SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Síða 29

SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Síða 29
19. febrúar 2012 29 viðhalda ákveðnum gæðum. Við förum á veitingahús til að borða, oft erlendis, og uppfærum matseðilinn reglulega. Það er hörð samkeppni í þessum bransa og margir veitingastaðir fara á hausinn. Allir eru að reyna að gera sitt. En samkeppnin getur tekið á sig ljótar myndir, eins og þegar farið er að stela réttum frá veitingastöðum. Svo virðist sem ekkert sé hægt að gera við því. Á Fiskmarkaðnum erum við með kokteil sem við höfum verið að þróa alveg frá opnun til að hann yrði sem bestur. Við höfum lagt mikinn tíma í þá vinnu. Allt í einu var þessi kokteill kominn á vínseðil annars veitingahúss. Við könn- uðum rétt okkar en erum ekki vernduð fyrir stuldi eins og þessum. Sjálf myndum við aldrei gera svona lagað.“ Maður heyrir því hvíslað að frægir erlendir gestir séu duglegir við að heimsækja þessa tvo veitingastaði. „Ef frægt fólk kemur til landsins er mjög líklegt að það borði hjá okkur. Þetta fólk fær að vera í friði og er mjög þakklátt fyrir það. Það er regla hjá okkur að skýra fjölmiðlum aldrei frá því hvaða fólk þetta er.“ Heimilismatur er sælgæti Ertu gagnrýnin á eldamennsku ann- arra? „Ég er gagnrýnin ef ég borða á veit- ingastöðum. En alls ekki í heima- húsum. Ég veit ef eitthvað er ekki eins og það á að vera en horfi þá framhjá því. Þegar ég er nýbúin að kynnast fólki líður yfirleitt nokkur tími þar til það býður mér í mat en um leið og ég er búin að koma nokkrum sinnum þá verður þetta ekkert mál. En aðrir spyrja gestgjafana oft: Finnst ykkur ekki óþægilegt að fá hana í mat?“ Áttu uppáhaldsmat? „Heima borða ég mikið af grænmeti, mér líður vel af því. Ég reyni að elda það eins og ég myndi elda fisk og kjöt og legg metnað í matreiðsluna. En það er skrýtið að þegar maður er búinn að vera lengi í þessum bransa finnst manni matur eins og humar og par- maskinka, sem öðrum finnst algjört lostæti, vera ósköp venjulegur matur. Ég hef borðað ógrynni af humri í gegn- um tíðina, sem er matur sem flestir borða mjög sjaldan. Mér finnst óskap- lega gott að fá bara venjulegan heim- ilismat. Oft er mér boðið í hús þar sem venjulegur heimilismatur er á boð- stólum. Fólk segir afsakandi við mig: Þetta er nú ekkert merkilegt. En mér finnst þessi matur algjört sælgæti.“ Eldar þú mikið heima hjá þér? „Við hjónin skiptumst á. Maðurinn minn er góður kokkur. Þegar við byrj- uðum saman var ég stundum alveg óþolandi við hann ef mér fannst hann ekki bera sig rétt að við eldamennsk- una og sagði stöðugt: Nei, þetta er ekki svona! Hann hætti að elda og ég áttaði mig á því að ég hafði verið leiðinleg við hann og gjörbreytti um aðferð og fór að hrósa honum. Það má segja að í byrjun hafi ég brotið hann niður og svo þurfti ég að byggja hann upp aftur.“ Hvernig kynntistu manninum þín- um? „Við erum búin að þekkjast síðan við vorum sextán ára, vorum í sama vina- hópi, en byrjuðum ekki að vera saman fyrr en fyrir þremur árum. Þá hittumst við á bar. Hann heitir Björn Árnason og er ljósmyndari og selur meðal annars myndir úti í heimi. Við eigum fimm mánaða strák, þannig að lífið er öðru- vísi en áður. Sonurinn sefur á nóttinni og vakir allan daginn, sem ég bjóst ekki við. Hann þarf mikla athygli, en það er bara gaman. Þegar ég var að alast upp var ég alltaf með fullorðnu fólki og hann er alltaf með okkur. Þeg- ar ég var lítil var oft talað um að ég hefði góðan orðaforða og ég held að það hafi verið vegna þess að ég var mikið með eldra fólki. Ég vona að það verði eins með hann.“ Hvaða áhugamál áttu? „Ég er nýbyrjuð að spila fótbolta með stelpuliði sem heitir FC Ógn og við spilum einu sinni í viku á KR- vellinum. Rakel Garðarsdóttir í Vest- urporti er þjálfari og stofnandi liðsins. Ég var í samkvæmisdönsum og stelpu- leikjum þegar ég var lítil og horfi ekki reglulega á fótbolta en ef stórmót er í gangi er ég alveg til í að fylgjast með því og velja mér uppáhaldslið. Þetta fótboltaspark er nýjasta áhugamálið mitt en annars hef ég bara ákaflega mikinn áhuga á mat og er alltaf að hugsa um hann. Okkur Rakel langar til að opna litla ísbúð sem á að vera mjög sérstök, en meira vil ég ekki segja um það verkefni. Svo útiloka ég ekki að opna fleiri veitingahús með félögum mínum, en við förum samt ekki að gera eitthvað slíkt bara til að gera eitt- hvað.“ ’ En samkeppnin getur tekið á sig ljótar myndir, eins og þegar farið er að stela réttum frá veit- ingastöðum. Svo virðist sem ekkert sé hægt að gera við því. Á Fiskmarkaðnum erum við með kokteil sem við höfum verið að þróa alveg frá opnun til að hann yrði sem bestur. Við höfum lagt mikinn tíma í þá vinnu. Allt í einu var þessi kokteill kominn á vín- seðil annars veitingahúss. Við könnuðum rétt okkar en erum ekki vernduð fyrir stuldi eins og þessum. Morgunblaðið/Kristinn

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.