Morgunblaðið - 16.02.2012, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2012
Jæja kæra vinkona.
Þá ertu farin. Mikið á ég eftir
að sakna þín. Þú varst í mínum
Sigríður Hjaltberg
Vilhjálmsdóttir
✝ Sigríður Hjalt-berg Vilhjálms-
dóttir fæddist að
Gunnfríðarstöðum
í Langadal, A-
Húnavatnssýslu,
14. nóvember 1921.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnuninni
á Blönduósi 21. jan-
úar 2012.
Sigríður var
jarðsungin frá
Hólaneskirkju 27. janúar 2012.
huga ekki grái
tónninn í litakass-
anum heldur þessi
litríki, sá sem gaf
tóninn svo gustaði
af en samt svo blíð
og hlý. Við vissum
hvor af annarri en
kynntumst fyrst
þegar þú fluttir á
Skagaströnd á
Dvalarheimili aldr-
aðra, Sæborg. Með
okkur bundust tryggðabönd
sem aðeins dauðinn skildi að.
Börnin mín nutu líka góðs af
kynnunum við þig hvort sem
var að hlaupa með prjónana úr
skólanum í frímínútunum til að
bjarga því sem bjargað varð
fyrir næsta handavinnutíma,
kíkja í kakó, detta inn hjá þér
og spila og svona má lengi telja.
Þeim fannst heldur ekki leið-
inlegt að fá símhringingu frá
þér með ósk um að koma til þín
því þig vantaði hönd eða fót til
að máta því þá varstu að prjóna
á ungu afkomendurna fyrir
sunnan. Í þeirra huga varstu
amma þeirra. Mikið þótti mér
vænt um það á fermingardaginn
hennar Hönnu Rúnu þegar þú
réttir mér pakka og sagðir:
Stína mín, ég átti alltaf eftir að
gefa þér fermingargjöf og úr
pakkanum kom sjal til að hafa
með upphlutnum mínum. Þær
eru ógleymanlegar ferðirnar
sem við fórum hvort sem var á
tónleika, kirkjulegar samkomur,
eða þegar við ákváðum að
skella okkur að Hólum í Hjalta-
dal og ekki var síðra að sitja
bara og spjalla um alla skapaða
hluti. Þegar ég og dætur mínar
fluttum suður héldum við sam-
bandi og alltaf var kíkt á þig í
norðurferðum. Við vorum sam-
mála um að tilvera okkar væri
undarlegt ferðalag, við værum
gestir á Hótel Jörð og að við
ættum að læra af þeim sem við
umgengjumst. Ég lærði margt
af þér en það sem fær mig til að
brosa er glettnin, stríðnin og
eldmóðurinn sem ég fékk að
kynnast frá þér á þínum efri ár-
um. Ég er mjög þakklát fyrir
samverustundina okkar í haust
því þá áttum við okkar síðustu
gæðastund og kvöddumst.
Þakka þér, kæra vinkona, fyrir
samfylgdina.
Ljónið hefur reist makkann
og tekist á við ný verkefni.
Kristín Sigríður
Þórðardóttir.
✝ Kristinn S. Jós-epsson fæddist
á Patreksfirði 20.
maí 1922. Hann lést
á hjartadeild Land-
spítalans 19. janúar
2012.
Foreldrar hans
voru Guðbjörg
Þórðardóttir, f. 22.
desember 1888, d.
21. júní 1972 og Jós-
ep Víglundur Guð-
jónsson, f. 17. desember 1893, d.
12. ágúst 1976. Systkini Kristins
eru: Þórður, f. 2. desember 1918,
Halldór, f. 19. maí 1925 og Guð-
rún, f. 1. nóvember 1927, sem öll
eru látin. Eftirlif-
andi systkini Krist-
ins eru Reynir, f. 9.
október 1930 og
Guðríður, f. 12. júní
1923.
Kristinn giftist
Huldu Sveins-
dóttur, f . 11. mars
1929, d. 7. nóv-
ember 1996.
Kristinn starfaði
sem atvinnubílstjóri
hjá Olíufélaginu Esso nær allan
sinn starfsaldur.
Útför Kristins fór fram frá
Fossvogskapellu 27. janúar
2012.
Mig langar að minnast með
nokkrum orðum frænda míns
Kristins Jósepssonar, eða Kidda
eins og hann var ávallt kallaður.
Kiddi var maður sem kunni að
njóta lífsins og leið mér alltaf vel í
návist hans. Ég á margar ómet-
anlegar minningar af Kidda sem
ég mun alltaf halda fast í.
Skemmst er að minnast ferðanna
okkar vestur þegar við fórum
tveir saman til Patreksfjarðar á
Dodge-inum hans að heimsækja
ættingja og njóta þess að dvelja á
hans æskuslóðum. Hann lét það
ekkert á sig fá þótt hann væri
kominn á níræðisaldur, enda var
hann einstaklega heilsuhraustur
maður. Ég átti mörg samtölin við
Kidda um hin ýmsu mál. Við
ræddum saman um fótbolta, box,
bíla, stjórnmál og allt milli himins
og jarðar.
Undanfarin ár var það fastur
liður um helgar að Kiddi kæmi í
heimsókn til okkar í Hafnarfjörð-
inn og borðaði með okkur kvöld-
verð. Hann kom yfirleitt seinni-
part dags og við horfðum saman á
ensku úrvalsdeildina. Við studd-
um hvor sitt liðið, hann studdi Liv-
erpool en ég Tottenham Hotspur.
Ef þannig hittist á að Liverpool og
Tottenham spiluðu á sama tíma
skiptum við bara reglulega á milli
rása og fylgdumst með báðum
leikjunum. Kiddi var eins og áður
hefur komið fram mikill Poolari og
var mjög gagnrýninn á liðið og lá
ekkert á skoðunum sínum. Við
ræddum mikið saman um boltann
og ræddum oft hugsanleg leik-
mannakaup og sölur hjá ensku lið-
unum.
Kiddi hafði þann eiginleika að
hann stóð fastur á sínu og þá að-
allega þegar kom að hlutum eins
og stjórnmálum. Sumt vorum við
sammála um í þeim efnum en ann-
að ekki eins og gengur og gerist.
Kiddi var einnig mikill húmoristi
og sagði margar skemmtilegar
sögur sem margar hverjar áttu
sér stað fyrir vestan. Ég kveð
Kidda með miklum söknuði og ég
er ólýsanlega þakklátur fyrir allt
það sem hann hefur gert fyrir mig
og mína nánustu. Stundirnar sem
við áttum saman eru ómetanlegar.
Sindri Steinþórsson.
Kristinn S.
Jósepsson
Þekktir þú ekki
Guðlaugu? var
spurt. – Jú, við Guðlaug þekkt-
umst sannarlega vel og ég sagði
frá ferð okkar ásamt Nínu skóla-
systur okkar fyrir allmörgum ár-
um – fyrst til Englands þar sem
við unnum í þvottahúsi sjúkra-
húss í Golders Green í London og
bjuggum í kastala sem einhver
Lord hafði arfleitt spítalann að –
það var mikil upplifun og ekki
langt síðan við Lulla rifjuðum
þetta upp yfir kaffibolla. Þær
voru strangar yfirhjúkkurnar
þar en okkur fannst það nú bara
fyndið sem það auðvitað var.
Við Nína fengum vinnu í
þvottahúsinu en Lulla var send
upp á óopnaða deild og var í
mestu vandræðum með að sýnast
gera eitthvað því þar var enginn,
nema hún og nokkrir iðnaðar-
menn. Einn daginn bar svo við að
inn kom frú hjúkka og henti
henni út. Þann dag birtist Lulla í
þvottahúsinu þar sem hún gekk
niðurlút á eftir tveimur hjúkkum.
Við Nína vissum ekki hvað hafði
gerst fyrr en við gátum talað
saman í hádeginu. Þá kom í ljós
að Lulla hafði verið tekin eins og
Eva í Paradís sitjandi á gólfinu í
einni stofunni ásamt einum iðn-
aðarmanni að borða epli.
Þvottahúsið var ekki nein
Paradís þar sem við Nína puð-
Guðlaug
Sigurðardóttir
✝ Guðlaug Sig-urðardóttir
fæddist í Reykjavík
9. október 1941.
Hún lést 25. janúar
2012.
Útför Guðlaugar
var gerð frá Hafn-
arfjarðarkirkju 6.
febrúar 2012.
uðum í hita og gufu.
Þess vegna sögðum
við að Lullu hefði
verið hent út úr
Paradís.
Eftir dvölina þar
enduðum við í
Kaupmannahöfn.
Við bjuggum í sum-
arhúsi vinkonu
mömmu minnar úti í
Vallensbæk. Þetta
var utan almenns
sumartíma svo fáir voru þar á
ferð og svakalega dimmt á kvöld-
in, virkilega skuggalegt. Við
skemmtum okkur vel og var mik-
ið hlegið. Móðursystur mínar
höfðu miklar áhyggjur af okkur
og vistuðu okkur með góð ráð
eins og að hafa með okkur pip-
arstauk og hattanál ef við mund-
um lenda í vandræðum inni í
Kaupmannahöfn sem væri
hættuleg á kvöldin. Og alls ekki
bjóða neinum með okkur í sum-
arbústaðinn. Við hlógum bara en
ég sé vel núna eftir á hvers vegna
þær voru svona áhyggjufullar –
við ungar og lífsglaðar og til í sitt
lítið af hverju. Í þeirra augum
vorum við „lige kommet ind med
fiŕtoget“ eins og Daninn segir og
ætluðum aldeilis að skemmta
okkur áður en heim yrði haldið á
ný og við tæki vinna og sparn-
aður fyrir næstu ferð.
Mamma Lullu passaði strák-
inn hennar og mér fannst það
alltaf svo flott hjá henni því henni
fannst að Lulla ætti að fá að kom-
ast út með okkur. Tilefnið var
náttúrulega að mennta okkur og
læra enskuna betur. Engin hló
með augunum eins og Lulla –
djúpblá augun. Lífið var henni
ekki alltaf hliðhollt frekar en öðr-
um. Samt hélt hún alltaf sínum
góða húmor enda var hún lífsglöð
að eðlisfari. Leiðir skilur og hver
fer í sína átt eins og gengur. Það
var bara nú síðustu árin að við
hittumst aftur nokkrum sinnum
og gátum rifjað upp öll þau
skondnu atvik sem hafði drifið á
okkar daga þegar við flugum út í
heim saman.
Þegar árgangurinn hittist í
fyrravor var ekki að sjá að hún
væri veik, þvert á móti var hún
glæsilegust allra. Hún stóð upp
og sagði okkur sögu úr æsku
sinni á Hverfisgötunni við mikla
hrifningu okkar allra. Blessuð
veri minning hennar.
Ulla.
Mig langar til að minnast
tryggrar æskuvinkonu minnar
sem fallin er frá eftir löng og
ströng veikindi. Hún lét aldrei
bugast, kvartaði aldrei og lifði líf-
inu lifandi fram á síðustu stundu.
Í mínum huga var hún gull af
manni og hafði margt til brunns
að bera. Við höfðum þekkst frá
barnsaldri en við ólumst upp á
Hverfisgötu í Hafnarfirði, í hús-
um sitthvorumegin götunnar.
Mínar fyrstu minningar tengjast
Lullu, en það var Guðlaug alltaf
kölluð.
Það var gott samfélag á Hverf-
isgötunni. Börnin léku sér saman
á götunni, voru úti allan daginn
og það var alltaf nóg við að vera.
Þetta var á hernámsárunum og
mér er minnisstætt þegar bíll
með bandarískum hermönnum
kom keyrandi eftir götunni og
gaf okkur stóra dós, fulla af sæl-
gæti. Einn strákanna fór með
dósina inn til sín og mamma hans
skipti síðan namminu á milli allra
krakkanna.
Ég á líka góðar minningar frá
því þegar Lulla fékk að koma
með mér í sveitina til móðursyst-
ur minnar. En þetta rifjuðum við
upp saman fyrir ekki svo löngu. Á
unglingsárunum fórum við líka
saman til Vestmannaeyja á
þjóðhátíð. Hún átti skyldmenni í
Eyjum og trúlega hefur það ráðið
því að við fengum leyfi til farar-
innar. Þetta var eftirminnilegt
ferðalag en við fórum með tjald
og settum það upp inni í Herjólfs-
dal. Fyrstu nóttina gerði ofsaveð-
ur og tjaldið fauk niður. Við náð-
um að koma því upp aftur og
gistum þar áfram en fengum svo
húsaskjól hjá skyldmennum
Lullu síðustu nóttina okkar í Eyj-
um.
Stundum var langt á milli okk-
ar, t.d. þegar hún bjó í Kanada,
en sambandið rofnaði aldrei. Við
náðum mjög vel saman og aldrei
slettist upp á vinskapinn. Ég á
eftir að sakna þess að Lulla birt-
ist á tröppunum hjá mér, en hún
kom oft óvænt í heimsókn og það
urðu alltaf fagnaðarfundir. Við
gátum talað saman um allt á milli
himins og jarðar og þá voru sím-
tölin líka ófá.
Lullu var margt til lista lagt.
Hún var góður penni og gat líka
málað en ég minnist sérstaklega
myndar eftir Lullu sem hún hafði
í stofunni hjá sér. Þá var hún líka
oft að prjóna þegar ég kom í
heimsókn. Lulla hafði gaman af
því að fara í leikhús og þangað
fórum við saman en leikhúsferð-
irnar okkar urðu því miður alltof
fáar.
Við leiðarlok vil ég þakka
Lullu fyrir löng og góð kynni og
alla hennar tryggð við mig. Hún
reyndist mér vel alla tíð og ekki
síst undanfarin ár eftir að ég
missti eiginmann minn. Ég votta
ástvinum hennar samúð mína.
Hugur minn er hjá ykkur. Hafðu
hjartans þökk fyrir allt, elsku
Lulla mín. Minning þín mun allt-
af lifa í hjarta mínu.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Sigríður Magnúsdóttir
(Sirrý).
Elsku mamma mín, loks
fékkstu að kveðja. Og nú vil ég
kveðja þig. Þú varst oft ein með
okkur systurnar meðan pabbi var
á sjónum. Trúlega hefur það á tíð-
um verið erfitt, en alltaf fengum
við þitt allra besta. Störfin þín
Margrét Þ.
Sigurðardóttir
✝ Margrét Þ. Sig-urðardóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 3.
febrúar 1925. Hún
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 26. jan-
úar 2012.
Útför Margrétar
fór fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju 7.
febrúar 2012.
voru mörg og mis-
jöfn, öll jafnmikil-
væg. Heimilið okkar,
þvottar og elda-
mennska. Handa-
vinnan þín þegar
stundir gáfust.
Streðið í skreiðinni.
Þú varst trú þínu
fram á síðasta dag,
kannski hefðirðu
viljað haga einhverju
á annan hátt. Hver
veit? Þú varst þögul, það var þinn
háttur. Kjaftagangur var aldrei að
þínu skapi. Ég er fegin tímanum
sem við áttum saman nú fyrir
skömmu. Þegar við skoðuðum
jólaljósin og ég setti upp ljós í her-
berginu þínu. Þér fannst það fal-
legt, þú lúrðir við éljaganginn.
Notalegar stundir mamma mín,
þótt þú hafir þurft að hvíla þig.
Þau voru nokkur árin sem það
hrjáði þig sjúkdómur; elliglöpin
sem í dag eru kölluð Alzheimer.
Ég veit þú vilt senda þakkir til
starfsfólksins á Hrafnistu í Hafn-
arfirði. Ég þakka þeim líka alúð og
natni. Mig langar líka að þakka
syninum sem þú áttir aldrei, ef ég
má segja svo. Hjörtur Laxdal átti
sér stað í hjarta þínu og brosið
sem þú sendir honum var annað
en það sem við fengum við stelp-
urnar. Hann var duglegur að
sækja þig heim, spjalla og bara
halda þér í hönd. Það skipti máli.
Nú hvílirðu þig mamma, sofðu
rótt.
Þín dóttir,
Steinþóra Guðbergsdóttir.
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Ólafsgeisli 101, 225-6510, Reykjavík, þingl. eig. Vilborg Þórunn
Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn 20.
febrúar 2012 kl. 15:00.
Suðurlandsbraut 4a, 201-2668, Reykjavík, þingl. eig. SBR 4a ehf.,
gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 20. febrúar 2012
kl. 11:00.
Vesturberg 4, 205-0851, Reykjavík, þingl. eig. Guðlaugur Hilmarsson,
gerðarbeiðendur Arion banki hf., Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., mánudaginn 20. febrúar 2012 kl. 13:30.
Vesturberg 26, 205-0814, Reykjavík, þingl. eig. Sigurbjörg Magnús-
dóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn 20. febrúar 2012
kl. 14:00.
Þórufell 6, 205-2004, Reykjavík, þingl. eig. Halldór Guðmundsson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Reykjavíkurborg, mánudaginn
20. febrúar 2012 kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
15. febrúar 2012.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Blómsturvellir 6, Svf. Árborg, fnr. 222-6369, þingl. eig. Reynir Már Sig-
urvinsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Kaupthing mkortgages
Fund, Sýslumaðurinn á Blönduósi og Vátryggingafélag Íslands hf.,
fimmtudaginn 23. febrúar 2012 kl. 09:15.
Egilsbraut 2, Svf. Ölfus, fnr. 221-2144, þingl. eig. Ragnar Þór Sigþórs-
son, Reynir Guðfinnsson og Ágúst Örn Grétarsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 23. febrúar 2012 kl. 10:35.
Eyjasel 2, Svf. Árborg, fnr. 219-9566, þingl. eig. Verslunarsambandið í
Rvk ehf., gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn
23. febrúar 2012 kl. 09:30.
Finnsbúð 13, Ölfusi, fnr. 228-6569, ehl. gþ., þingl. eig. Eiríkur
Gíslason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sveitarfélagið Ölfus og
Tryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 23. febrúar 2012 kl. 11:05.
Hestagata 3, Svf. Árborg, fnr. 219-9673, þingl. eig. Einar Jóelsson,
gerðarbeiðendur Húsasmiðjan ehf.,Tryggingamiðstöðin hf. ogTrygg-
ingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 23. febrúar 2012 kl. 09:55.
Reykjabraut 24, Ölfusi, fnr. 221-2669, þingl. eig. Kristjana Adda Ing-
varsdóttir og Ágúst Þór Vilhjálmsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóð-
ur, fimmtudaginn 23. febrúar 2012 kl. 10:45.
Sólvellir 1, Svf. Árborg, fnr. 219-9868, þingl. eig. Kristinn Jón Reynir
Kristinsson og Pálína Ágústa Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalána-
sjóður og Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 23. febrúar 2012
kl. 09:40.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
15. febrúar 2012.
Ólafur Helgi Kjartansson.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birt-
ingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, jafnvel þótt
grein hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minning-
argreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Minningargreinar