Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 9

Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Mikið var um dýrðir á Austfjörðum í gær þegar ríkisstjórnin kom austur og hélt þar sinn reglubundna fund, sem alla jafna er haldinn í Stjórn- arráðshúsinu í Reykjavík. Fram- kvæmdum í fjórðungnum var heitið, ritað undir viljayfirlýsingar og ráð- herrar hlustuðu á sjónarmið sveit- arstjórnarmanna og annarra íbúa. Eitt af helstu baráttumálum Aust- firðinga er að fá Norðfjarðargöng. Í því skyni afhentu íbúar Fjarða- byggðar innanríkisráðherra undir- skriftir á fjórða þúsund einstaklinga þar sem skorað er á ríkisstjórnina að hefja framkvæmdir við gerð nýrra Norðfjarðarganga eigi síðar en fyrir lok þessa árs. Verkefnið þol- ir enga bið að mati heimamanna, sem telja að samgöngumál standi í vegi fyrir frekari framþróun á Aust- urlandi og sameiningu sveitarfélaga, sem eru alls átta í fjórðungnum. Fjölmenni var við afhendingu undir- skriftanna í Neskaupstað í gær. Fimm stofnanir í eina Einna stærsti viðburðurinn var þó á Reyðarfirði þar sem haldinn var stofnfundur Austurbrúar, samein- aðra stoðstofnana á Austurlandi. Um er að ræða sjálfseignarstofnun sem verður til við sameiningu Þekk- ingarseturs Austurlands, Þróunar- félags Austurlands, Menningarráðs Austurlands og Markaðsstofu Aust- urlands. Austurbrú mun einnig ann- ast daglega starfsemi SSA, Sam- bands sveitarfélaga á Austurlandi. Starfsmenn Austurbrúar, alls um 20, koma frá þessum stoðstofnunum og engum þurfti að segja upp vegna þessa. Austurbrú er fyrsta stofnun sinnar tegundar hér á landi og stefna stjórnvöld að því að hún geti verið fyrirmynd fyrir aðra lands- hluta, í þeim tilgangi að auka skil- virkni og einfalda samskipti lands- hlutanna og ríkisvaldsins. Austurbrú mun hafa sex starfs- stöðvar á Austurlandi þar sem meg- instöðvar verða á Egilsstöðum og Reyðarfirði. Aðrar stöðvar verða á Vopnafirði, Seyðisfirði, Djúpavogi og í Neskaupstað. Framkvæmda- stjóri Austurbrúar var ráðinn Þor- kell J. Pálsson og hóf hann störf 1. apríl síðastliðinn. „Þessari nýju stofnun er ætlað að byggja nokkurs konar brú á milli Austfjarða og ríkisins, einnig á milli sveitarfélaganna og milli íbúa og at- vinnulífsins,“ segir Valdimar O. Hermannsson, sem á stofnfundinum í gær var kjörinn stjórnarformaður Austurbrúar. Valdimar var áður stjórnarformaður SSA og leiddi verkefnisstjórn sem skipuð var til að undirbúa stofnun Austurbrúar. SSA verða áfram til, samkvæmt sveitar- stjórnarlögum, en stjórnsýsla sam- bandsins rennur inn í Austurbrú. Valdimar segir að með þessu fyr- irkomulagi takist mun betur að nýta fjármagn og sérmenntaða starfs- krafta sem hafa verið hjá þessum fimm aðilum. Bendir hann á að sveitarfélögin á Austurlandi séu misstór og verkefni hjá þeim stærstu hafi skarast við þessar stoð- stofnanir, eins og embætti atvinnu- mála- og markaðsfulltrúa. „Nú tekst okkur betur að samræma verk- efnin á milli svæða, þannig að ekki skapist samkeppni á milli sveitarfélaga. Það er hagur allra að samræma þetta og nýta fjármagnið betur. Sókn er besta vörn- in. Það er betra að bjóða fram stóra og öfluga stofn- un sem getur þar með tekist á við stærri og viða- meiri verkefni,“ segir Valdi- mar. Brú milli Austfjarða og ríkisins  Ríkisstjórnin sótti Austfirðinga heim í gær  Stoðstofnanir á Austurlandi sameinaðar undir merkj- um Austurbrúar  Fyrirmynd fyrir aðra landshluta  Undirskriftir afhentar vegna Norðfjarðarganga Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Austurbrú Samningur undirritaður um stofnun stoðstofnunar Austurlands, Austurbrúar, af þeim Þorkatli Pálssyni og Valdimar O. Hermannssyni frá Austurbrú og Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á Reyðarfirði í gær. Ríkisstjórn hélt sinn fyrsta fund á Austurlandi í gær, nánar til- tekið á Gistiheimilinu á Egils- stöðum. Sambærilegir fundir hafa verið haldnir í Reykjanes- bæ, á Akureyri og Ísafirði. Líkt og á þeim stöðum var í kjölfar fundarins tilkynnt um fram- kæmdir í landshlutanum og skrifað undir viljayfirlýsingar. Samanlagt er um rúman millj- arð króna að ræða og lang- stærstur hluti þess fjár, eða um milljarður, fer í byggingu 40 rýma hjúkrunarheimilis á Fljóts- dalshéraði. Undirrituðu Guð- bjartur Hannesson velferðar- ráðherra og Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótdalshéraðs, samning þess efnis. Stefnt er að því að taka húsnæðið í notk- un um mitt ár 2014. Ársverk á framkvæmdatíma verða 90- 100. Tilkynnt var að ríkið muni greiða helming kostnaðar við rekstur jarðfræðiseturs á Breiðdalsvík á næstu fjór- um árum, eða alls 20 millj- ónir króna. Þá var sam- þykkt viljayfirlýsing um frekari úrvinnslu úr áli og sjávarfangi á Austurlandi. Ríkið leggur 20 milljónir til verksins á þessu og næsta ári. Milljarður til framkvæmda AUSTURLAND Valdimar O. Hermannsson Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Mikið úrval af kvartbuxum í fallegum litum Verð frá 8.990 kr. • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook St. 36-52 Full búð af fallegum fatnaði á alla fjölskylduna! F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200 Aðalfundur A 1988 hf. Aðalfundur A 1988 hf. verður haldinn fimmtudaginn 24. maí nk., í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, Reykjavík, og hefst kl. 14.00. Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf skv. 13 gr. samþykkta félagsins. Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhent hluthöfum á aðalfundardaginn frá kl. 13.30 á fundarstað. Reykjavík, 9. maí 2012 Stjórn A 1988 hf. Tillaga um breytingu á 12. gr. samþykkta félagsins liggur fyrir fundinum, að boða þurfi til aðalfundar með tveggja vikna fyrirvara. Dagskrá fundarins, endanlegar tillögur svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Korngörðum 2, Reykjavík, hluthöfum til sýnis 14 dögum fyrir aðalfund. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi þurfa að berast stjórn eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 19. maí nk. kl. 14.00. Framboðum skal skila skriflega til stjórnar A 1988 hf. á skrifstofu forstjóra, Sundakletti, Korngörðum 2-4, 104 Reykjavík. Upplýsingar um framboð til stjórnar félagsins skulu vera aðgengilegar hluthöfum á skrifstofu félagins eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.