SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Side 36
36 19. febrúar 2012
Það fylgir bolludeginum að gæðasér á sætum bollum. Margirtaka forskot á sæluna og borðaherlegheitin á sunnudaginn
svo úr verður tveggja daga veisla. Vatns-
deigsbollur hafa verið vinsælastar hér-
lendis þótt gerbollur af ýmsu tagi séu
líka á borðum eins og sænsku seml-
urnar, sem eru fylltar með marsipani.
Fyrir þá sem vilja minnka sætabrauð-
sneyslu má líka halda upp á daginn með
því að borða fiskbollur eða kjötbollur og
þá er um að gera að hafa bollurnar
heimagerðar.
Á sprengidaginn er síðan komið að
hinum þjóðlega rétti saltkjöti og baun-
um. Í hinni frjálsu alfræðiorðabók Wi-
kipediu er að finna ýmsar upplýsingar
um daginn. Þar segir að elsta heimild
um íslenskt heiti dagsins tengist mat-
arveislu fyrir föstuna en það er að finna í
íslensk-latnesku orðasafni Jóns Ólafs-
sonar Grunnvíkings frá því kringum
1735. „Þar segir hann Sprengikvöld þýða
orðrétt kvöld sprengingar, það er kvöld
miklifenglegrar átveislu með alskonar
meðlæti en nefnir einnig að þetta sé
sveitamál.“
Saltkjötið getur verið feitt, sem kallast
á við erlent heiti dagsins sem er „mardi
gras“ eða „feiti þriðjudagur“ og er það
réttnefni.
Mikilfeng-
leg átveisla
og meðlæti
Bolludagurinn er á mánudaginn og sprengidagur
á þriðjudaginn. Hér eru nokkrar góðar hug-
myndir að því hvernig megi halda upp á þessa
tvo daga með vænni veislu.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Baunasúpa með saltkjöti úr gulertum er
yfirleitt byggð á söltuðum soðnum
lambaframparti og íslensku grænmeti.
Oftast er hún bragðbætt með lauk eins og
hér er gert, en á seinni tímum er ekki
óalgengt að blaðlaukur, graslaukur, sell-
erí og jafnvel reykt flesk/beikon sé jafn-
framt notað til yndisauka. Baunasúpa er
tiltölulega algengur matur á Íslandi og
órjúfanlega tengd sprengidegi landans.
Uppskriftin er úr Eldum íslenskt með
kokkalandsliðinu og er fyrir fjóra.
1 kg saltkjöt
200 g gular baunir
400 g gulrófur
1 laukur
200 g gulrætur
Í eldhúsinu:
Kraftur (helst kjötkraftur)
1,2 l vatn
Best er að leggja baunirnar í bleyti í kalt
vatn í um 12 klst. við stofuhita.
Baunirnar eru svo skolaðar, settar í
pott með vatninu ásamt kjötkrafti ef vill
(má sleppa) og soðnar í um 30 mín. Best
er að fleyta alla froðu af yfirborðinu.
Kjötið er skolað og þegar baunirnar
byrja að mýkjast eru 2-3 kjötbitar settir
út í en hinir soðnir sér til þess að súpan
verði ekki of sölt. Látið sjóða í 30 mín.
Að lokum er grænmetið soðið í 20-30
mín. með baunasúpunni.
Saltkjöt og baunir er ekki síðra upp-
hitað. Best er að snöggkæla afgangana svo
baunirnar gerjist ekki.
Ef súpan verður of sölt er gott ráð að
setja kartöflur eða rófur í hana, þær draga
saltið í sig.
Bygg passar líka mjög vel út í baun-
irnar.
Ljósmynd/Árni Torfason
Saltkjöt og baunir
Heimatilbúnar kjötbollur eru allt öðru-
vísi en þær keyptu. Þessi uppskrift er úr
Hollt nesti heiman að.
1 kg grísahakk
2 egg
2 brauðsneiðar bleyttar í mjólk
börkur af 3 sítrónum
5 pressuð hvítlauksrif
2 tsk sítrónusafi
handfylli af ferskri íslenskri
steinselju
kryddið með sjávarsalti og
nýmöluðum svörtum pipar
bragðlítil kókosolía/
önnur olía til steikingar
Blandið öllu hráefninu vel saman í skál
með höndunum. Kreistið mjólkina úr
brauðinu og rífið það út í deigið. Kælið í
um klukkustund. Einnig er gott að útbúa
blönduna daginn áður og láta hana standa
í kæliskáp yfir nótt. Mótið bollur og
steikið á pönnu upp úr kókosolíu.
Kjötbollur eiga ekkert sameiginlegt
nema nafnið þegar kemur að næringar-
gildi og hollustu. Í heimatilbúnum boll-
um er ferskleikinn í fyrirrúmi, við ráðum
hlutfalli kjöts og annarra hráefna. Kjöt-
bollur ætti alltaf að búa til úr nýju hakki –
helst sem við hökkum sjálf. Keyptar kjöt-
bollur eru oft úr kjötfarsi sem við vitum
ekki hvað inniheldur og getur verið of
salt.
Kartöflu-eplasalat
Það er um að gera að nota nýjar kartöflur
með hýðinu á í kartöflu-eplasalatið,
þannig eru þær hvað næringarríkastar,
best er að kartöflurnar séu lífrænt rækt-
aðar.
1 dós sýrður rjómi (18%)
paprikuduft á hnífsoddi
karríduft á hnífsoddi
400 g kartöflur
2 epli
1⁄5 hluti púrrulaukur, ljósi
og græni hlutinn
1 msk ferskur íslenskur graslaukur
nýmalaður svartur pipar
Sjóðið kartöflurnar, kælið og flysjið.
Hrærið kryddinu saman við sýrða
rjómann og smakkið til. Setjið kartöflur,
epli, púrrulauk og graslauk saman við
sýrða rjómann, ásamt dálitlum pipar, og
blandið varlega.
Kjötbollur og kartöflusalat
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Matur
Vanillubúðingur er skemmtileg viðbót
við þessar venjulegu sultu- og rjómaboll-
ur. Bollurnar er hægt að bera fram með
ferskum berjum. Þessar bollur má einnig
búa til fyrir veislur en þá eru þær frystar
með fyllingunni og síðan teknar úr fryst-
inum rétt áður en þær eru bornar fram.
Að sjálfsögðu eru þessar klassísku með
sultu og rjóma alltaf góðar. Þessi upp-
skrift er úr bókinni Góður matur – gott líf
í takt við árstíðirnar.
Um 30 stórar eða 75 litlar bollur
250 ml vatn
75 g smjör
2 tsk sykur
örlítið af salti
125 g hveiti
1 tsk lyftiduft (má sleppa)
3 stór egg
Hitið ofninn í 190°C. Setjið vatn og
smjör ásamt sykri í pott og látið suðuna
koma upp. Takið pottinn af hitanum.
Setjið hveiti og lyftiduft út í pottinn og
hrærið hraustlega í með sleif þar til
myndast hefur slétt og samfellt deig.
Hrærið síðan eggjunum saman við einu í
einu, hrærið vel á milli.
Klæðið bökunarplötu með smjörpappír
og setjið 1 msk af deigi á plötuna fyrir
hverja stóra bollu. Bakið í ofni í um 35
mínútur.Varist að opna ofninn fyrr en
langt er liðið á baksturstímann. Takið
eina bollu úr ofninum og látið standa í
smástund. Ef hún fellur þarf að baka boll-
urnar í 3-4 mínútur til viðbótar.
Ef þið viljið hafa bollurnar litlar þarf að
stytta baksturstímann niður í 20 mínút-
ur. Látið bollurnar kólna áður en súkku-
laðihjúpurinn er settur ofan á þær.
Súkkulaðihjúpur á toppinn
100 g dökkt eða hvítt súkkulaði
3 msk. rjómi
Bræðið súkkulaðið við vægan hita í litlum
potti ásamt rjómanum. Ef þið ætlið að
setja rjóma og sultu inn í bollurnar er
betra að skera þær í tvennt og dýfa svo
toppnum í bráðið súkkulaðið. Ef á að fylla
bollurnar með vanillubúðingi eru þær
ekki teknar í sundur.
Látið súkkulaðið harðna áður en bollurn-
ar eru fylltar með búðingnum. Setjið
búðinginn í sprautupoka og stingið
stútnum inn í bollurnar og sprautið
kreminu inn þar til þær eru vel fylltar.
Vanillubúðingur
150 ml rjómi
300 ml mjólk
1 vanillustöng
Vanillubúðingsfylltar
vatnsdeigsbollur