Morgunblaðið - 03.02.2012, Page 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
✝ Birgir ÁrniBirgisson fædd-
ist í Lund í Svíþjóð
þann 4. janúar 1980.
Hann lést á heimili
sínu á Ísafirði 23.
janúar 2012.
Foreldar hans
eru Anna Kristín
Hauksdóttir, fædd
5. ágúst 1957, og
Birgir Ragnarsson,
fæddur 13. mars
1949. Systkini hans eru María
Sonja, fædd 1974, maki hennar
er Thomas Rognli og eiga þau 3
börn. Drífa Birgitta, fædd 1975,
auðséð að sjómennskan átti vel
við hann. Hann var sjómaður á
Stefni ÍS 28 síðustu árin sín.
Birgir spilaði körfubolta lengi
með KFÍ og var talin efnilegur
og hann æfði einnig skíði á Ísa-
firði. Birgir var mikill listamaður
og var hann ekki gamall þegar
kennarar og aðrir höfðu orð á
teiknihæfileika hans. Birgir tjáði
sig mikið í gegnum list sína, bæði
með teikningum, ljósmyndum og
myndböndum sem hann setti
sjálfur saman. Birgir hafði mik-
inn áhuga á tónlist og spilaði
sjálfur á gítar. Hann var ávallt
vinur vina sinna og lét aldrei sín
vandamál bitna á öðrum. Hann
þótti einstaklega ljúfur og góður
drengur.
Birgir Árni verður jarðsung-
inn frá Vídalínskirkju í dag,
föstudaginn 3. febrúar 2012, og
hefst athöfnin kl. 15.
maki hennar er
Baldur Gunnarsson
og eiga þau 2 börn.
Pétur Þór, fæddur
1981, og á hann eitt
barn. Örvar Ingi,
fæddur 1992. Jón
Þorberg, fæddur
1997. Ragnar Helgi,
fæddur 1991. Birgir
ólst upp í Svíþjóð
fyrstu sjö ár ævi
sinnar en fluttist til
Ísafjarðar 7 ára gamall og bjó
þar alla tíð. Fljótlega eftir að
hann lauk grunnskóla fór hann
að stunda sjóinn og fljótlega var
Elsku bróðir okkar, við sitj-
um saman systkinin og erum að
leggja lokahönd á útför þína,
nokkuð sem ekkert okkar bjóst
við að þurfa að gera. Minning-
arnar sem þú skilur eftir þig
hafa hjálpað okkur að brosa í
gegnum tárin á þessum erfiðu
tímum. Okkur langar til að deila
nokkrum af þessum minningum.
Frá æskuárunum okkar í Sví-
þjóð minnumst við þess þegar
þú og Pétur bróðir þinn fóruð í
lautarferð með nesti og allt til-
heyrandi, sú lautarferð endaði
uppá bílskúrsþaki í næsta húsi
og þurfti að kalla til aðstoð þar
sem þið þorðuð ekki niður aftur.
Æskuárin á Ísafirði byrjuðu á
Hlíðarvegi 12, þar stendur upp-
úr kvöldið sem þú ákvaðst að
reyna að hræða Pétur og Krist-
ján með frumsömdum drauga-
sögum. Það endaði með að þeir
sofnuðu og þú ákvaðst að skríða
uppí hjá Mæju og Drífu af
hræðslu og með öll ljós kveikt.
Biggi, manstu eftir Michael
Jackson tímabilinu þínu? Hvítt
barnapúður, silkiskyrtur, griffl-
ur, og gríman góða. Þú áttir það
til að liggja á hleri þegar við
systurnar vorum að ræða málin
seint á kvöldin, eitt skiptið
ákváðum við systurnar að stríða
þér aðeins og segja sögur af því
að það væru ormar í öllu hveiti
og þar sem þetta var rétt fyrir
jól þá borðaðir þú engar kökur
né brauð þau jólin, móður þinni
til mikils ama. Minningarnar
um þig eru endalausar og gæt-
um við fyllt heila bók með þeim.
Þú varst alltaf svo ljúfur og góð-
ur og þín er sárt saknað, þú
munt ávallt lifa í minningum
okkar, elsku Biggi okkar.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið loga skæra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(Friðrik Guðni Þórleifsson.)
F.h. systkinanna,
Jón Þorberg.
Fólk segir að hafi maður ekk-
ert sérstakt að segja þá eigi
maður bara að sleppa því að
segja eitthvað yfirhöfuð, en ég
ætla allavega að segja nokkur
orð.
Þú ert einn af fáum mann-
eskjum sem ég gat setið hjá,
gert og sagt nákvæmlega ekki
neitt en samt liðið vel.
Eins og öll kvöldin sem við
eyddum við að horfa á flakk-
arann og spila póker í fartölv-
unni þinni.
Það var alltaf gaman að kíkja
vestur til þín því þá var ekkert
gert nema þetta og skreppa út í
Hamraborg eða Samkaup til að
kaupa sér eitthvað óhollt að
borða.
Ég fór ekki að hugsa út í það
fyrr en um daginn hversu stór
hluti þú varst af mínu lífi.
Þú hvattir mig til dæmis
fyrstur til að byrja að spila á
gítar, og þú kynntir mér fyrstur
frábæra tónlist.
Þú fékkst mig til að gera svo
margt og fyrir það er ég æv-
inlega þakklátur því annars
myndi ég ekki vita hvar ég væri
í dag.
Þín verður sárt saknað, Biggi
minn, takk fyrir öll árin.
Þinn bróðir,
Örvar Ingi.
Elsku Biggi, síðustu dagarnir
hafa verið erfiðir. Þetta er svo
óraunverulegt og sárt. Er svo
þakklát fyrir allar minningarn-
ar frá æskunni og stundirnar
sem við áttum saman á Ísafirði
síðustu 2 sumur. Þakka fyrir
samtölin okkar, og að þú nennt-
ir að labba með mér fram og til
baka á Ísafirði, gafst þér tíma
fyrir mig og krakkana, passaðir
fyrir mig þó þú værir upptekin
við að smíða pókerborðið þitt,
kvöldmáltíðirnar sem við áttum
saman á Hlíðarveginum. Þú
varst svo duglegur, hæfileika-
ríkur og listrænn. Ég veit þú
fylgist áfram með okkur, eins og
þú skrifaðir „gubbu fullkomnu
fjölskyldulífinu“, þú gafst alltaf
hrós á þinn hátt, elsku vinurinn,
hvíldu í friði, þú munt alltaf eiga
sérstakan stað í hjarta mínu.
Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein,
né blómstígar gullskrýddir alla leið
heim.
Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar,
á göngu til himinsins helgu borgar.
En ég hefi lofað þér aðstoð og styrk,
og alltaf þér birtu þó leiðin sér myrk.
Mitt ljúfasta barn, ég lofað þér hef,
að leiða þig sjálfur hvert einasta
skref.
(Staðf. Hjálmar Jónsson.)
María Sonja systir.
Elsku Biggi minn.
Hér sit ég og reyni að átta
mig á því að þú sért farinn frá
okkur að sinni. Þó að ég sé
þakklát fyrir þau ár sem ég fékk
þann heiður að þekkja þig og
þær minningar sem ég hef um
þig og okkar tíma er erfitt að
sætta sig við að þau verði ekki
fleiri. Síðustu daga hef ég grátið
mikið en einnig hef ég hlegið við
það að rifja upp mínar minn-
ingar um þig og okkur.
Ég man þegar þú komst fyrst
heim, þú varst fyrsti litli bróðir
minn. Mér fannst reyndar voða
erfitt fyrst að þurfa að deila
heimi mínum með þér en fljót-
lega fór ég nú að sjá kostina við
það að eiga lítinn bróður. Þegar
ég ákvað að gifta mig var ég
fljót að biðja þig að standa við
hlið mér í kirkjunni sem þú
gerðir. Ég veit að lífið var þér
ekki alltaf auðvelt en ég heyrði
þig aldrei kvarta. Það var alveg
sama hversu miklir erfiðleik-
arnir voru, alltaf varstu ljúfur
og heiðarlegur. Miðað við hvað
þú lifðir stutt, Biggi minn, er
ótrúlegt hvað þú skilur mikið
eftir. Þú hafðir mikinn áhuga á
börnum okkar systkina þinna
og lést okkur alveg heyra það ef
þér fannst við vera of „leiðinleg-
ir foreldrar“. Börn okkar hafa
misst mikið og kveðja þig með
miklum söknuði.
Þú varst alltaf til í að hjálpa
og þó svo að þú værir ekki mikið
fyrir það að tala um sjálfan þig
þá voru þau samtöl sem maður
átti við þig um lífið og tilveruna
ógleymanleg. Þú gast alltaf séð
spaugilega hlið á lífinu og húm-
orinn þinn fékk mann alltaf til
að hlæja. Við erum alltaf svo
upptekin af hversdagslegum
hlutum í lífinu í dag og maður
gefur sér ekki alltaf nægilegan
tíma til að sinna fjölskyldunni,
en Biggi minn, ég hef ávallt
elskað þig og geri enn og mér
þykir verst að hafa ekki gefið
mér tíma til að segja þér það
nægilega oft á meðan þú varst á
lífi. Ég veit ekki hvernig lífið
verður hér án þín, Biggi minn,
en eitt veit ég, ég hræðist ekki
dauðann lengur því ég veit að
þú tekur á móti mér brosandi
þegar ég kem.
Elsku Biggi minn, eins erfitt
og það er þá kveð þig nú að
sinni en ég veit og verð að trúa
að við sjáumst aftur.
Þín systir
Drífa Birgitta.
Elsku bróðir minn, Birgir.
Allar minningarnar um þig mun
ég ávallt bera í hjarta, þú varst
svo yndislegur og góður og ég
veit að það er minningin sem
mun lifa hjá öllum sem þekktu
þig. Að hafa alist upp með þér
eru forréttindi og ég mun alltaf
verða þakklátur fyrir það, elsku
kallinn minn. Mig grunar að það
verði búið að smíða eitt stk.
pókerborð þegar maður kemur
upp til þín seinna meir, þá skal
ég glaður grípa í spil með þér.
Þangað til bið ég þig að hvíla í
friði, elsku Biggi minn. Kveðja.
Þinn bróðir,
Pétur.
Mig langar með fáeinum orð-
um að minnast og kveðja mág
minn og vin, Birgi Árna Birg-
isson.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Bigga kynntist ég fyrst
snemma árs 2001 þegar ég
kynntist Drífu systur hans. Mér
varð strax ljóst að þar færi góð-
ur drengur með hjarta úr gulli.
Kynni okkar Bigga voru e.t.v.
minni heldur en ætla mætti á
þessum 11 árum sem liðin eru,
enda búandi hvor á sínu lands-
horninu og að auki báðir nokkuð
prívat í háttum og ekki sérlega
mannblendnir. En óhætt er að
segja að þau kynni voru í alla
staði ánægjuleg enda erfitt ann-
að en að láta sér líka vel við
Bigga. Þar fór heiðarlegur og
orðheldinn drengur sem vildi
öllum gott og var ákaflega bón-
góður og hjálpsamur í hverju
sem var.
Litlu frænkurnar og frænd-
urnir dýrkuðu þennan rólynda
og trausta dreng sem alltaf
brosti til þeirra og gaf sér tíma
til að sinna þeim og svara. Aldr-
ei heyrði ég hann segja styggð-
aryrði um nokkurn mann og
þvert á móti sá ég hann oftar en
einu sinni ganga burt frá sam-
ræðum sem honum þóttu orðnar
full-neikvæðar. Alltaf var hann
jákvæður og ánægður og gat
séð spaugilegu hliðarnar á
flestu. Hann gat verið stríðinn
en aldrei þannig að eftir yrðu
sár.
Biggi var lengst af sjómaður
og þeirri stétt til sóma í alla
staði, enda harðduglegur og
ósérhlífinn í alla staði. Biggi var
einn af þeim sem geta gert hvað
sem var, enda ákaflega laghent-
ur, vandvirkur og útsjónarsam-
ur maður.
Heimurinn er vissulega fá-
tæklegri staður án þín, Biggi,
en ég tel mig ríkari af kynn-
unum við þig.
Foreldrum Bigga, systkinum
og öllum ættingjum og vinum
votta ég dýpstu samúð mína.
Friður sé með þér, Biggi.
Þinn mágur,
Baldur Gunnarsson.
Nú ertu farinn, kæri vinur.
Stutt er síðan mér bárust þær
fregnir að þú glímdir aftur við
þann erfiða sjúkdóm sem hafði á
stundum leikið þig grátt. Ekki
óraði mig þó fyrir því að þú ætt-
ir einungis nokkrar vikur eftir
af lífi þínu. Þér hafði tekist að
halda honum niðri í um sjö ár.
En, líkt og hjá mörgum góðum
mönnum taldir þú þig vera orð-
inn læknaðan, sem því miður
reyndist ekki rétt. Þú hafðir þó
játað þig sigraðan fyrir nokkr-
um vikum, tekist á við brestina
og ætlaðir að hefja betra líf að
nýju. Eitt lítið skref í öfuga átt
var hins vegar nóg til að taka
þig frá okkur. Því miður.
Birgi Árna kynntist ég fyrst
á Ísafirði á unglingsárum fyrir
rúmlega 15 árum síðan. Okkur
varð fljótt vel til vina og hélst sú
vinátta óslitið. Fáa menn hef ég
hitt um ævina sem reynst hafa
jafn góðhjartaðir og Birgir. Um
það eru flestir sammála sem
kynntust honum. Aldrei vildi
hann nokkrum manni illt og
þrátt fyrir að hann hafi á stund-
um háð harða baráttu við sjúk-
dóm sinn hélst góðmennska
hans óslitið. Mannkostir hans
voru margir. Afskaplega vinnu-
samur, góður íþróttamaður og
mikill tónlistarunnandi er það
sem fyrst kemur upp í hugann.
Ég vona að guð fari vel með
þig og votta fjölskyldu þinni
innilega samúð. Minning um
góðan dreng mun lifa.
Annas Sigmundsson.
Elsku skólabróðir, þín verður
sárt saknað. Takk fyrir allt.
Horfinn er vinur handan yfir sundin,
hryggðin er sár, svo jafnvel tárast
grundin.
Þá er svo gott, um ævi megum muna,
milda og fagra geymum kynninguna.
Óvæntust ætíð kemur kveðjustundin,
kærast í hjarta geymum minninguna.
(Vilhjálmur S.V. Sigurjónsson)
Sendum okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur til allra sem eiga
um sárt að binda á þessum erf-
iðu tímum.
Fyrir hönd skólasystkina úr
1980 árganginum á Ísafirði,
Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir.
Birgir Árni
Birgisson
Á þessari stundu koma upp
margar yndislegar minningar. Við
höfum misst merkilegan mann.
Benni var alltaf hress og kátur
þegar við litum til frænku og
Benna. Þá bar margt á góma og
ekki var það verra ef Elva Rún
greip í nikkuna, það var bara helst
skylda. Þá var minn maður glaður
því tónlistin var honum mikið
yndi. Missir Önnu frænku er mik-
Benedikt Helgason
✝ Benedikt Ingv-ar Helgason
fæddist á Ísólfs-
stöðum 30. sept-
ember 1926. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 12. janúar
2012.
Útför Benedikts
fór fram frá Húsa-
víkurkirkju 21. jan-
úar 2012.
ill, en við megum
ekki gleyma öllum
gleðistundunum sem
við áttum saman með
Benna. Hugur okkar
mun lengi staldra við
minningu um elsku-
legan mann sem
auðgaði lífið og til-
veruna ríkulega.
Ég sendi þér kæra
kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Blessuð sé minning Benedikts
Helgasonar.
Auður Snjólaug Karlsdóttir.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu mér og
fjölskyldu minni samúð og hlýju við fráfall
ástkærs eiginmanns míns,
ÞORBJARNAR KARLSSONAR,
Kirkjubraut 6,
Seltjarnarnesi.
Svala Sigurðardóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og sonur,
ÞÓRIR JÓN HALL,
sem lést á heimili sínu laugardaginn
28. janúar, verður jarðsunginn frá Guðríðar-
kirkju þriðjudaginn 7. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, þeim sem vilja
minnast hans er bent á Samtök lungna-
sjúklinga.
Dóra Þorvaldsdóttir,
Vigfús Þorsteinsson, Þórdís Helga Ingibergsdóttir,
Viggó Þórir Þórisson, Þórunn Unnarsdóttir,
Reynir Þorsteinsson,
Sigríður Björk Þórisdóttir, Snorri Harðarson,
Dóra Kristín Þórisdóttir, Eiríkur Auðunn Auðunsson.
✝
Ástkær eiginkona mín,
AUÐUR EINARSDÓTTIR,
til heimilis á dvalarheimilinu Lundi,
Hellu,
sem lést fimmtudaginn 26. janúar, verður
jarðsungin frá Oddakirkju, Rangárvallasýslu,
laugardaginn 4. febrúar kl. 14.00.
Fyrir hönd hennar nánustu,
Lárus Jónasson.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur,
EYRÚNAR EYJÓLFSDÓTTUR,
Rúnu.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
Hrafnistu í Hafnarfirði og 3B fyrir einstaka
hlýju og alúðlega umönnun.
Alfons Jónsson, Ágústa Guðmundsdóttir,
Aldís Jónsdóttir,
Eyjólfur Kristinn Jónsson,
Kristrún Jenný Alfonsdóttir,
Inga María Eyjólfsdóttir.