Morgunblaðið - 16.02.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2012
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavík-
ur frá 9. febrúar sl., í máli þrotabús
Baugs gegn SPRON, kemur fram
að félagið Norðurljós ehf. hafi lánað
Baugi 100 milljónir króna hinn 22.
desember 2008 svo hið síðarnefnda
félag gæti greitt inn á víxil sem það
skuldaði SPRON. Í dóminum kemur
jafnframt fram að Norðurljós ehf.
hafi ekki gert neina kröfu í þrotabú
Baugs um endurgreiðslu láns-
fjárhæðarinnar. „Norðurljós ehf.
hefur aldrei lánað Baugi Group
nokkurn skapaðan hlut, þannig að
það sem kom fram í þessum héraðs-
dómi er froða,“ segir Rúnar Sigur-
pálsson, eigandi og framkvæmda-
stjóri Norðurljósa ehf., spurður út í
lánveitinguna og bætir við að félag
hans tengist Baugi ekki með neinum
hætti. Félag Rúnars hét frá 2008 til
2009 JER ehf. Samkvæmt ársreikn-
ingi félagsins fyrir árið 2007 átti það
eignir sem námu alls 411 þúsund
krónum undir lok þess árs. Í lok árs
2008 námu heildareignir félagsins
enn 411 þúsund krónum ef marka
má ársreikning þess fyrir það ár.
Tvö félög heita Norðurljós
Annað félag bar nafnið Norður-
ljós á árunum fyrir hrun. Það félag
hét Norðurljós hf. á tímabilinu 2005
til 2009, en þar áður hafði það heitið
Norðurljós ehf. á árunum 2003 til
2004. Norðurljós hf. ber í dag nafnið
JER hf. Síðasti ársreikningur sem
JER. hf. skilaði var fyrir árið 2007
en samkvæmt honum átti félagið
undir lok þess árs eignir sem námu
um 540 milljónum króna. Bæði þessi
félög, þ.e. Norðurljós ehf. og JER
hf. (áður Norðurljós hf.) eru skráð
með lögheimili í Löngumýri 25 á
Akureyri, en þar er sömuleiðis Rún-
ar Sigurpálsson skráður með lög-
heimili. Þess má geta að Rúnar er
fyrrverandi forstöðumaður á fjár-
málasviði Baugs.
Að sögn Heiðars Arnar Stef-
ánssonar, héraðsdómslögmanns sem
flutti umrætt dómsmál fyrir þrotabú
Baugs, er einungis talað um Norð-
urljós í þeim gögnum sem þrotabúið
býr yfir en hvergi komi fram hvorki
kennitala félagsins né hvort það sé
hlutafélag (hf.) eða einkahlutafélag
(ehf.). Aðspurður hvort það sé ekki
einkennilegt að í bókhaldsgögn-
unum hafi vantað kennitölu þess fé-
lags sem lánaði Baugi 100 milljónir
króna segir Heiðar að svo sé ekki.
„Þú getur fundið það á yfirliti yfir
bankareikninga en það er dálítið
erfitt að fletta upp bankareikn-
ingum hjá fyrirtæki sem er með
kannski 40 bankareikninga eða
meira, þannig að við notumst í stað-
inn við bókhaldslyklana og þá eru
skýringarnar tiltölulega stuttar,“
segir Heiðar Örn. Spurður út í
hlutafélagaform félagsins segir
Heiðar: „Það stendur ekki í bók-
haldsgögnunum Norðurljós ehf.
heldur einungis Norðurljós, ehf.-ið
var sett þarna fyrir aftan í grein-
argerðinni,“ og bætir við að ekki sé
hægt að fullyrða að þetta hafi verið
Norðurljós ehf.
Þó svo að Norðurljós hf. hafi í
árslok 2007 átt eignir upp á rúman
hálfan milljarð þá segir fyrrverandi
stjórnarmaður í félaginu að það hafi
verið algjörlega eignalaust eftir að
hlutur þess í Vodafone (eða raunar
móðurfélagi þess, Dagsbrún) var
seldur árið 2006. „Já algjörlega, ég
held að allt hlutafé hafi verið fært
niður og eigendunum greitt út,“ seg-
ir Baldur Baldursson, fyrrverandi
stjórnarformaður Norðurljósa hf.
Eignalaust félag
Að sögn Baldurs var eina eign
félagsins, áður en hlutaféð var fært
niður, eignarhlutur í fjarskiptafyr-
irtækinu Vodafone. Baldur bætir
einnig við að eftir þetta hafi Baugur
átt félagið áfram. Hann segist ekki
hafa setið í stjórn félagsins árið
2008. Tveir aðrir fyrrverandi stjórn-
armenn í félaginu, sem vildu ekki
láta nafns síns getið, sögðu í sam-
tölum við blaðamann að Baugur
hefði tekið félagið alveg yfir eftir að
hlutabréfaeign þess, eignarhlutur í
Dagsbrún, var seld. Þá hafi Rúnar
Sigurpálsson, þáverandi fram-
kvæmdastjóri félagsins og fulltrúi
Baugs í stjórninni, tekið algjörlega
við félaginu. Enginn þeirra fyrrv.
stjórnarmanna í Norðurljósum hf.
sem blaðamaður ræddi við kann-
aðist við að félagið hefði veitt 100
milljóna króna lán til Baugs, en allir
höfðu þeir að eigin sögn hætt stjórn-
arsetu í félaginu fyrir 22. desember
2008. Óljóst er því hvaða Norðurljós
lánuðu Baugi þessa fjárhæð, hvar
þau fengu peningana fyrir lánveit-
ingunni og jafnframt af hverju þau
gerðu ekki kröfu í þrotabú Baugs
um endurgreiðslu fjárhæðarinnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Norðurljós Óljóst er hvaða félag lánaði Baugi Group 100 milljónir króna til
þess að greiða inn á víxil hjá SPRON í lok árs 2008, stuttu eftir bankahrunið.
Leitin að Norðurljósum
Óvíst hvaða Norðurljós lánuðu Baugi 100 milljónir króna til að greiða inn á
víxil hjá SPRON í árslok 2008 Tvö félög tengd Baugi Group koma til greina
Nýtt kortatímabil
Næg bílastæði
Nýjar vörur
komnar í hús
Laugavegi 82,á horni Barónsstígs
sími 551 4473 - www.lifstykkjabudin.is
Konudagurinn
í nánd
Laugavegi 63 • S: 551 4422
www.laxdal.is
Útsölulok
Verðhrun
50-70% afsláttur
VETRARYFIRHAFNIR Í ÚRVALI
Sparidress - Vetrardragtir - Peysur - Blússur - Bolir
FLOTTIR OG LITRÍKIR
FRÁ AÐEINS 5.990
VORJAKKARNIR
KOMNIR
KRINGLAN / SMÁRALIND / FACEBOOK - NAME IT ICELAND
Ekki missa af
jakkahappdrættinu
um helgina,
nokkrir heppnir
viðskiptavinir
vinna jakka
Bent S. Einars-
son, sem starfað
hefur sem for-
stjóri Jarðbor-
ana frá árinu
1989, hefur
ákveðið að segja
upp störfum hjá
félaginu.
Í tilkynningu
kemur fram að
Bent kveðji félagið afar sáttur
enda hafi hann starfað hjá því í
aldarfjórðung. Þar segir jafnframt
að nýir eigendur séu að taka við
félaginu og því séu nú tímamót hjá
því. Bent hafi því ákveðið að stíga
til hliðar og gera þannig nýjum
eigendum kleift að móta framtíð
og stefnu félagsins. Þakkar hann
starfsmönnum Jarðborana sam-
starfið á liðnum árum.
Kristín Flygenring, stjórnar-
formaður Jarðborana, þakkar Bent
langt og farsælt starf í þágu fé-
lagsins, að því er segir í tilkynn-
ingunni.
Forstjóri Jarðborana
segir upp störfum
Bent S. Einarsson
Þrettán ára piltur varð fyrir lík-
amsárás á bílastæði við Laugar-
dalsvöllinn á þriðjudag en hann var
sleginn nokkrum sinnum með ein-
hverskonar priki. Árásarmaðurinn
er talinn vera fáeinum árum eldri
og líklegast á menntaskólaaldri.
Ekki er vitað hvað honum gekk til
en annar piltur var með árásar-
manninum í för og er sá á svipuðum
aldri. Sá sem fyrir árásinni varð
leitaði á slysadeild en hann fann
fyrir eymslum í bæði höndum og
fótum. Leitað var árangurslaust að
árásarmanninum og félaga hans en
þeir eru báðir
grannvaxnir og
voru klæddir í
svartar hettu-
peysur. Árásar-
maðurinn er tal-
inn vera um 180
cm á hæð.
Þeir sem geta
varpað ljósi á
málið eru vinsamlegast beðnir að
hafa samband við lögregluna á höf-
uðborgarsvæðinu í síma 444-1000.
Einnig má senda tölvupóst, abend-
ing@lrh.is.
Lögregla leitar árásarmanns í Laugardal
Níu þingmenn hafa lagt fram þings-
ályktunartillögu á Alþingi um rann-
sókn á starfsemi lífeyrissjóðanna frá
1997 til 2011. Flutningsmenn tillög-
unnar eru þingmennirnir Eygló
Harðardóttir, Margrét Tryggva-
dóttir, Siv Friðleifsdóttir, Birkir Jón
Jónsson, Vigdís Hauksdóttir, Þráinn
Bertelsson, Birgitta Jónsdóttir,
Lilja Mósesdóttir og Þór Saari.
Rannsókn á starfsemi lífeyrissjóð-
anna, sem kynnt var fyrr í þessum
mánuði, var gerð að frumkvæði
Landssamtaka lífeyrissjóða, en sam-
tökin fólu ríkissáttasemjara að velja
þrjá menn í nefndina. Nefndin skil-
aði skýrslu í fjórum bindum.
Í tillögu þingmannanna er vísað í
lög um rannsóknarnefndir sem sam-
þykkt voru á síðasta ári. „Rannsókn-
arnefndin varpi sem skýrustu ljósi á
starfsemi lífeyrissjóðanna á þessu
tímabili, þ.m.t. fjárfestingarstefnu,
stjórnun, stefnumótun, ákvarðana-
töku, áhættumat, endurskoðun, eft-
irlit, markaðsáhrif, tryggingafræði-
lega stöðu og tengsl við atvinnulífið,
verkalýðshreyfinguna og stjórn-
málamenn,“ segir í tillögunni.
Vilja rannsókn á
lífeyrissjóðunum
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Þingmenn vilja rannsaka
lífeyrissjóðina, m.a. Þór Saari.