Morgunblaðið - 16.02.2012, Síða 31
DAGBÓK 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
5 6 9
3
6 8 3 2
4 9 3 2
3 1 6 5
2 8 9
2 8 6
5 4
2 1
7 9 2 4
1 4 7 2
3
7 3 1
6 1 8
4 8 2 6
9 4
2 1
6 8
4 7 6 5 1
2 6
3 5 4
1 3
2 4 5 6
3 5 6
8
1 5 3 8 7 2
2 4
5 7 3 2 4 1 8 6 9
2 9 4 6 8 7 5 1 3
1 6 8 5 9 3 4 7 2
9 3 1 8 7 5 6 2 4
4 8 2 9 3 6 1 5 7
6 5 7 1 2 4 9 3 8
3 4 5 7 1 8 2 9 6
8 2 6 3 5 9 7 4 1
7 1 9 4 6 2 3 8 5
2 7 1 4 8 6 9 3 5
8 9 5 3 2 1 4 6 7
6 4 3 9 7 5 8 2 1
5 3 7 2 1 4 6 8 9
1 2 8 6 3 9 7 5 4
4 6 9 7 5 8 2 1 3
9 1 6 5 4 2 3 7 8
7 8 4 1 6 3 5 9 2
3 5 2 8 9 7 1 4 6
1 9 8 2 4 7 6 3 5
3 6 5 9 1 8 2 4 7
2 7 4 3 6 5 9 1 8
9 5 7 4 3 6 8 2 1
4 2 6 5 8 1 3 7 9
8 1 3 7 2 9 5 6 4
6 4 9 1 5 3 7 8 2
5 3 1 8 7 2 4 9 6
7 8 2 6 9 4 1 5 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 16. febrúar,
47. dagur ársins 2012
Orð dagsins: Úr fjarlægð birtist Drott-
inn mér: „Með ævarandi elsku hef ég
elskað þig. Fyrir því hefi ég látið náð
mína haldast við þig.“ (Jer. 31, 3.)
Þótt Víkverja hafi aldrei veriðvel við verðtryggð lán hafði
hann frá upphafi fyrirvara á gjald-
eyrislánum. Hann taldi þau glanna-
leg í ljósi stopuls gengis krónunnar
í áranna rás og fannst þeir, sem
þau tóku í meira lagi sólgna í
áhættu. Í bankahruninu varpaði
Víkverji öndinni léttar að hafa ekki
setið uppi með slíkt lán. Í ljósi
ákvörðunar hæstaréttar í gær um
að Frjálsa fjárfestingabankanum
hafi ekki verið heimilt að krefjast
hærri vaxta, en lánin báru, sér Vík-
verji að hann hefur misreiknað sig
með öllu. Öryggið var í gengis-
lánunum og rugl að taka verð-
tryggt lán í íslenskri mynd.
x x x
Víkverja brá þegar hann sá fyr-irsögn í The New York Times
um að ný heimsálfa væri að mynd-
ast á norðurheimskautinu. Kom
fram að jarðfræðingar hefðu lengi
vel spáð því að Norður- og Suður-
Ameríka myndu á endanum skríða
saman og setjast upp að Asíu og
mynda þar með nýja ofurálfu á
borð við þá, sem gliðnaði í sundur
fyrir 200 til 300 milljónum ára og
kölluð hefur verið Pangea. Þessi
væntanlega heimsálfa hefur fengið
nafnið Amasía. Nú telja vís-
indamenn að Amasía muni myndast
á norðurpólnum. Ross Mitchell og
félagar hans við Yale-háskóla í
New Haven birtu grein um málið í
tímaritinu Nature. Þeir reiknuðu út
afstöðu fyrri ofurálfa hverrar til
annarrar og komust að því að lega
Pangeu og ofurálfanna Ródiníu og
Núnu, sem var til fyrir um tveimur
milljörðum ára, hefði verið þannig
innbyrðis að næsta álfa yrði á póln-
um. Þá er gert ráð fyrir því að
Ástralía haldi áfram að mjakast til
norðurs og muni á endanum hjúfra
sig upp að Indlandi. Víkverja
fannst þetta nokkuð spennandi til-
hugsun, en fylltist þó vonbrigðum
þegar hann sá að þetta myndi ekki
gerast fyrr en eftir 200 milljónir
ára og því fremur ólíklegt að hann
fengi að sjá þessa væntanlegu ofur-
álfu.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 stúlka, 4 þjófn-
aður, 7 gól, 8 niðurfelling, 9
reið, 11 anga, 13 rækta, 14
drekkum, 15 hörfi, 17 hey-
laupur, 20 beiðni, 22 regnið,
23 skolli, 24 svarar, 25
skjóða.
Lóðrétt | 1 vangi, 2 huldu-
mönnum, 3 nytjalandi, 4
mas, 5 alda, 6 slá, 10 spjarar,
12 hraði, 13 bókstafur, 15
bein, 16 kóngssonur, 18
þung, 19 gremjast, 20 eld-
stæði, 21 misklíð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 tækifærið, 8 músin, 9 illur, 10 iðn, 11 teinn, 13 náðin,
15 stúss, 18 kasta, 21 trú, 22 Guddu, 23 liður, 24 kardínáli.
Lóðrétt: 2 ærsli, 3 iðnin, 3 ærinn, 5 illúð, 6 smit, 7 Frón, 12 nes,
14 áta, 15 siga, 16 úldna, 17 studd, 18 kúlan, 19 seðil, 20 aðra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Fína frúin. S-Allir.
Norður
♠1043
♥KDG5
♦D873
♣D6
Vestur Austur
♠ÁG2 ♠K
♥1097 ♥86432
♦K105 ♦Á
♣G1098 ♣K75432
Suður
♠D98765
♥Á
♦G9642
♣Á
Suður spilar 4♠.
„Kærar þakkir.“ Frúin fína í sæti
suðurs lét sér hvergi bregða þó svo að
blindur stæði ekki undir væntingum.
Hún var gestkomandi í klúbbnum og
vildi ekki eyðileggja góða stemningu
með gagnrýni á makker. En norður
átti fyrir ákúrum, því hann hafði hækk-
að opnun suðurs á 1♠ í 3♠. Fullmikið
sagt og auðvitað lyfti frúin í fjóra. Út-
spilið var ♣G.
Frúin lét ♣D, austur kónginn og ás-
inn átti slaginn. Hjartaás kom næst,
svo tígull. Vestur vildi ekki hleypa
sagnhafa inn á fríhjörtu blinds og rauk
upp með kónginn. Þau snörpu viðbrögð
vöktu enga hrifningu hjá austri, sem
yfirdrap önugur og spilaði laufi. Frúin
trompaði og prófaði nú ♠D. Rauður í
framan sá vestur leið til að ná í tíg-
ulslaginn til baka, drap á ásinn og …
16. febrúar 1947
Ingólfur Arnarson, fyrsti ný-
sköpunartogarinn af meira en
þrjátíu, kom til landsins og var
móttökuathöfninni útvarpað.
Skipið var um 500 lestir og
smíðað í Bretlandi.
16. febrúar 1956
Gæsluflugvél stóð togara að
ólöglegum veiðum í landhelgi í
fyrsta sinn. Þetta var Cape
Cleveland frá Hull, en hann
var skammt austur af Ingólfs-
höfða. „Merkisatburður í sögu
Landhelgisgæslunnar,“ sagði
Morgunblaðið.
16. febrúar 1970
Snjókoma var á Suðvestur-
landi, sú mesta síðan 1957.
Umferð stöðvaðist um tíma í
Reykjavík. Á forsíðu Morg-
unblaðsins daginn eftir stóð:
„Tveggja metra snjóskaflar á
götum.“
16. febrúar 1981
Eitt mesta ofviðri í manna
minnum hófst um kvöldið og
stóð fram á næsta dag. Mikið
tjón varð, þök fuku af húsum,
rúður brotnuðu og bílar tók-
ust á loft, meðal annars í Engi-
hjalla í Kópavogi. Staðarhóls-
kirkja í Saurbæ fauk á félags-
heimili. Vindhraði við Þyril í
Hvalfirði komst í 222 kíló-
metra á klukkustund (62
metra á sekúndu).
16. febrúar 1995
Hornsteinn var lagður að nýju
húsi Hæstaréttar við Lindar-
götu, á 75 ára afmæli rétt-
arins. Húsið var tekið í notkun
í september árið eftir.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Gissur Páll Gissurarson óperusöngvari stendur í
ströngu þessa dagana við æfingar á La Bohéme
sem Íslenska óperan frumsýnir 16. mars næstkom-
andi í Hörpu. Tenórinn hyggst þó taka sér frí frá
hlutverki ljóðskáldsins Rodolfos til að baka köku
handa samstarfsfólkinu, enda þótt honum finnist
það stórkostlega ósanngjarnt að þurfa að fram-
reiða sína eigin afmælistertu.
„Ég er búinn að vera að tala um þetta alla vik-
una. Mér finnst klárlega að afmælisbarnið eigi
bara að vakna, fara í sturtu, mæta í vinnuna og
bingó! Þá eru allir komnir með afmælisköku og
hatta og rosa gaman,“ segir Gissur en hugmyndir hans um réttindi og
skyldur afmælisbarna fengu lítinn hljómgrunn hjá vinnufélögunum.
Gissur segist þó sáttur í eldhúsinu, þar verji hann talsverðum tíma við
eldamennsku og borðhald þegar hann er ekki að þenja raddböndin.
„Ég held ennþá í þá trú að ef ég rakaði af mér skeggið þá yrði ég
spurður um skilríki í Ríkinu,“ segir afmælisbarnið, enn 28 ára í anda
að eigin sögn. Frekari hátíðarhöld bíði marsmánaðar en þá ætli hann
og eiginkonan að halda sameiginlega afmælisveislu að frumsýningu
lokinni. Þá segir hann margt spennandi framundan, þar á meðal vor-
tónleika Karlakórsins Fóstbræðra í maí. holmfridur@mbl.is
Gissur Páll Gissurarson tenór er 35 ára í dag
Hrópandi afmælisóréttlæti
Gjöf
Vigdís
Edda Guð-
mundsdóttir
færði Rauða
krossinum
pening sem
hún hafði
fengið að
gjöf frá
langömmu
sinni.
Flóðogfjara
16. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.55 3,2 7.21 1,3 13.29 2,9 19.47 1,3 9.22 18.03
Ísafjörður 3.09 1,7 9.40 0,6 15.32 1,5 22.01 0,6 9.37 17.58
Siglufjörður 5.31 1,1 11.46 0,3 18.28 1,0 9.20 17.41
Djúpivogur 4.14 0,6 10.10 1,4 16.28 0,5 23.10 1,6 8.54 17.30
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Meiri vitneskja kemur sér alltaf vel og
hún bætir líf þitt og tryggir þér öruggt áfram-
hald. Ekki fara yfir strikið í góðmennskunni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú vaknar full/ur af fjöri, hugmyndum
og félagslyndi. Hvernig væri að sýna ekki
bara gott fordæmi heldur kenna fólki að
hugsa á sömu nótum og þú?
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er heppilegt að skipuleggja
skemmtanir í dag. Gakktu úr skugga um hver
staða þín er, hvað þú átt og hvað þú skuldar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú slítur þig úr viðjum vanans á
þessu ári. Talaðu við vini þína því þeir eru
hjálplegri en þú hélst. Reyndu að koma þeim
hlutum í verð sem þú hefur ekki not fyrir.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það eru ýmis smáviðvik sem þú þarft að
leysa af hendi áður en þú getur tekið til við
stóru verkefnin aftur. Nýttu þér náttúruna,
farðu út að ganga.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Smekkur þinn er dáður af þeim sem
deila honum með þér. Reyndu að temja þér
ný vinnubrögð sem leiða til ferskra lausna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hefur þörf fyrir að koma skoðunum
þínum á framfæri. Ekki vera með neitt á heil-
anum í millitíðinni, það dregur bara athyglina
frá fegurðinni sem blasir við þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að hafa stjórn á þínu
liði, sérstaklega fá samstarfsmenn þína til að
vinna að einu og sama markmiðinu. Fjöl-
skylda og gamlir vinir hittast.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú finnur hjá þér hvöt til þess að
koma fjölskyldumeðlimi til hjálpar í dag.
Mundu að það kemur alltaf nýr dagur á morg-
un, lifðu einn dag í einu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Láttu ekki slá þig út af laginu, þótt
einhverjum finnist þú vera að þefa uppi
óþægilega hluti.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það fylgir mikill sköpunarkraftur
þessum degi. Samstarfsfólkinu líkar sprengi-
krafturinn í fari þínu og óttast hann að sama
skapi líka.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ástvinir sem vilja hjálpa þér vilja ólmir
finna lausn á öllum þínum vandamálum. Inn-
kaup dagsins tengjast hugsanlega umbótum
á heimilinu.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rc6 5. c3 Rf6 6. Bg5 Da5 7. Bxf6 gxf6 8.
Rb5 Db6 9. b3 Re5 10. b4 a5 11. bxa5
Hxa5 12. a4 Bc5 13. De2 Hg8 14. f3 d6
15. Rd2 Bd7 16. Rb3 Bxb5 17. axb5
Hxa1+ 18. Rxa1 Da5 19. Db2
Staðan kom upp á Skákþingi
Reykjavíkur, Kornax-mótinu, sem lauk
fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Stefán Bergsson (2175)
hafði svart gegn Friðgeiri Hólm
(1677). 19… Hxg2! 20. Rb3 Rxf3+ og
hvítur gafst upp. Skákkeppni vinnu-
staða fer fram á morgun, 17. febrúar, í
húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur,
sbr. nánar áwww.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is