SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Side 32

SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Side 32
32 19. febrúar 2012 Bárður Sigurðsson var Þing-eyingur, fæddur 1872 á Kálf-borgará í Bárðardal en fluttist14 ára gamall að Hjalla í Reykjadal þar sem foreldrar hans voru í húsmennsku. Bárður var elstur sjö barna þeirra. Hann varð snemma vinnumaður á bæjum í sveitinni og fékkst aðallega við smíðar, en áhugi hans á ljósmyndun var gríðarlegur og hann tók mikið af myndum á fyrstu tveimur áratugum 20. aldar; merkilegar myndir af fólki við leik og störf, einkum í Mývatnssveit. Fyrir nokkrum misserum bárust Minjasafninu á Akureyri glerplötur Bárðar. Þær höfðu í áratugi verið í eigu Eðvarðs Sigurgeirssonar, hins lands- þekkta ljósmyndara, og færðu börn Eð- varðs, Egill og Elsa Friðrika, Minjasafn- inu ljósmyndasafn Bárðar til varðveislu. Þjóðminjasafn Íslands, Minjasafnið á Akureyri og Safnhúsið á Húsavík, safnið í hans heimasveit, tóku höndum saman og ákveðið var að efna til sameiginlegrar sýningar á ljósmyndum Bárðar. Hún var fyrst sett upp á Þjóðminjasafninu, fór síðan norður á Húsavík og er núna á Akureyri, sem fyrr segir. Söfnin gáfu út vandaða bók þar sem fjallað er um lífs- hlaup og ævistarf Bárðar í nokkrum greinum og birtur fjöldi mynda hans. Hörður Geirsson, safnvörður ljós- myndadeildar Minjasafnsins á Akureyri, segir í grein um Bárð í bókinni að hann hafi verið hugvitsmaður. „Áhugi hans á allri tækni og framförum kom fram snemma á ævinni og hann lærði á og breytti mörgum þeim tækjum sem á vegi hans urðu,“ segir Hörður og bætir við að áhugi hans á tækni hafi fljótt náð til ljósmyndunar. Hörður vitnar í dagbók Bárðar þar sem hann segir frá ferð frá Mývatni til Akureyrar í september 1904, í þeim til- gangi að kaupa sér myndavél. Ferðin tók fjóra daga. Hann vitnar svo í frásögn Bárðar í tímaritinu Hlín 1929. Þar segir: „Þegar jeg eignaðist fyrstu ljósmyndavj- elina, kunni jeg lítið með hana að fara; þá náði jeg í danska ljósmyndafræði, en kunni ekkert í því máli, svo jeg varð að fá mjer orðabók Jónasar Jónassonar, og varð þetta til þess að jeg lærði að taka myndir og meira til, jeg lærði að lesa dönsku, mjer til nota og ánægju.“ Hörður segir frá því að bókin og til- Hjartsláttur sveitanna Bárður Sigurðsson Mývetningur er talinn hafa komist nær íslenskri sveita- menningu en aðrir íslenskir ljósmynd- arar. Verk hans frá upphafi 20. aldar eru nú til sýnis á Minjasafninu á Akureyri. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.