SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Side 20

SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Side 20
20 19. febrúar 2012 níð vegna kynþáttar síns. Í einni leiklýs- ingu veltir blaðamaðurinn sér á hinn bóg- inn upp úr litnum á skónum hans, sem voru brúnir en ekki svartir eins og venjan var. Það er til marks um stöðu Watsons í skoskri knattspyrnu að einn virtasti sparkskýrandi þjóðarinnar, J.A.H. Cat- ton, valdi hann í besta lið allra tíma í Skotlandi árið 1926. Hafði Catton hálfrar aldar yfirsýn. Síðar flutti Watson ásamt skoskri konu sinni og tveimur börnum til Ástralíu þar sem hann sálaðist árið 1902, aðeins 44 ára að aldri. Bananaregn í Glasgow Með sárafáum undantekningum léku engir blökkumenn í Skotlandi næstu hundrað árin. Sá næsti sem eitthvað kvað að var Englendingurinn Mark Walters sem gekk til liðs við Rangers árið 1987. Fyrsti leikur hans var gegn erkiféndunum í Celtic og héldu stuðningsmenn þeirra uppi látlausum kynþáttaárásum frá fyrsta flauti til hins síðasta. Svo slæmt var ástandið að gera varð hlé á leiknum um tíma til að fjarlægja hundruð banana af flötinni. Er það mál manna að bresk knattspyrna hafi sjaldan lagst lægra. Samt hélt skoska knattspyrnusambandið að sér höndum. Engum var refsað. Walters lét þó ekki bugast, lék yfir 140 leiki fyrir Rangers, þar sem hann var í miklu uppáhaldi. Næsti blökkumaður til að leika fyrir skoska landsliðið var Nigel Quashie árið 2004, 122 árum eftir að Andrew Watson skrýddist búningnum. Quashie er af ensku og ganísku foreldri en á skoskan afa. Þriðji svarti landsliðsmaðurinn í Skotlandssögunni er Chris Iwelumo. Þess má geta að blökkumenn eru vel innan við 1% af skosku þjóðinni. Sprettharður markvörður Fyrsti blökkumaðurinn sem gerðist at- vinnumaður í ensku knattspyrnunni var Arthur Wharton. Hann fæddist á Gull- ströndinni, þar sem nú er Gana, árið 1865, sonur föður sem var hálfur Grenadamað- ur og hálfur Skoti og móður sem heyrði til Fante-fólkinu. Árið 1882 var Wharton sendur til Englands til að nema trúboð en lagði skræðurnar fljótt á hilluna til að helga sig íþróttum. Hann var jafnvígur á margar greinar, átti til að mynda heims- metið í 100 metra hlaupi um tíma, 10 sek- úndur sléttar. Sett 1886. Whartons er þó einkum minnst fyrir þær sakir að hann var fyrsti litaði mað- urinn til að leika knattspyrnu í efstu deild í Englandi. Það kann að hljóma undarlega en sprettharðasti maður heims lék í marki. Wharton lék meðal annars fyrir stórlið Preston North End, fyrstu Eng- landsmeistarana, áður en deildakeppnin hófst, 1888, og síðar Sheffield United, Rotherham Town, Stalybridge Rovers og Stockport County. Leikirnir urðu þó ekki margir, innan við tuttugu, en í þeim náði Wharton að gera þrjú mörk. Hann átti það til að bregða sér á kantinn. Wharton var mikið ólíkindatól í mark- inu og í aðsendri grein í blaðinu Sheffield Telegraph and Independent árið 1942 rifj- ar minnugur lesandi upp atvik úr leik Rotherham og Sheffield Wednesday þegar Wharton mun hafa stokkið upp, tekið um þverslána með höndunum og gripið tuðr- una millum fóta sér með þeim afleið- ingum að þrír marksæknir framherjar Wednesday enduðu í netinu. „Ég hef ekki í annan tíma séð markvörslu af þessu tagi og hef ég þó fylgst með knattspyrnu í hálfa öld,“ skrifar lesandinn. Árið 2003 var Wharton limaður inn í Frægðargarð knattspyrnunnar í Englandi vegna brautryðjandahlutverks síns. Hugrakkur hermaður Miðherjinn Fred Corbett, sem var af blönduðu kyni, og Egyptinn Hussein He- gazi komu lítillega við sögu í neðri deildum ensku knattspyrnunnar snemma á tutt- ugustu öldinni en næsti þeldökki leikmað- urinn til að láta til sín taka í efstu deild var Walter Tull sem lék yfir hundrað leiki fyrir Tottenham Hotspur og Northampton Town á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöld. Tull átti hvíta enska móður en faðirinn var frá Barbados, þar sem amma hans hafði verið ambátt. Hann missti foreldra sína ungur og ólst eftir það upp á munaðarleys- ingjahæli. Bróðir hans, Edward, varð fyrsti hörundsdökki tannlæknirinn í Bretlandi. Tull lék aðeins 10 leiki fyrir Tottenham frá 1909-11 og herma sumar heimildir að það hafi verið vegna aðkastsins sem hann varð fyrir frá hendi áhorfenda vegna lit- arháttar síns. Dæmi eru um að Tull hafi verið kallaður „surtur“ í leiklýsingum dagblaða. Honum mun hafa verið betur tekið í Northampton. Þegar stríðið braust út 1914 skráði Tull Þegar margur hélt að Bretar værubúnir að sparka kynþátta-fordómum á knattspyrnuvöll-um út í hafsauga hafa þrjú mál komið upp með stuttu millibili sem benda til annars. Uppákomur sem hverfast um Patrice Evra, Anton Ferdinand og Tom Adeyemi hafa vakið heimsathygli og gefið til kynna að ennþá sé pottur brotinn í vöggu knattspyrnunnar, þrátt fyrir markvisst átak og upplýstari umræðu. Enska knattspyrnusambandið og dóm- stólar í landinu svitna nú yfir þessum málum sem leiða óhjákvæmilega hugann að sögu þeldökkra knattspyrnumanna í Bretlandi. Sú saga er lengri og litríkari en ætla mætti. Gersigraði Englendinga Skotland verður seint talið helsta vígi blökkumanna í knattspyrnu en það breytir ekki því að þeldökkur maður lét fyrst að sér kveða þar um slóðir. Andrew Watson hét kappinn, sonur skosks at- hafnamanns og frillu hans í Bresku Gvæjana. Þegar Watson var átján ára, 1875, var hann sendur til náms í Skotlandi og kom þá í ljós að hann var liðtækur knattspyrnumaður. Eftir að hafa spreytt sig hjá nokkrum smærri félögum gekk Watson til liðs við sterkasta félag Skotlands á þeim tíma, Queen’s Park, og vann með því nokkra bikartitla. Auk þess var hann um tíma rit- ari félagsins. Leikmenn gengu í ýmis störf á þeim árum. Árið 1881 var hann valinn í skoska landsliðið og varð þar með fyrsti blökkumaðurinn til að leika landsleik fyr- ir nokkra þjóð. Watson, sem var bak- vörður, var raunar fyrirliði Skota í fræki- legum sigri á erkiféndunum, Englendingum, 6:1. Hann var einnig í liði Skota sem lagði Wales 5:1 tveimur dögum síðar og þriðja og síðasta landsleikinn lék Watson ári síðar gegn Englendingum sem lauk með 5:1-sigri Skota. Ekki amalegur ferill. Árið 1882 flutti Watson búferlum til Englands og kom þá ekki lengur til greina í skoska landsliðið vegna þágildandi reglna. Hann gekk í raðir London Swifts og varð fyrsti blökkumaðurinn til að leika í ensku bikarkeppninni, elsta knattspyrnumóti í heimi. Watson lauk ferlinum hjá félagi sem nefndist Cor- inthians. Watson naut mikillar virðingar vegna framgöngu sinnar á velli og engar heim- ildir benda til þess að hann hafi mátt þola Fram úr skugganum Saga blökkumanna í ensku knattspyrnunni er saga um fordóma og mótlæti en um leið þraut- seigju. Það er ekki öllum gefið að synda á móti straumnum. Vatnaskil urðu á áttunda áratugn- um en sagan er mun lengri, hófst á ofanverðri nítjándu öld með manni að nafni Andrew Wat- son, fyrsta svarta manninum til að leika lands- leik – fyrir Skotland af öllum þjóðum. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Albert Johanneson lék um tíma með Leeds United. Mike Trebilcock, fyrsti dökki bikarmeistarinn. Tony Collins, fyrsti litaði stjórinn á Englandi. Hinn snjalli Walter Tull féll í fyrri heimsstyrjöldinni. Ruud Gullit, fyrsti svarti stjórinn í úrvalsdeildinni. Jack Leslie var hér um bil valinn í enska landsliðið. John Barnes, fyrsti þeldökki leikmaður ársins í Englandi. Mark Walters fékk óblíðar viðtökur í Skotlandi. Clyde Best ruddi brautina hjá West Ham United. Markvörðurinn Arthur Whar- ton var afar frár á fæti. Laurie heitinn Cunningham lék með West Brom. Albion. ’ Svo slæmt var ástandið að gera varð hlé á leiknum um tíma til að fjar- lægja hundruð banana af flöt- inni.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.