Morgunblaðið - 16.02.2012, Síða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2012
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þessa dagana stendur yfir sýning
Erlings T.V. Klingenberg myndlist-
armanns í Kling & bang galleríi á
Hverfisgötu 42. Á sýningunni eru
málverk eftir Erling sem óhætt er að
segja að máluð séu af miklum krafti
– enda vélhjóli beitt við verkið.
„Það er ekki að ástæðulausu að ég
kalla sýninguna Kraftmikil kúnst,“
segir Erling.
Annars vegar
sýnir hann mál-
verk þar sem litn-
um var spólað
upp á strigann, og
hinsvegar verk
þar sem vélhjól
spólaði á mál-
uðum flötum.
„Undirtitill
sýningarinnar er
síðan „Þráhyggja
– frumleiki“ og í sýningunni birtist
tvenns konar þráhyggja sem hefur
fylgt mér lengi. Annars vegar eru
það mótorhjól og hins vegar listin.
Eldri bróðir minn keppti mikið á
mótorhjólum og ég fékk oft að fara
með honum, og hreifst af þessum
heimi. Þrettán ára eignaðist ég síðan
mitt fyrsta mótorhjól.“
Vissi ekki hvað myndi gerast
Erling hefur á liðnum árum getið
sér orð fyrir frumlega nálgun í
myndlistinni, oft æði íróníska, og
hefur í því ferli beitt ýmsum miðlum.
„Ég útskrifaðist samt úr mál-
aradeild í Myndlista- og handíðaskól-
anum,“ segir hann og það útskýrir ef
til vill efnisvalið á þessari sýningu,
málningu og striga. „Með tímanum
hvarf ég frá málverkinu en þessi
tvenns konar þráhyggja mætist þó
núna, málverkið og mótorhjólið.“
Við gerð verkanna á sýningunni
notaði Erling hjólið sem áhald og
lætur það líka standa í salnum.
„Í stað pensils eða spaða notaði ég
þetta verkfæri. Ég vissi ekki fyr-
irfram hvað myndi nákvæmlega ger-
ast. Ég hafði hugmyndir um það, og
maður hefur einhverja stjórn á því
hvernig liturinn leggst og blandast,
en samt ekki. Það tengist líka hug-
myndum listamanna sem kenndir
eru við abstrakt-expressjónisma. En
ferlið er háð ákveðnum eðl-
isfræðilögmálum.“
Erling sat sjálfur á hjólinu sem
„málaði“ á strigann, með því að spóla
upp mismunandi litum úr málning-
arbökkum sem settir voru undir aft-
urdekkið og einnig var spólað yfir
gólf gallerísins, í gegnum nokkur lög
af ýmsum litum. „Ég gerði mikið af
því að spóla svona sem unglingur, þá
lékum við vinirnir okkur að því að
reykspóla á stéttum og malbiki,
svona eiginlega teikna með hjól-
unum. Þegar ég var að læra í Frank-
furt 1995 fór ég að skissa teikningu
eins og við vorum að gera ungir á
mótorhjólunum. En ég fékk ungan
snilling til að aðstoða mig við teikn-
inguna á gólfi gallerísins.“
Málunartækni abstrakt-
expressjónistanna, eins og Jacksons
Pollocks, er iðulega kennd við frelsi
og öll höft voru afnumin þar sem þeir
slettu á strigann og beittu lík-
amanum af krafti við að mála verkin.
„Ein helsta hetjan mín þegar ég
var í námi var þýski myndlistarmað-
urinn Bernd Koberling, sem hefur
mikið unnið hér á landi, en hans
fyrstu verk voru ekkert svo ósvipuð
því sem varð til þegar stóru verkin á
sýningunni fæddust. Það sá ég eftir á
og þótti það skemmtileg tilviljun,“
segir Erling.
Útlagar í samfélaginu
Mótorhjól eru iðulega tengd
ákveðinni karlmennskuímynd. Er-
ling segir að hjólum hafi fjölgað mik-
ið hér á landi síðasta áratuginn og
sumir eigendur þeirra leggi mikið
upp úr því að eiga réttu merkin.
„Sumir nota hjólið til að skreyta egó-
ið, sem stöðutákn, en ég trúi því samt
að sannir mótorhjólamenn horfi fram
hjá vörumerkjum og sjái þetta frelsi
sem felst í mótorhjólinu,“ segir Er-
ling. Hann hugsar sig um og bætir
svo við: „Það sama má reyndar sjá í
myndlistinni. Sumir sjá bara nafn
þess sem er skrifaður fyrir verkinu
en ekki um hvað verkið fjallar í raun
og veru.
Svo er annað; er ekki algengt að
litið sé á myndlistarmenn og mót-
orhjólamenn sem útlaga í samfélag-
inu? Það er mislangsótt hugmynd en
þó sé ég ýmsar tengingar þar.
Ég vil samt benda á að konum hef-
ur fjölgað mikið í þessu sporti og þær
eru margar helv. … góðir ökumenn,“
segir hann og hlær.
Það þarf varla að spyrja, en á Er-
ling ekki mótorhjól sjálfur?
„Jú, ég á götuhjól og langar mikið í
fjallahjól,“ svarar hann.
Auk þess að beita hjóli við mál-
unina hefur Erling einnig tekið
fjölda ljósmynda af mótorhjólum og
sýnir nokkur þeirra „portretta“.
Sýning Erlings í Kling & bang
stendur til sunnudags og er opin
milli 14 og 18 alla dagana. Óhætt er
að hvetja áhugamenn um myndlist,
og vélhjól, að líta inn.
Spólað og slett á strigann
Erling Klingenberg tengir tvenns konar gamla þráhyggju á sýningu sinni í Kling & bang galleríi
Notaði öflugt mótorhjól í stað pensils „Ég gerði mikið af því að spóla svona sem unglingur“
Ljósmynd/Henrike Mueller
Slettur Listamaðurinn gefur hjólinu inn í galleríinu og lætir liti vaða á strigann. Hann málaði með nokkrum litum.
Ljósmynd/Henrike Mueller
Spólað Ungur vélhjólakappi aðstoðaði Erling við spólverkin í Kling &
bang, þar sem spólandi hjólið reif upp nokkur litalög og teiknaði á gólfið.
Erling
Klingenberg
Leiklistarráð
hefur úthlutað
styrkjum til at-
vinnuleikhópa,
71,2 milljónum
alls. 74 aðilar
sóttu um styrki
til 85 verkefna
og einnig bárust
sex umsóknir
um samstarfs-
samninga til
lengri tíma og fjórar um rekstr-
arstyrki. Eftirtalin verkefni hlutu
styrki:
Leikhópurinn Gljúfrasteinar 1
milljón fyrir „Laxness eins og
hann leggur sig“, Leifur Þór Þor-
valdsson 2,3 milljónir fyrir „Stund-
arbrot“, Litlar og nettar 2,8 millj-
ónir fyrir „Dún“, Va Va Voom 3
milljónir fyrir „Breaking news“,
Kviss búmm bang 5 milljónir fyrir
„24/7 Downtown Reykjavík“,
Steinunn Ketilsdóttir 6,2 milljónir
fyrir „La familia“, Lab Loki 6,4
milljónir fyrir „Áminnt um sann-
sögli“, leikhópurinn Geirfugl 7,7
milljónir fyrir „Segðu mér satt“,
Soðið svið 8,3 milljónir fyrir
„Rökkurbjörg“, Shalala ehf. 8,3
milljónir fyrir „Inn að beini“.
Einnig hlaut Vesturport sex
milljón króna starfsstyrk.
Styrkir til
atvinnuleik-
hópa 2012
Úr sýningu
Vesturports
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Á föstudaginn frumsýnir leikhópurinn Aldrei
óstelandi leiksýninguna Sjöundá í Kúlunni í Þjóð-
leikhúsinu. Sýningin er byggð að hluta á skáld-
sögu Gunnars Gunnarssonar, Svartfugli, en einnig
málsskjölum um atburðina á Sjöundá á Rauða-
sandi í upphafi nítjándu aldar sem Gunnar sótti
innblástur í. Leikarar í verkinu eru Edda Björg
Eyjólfsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Harpa
Arnardóttir og Stefán Hallur Stefánsson og leik-
stjóri Marta Nordal.
Marta segir að þær Edda Björg, sem eru for-
svarsmenn leikhópsins, hafi unnið grind að verk-
inu en síðan var verkið unnið áfram af leikhópnum
öllum. „Við byrjuðum aftur á byrjuninni og breytt-
um og bættum nýjum hugmyndum í pottinn. Það
er svo margt sem þarf að taka afstöðu til þar sem
við erum með málsskjölin annars vegar og svo
hinsvegar skáldverkið þar sem Gunnar túlkar yf-
irheyrsluna og bætir inn í hana tilfinningum.“
Eins og Marta lýsir verkinu fylgir það ekki línu-
legri frásögn hefðbundins leikhúss heldur sé upp-
færslan nánast dansleikhús. „Við erum með brota-
kennda frásögn sem raðast saman, leikum okkur
með tímann, stefnum saman þremur tímalínum;
tímum, atburðunum, yfirheyrslunum, sem gerast
náttúrlega eftir að atburðirnir hafa átt sér stað, og
nútímanum, en við erum í nútímafötum og um-
hverfið nútímalegt.“
Þó að morðin á Sjöundá hafi verið kveikjan að
skáldverki Gunnars segir Marta að leikritið fjalli
ekki beinlínis um verknaðinn, heldur fjalli það um
lostann og ástríðuna sem kveikir gjörðirnar, það
hvernig fólk sem fer að draga sig saman missir
stjórn á ástríðunni og myrðir manneskju. „Sagan í
verkinu er mjög skýr, en þetta er leikrit um
ástríðu en ekki leikrit um morð og það hvernig þau
drepa ástina með morðinu, sem er eins og út-
gangspunkturinn hjá Gunnari, hamingjan verður
ekki hertekin.“
„Þetta er leikrit um ástríðu
en ekki leikrit um morð“
Aldrei óstelandi frum-
sýnir Sjöundá í Kúlunni
Morgunblaðið/Kristinn
Ástríður Frá æfingu leikhópsins Aldrei óstelandi á leikverkinu Sjöundá sem frumsýnt verður í Kúl-
unni í Þjóðleikhúsinu á föstudagskvöld. Leikarar eru fjórir en Marta Nordal er leikstjórinn.