SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Síða 10
10 19. febrúar 2012
Skar og skarkali | 24
06.30 Fótaferð. Vissi af roki og rign-
ingar-hagléljum gegnum svefninn.
Ég er til vara í dag, fimmtudag; þarf að
vera tilbúinn í vinnu frá 10.30 til 22.30.
Veit af einu aukaflugi í kvöld; þarf að
koma strákunum í handboltaliði Ak-
ureyri norður eftir leik.
06.45 Morgunsund í Vesturbæj-
arlauginni. Syndi einn kílómetra,
bringusund og skriðsund. Nokkrar
teygjur, blaut gufa og pottur. Fasti
morgunsundhópurinn mættur eins og
ávallt. Müllersæfingar og svo hin viku-
lega vigtun á hópnum og allt fært til
bókar.
08.00 Kominn heim. Heilagur morg-
unverður og hlusta á KK. Glas af Goji-
berjasafa, rautt grape, musli, Benecol og
AB-mjólk, banani og Cranberry-safi.
Skelli í þvottamál og kíki svo á mbl á
netinu, athuga fyrst hvernig staðan er á
fluginu og hleyp svo yfir fréttir. Fyrsta
verk á Facebook er að bjóða Guðrúnu
Jónsdóttur, óperusöngkonu í Hnífsdal,
góðan dag; hún er ávallt jákvæð. Skrái
sundið inn í Lífshlaupið. Þvottavélin bú-
in, hengi upp og fer svo út.
10.00 Ansi er hann svalur. Það geng-
ur á með éljum en það er sannarlega
hressandi að fara í góðan morg-
ungöngutúr. Notalegt að ganga með
ströndinni, út í Gróttu, hringinn um Sel-
tjarnarnesið og alla leið á flugvöllinn í
morgunkaffi. Dagurinn lítur vel út, allar
freyjur hressar svo líklega þarf ég ekki að
fara í aukaflug.
12.00 Hádegiskaffi og fréttir hjá
kunningja. Spjallað um leikhús og und-
irbúning stuttmyndar sem hann er að
vinna að.
12.45 Stefnan sett heim á leið, maður
er aldrei öruggur, getur verið kallaður út
þó að allt hafi virst mannað fyrir daginn.
Kem við í Heilsuhúsinu og gríp upp
pakka af þessum ofurfæðufræjum, Chia
seeds. Hressandi að ganga þó að blási.
14.00 Kominn heim eftir þennan
góðan morgungöngutúr. Skrái hann inn
á Lífshlaupið; þetta er ekkert meiri
hreyfing en vant er, en skorar hinsvegar
hátt í mínu liði hjá Flugfélaginu.
14.15 Flugumsjón hringir: „Nærðu
út á völl fljótt, það er orðið fært til Ísa-
fjarðar og brottför klukkan þrjú. Strætó
fer eftir 15 mínútur, snör handtök að
koma sér í einkennisbúninginn, ganga í
veg fyrir strætó og úti á velli er ég kl.
14.40.
15.00 Komumst í loftið á réttum
tíma. Það hefur verið ansi mikill vindur í
lofti undanfarna daga og við eigum von á
hressilegum hristingi í Djúpinu. Ísafjarð-
arfarþegar eru ýmsu vanir. En hvað ger-
ist? Vélin varla hreyfist; notalegt flug og
við lendum eftir 35 mínútur. Nánast full
vél suður aftur og góð vinkona um borð.
„Þú sækir mig alltaf þegar ég er veð-
urteppt,“ segir hún. Smánudd í aðflug-
inu til Reykjavíkur, gengur á með éljum
og hefur bætt í meðan við vorum fyrir
vestan. Næsta brottför er ekki fyrr en
20.30 svo ég hef nægan tíma í kvöldmat.
Við erum vanari því að hafa ekki nema
10-15 mínútur til að gleypa í okkur mat-
inn á milli ferða.
20.40 Vélin til Akureyrar farin í loft-
ið. Allir voru komnir út í vél tímanlega
nema handboltastrákarnir, við urðum að
bíða eftir þeim í smá stund því þeir urðu
að klára leikinn! Vindur hefur blásið
þvert á fjörðinn undanfarna daga og dá-
lítið hreyfing verið á vélinni þegar við
komum niður í fjallahæðina, en aðflugið
er rólegt í þetta skipti. Við erum 35 mín-
útur á leiðinni. Notalegt veður á Ak-
ureyri. Við snúum vélinni við á 15 mín-
útum. „Ooooo, var einmitt að vona að þú
værir um borð,“ segir góð vinkona sem
er að fara suður. Erum lengur í borgina
enda enn ansi hvasst í lofti svo það tekur
okkur 50 mínútur að komast suður. Vet-
ur konungur tekur á móti okkur, allt
hvítt í borginni og gengur á með éljum.
23.05 Vinnudegi er lokið. Heim í
háttinn, fríhelgi framundan og ég ætla
heim til Akureyrar með fyrstu vél að
morgni. Spáð er snjókomu sem veit á
gott, enda allur snjór vel þeginn í Hlíð-
arfjall. Vonandi gefur vel á skíði í fjallinu
um helgina; kannski maður bregði sér til
Siglufjarðar ef verður sól og bjart. Skríð
undir sæng rétt fyrir miðnætti, notalegt
að heyra haglið bylja úti. Þetta var góður
og skemmtilegur dagur, bæði mikil úti-
vera og góður dagur í loftinu.
Dagur í lífi Hreins Skagfjörð Pálssonar flugþjóns
Hreinn Skagfjörð á Akureyri í gær; að moka stéttina í hádeginu, í annað skipti þann daginn!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á fljúgandi ferð
Þorgrímur Kári Snævarr