SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Blaðsíða 45

SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Blaðsíða 45
19. febrúar 2012 45 LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar Í AFBYGGINGU Libia Castro & Ólafur Ólafsson 13.1. - 19.2 2012 SÍÐASTA SÝNINGAHELGI! ÞÁ OG NÚ 22.9. 2011-19.2. 2012 SÍÐASTA SÝNINGAHELGI! SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 19. febr. kl. 14 um báðar sýningarnar Dagný Heildal listfræðingur SÚPUBARINN, 2. hæð. Hollt og gott allan daginn! Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar um þróun íslenskrar myndlistar. „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. Listsýning Eddu Heiðrúnar Backman. Munnmáluð vatnslitaverk og olíumálverk. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Á BÓNDADAG – A Farmer´s Day Feast Aðalheiður S. Eysteinsdóttir 20. janúar– 18. mars Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Sunnudagsleiðsögn 19. febrúar kl. 14:00: Ágústa Kristófersdóttir leiðir gesti um sýninguna TÍZKA – kjólar og korselett Tveir fyrir einn af aðgangseyri sunnudaginn 19. febrúar Fjölbreyttar sýningar: Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu TÍZKA – kjólar og korselett Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár Þetta er allt sama tóbakið! Spennandi safnbúð og Kaffitár Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum Kyrralíf Sýning á kyrralífsmyndum eftir íslenska listamenn Fimmtudag 23. febrúar kl. 20 – Tíu kyrralíf Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur flytur fyrirlestur í tengslum við sýninguna Kyrralíf Undanfari Sigurður Guðjónsson Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis 10. febrúar til 4. mars 2012 Systrasögur Tvíhent á striga Sara og Svanhildur Vilbergsdætur Opið 13-17, nema mánudaga. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is Aðgangur ókeypis. LISTASAFN ASÍ SJÁLFSAGÐIR HLUTIR (10.2.- 20.5. 2012) HLUTIRNIR OKKAR (9.6.2011 – 4.3.2012) Opið alla daga nema mán. kl. 12-17. Verslunin KRAUM í anddyri. Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Bókelsk kona, yfirmaður í bókabúð, sagði mér á dögunumfrá því þegar hún sem barn reif sig eitt sinn upp klukkanfimm á aðfangadagsmorgni, laumaðist að jólatrénu oggægðist í jólapakkann frá afa og ömmu. Þegar hún sá að í honum leyndist bók eftir Enid Blyton fór hún aftur í rúmið og sofn- aði samstundis sæl og ánægð. Hún vissi að jólunum hefði verið bjarg- að. Ástsæll skáldsagnahöfundur sagði mér fyrir nokkrum dögum frá því að hann ætti enn minningar frá því þegar hann sjö ára gamall rogaðist með bækur Enyd Blyton frá bókasafninu og heim. Hann minnist þess líka greinilega þegar hann lagði frá sér Enid Blyton-bók og fór til foreldra sinna og spurði: „Hvað þýðir orðið tei?“ Hann hélt að þarna væri komið nýtt og dularfullt orð en komst að því að þetta var ein beyging orðsins te. Ég man enn eftir því hversu svöng ég varð oft við lestur bóka eftir Enid Blyton þar sem börnin hámuðu í sig alls kyns góðgæti eins og glóald- inmauk og flesk. Ég vissi ekki ná- kvæmlega hvað þetta góðgæti var, en orðin hljómuðu eins og þarna væru verulegar freistingar á ferð sem fengjust bara í útlöndum. Dætur vinnufélaga míns lesa Enid Blyton-bækur upp til agna og virðast alveg jafnþakklátir lesendur og við af eldri kynslóð vorum á þeirra aldri. Alltof oft verður maður var við að fullorðnir gera lítið úr Enid Bly- ton. Þetta virðist aðallega vera fólk sem las ekki bækur hennar í æsku og veit því lítt um hvað það er að tala. Menn ættu að fara varlega í að gera lítið úr höfundi sem hefur glatt kynslóðir barna um allan heim. Börn eru engir bjánar og láta engan segja sér hvað þeim eigi að þykja skemmtilegt. Þau ákveða það sjálf. Þau heillast af aðalpersónum Enid Blyton sem verða vinir þeirra. Maður afneitar ekki gömlum vinum. Minningar um Blyton ’ Menn ættu að fara varlega í að gera lítið úr höfundi sem hefur glatt kyn- slóðir barna um allan heim. Orðanna hljóðan Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is V ictoria hefur verið munaðarlaus alla sína ævi og ferðast á milli fósturfjölskyldna og stofnana með slæmum árangri. Hún er brynvarin, þolir ekki annað fólk eða snertingu og til- finningar hennar liggja djúpt grafnar, hún þekkir þær ekki sjálf né skilur. Hún er mann- eskja sem hefur aldrei upplifað ást en fékk þó eitt sinn snert af henni þegar hún var níu ára og fór í fóstur um tíma til góðrar konu, konunnar sem kenndi henni táknmál blómanna. Táknmál blómanna hefst þegar Victoria verður 18 ára, sjálfráða og losnar undan kerf- inu. Hún stendur uppi ein, á götunni og er vör um sig eins og villiköttur og kann líka að bjarga sér eins og slíkur. Það eina sem Victoria ann eru blóm og táknmál þeirra, hvað hægt er að segja með blómum einum saman. Með þeim kann hún líka að tjá sig. Hún fær vinnu í blómabúð þar sem þessi hæfi- leiki hennar nýtur sín. Í gegnum þá vinnu hittir hún Grant, ung- an blómabónda, sem hefur áður komið við sögu í lífi hennar. Við þau kynni rifjast ýmislegt upp úr fortíðinni fyrir Victoriu og hún þarf að fara að glíma við sjálfa sig og sú glíma er erfið, það er auðveldara að halda sig inni í skelinni en að brjótast út úr henni. Það er ekki aðeins líf mun- aðarlausrar manneskju sem bókin tekur á. Í henni er fjallað um allar fjölskyldugerðir, þá sérstaklega allar gerðir móður- hlutverksins. Victoria á engan að, Elizabeth á heldur engan að en á samt systur á næsta bæ sem er jafn ein og Victoria vegna fjölskylduerja sem hafa undið upp á sig. Elizabeth þráir samt að breyta stöðunni, ættleiða barn og sættast við systur sína. Grant átti móður en þurfti samt að ala sig að mestu upp sjálfur og hjá honum snerist hlutverkið við, hann þurfti að hugsa um móður sína. Renata á stóra og samheldna fjölskyldu. Móðir hennar er lífleg kona sem starfar sem ljósmóðir og lætur sér annt um alla, en þrátt fyrir að eiga allt sem Victoria á ekki kýs Re- nata að einangra sig og eiga ekki börn. Höfundur bókarinnar, Van- essa Diffenbaugh, skrifaði sög- una eftir að hafa tekið fóstur- börn að sér og kynnst þeim veruleika sem þau höfðu búið við. Victoria er sannfærandi ung manneskja sem hefur aldrei upplifað ást eða skilning, aðeins einmanaleika og höfnun. En í skáldsögu er auðvelt að láta málin ganga upp, varnir hennar sem virðast órjúfanlegar stóran hluta sögunnar bresta heldur auðveldlega og allir lifa ham- ingjusamir til æviloka, eða því sem næst. Þó mér hafi fundist málin ganga heldur áreynslu- laust upp undir lok bókar er Táknmál blómanna í heildina afskaplega heillandi verk og fal- legt. Höfundurinn nær vel að lýsa því sem býr í manneskjunni og það er margt. Hvernig hún notar táknmál blómanna er vel gert og ferskt, það er hægt að tjá sig á svo marga vegu og það sem náttúran gefur okkur er ein þeirra, hvort sem það er með blómum eða mat. Það er líka fróðlegt fyrir lesandann að fræðast um hvaða skilaboð hvert blóm eða planta ber með sér og aftast í bókinni er Blóma- orðabók Victoriu látin fylgja með sem er góð viðbót. Táknmál blómanna er mann- leg bók og falleg þó hún taki á ljótleika mannsins jafnt sem því fagra sem í honum býr. Margt býr í manneskjunni Bækur Táknmál blómanna bbbmn Eftir Vanessu Diffenbaugh Íslensk þýðing Ásdís Guðnadóttir. JPV 2011. Vanessa Diffenbaugh Ingveldur Geirsdóttir

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.