Morgunblaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Jón Gnarr borgarstjóri hefur í bréfi
til foreldra barna í Hamra- og Húsa-
skóla í Grafarvogi tilkynnt að fyr-
irhuguð sameining unglingadeilda
skólanna við Foldaskóla standi. Eng-
in rök hafi komið fram sem réttlæti
það að Reykjavíkurborg hætti við
áform sín í Foldaskóla. Við þetta eru
foreldrarnir mjög ósáttir en þeir af-
hentu borgarstjóra og borgarfulltrú-
um meirihlutans nýverið undirskrift-
ir frá um 90% foreldra í hverfunum
þar sem fyrirhugaðri sameiningu var
mótmælt harðlega.
Foreldrarnir sendu Jóni Gnarr
svarbréf til baka í gær þar sem þess
er krafist að sameiningin verði aft-
urkölluð eða henni frestað á meðan
frekari rannsókn sé gerð á forsend-
um hennar. Vísa foreldrar þar til nið-
urstöðu menntamálaráðuneytisins í
bréfi til þeirra í apríl sl., um að borg-
inni beri að láta framkvæmda ítar-
legri athuganir og ná fram betri sátt
um málið áður en af sameiningunni
getur orðið. Var það m.a. álit ráðu-
neytisins að undirbúningi samein-
ingarinnar hafi verið áfátt og vinna
þurfi frekar að sáttum í málinu.
Ráðuneytið taldi sig hins vegar
ekki hafa beinan rétt til að úrskurða í
kærumálum um sameiningu skóla og
vísaði þeim hluta málsins til með-
ferðar í innanríkisráðuneytinu. Nið-
urstaða þar liggur ekki enn fyrir, að
því er segir m.a. í bréfi foreldranna
til borgarstjóra í gær. Benda þeir
t.d. á að borginni beri einfaldlega að
hafa hliðsjón af niðurstöðu mennta-
málaráðuneytisins sem æðra stjórn-
valds. Telja þeir einsýnt að samein-
ingin geti ekki gengið í gegn nú í
haust og fresta þurfi henni um
minnst eitt skólaár.
„En ef Reykjavíkurborg knýr
óafturkræfa sameiningu í gegn,
þrátt fyrir skýra niðurstöðu ráðu-
neytisins, skýr tilmæli Ríkisendur-
skoðunar um vinnubrögð við samein-
ingarmál og skýran vilja íbúa
hverfanna, þá hlýtur lagaleg og sið-
ferðisleg ábyrgð borgarfulltrúa að
vera mikil,“ segir m.a. í bréfi for-
eldra til borgarstjóra.
Foreldrum sýnd lítilsvirðing
Í fyrrnefndu bréfi borgarstjóra til
foreldra kom fram að vinna við sam-
eininguna væri vel á veg komin og
borgin myndi gera allt sem í hennar
valdi stæði til að hún gengi vel fyrir
sig. „Ég vil biðja ykkur að vinna með
jákvæðum huga að sameiningunni
sem ég er sannfærður um að verður
til hagsbóta fyrir nemendur, for-
eldra og borgina í heild,“ ritar Jón
Gnarr í niðurlagi bréfsins.
Marta Kristín Hreiðarsdóttir,
einn talsmanna foreldra, segist hafa
orðið fyrir vonbrigðum með svar
borgarstjóra. Þar hafi borgin ekki
sett fram nein ný rök og sagt að ekk-
ert hafi komið fram í málinu sem
breyti áformum borgarinnar.
„Vilji nánast allra foreldra barna í
skólunum skiptir greinilega engu
máli og enn á ný sýnir meirihlutinn í
borgarstjórn foreldrum þá lítilsvirð-
ingu að ætlast til þess að við eigum
bara að kyngja ákvörðuninni, vera
jákvæð og vinna að sameiningunni
svo hún gangi vel fyrir sig,“ segir
Marta.
Hún segir foreldra í þessum hverf-
um uggandi um hag skólanna.
„Við erum farin að finna áhrifin af
breytingunum strax. Kennarar sem
ekki fá lengur fullt starfshlutfall eru
farnir að ráða sig í aðra skóla og
þetta mun svo sannarlega hafa af-
gerandi áhrif á skólabrag skólanna
sem eftir verða þegar unglingadeild-
irnar hafa verið nauðungarfluttar úr
skólanum,“ segir Marta og óttast að
hið sama gerist og varð raunin eftir
samruna leikskólanna Funaborgar,
Foldaborgar og Foldakots yfir í
Sunnufold í fyrra. „Funaborg var
frábær leikskóli fyrir sameiningu en
nú er nánast ekkert eftir af þeim
góða og vel rekna leikskóla.“
Mótmæli foreldra gegn
sameiningu hunsuð
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Mótmæli Fulltrúar foreldra í Hamra- og Húsaskóla afhentu borgarstjóra
mótmælaundirskriftir og friðarblóm vegna samruna unglingadeildanna.
Borgin stendur við samruna unglingadeilda í Grafarvogi
„Vilji nánast allra
foreldra barna í
skólunum skiptir
greinilega engu
máli.“
Marta Kr. Hreiðarsdóttir
Fimmtudagur » GS SkórMánudagur Þriðjudagur » 66°NORÐUR
Næstum 30 þúsund manns nota Aukakrónur til að kaupa allt frá matvælum til trygginga
hjá tæplega 300 fyrirtækjum um land allt. Byrjaðu að safna Aukakrónum strax í dag.
„Að nota Aukakrónur
er eiginlega eins einfalt
og það getur verið“