Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 11

Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 11
þennan passa ákváðum við að gera þetta með pomp og prakt og heim- sækja alla áfangastaði á leiðinni. Lúxusinn er enginn á svona ferð og mig var farið að gruna að fólk sem væri utanveltu í samfélaginu væri hvatt til að nýta sér þennan passa til að geta fengið að sofa inni. Á vest- urströndinni var aðeins yngra fólk, eins og maður er vanur úr bakpoka- ferðalögum í Evrópu, en annars var andrúmsloftið dálítið biturt í anda þess að fólk hefði neyðst til að nýta sér þennan fararmáta. Þetta var samt skemmtileg upp- lifun og maður sér menninguna sem er einna minnst sýnd í sjónvarpi og kvikmyndum,“ segir Jóna. Gistu í heimahúsum Áður en Jóna og Colin lögðu af stað auglýstu þau eftir lesendum sem væru til í að hýsa ferðalangana og barst mikið af svörum. En Jóna held- ur einnig úti bloggsíðu. „Þessar rútur fara alveg út um allt, þær mega eiga það. Við settumst því niður og gerðum kort eftir því hjá hverjum við ætluðum að gista og hvernig við kæmumst þangað,“ segir Jóna. Þau gistu aðallega í heima- húsum en í New Orleans gistu þau á glæsilegu hóteli þar sem þau tóku þátt í verkefni sem miðar að því að fá áhrifamikið fólk til að heimsækja borgina. Jóna segir þau ekki hafa rannsakað fólkið mikið fyrirfram en það hafi verið ákveðin sía að velja fólk sem þau hefðu áður átt í samskiptum við í gegnum netið. Undarlegt karlasamfélag Aðeins einu sinni segir Jóna að þau hafi komið á stað þar sem henni þótti óþægilegt að dveljast en það var í Las Vegas. „Við héldum til í lúxusvillu en andrúmsloftið fannst okkur dálítið skrýtið og eins skýringar gestgjaf- anna. Þarna bjuggu strákar sem töl- uðu um að þeir fengju reglulega til sín hóp ungra manna sem dveldi í húsinu í ár í senn. Á þessum tíma væri þeim kennt að öðlast aukið sjálfsálit og hvernig ætti að koma fram við konur. Við uppgötvuðum hins vegar smám saman að þarna vorum við komin inn í mjög undarlegt samfélag ungra manna sem þjálfaðir eru í að ná sér í konur. Samanber bókina The Game sem kom út árið 2005. Þeir fá meðal annars stig eftir því hversu ungar konur þeim tekst að ná sér í og þarna leið mér bara illa og vildi fara. Í Nýju-Mexíkó lentum við líka í óvæntri uppákomu en hún var öllu gleðilegri. Við höfðum verið sótt mjög seint um kvöld og sofnuðum strax þegar á staðinn kom. Fjórum tímum seinna vöknuðum við síðan við harm- onikkuspil með fullt af fólki inni í stofu. Þá var okkur tilkynnt að nú færum við að vinna á búgarðinum en þá vorum við komin í mikla hippa- kommúnu og vorum send út í garð að vinna eldsnemma að morgni,“ segir Jóna og hlær að endurminningunni. Atlanta kom á óvart Ferðin hófst í Columbia, Miss- ouri, þar sem foreldrar Colins búa. Þaðan héldu þau niður vesturströnd- ina og þaðan suður og svo austur að Kanada. Hringurinn var stór og á honum ýmsir krókar um litla bæi miðríkjanna. Segir Jóna að Atlanta í Georgíuríki hafi helst komið á óvart. „Ég bjóst ekki við neinu af Atl- anta og vissi t.d ekki að borgin er titl- uð höfuðborg hipphoppsins. Þarna er góður miðpunktur af suðurríkja- stemningunni með heimsborgara- legri brag. Þarna fórum við t.d. á klúbb sem ku víst vera uppáhalds- klúbbur Lady GaGa,“ segir Jóna. Morgunmatur Fyllt á tankinn. Á faraldsfæti Colin og Jóna í Suður-Dakóta. Þau ferðuðst til 48 ríkja í Bandaríkjunum í ferðinni. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is Hvort sem er til heimilisins eða atvinnunota þá hefur Nilfisk-Alto réttu háþrýstidæluna Nilfisk-Alto háþrýstidælur fyrir iðnaðinn Traustur kostur • Rafknúnar háþrýstidælur • Bensín- eða dísildrifnar háþrýstidælur • Dælustöðvar • Hita-háþrýstidælur Mikið úrval auka-og fylgihluta 100 bar Listaverð kr. 15.400 Tilboðsverð kr. 12.900 110 bar Listaverð kr. 25.600 Tilboðsverð kr. 17.500 120 bar Listaverð kr. 32.300 Tilboðsverð kr. 25.900 130 bar Listaverð kr. 44.300 Tilboðsverð kr. 37.700 Óttar Guðmundsson geðlæknir kynn- ir nýútkomna bók sína Hetjur og hug- arvíl í Bókakaffi Bókabúðar Máls og menningar á Súfistanum, sem stað- sett er innan veggja búðarinnar, í kvöld kl. 20. Í bókinni greinir Óttar hetjur Íslendingasagna með ýmiss konar persónuleikaraskanir og geð- veilu, greinir sambönd hinna ýmsu persóna og veltir fyrir sér hvar þess- ar hetjur væru staddar í nútíma- samfélagi væru þær uppi í dag. Óttar nýtir sér fræði geðlækninga, reynslu sína og innsæi í bókinni en ekki eru allir sammála þeim grein- ingum sem hann teflir fram. Í Bóka- kaffinu mun Óttar ræða þessar grein- ingar sínar og tilurð bókarinnar og svara fyrirspurnum. Búast má við líf- legum umræðum og eru allir hvattir til að mæta sem vilja fá nánari skýr- ingar á efnistökum bókarinnar. Geðveikt bókakaffi Hetjur og hugarvíl á Súfistanum Morgunblaðið/Kristinn Geðlæknir Óttar Guðmundsson greinir hetjur Íslendingasagnanna. Sjón okkar mannfólksins er breyti- leg bæði yfir daginn og ævina alla. Þeim félögum Birgi Jóhannessyni, Hafsteini G. Hafsteinssyni og Guð- mundi J. Haraldssyni, hefur tekist að laga sjón sína með sjónþjálfun. Þeir kalla félagsskap sinn NýSýn og vonast til að æ fleiri kynni sér slíkar aðferðir og prófi þær. Tenging við líkamann „Fólk veit hvernig á að takast á við vöðvabólgu í öxlum með því t.d. að fara í sund og reyna að draga úr stressi. Hið sama á við um augun en fólk veit almennt mjög lítið um hvernig augað virkar. Þess vegna er erfiðara að takast á við vandamálið sjálfur en það er alveg hægt. Að hluta snúast augnvandamál að vöðvabólgum í taugakerfinu og þess vegna er mikilvægt að vera meðvit- aður um líðan sína og vera í teng- ingu við líkamann. Augun eiga ekki að vera einhvern veginn stíf og þreytt rétt eins og vöðvarnir okkar. Það þýðir að við þurfum að hreyfa okkur og teygja. Eins er mikilvægt að vera næmur á eigin líkama til að standa fyrr upp frá borðinu, rölta jafnvel út og hvíla augun. Þannig er alveg hægt að vera í skrifstofustarfi án þess að það þurfi að hafa mjög slæm áhrif á okkur,“ segir Birgir. Sveigjanleiki mikilvægur Birgir er með fulla sjón í dag en segist öðru hvoru fara niður í mínus 0,75 þegar mikið er að gera. Þá sé mikilvægt að losna við stress úr lík- amanum og endurhlaða batteríin. Sjónþjálfun líkt og þeir félagar stunda hefur lengi verið þekkt í jóga. Snýst sjónþjálfunin um að þjálfa vöðvapör í augunum þannig að það teygist enn frekar á augnvöðvunum. Á morgun, fimmtudag, gefst tæki- færi til að prófa slíkar aðferðir á námskeiði í sjónþjálfun hjá dr. Leo Angart, sjónþjálfara frá Danmörku. Notaði hann gleraugu í 26 ár en hef- ur tekist að losa sig við þau með sjónþjálfun. Nánari upplýsingar um námskeiðin má nálgast á www.ny- syn.is en þeir Birgir, Hafsteinn og Guðmundur vinna nú einnig að sjálf- stæðri heimildamynd um augn- þjálfun. Segir Birgir að með þessu vilji þeir gróðursetja þekkinguna og kynna sjónþjálfun fyrir fólki sem kýs að fara heildrænar leiðir er varða heilsu líkama og sálar. Sjónþjálfun kynnt á Íslandi Augað Margir vita lítið um þetta mikilvæga líffæri líkamans. Teygt á augnvöðvum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.