuld
Icesave er sérstakur kapítuli út
af fyrir sig. Icesave-krafa Breta og
Hollendinga var kölluð Icesave-
skuld Íslendinga. Að kvöldi fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu sat Kastljós
á hnjám Steingríms og hlýddi and-
aktugt á ráðherrann segja að allt
færi til andskotans ef þjóðin sam-
þykkti ekki 500 milljarða víxil Breta
og Hollendinga: félagi hans kvað Ís-
land verða Kúbu norðursins. Kvöld-
ið fyrir atkvæðagreiðslu Alþingis
um frávísunartillögu Geirs var langt
og hávært viðtal við Björn Val. Það
hvarflaði ekki að áróðursstofu
RÚV-sjónvarps að viðra sjónarmið
stjórnarandstöðu, né flytja fréttir af
málflutningi virtra lögmanna sem
töldu tillöguna vel þingtæka. Nei,
RÚV endurómar hávaðann, en læt-
ur málefnin víkja. Það ríkir orðræði
í stað lýðræðis. Og þegar saksókn-
arinn staðfesti að Alþingi gæti aft-
urkallað ákæru á hendur Geir, þá
auðvitað náði slíkt ekki inn í frétta-
helst og kjarni málsins falinn í orða-
gjálfri. Og 101 Reykjavík glotti við
tönn þegar ævintýri berrassaða
keisarans með öskutunnuna rataði
ekki í áramótaskaupið. Auðvitað var
fokking Bjarni Ben sakaður um
brask og svínarí, lögbrot og and-
styggilegheit – og hlegið svakalega.
-Stórbrotið, hrópaði vinur minn.
-Hvernig mátti þetta gerast?
spurði ég ráðvilltur.
-Jú, það var auðvitað mennta-
málaráðherra Sjálfstæðisflokksins
sem hleypti spúandi drekanum út:
það hefur enginn neitt um fréttir að
segja, útvarpsráð lagt af og stjórn-
lynt fólk, sem hefur tekið eigu þjóð-
arinnar ófrjálsri hendi, er gert að
dómara í eigin sök.
-Þú átt við að ég geti allt eins
spjallað við vindinn eins og kvarta
undan fréttum áróðursmaskínunnar
í Efstaleiti?
Vinur minn kinkaði kolli.
Af RÚV og pólitískri byltingu
-Þó er alvarlegast, sagði kratíski
lýðræðissinninn vinur minn sem nú
varð alvarlegur, að RÚV var mis-
beitt í búsáhaldabyltingunni; póli-
tískri byltingu sem stjórnað var úr
pólitískum bönker VG og fraksjóna
í SF þar sem RÚV var samskipta-
miðill byltingarsinna og kastaði eld-
mat á bálið. Einn helsti málaliði út-
rásarpésanna fór fyrir skríl sem
gerði árás á bíl forsætisráðherra.
Svo mætti hetjan hróðug í Kastljós
eins og ekkert hefði í skorist.
Um leið og hrunstjórnin féll
breytti RÚV um gír, setti lok á
potta og pönnur og umturnaðist í
þægan kjölturakka nýrra valdhafa.
Klíkan sem stýrir pólitískri umfjöll-
un Ríkisútvarpsins telur sig ósnert-
anlega, enda búið að taka gagnrýna
þjóðfélagsumræðu úr sambandi á
Stöð 2 þar sem ræður ríkjum
„mesti bankaræningi Íslandssög-
unnar“ að sögn kröfuhafa Glitnis.
Plottið er skothelt og Jón Ásgeir
marserar ótrauður með Össuri, Jó-
hönnu og Steingrími inn í Evru-
landið þó þjóðin hafi á því engan
áhuga og streitist á móti.
-Nú eru sko hafnar alvöru-
viðræður, sagði Steingrímur þegar
hann bugtaði sig djúpt fyrir kómiz-
arnum í Brussel.
-Þú dregur upp dökka mynd af
ástandinu, sagði ég og bætti við:
Þetta er svakaleg arfleifð míns
gamla félaga.
-Það er svo komið á Íslandi, botn-
aði lýðræðiskratinn vinur minn, að
spyrja verður hvort Ríkisútvarpið
sé hrein og bein ógnun við lýðræðið
í landinu. Meðan góðir menn þegja
fer vofa ánauðar ljósum logum um
landið og sálarkreppa þjóðar dýpk-
ar. Það er skylda hvers frjálshuga
manns að andmæla; ekki síst lýð-
ræðissinna í hópi vinstrimanna.
Ríkisútvarpið er orðið málpípa valdhafanna
Eftir Hall Hallsson » Fámenn klíka stýrir
pólitískum frétta-
flutningi Ríkisútvarps-
ins. Er RÚV hrein og
bein ógnun við lýðræðið
í landinu?
Hallur Hallsson
Höfundur er rithöfundur
og blaðamaður.
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
.
MEÐAL EFNIS:
Viðtöl við fyrirlesara ráðstefnunnar.
Viðtal við formann Ímark.
Saga og þróun auglýsinga hér á landi.
Neytendur og auglýsingar.
Nám í markaðsfræði.
Góð ráð fyrir markaðsfólk
Tilnefningar til verðlauna í ár -
Hverjir keppa um Lúðurinn?
Fyrri sigurverarar íslensku
markaðsverðlaunanna.
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni.
ÍMARK íslenski
markaðsdagurinn
Morgunblaðið gefur út ÍMARK
sérblað fimmtudaginn
23. febrúar og er tileinkað
Íslenska markaðsdeginum
sem ÍMARK stendur fyrir
en hann verður haldinn
hátíðlegur 24. febrúar. nk.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, föstudaginn 17. feb.
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
S
É
R
B
L
A
Ð