SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Side 19

SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Side 19
19. febrúar 2012 19 líkaminn átti sig á því að það eigi að svelta hann og læri að komast af með lít- illi orku. Svo byrjar fólk að hreyfa sig minna og efnaskiptin koðna niður. Fólk getur verið langt undir brennslu og lést, svo detta út nokkrir dagar og þá þyngist það aftur. Ótal rannsóknir sýna að ef fólk hefur einu sinni orðið þungt, þá eru meiri líkur á að það gerist aftur. Ég var að verða svona jójó-fitubolla, léttist þegar ég æfði grimmt, en þyngdist aftur um leið og ég hætti að æfa. Ég held að skynsamlegasta markmiðið sé þannig, að jafnvægið mið- ist við að þú æfir ekki neitt og venjurnar styðji við það. Æfingin er plús, það er besti fókusinn.“ – Er þetta meinlætislíf? „Nei, þetta snýst bara um vitund.“ – Endinn á hvítlauksbrauðinu rænir mann ekki hamingjunni? „Nei, og ég þurfti ekkert að borða hann. Aftur snýst þetta um gildismat og forgangsröðun. Ætlarðu að eyða pen- ingum í vitleysu ef það þýðir að þú getir ekki veitt börnunum neitt? Hvaða þýð- ingu hefur heilsan fyrir lífsgæðin? Gildin eru ekkert annað en það sem maður eyðir sínum tíma í, peningar og orka. Það er eina skilgreiningin sem til er. Svo getur fólk predikað allan fjandann. Þetta er munurinn á tilbúnum gildum og raun- verulegum gildum.“ Hann brosir. „Heyri ég amen!“ Svo hlær hann. „Amen halelúja! Ég væri til í að byggja musteri þar sem gerði aldrei annað en að tala um þetta.“ Og mælingarnar á mataræði fólks eru nákvæmar, að minnsta kosti til að byrja með. „Í fyrstu halda allir að þetta grund- vallist á tölfræði, en smám saman fer þetta að snúast um innsæi,“ segir Brynj- ar. „Það gerist óhjákvæmilega þegar þú ferð að pæla í matnum sem þú lætur ofan í þig á hverjum degi. Og það er mikið í húfi. Það mikilvægasta sem þú átt er heilsan, hún gefur þér tíma og tíminn færir þér allt annað sem skiptir máli. Margir virðast ekki átta sig á að eitt það mikilvægasta fyrir heilsuna, fyrir utan að vera jákvæður, hress og glaður, er hvað þú borðar. Matur, svefn og hreyfing er gullni þríhyrningurinn. Og fyrst mat- urinn hefur svona mikil áhrif, af hverju ætti fólk ekki að vilja endurskoða hvað það borðar í tvær mínútur á dag? Það má vera að það finni ekki mun frá degi til dags, en þegar litið er yfir langan tíma, þá er annað uppi á teningnum. Fólk þrosk- ast með þessu og gerir ekki sömu mis- tökin tvisvar – smám saman breytast innkaupin. Við hjálpum fólki af stað og kennum því að vera þolinmótt, því hlut- irnir gerast ekki svona,“ segir hann og smellir fingri. Streita splundrar draumum Brynjar gagnrýnir fitubrennslunámskeið, sem standa í stuttan tíma, en breyta engu til langframa. „Markmiðið á ekki að vera að léttast, heldur að léttast og vera í kjör- þyngd. Gættu þess hvers þú óskar! Ef markmiðið er að léttast færðu örugglega ósk þína uppfyllta, en ef þú ætlar að vera í kjörþyngd alla ævi þá hættir að skipta máli hvort þú léttist um 10 kíló á tíu eða 20 mánuðum. Hitt er bara örvinglun og skammsýni. Ef þú gefur þér 20 mánuði til að léttast, þá eru meiri líkur á að þú borðir meira og það þýðir að líkaminn vinnur betur með þér. Líkurnar eru einnig meiri á því að þú þróir með þér venjur og viðhaldir þeim þegar þú nærð kjörþyngd, plús eða mínus tveir ban- anar!“ Í öðru lagi þarf að gæta þess að styrkja liðamót með æfingum, ekki að skemma þau. Ef fólk ætlar að svelta sig, þá byrjar líkaminn að vinna á móti því og það myndast togstreita. Það átta sig ekki allir á því að byrjun á hrörnun er oft vanda- mál í stoðkerfum. Ef þú stríðir við vandamál í hásin, þá hreyfirðu þig minna, þyngist meira og það skapast vítahringur. Alltof margir taka of mikið á því þegar þeir byrja að æfa og skemma liðamótin í stað þess styrkja þau og verða hraust gamalmenni. Í þriðja lagi, ef þú leggur inn á bankann með jafnri hreyfingu, þá færðu ofurvexti. Ef lífsstíllinn er þannig að þú æfir marga daga í viku allan ársins hring, þá eykur það grunnbrennsluna og það getur mun- að 10 til 15%. Ég finn það á sjálfum mér, að ef ég er í formi, þá brenni ég meira. Þetta er tungumál sem þarf að tala við líkamann.“ Ekki hamast í fólki Það þarf að verða vitundarvakning, að sögn Brynjars, og hann vill að fólk átti sig á upphafspunktinum, í hvernig ásig- komulagi það er, og vinni út frá því með réttari tölfræði, annars vegar út frá mat- aræði og hinsvegar æfingum. „Þetta er þróunin á fleiri sviðum í heilsugeiranum,“ segir Brynjar. „Það er að koma á markað nákvæmlega sama kerfi fyrir streitustjórnun, sem hjálpar fólki að átta sig á hvernig það stendur og hvaða áhrif streitan hefur. Margir eru meðvitaðir um að draga úr streitu, en síður um að hlaða batteríin. Þó er það ekkert síður mikilvægt. Streitan getur verið ágæt, við gerum ekkert án hennar, en það má bara ekki vera of mikið af henni. En orkuna fáum við með því að fara snemma að sofa, borða oft og vel, hugleiða og hreyfa okkur.“ Sjálfur gengur Brynjar á Esjuna einu sinni til tvisvar í viku og segist fá allar sínar bestu hugmyndir á þeirri göngu. „Svo er mikilvægt að hitta vini sína, vera með börnunum sínum – og lesa í Biblí- unni,“ bætir hann við og hlær. Skrefin í Key Habits eru þrjú fram að „útskrift“ eins og það er kallað. „Í fyrsta lagi að þú getir skráð mataræðið, að ekki sé sleppt úr degi og að skráningin stand- ist, í öðru lagi að fólk sýni fram á að það sé byrjað að ná markmiðum sínum og í þriðja lagi að það gerist án okkar hjálp- ar,“ segir Brynjar. „En auðvitað er ekki þar með sagt að það vilji ekki halda áfram að nýta sér hana.“ Og hann segir fólk mun líklegra til að skuldbinda sig, ef það fær að eiga frum- kvæðið. „Það er ástæðan fyrir því að það er ánægt. Það er í raun og veru enginn að hamast í því, nema það skrái ekki, þá er hringt í það. Þú færð fyrst tölvupóst, svo er hringt og loks sendi ég Helenu í gamla leðurjakkanum og með neongrifflurnar,“ segir hann og gætir þess að brandarinn berist eiginkonunni, sem kom inn um dyrnar rétt í þessu. Einn kollegi blaðamanns hafði einmitt stolist í súkkulaðirúsínur og undrast að hann fengi engar skammir. En það er óþarfi í þessu kerfi, því mælingarnar segja allt sem segja þarf. „Mörgum finnst skrítið að við séum ekki að hamast í þeim,“ segir Brynjar. „En fólk sér það sjálft hvað það getur bætt og er fljótt að vinna bug á því sem er út í hött. Það er engin krafa um að breyta öllu mataræðinu í einu vetfangi, heldur breytist kannski ein venja á mánaðar- fresti og það þýðir tólf venjur á ári – hugsaðu þér, 12 venjur! Þá er það bara orðið náttúrubörn, farið að borða hey- sátu af grasafæði!“ Kjartan Orri Sigurðsson, Ragnar Óskarsson, Brynjar Karl og Guðmundur Daði Kristjánsson eru á skrifstof- unni á Íslandi, en Guð- brandur rekur söluskrifstof- una í Evrópu frá Svíþjóð. Morgunblaðið/Ómar Brynjar Karl níu ára og auðvitað í körfu- boltabúningnum. Síðasta FSu lið sem að Brynjar þjálfaði. Liðsmenn voru fáir þar sem vitað var að þetta yrði síðasta árið. Fimm þeirra fengu skólastyrk í Bandaríkjunum. Viðmótið þar sem fólk getur fylgst með ár- angrinum af hollu mataræði og heilbrigðri hreyfingu.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.