Morgunblaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 María Ólafsdóttir maria@mbl.is J óna Sigurðardóttir og Colin Wright fóru nýverið í mikla ævintýraferð með hinu bandaríska Greyhound- rútufyrirtæki. Alls heim- sóttu þau 48 ríki Bandaríkjanna á tveimur mánuðum. Áður höfðu þau búið fjóra mánuði í Kalkútta á Ind- landi og kynnst þar daglegu lífi íbú- anna. Tildrög dvalarinnar má rekja til þess að lesendur Colins, sem held- ur úti ferðablogginu exilelifestyle.- com, kusu Indland sem næsta bú- setustað hans. Hann hefur síðastliðin ár dvalið fjóra mánuði í senn í nýju landi sem lesendur hans kjósa og hef- ur á þeim tíma lagt sig fram um að kynnast landi og þjóð. Enginn lúxus Jóna hefur fylgt Colin á ferðum hans og segir ekki hafa dregið úr ferðaáhuganum eftir að þau kynnt- ust. „Ég er ævintýramanneskja og eins æðislegt og það er að búa á Ís- landi helst ég ekki lengi hér í einu,“ segir Jóna, sem er bókmenntafræð- ingur að mennt og starfar sem sushi- kokkur þegar hún dvelur hér á landi. Jóna og Colin ákváðu Bandaríkja- ferðina með það í huga að Colin, sem rekur eigin bókaútgáfu, langaði prófa að skrifa leiðarvísi fyrir ungt fólk sem hefði ekki efni á að taka sér heilt ár til að skoða heiminn. Þau ákváðu því að ferðast með Greyhoundbus, sem er einn ódýrasti ferðamátinn um Banda- ríkin, og keyptu sér passa sem gerði þeim kleift að ferðast eins mikið og þau vildu í tvo mánuði. „Þar sem við ætluðum að kaupa Með rútu um 48 ríki Bandaríkjanna Ferðalangarnir Jóna Sigurðardóttir og Colin Wright völdu einn hagkvæmasta ferðamátann til að ferðast um Bandaríkin. Þau keyptu sér passa hjá Greyhound- rútufyrirtækinu og gistu heima hjá fólki sem Colin kannast við í gegnum blogg- skrif sín. Þau Jóna og Colin víluðu ekki fyrir sér að ferðast með rútum í tvo mán- uði og lentu í ýmsum skemmtilegum ævintýrum á ferðum sínum. Ferðalangur Ýmsir kynlegir kvistir voru um borð í rútum Greyhound. Litrík Allt er vænt sem vel er grænt, Jóna á St Patrick’s day í New Orleans. Matarblogg er skemmtilegt að skoða bæði til að fá góðar hugmyndir og vatn í munninn. Eitt slíkt er silvias- cucina.wordrpess.com en því heldur úti hin ítalska Silvia Colloca sem nú er búsett í áströlsku borginni Sydney. Silvia leggur upp úr því að gefa uppskriftir að einföldum heimilismat sem eldaður hefur verið í fjölskyldu hennar kynslóð eftir kynslóð. Silvia segir einnig á síðunni að hún hafi nú búið í átta ár utan Ítalíu og á þeim tíma hafi hún séð hve vinsæll ítalskur matur sé um allan heim. Sá misskilningur sé þó víða útbreiddur að ítalskur matur sé þungur í maga og jafnvel fitandi. Þetta vill hún leið- rétta með því að gefa lesendum sín- um uppskriftir að léttari mat, enda sé t.d. ekki notuð mikil feiti í ítalskri matargerð almennt séð. Á vefsíðunni er mikið af girnilegum uppskriftum sem vert er að prófa. Vefsíðan www.silviascucina.wordpress.com Morgunblaðið/Kristinn Létt Yfirleitt er ekki notuð mikil fita í ítalskri matargerð. Ítalskt, létt og gott Borgarkórinn heldur vortónleika sína á morgun, fimmtudaginn 10. maí, klukkan 20:30. Þar mun kórinn flytja létt lög um borgina, ástina, vorið og fleira en tónleikarnir verða haldnir í Grensáskirkju. Um píanóleik sér Hjörtur Ingvi Jóhannsson og stjórn- andi kórsins er Gróa Hreinsdóttir. Borgarkórinn er sex ára gamall kór, skipaður starfsmönnum Reykjavík- urborgar. Kórinn fer í ágúst nk. til Finnlands á kóramótið Nordic-Baltic choir festival. Aðgangseyrir á tón- leikana er 1.000 krónur. Endilega … … hlýðið á Borgarkórinn Tónleikar Borgarkórinn heldur vor- tónleika í Grensáskirkju. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Alda Lóa Leifsdóttir mun segja frá kynnum sínum af landi og þjóð í Tógó í Vestur-Afríku í kvöld klukkan 20 í Gerðubergi. Mun Alda Lóa sér- staklega segja frá kynnum sínum af tógósku kaupsýslukonunni Mireille (Mírey). En frásögnina styður Alda Lóa með fjölda ljósmynda. Mireille kynntist Alda Lóa fyrst í flugvél á leið sinni til Tógó í fyrsta sinn, í janúar 2006. Ári síðar fór hún aftur til Tógó og dvaldi þá með dóttur sinni hjá Mi- reille í nokkra mánuði. Mireille er fjögurra barna einstæð móðir og kaupsýslukona en jafnframt höfðingi samfélags þar sem margt minnir á gamla höfðingjaskipulagið. Hún er af ætt Nana Benz-kvennanna sem voru ríkustu konur Afríku um skeið en þær högnuðust á sölu og dreifingu á vefnaðarvörum sem fram- leiddar voru í Hollandi. Viðurnefni þeirra er dregið af því að þegar ein- ræðisherrann Eyadema tók á móti er- lendum erindrekum á árunum á milli 1960 og 1970 fékk hann Mercedes Benz-bifreiðarnar lánaðar hjá Nana Benz til þess að sækja fyrirfólkið út á flugvöll. Árið 2008 stofnaði Alda Lóa ásamt Gunnari Smára Egilssyni, eiginmanni sínum, hjálparsamtökin Sól í Tógó sem styrkja barnaheimili í Aneho í Tógó. En þau hjónin eiga dóttur sem er frá Tógó og tengjast því landinu órjúfanlegum böndum. Alda Lóa er ljósmyndari og grafískur hönnuður með BA-gráðu í guðfræði og meist- aragráðu í Visuelle Kommunication úr Hochschule der Künste í Berlín. Hún hefur starfað sem blaða- ljósmyndari á Morgunpóstinum, Fréttablaðinu og Nyhedsavisen auk þess að hanna fjöldann allan af bóka- kápum. Hún vinnur nú að framleiðslu tveggja heimildamynda hjá fyrirtæki sínu Nýr kafli auk þess sem haldin verður sýning á ljósmyndum hennar í Þjóðminjasafni Íslands í haust. Stefnumótakaffi í Gerðubergi Af landi og þjóð í Tógó Tógó Kaupsýslukonan Mireille (Mír- ey) sem Alda Lóa mun segja frá. Opið 9-18 alla daga nema sunnudaga • Sími 553 1099

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.