Morgunblaðið - 03.02.2012, Page 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
Orð dagsins: Ég er Drottinn, Guð yð-
ar, lifið eftir boðorðum mínum og
haldið lög mín og breytið eftir þeim.
(Esk. 20, 20.)
Ný sænsk rannsókn sýnir að 20%minni líkur eru á banaslysum í
umferðinni séu bílar á nagladekkjum.
Þetta kom fram hjá Sumarliða Guð-
björnssyni, sérfræðingi á tjónasviði
Sjóvár, í morgunþætti Bylgjunnar í
vikunni. Hann benti jafnframt á að í
hálkunni að undanförnu hefðu engin
dekk virkað eins vel og nagladekk.
x x x
Þessar upplýsingar koma Víkverjaekki á óvart því hann var eins og
belja á svelli í bíl sínum í höfuðborg-
inni þegar hálkan var sem mest. Vík-
verji reynir að fara að lögum og
reglum og þó hann sé ekki alltaf sam-
mála ákvörðunum stjórnenda borgar-
innar fékk hann sér vetrardekk án
nagla þegar yfirvöld lögðust gegn
notkun nagladekkja. Þessi breyting
hefur leitt til þess að aðeins snarræði
Víkverja hefur í tvígang forðað hon-
um frá því að lenda í árekstri á ný-
liðnum vikum.
x x x
Þessi boð og bönn fara annars ekkivel í Víkverja. Svo virðist sem
kjörnir stjórnendur haldi að Ísland sé
milljónaþjóð en ekki land með íbúa-
fjölda á við úthverfi í miðlungsborg
úti í heimi. Vissulega er mikil mengun
vegna bíla í Aþenu og þar þarf stund-
um að takmarka umferð, en þessi
gegndarlausi áróður á móti notkun
nagladekkja í Reykjavík virkar á Vík-
verja eins og sameining skóla víðs
vegar í borginni virkar á foreldra
barna sem hlut eiga að máli.
x x x
Íumferðinni er aðalatriðið að öku-tækið sé vel og rétt búið til akst-
urs, að öll öryggistæki séu í lagi, og
ökumenn hagi akstri í samræmi við
aðstæður hverju sinni.
Sumarliði sagði að könnun, sem
Sjóvá hefði gert á dekkjabúnaði
óökufærra bifreiða eftir að hafa lent í
árekstri í desember sl., hefði sýnt að
ein af hverjum fjórum bifreiðum hefði
verið með óviðunandi dekkjabúnað.
Þessu mætti líkja við það að fara út í
umferðina með bilað stýri. Víkverji
veltir því fyrir sér hvort auknir skatt-
ar hindri að fólk hugi að öryggi bíls-
ins. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 tónverkið, 8 lífga,
9 fyrirgefning, 10 gyðja, 11
tákn, 13 samsafn, 15 dæld,
18 sanka saman, 21 rödd, 22
úthluti, 23 útlit yfirborðs, 24
málvenju.
Lóðrétt | 2 truflun, 3 sorp, 4
lands, 5 vondur, 6 misgán-
ingur, 7 hræðslu, 12 ílát, 14
hita, 15 slæpast, 16 ham-
ingju, 17 ásynja, 18 lítið, 19
smánarblett, 20 nabbi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hlúir, 4 hanki, 7 tafls, 8 gengi, 9 púl, 11 arra, 13 bann,
14 gubba, 15 hífa, 17 klár, 20 fat, 22 nefna, 23 urtum, 24 ilina, 25
trauð.
Lóðrétt: 1 hátta, 2 útför, 3 rasp, 4 hagl, 5 nenna, 6 iðinn, 10 út-
búa, 12 aga, 13 bak, 15 hendi, 16 fífli, 18 litla, 19 rómuð, 20 fala,
21 tukt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
3. febrúar 1937
Í Eyjafirði sáust sérstök norð-
urljós „sem stöfuðu í allar átt-
ir út frá einum depli, sem þó
var dimmur,“ eins og sjónar-
vottur lýsti þessu fyrirbæri
sem mun vera nefnt norður-
ljósahjálmur.
3. febrúar 1944
Hótel Ísland, stærsta timbur-
hús í Reykjavík, brann. Einn
maður fórst en meira en fjöru-
tíu var bjargað. „Slökkviliðið
vinnur þrekvirki í björgun
nærliggjandi húsa,“ sagði Vís-
ir. Þetta var mesti eldsvoði í
borginni í tæp þrjátíu ár.
3. febrúar 1975
Gunnar Þórðarson hlaut lista-
mannalaun, fyrstur popp-
tónlistarmanna. Þá höfðu átta-
tíu lög eftir hann verið gefin
út á plötum.
3. febrúar 1981
Síðasti torfbærinn í Reykjavík
var rifinn. Þetta var Litla-
Brekka við Suðurgötu.
3. febrúar 1991
Eitt mesta fárviðri í manna
minnum gekk yfir landið.
Eignatjón var á annan milljarð
króna en engin alvarleg slys.
Langbylgjumastur sem staðið
hafði í sextíu ár á Vatns-
endahæð fauk um koll. Í Vest-
mannaeyjum mældist ein
mesta vindhviða sem vitað er
um hér á landi, um 237 kíló-
metrar á klukkustund (66
metrar á sekúndu).
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Það er bara skemmtileg tilhugsun að verða þrí-
tug. Maður er orðinn svolítið fullorðinn en á ennþá
næga orku eftir og ég held að það verði bara
skemmtileg ár framundan,“. segir Sigrún Helga
Lund stærðfræðingur, sem fagnar þrítugsafmæli
sínu í dag. Hún ætlar að halda upp á daginn með
afmælispartíi í Mjölniskastalanum.
Sigrún Helga æfir í bardagaíþróttaklúbbinum
Mjölni, brasilískt Jiu-jitsu og aðrar bardagalistir
og lætur vel af því. „Ég byrjaði í haust en féll al-
veg fyrir þessu og æfi í öllum frítíma mínum. Ég
fæ margt út úr þessu, bæði mjög góða hreyfingu
og svo ótrúlega góða útrás. Þetta er líka góð andleg þjálfun því þetta
snýst mikið um að láta tækni vinna með sér og láta skynsemina yfir-
vinna styrk. Þetta er gott bæði fyrir líkama og sál.“
Sigrún Helga er stærðfræðingur að mennt og kennir tölfræði við
Verk- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands og leggur jafnframt
stund á doktorsnám í tölfræði við HÍ. Hún hefur sannarlega í nógu að
snúast því auk þessa syngur hún í Söngsveitinni Fílharmóníu en kór-
inn er þessa dagana að æfa Hringadróttinssinfóníuna fyrir stór-
tónleika í Hörpu 17. febrúar. omfr@mbl.is
Sigrún Helga Lund stærðfræðingur er 30 ára
Tölur, söngur og Jiu- jitsu
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Samstarfsmenn ykkar eru algerlega
óútreiknanlegir í dag og gætu átt það til að
hella sér yfir ykkur. Reyndu að finna tíma til
að vera ein/n með sjálfri/sjálfum þér í dag.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hugdirfska þín leiðir þig á framandi
slóðir og þú munt upplifa mikil ævintýr.
Prófaðu að viðurkenna að þú gætir haft
rangt fyrir þér í staðinn fyrir að rökræða.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú byrjar alltaf á því að vera al-
mennilegur, því það virkar oftast vel fyrir þig
– en ekki alltaf. Dagurinn í dag mun reynast
þér erfiður í þeim efnum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú munt sjá að samvinna skilar
betri árangri en að hver sé í sínu horni.
Hvort þú vilt tjá þig um það er undir þér
komið.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert uppreisnargjarn, órólegur og
óþolinmóður í dag og átt að gæta þess að
leiðast ekki út í rifrildi og þras.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú þarf að veita sköpunargáfunni út-
rás. Reynsla þín ætti að fleyta þér í höfn.
Farðu yfir stöðuna, þá finnurðu hvað vantar
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Besta leiðin til þess að nýta orku dags-
ins er að vinna af kappi. Flýttu þér samt
hægt og gefðu öðrum möguleikum gaum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er nauðsynlegt að eiga ein-
hvern til þess að deila með gleði og sorg því
það er engum hollt að byrgja allt inni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það gæti verið freistandi að
beygja reglurnar svona einu sinni, en þú
skalt hugsa þig tvisvar um áður en þú geng-
ur gegn farsælu lífsmóttói þínu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Erfið verkefni munu útheimta
mikið hugrekki af þinni hálfu. Reyndu að
láta þetta hafa sem minnst áhrif á þig því þú
ert með þitt á hreinu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú munt sjá að misjafn sauður er
í mörgu fé. Vertu rólegur; ástæðanna er ekki
hjá þér, þú getur ekki leyst þeirra vandamál.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Leggðu áherslu á jákvæða styrkingu
á vinnustað, þannig fer sem minnstur tími
til spillist. Reyndu að slaka á og minna
sjálfa/n þig á að þú þurfir ekki að taka end-
anlega ákvörðun í málinu.
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Sudoku
Frumstig
8 2 1
7 4 9 3
4 2 7 5
8 1 2
5 3 9
7 9 1 8
7 5
2 1 5
9 8 1
7
4 3
1 3 7
4 6 5
3 4 9 8
4
1 9
8 9 7 3 6
6 8 1
2
4 5
5 1
2 6 4
4 5 8 2
2 1 5
4 5 7 8 6 3
7 6
1 5 9 6 3 4 8 7 2
8 7 6 2 9 1 5 4 3
2 3 4 5 7 8 6 1 9
4 1 7 9 5 6 3 2 8
6 2 5 4 8 3 1 9 7
9 8 3 7 1 2 4 6 5
3 4 1 8 2 9 7 5 6
7 6 2 3 4 5 9 8 1
5 9 8 1 6 7 2 3 4
9 5 4 2 7 8 3 1 6
1 3 7 4 6 9 8 2 5
8 2 6 1 5 3 4 9 7
7 4 5 8 2 6 9 3 1
2 6 8 3 9 1 5 7 4
3 1 9 5 4 7 2 6 8
6 7 2 9 8 5 1 4 3
4 8 3 7 1 2 6 5 9
5 9 1 6 3 4 7 8 2
1 9 6 7 3 2 5 8 4
4 7 5 9 6 8 2 3 1
3 2 8 1 5 4 9 6 7
5 6 9 3 4 1 7 2 8
2 3 7 5 8 6 4 1 9
8 1 4 2 9 7 6 5 3
9 5 1 6 7 3 8 4 2
6 8 2 4 1 9 3 7 5
7 4 3 8 2 5 1 9 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 3. febrúar, 34. dagur
ársins 2012
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Útspilsraunir. S-Allir.
Norður
♠G7
♥DG32
♦G973
♣DG9
Vestur Austur
♠D10965 ♠K2
♥94 ♥Á10875
♦652 ♦104
♣ÁK5 ♣10643
Suður
♠Á843
♥K6
♦ÁKD8
♣872
Suður spilar 1G.
Sagnir eru fábrotnar: suður opnar á
15-17 punkta grandi og allir passa.
Vestur á útspilið og það virðist nokkuð
rakið að byrja á spaðanum, en hvort
skyldi vera betra að spila út tíunni eða
smáspili?
Bæði útspilin voru prófuð í sveita-
keppni Bridshátíðar. Tían gaf ekki
góða raun. Sagnhafi setti upp gosa
blinds og ýmist drap eða dúkkaði kóng
austurs. Það breytti þó engu um fram-
haldið, því nú er átta suðurs orðin stór-
veldi. Hér heppnast vel að spila út
„fjórða hæsta“. Liturinn er brotinn í
einu höggi og vörnin nær í sjö slagi. Er
þá málið afgreitt – á að spila út smáu
frá slíkum lit?
Augnablik. Í mörgum stöðum vinnur
tían betur, til dæmis ef blindur á ♠G73
og sagnhafi ♠Á84. Hvað segja reikni-
meistarar?
Flóðogfjara
3. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.02 3,0 9.34 1,6 15.37 2,8 21.47 1,4 10.04 17.20
Ísafjörður 5.13 1,6 11.43 0,8 17.43 1,4 23.51 0,6 10.24 17.10
Siglufjörður 1.04 0,5 7.31 1,1 14.03 0,4 20.23 1,0 10.08 16.52
Djúpivogur 6.35 0,7 12.30 1,2 18.40 0,6 9.37 16.46
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Staðan kom upp í A-flokki Corus
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Tékkneski stórmeistarinn David Nav-
ara (2712) hafði svart gegn armenska
kollega sínum Levon Aronjan (2805).
57… g5+! 58. fxg5 hxg5+ 59. Kh5
De4! 60. Kxg5 Re6+ og hvítur gafst
upp enda taflið tapað eftir 61. Kh5
Rg7+ 62. Kh4 De1+ 63. Kg5 De5+.
Lokastaða efstu manna varð þessi: 1.
Levon Aronjan (2805) 9 vinninga af 13
mögulegum. 2.-4. Magnus Carlsen
(2835), Teimour Radjabov (2773) og
Fabiano Caruana (2736) 8 v. 5.-6. Vas-
sily Ivansjúk (2766) og Hikaru Nakam-
ura (2759) 7 1/2 v. 7. Gata Kamsky
(2732) 7 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.