SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Page 23

SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Page 23
19. febrúar 2012 23 Það er nauðsynlegt að hafa vettvang fyrir rabb um efni Sunnudagsmoggans og til að taka ámóti ábendingum frá lesendum og því hefur Rabbið verið endurvakið, sem löngum var íLesbókinni, að vísu undir öðrum formerkjum. Nýverið var umfjöllun um það í blaðinu þegar togarinn Elliði fórst í vonskuveðri 11. febrúar árið 1962. Sú frásögn var sögð frá sjónarhorni skipverja á Elliða. En Ragnar Ingimundarson vekur í bréfi máls á björgunarafreki Bjarna Ingimarssonar og áhafnarinnar á Júpíter: „Í bókinni „Sagan gleymir engum“ sem Ásgeir Jakobsson ritaði (1989) nokkru eftir andlát Bjarna segir m.a.: „Ástæður þess að lítt hafði verið fjallað um þátt Júpíters eru þeim vel ljósar sem þekktu Bjarna – hann lét ávallt lítið yfir sér og hafði ekki mörg orð um það sem hann þó var þekktur fyrir: björg- unarafrek , harðfylgi í sjósókn og einstök aflabrögð.““ Ragnar vekur sérstaka athygli á því, að „það var Bjarni sem heyrði tilkynningu um að Elliði væri í sjávarháska. Það voru þeir Bjarni og Aðalsteinn Gunnarsson, sem tókst að ná upplýsingum um Elliða og miða hann út. Það var skipstjórinn, Bjarni Ingimarsson, sem lét knýja skip sitt Júpíter áfram á fullu afli í 10 vindstigum, snjóbyl og haugasjó í tæpa þrjá tíma, sem dugði til að komast að Elliða og senda gúmmíbjörgunarbát til skipbrotsmannanna, sem rétt komust í hann áður en Elliði sökk. Upplýst er að ganghraði Júpíters svaraði til mesta ganghraða sem skipið átti að geta náð við hagstæðar aðstæður. Það var svo að sjálfsögðu Bjarni sem stjórnaði aðgerðum við björgun eftir að komið var að Elliða.“ Þá barst kjarnyrt bréf frá Ingrid vegna viðtals við Braga Kristjónsson í desember: „Vasaklúturinn hans Braga var á sínum stað eins og tíðkast í Kiljunni, og neftóbaksdósina vantaði ekki. Ég verð að segja eins og er: mér býður bara við að horfa á hann snýta sér í þennan flennistóra rauða vasaklút (ætli hann sé þveginn?) og fitla í sífellu í nefinu á sér, veifa og viðra hann. Þetta er ógeðslegt, oj bjakk! Getur hann ekki látið af þessum ósið alla vega þessar fáu mínútur sem sjón- varpsmyndatakan stendur? Annars dáist ég að honum hvað hann er fjölfróður og sigldur, vel menntaður að með ólíkindum er. Í öllum siðuðum löndum heims snýta menn sér ekki opinberlega. Ég vildi að hann fengi að lesa bréfið mitt.“ Í viðtali við Brynjar Karl Sigurðsson í dag er tæpt á því í myndatexta að Brynjar hafi farið í fyrir- lestraferð í tvö ár með Don Meyer, sigursælasta þjálfara í háskóladeildinni vestra. Það væri óvitlaust af lesendum að slá upp myndbandi á YouTube, þar sem Meyer tekur við Jimmi V.-verðlaununum árið 2009. Þar er rakin saga Meyers og barátta hans eftir harðan árekstur í árslok 2008, sem breytti lífi hans svo um munaði. Í ræðu sinni sagðist Meyer hafa sótt kraft í heilræði sem vinur hans fékk frá föður sínum á útskriftardaginn: „Ekki ljúga, ekki kvarta og engar afsakanir.“ Pétur Blöndal Ekki ljúga, ekki kvarta og engar afsakanir Rabb „Æ, þegiðu!“ Steingrímur J. Sigfússon atvinnumálaráðherra við Sig- mund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokks- ins, sem hafði kallað fram í fyrir ráðherranum í ræðu- stól. Steingrímur var á leið til sætis síns. „Ég er alveg nógu stór til að viðurkenna að þetta er ekki viðeigandi.“ Steingrímur J. Sigfússon um ummæli sín hér að ofan, daginn eftir. „Þetta er alveg eins og að fara á ströndina. Það er hægt að eyða öllum tímanum í að velta útlit- inu fyrir sér eða það er hægt að sleppa því alveg og drífa sig niður á strönd og hafa það skemmtilegt.“ Leikkonan Christina Ricci um nekt- arsenur í nýjustu mynd sinni, Bel Ami. „Ofbeldi og valdníðsla.“ Árni Johnsen alþingismaður um þá ákvörðun bæjarstjórnar Akureyrar að senda Snorra Óskarsson kennara í hálfs árs frí á launum vegna umdeildra ummæla um samkynhneigð. „Við áttum ekki okkar besta leik.“ Wojciech Szczesny, markvörður Arsenal, eftir að liðið var kjöldregið, 4:0, af AC Milan í Meistaradeild Evrópu. „Ég er ekki ólétt.“ Bandaríska kvikmyndaleikkonan Jennifer Aniston. „Íslenska krónan er eins og fíllinn í stofunni.“ Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, á Viðskiptaþingi. „Eftir að hafa gengið í gegnum verkið finnst mér það gjör- samlega mannbætandi.“ Ragnheiður Skúladóttir, leikstjóri sýning- arinar Hótel Keflavík á Hótel Keflavík. „17. febrúar 2002, þegar ég tók þessi þungu skref óraði mig ekki fyrir því hversu gott lífið ætti eftir að vera án þessa harða húsbónda. Ég er þakklát og vona að mér hlotnist að vera áfram edrú, einn dag í einu.“ Linda Pétursdóttir sem hætti að drekka fyrir réttu ári. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal stutt, þótt það sé alvarlegt. Tal hans um að finna „sáttaleið“ um sjávarútveginn eftir að hafa haldið honum í heljargreipum allt kjörtímabilið, er eingöngu miðað við það að laga íslenska um- gjörð að vilja og veruleika ESB. Og það er gert í þeirri veiku von að næst þegar hann býst til að bugta sig í Brussel, jafnvel enn dýpra en síðast, fái hann klapp á kollinn sinn í kaupbæti. Enn ein og ekki smá í sniðum En ríkisstjórnin var ekki búin að bíta úr nálinni með Hæstarétt. Sjö dómarar af sjö gáfu út það álit sitt að þegar að ríkisstjórnarmeirihlutinn reyndi að laga löggjöf að stóra dómi réttarins um gengistengingar skuldbindinga, þá hefðu stjórnarliðar í leiðinni tekið á sig krók til að brjóta stjórnarskrána. Þá hina sömu stjórnarskrá sem þeir fengu ótækasta úrtak þjóðarinnar til að hræra í fyrir sig. Nú var það ekki neitt óvilja- verk. Ráðherranum og stjórnarliðum var oft bent á við meðferð málsins, bæði af fræðimönn- um og stjórnarandstöðu, að lagafrumvarpið færi í tilteknu efni beinlínis gegn stjórnarskrá lands- ins. En brotaviljinn var einbeittur og ekki var hlustað á neinar aðvaranir. Árni Páll Árnason, sem fauk úr ríkisstjórninni Jóni Bjarnasyni til samlætis, gaf þá skýringu á því að svona var farið að, að ríkisstjórnin hefði óttast svo mjög bréf Ragnars Aðalsteinssonar lögmanns, fyrir hönd ónefndra kröfuhafa. Varð ráðherrann fyrrverandi ekki skilinn öðru vísi en svo að það hefði verið dulin snilld að brjóta gegn stjórn- arskránni af ráðnum hug. Bréf lögmannsins hefði bent til þess að ef ríkisstjórnarmeirihlut- inn hefði haft lögin í lagi þá hefði ríkið getað orðið skaðabótaskylt, sagði Árni efnislega. En þar sem Hæstarétti hefði verið látið eftir að komast að niðurstöðu væri slík hætta ekki fyrir hendi. Já ríkisstjórnarvitleysan er þá ekki alltaf eins, þrátt fyrir allt, en samt er handbragðið líkt og skyldleikinn leynist ekki. Morgunblaðið/Ómar Beðið eftir strætó í Lækjargötu.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.