Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 18

Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 VIÐTAL Hörður Ægisson hordur@mbl.is Í kjölfar þess að ríkissjóður gaf út í síðustu viku skuldabréf að fjárhæð 1 milljarð Bandaríkjadala til tíu ára á ávöxtunarkröfunni 6% þá ættu stjórnvöld nú strax að hefja und- irbúning að því að gefa út risastór skuldabréf til 20 og 30 ára, með 1% álagi ofan á bandarísk ríkisskulda- bréf, sem yrðu síðan boðin til sölu gegn greiðslu í krónum eða rík- isskuldabréfum. Þetta er mat Er- lends Magnússonar sem á að baki meira en 20 ára starfsreynslu á al- þjóðlegum fjármálamörkuðum og er nú framkvæmdastjóri fjárfestinga- félagsins Total Capital Partners. Í samtali við Morgunblaðið segir Erlendur að með því að fara þessa leið væri öllum þeim sem geta afhent íslenskar krónur – bæði aflands- og álandskrónueigendur – veittur sá valkostur að kaupa skuldabréf í er- lendri mynt, útgefin af ríkinu, og hægt yrði að bjóða bréfin í Banda- ríkjadölum, sterlingspundum og evr- um. Þau yrðu í kjölfarið skráð á al- þjóðlegan skuldabréfamarkað og samið við 2-3 markaðsvaka til að tryggja virk viðskipti með bréfin á eftirmarkaði. „Þetta væri kjörið tækifæri fyrir þá aflandskrónueigendur sem vilja komast út úr hagkerfinu,“ segir Er- lendur, enda yrðu afföllin við end- ursölu skuldabréfanna á eftirmark- aði hófleg sé miðað við að ávöxtunarkrafan á íslensk rík- isskuldabréf er með 4% álagi ofan á bandarísk rík- isbréf á markaði. „Það ættu að vera fyrir hendi fjár- festar sem hefðu ekkert á móti því að kaupa skulda- bréf af íslenska ríkinu til 20 eða 30 ára með slíkri ávöxtunarkröfu,“ bendir Erlendur á, og telur að með þessum hætti mætti losna við hina títtnefndu snjóhengju. „Þeir sem eiga aflandskrónur og væru ekki viljugir til að taka þessu tilboði væru þá að senda þau skilaboð að þeim liði ekki illa að eiga krónur áfram um hríð og því engin ástæða til þess að hafa af þeim miklar áhyggj- ur.“ Þrátt fyrir að aflandskrónu- stabbinn í hagkerfinu nemi um þús- und milljörðum króna um þessar mundir telur Erlendur ólíklegt að það yrði þörf á skuldabréfaútgáfu að þeirri stærðargráðu – það væri raun- hæfara að gera ráð fyrir um 500 milljörðum króna í þeim efnum. Aðspurður hvort þessi leið hefði ekki í för með sér mikinn kostnað Ríkið ætti að gefa út risastór skulda- bréf til 20 og 30 ára  Bjóða þau til sölu fyrir krónur og ríkisbréf  Losar um snjóhengjuna  Vaxtakostnaður ríkisins myndi lækka Tröllvaxinn vandi Heimild: Greiningardeild Arion banka 1.200 1.000 800 600 400 200 0 Krónur í eigu erlendra aðila Erlendar eignir Íslendinga Innlán Ríkisbréf „Skilanefndarkrónur“ Hlutafé í Arion banka og Íslandsbanka Landsbankabréfið 70% af VLF Erlendar eignir LÍ Aðrir en Lífeyrissjóðir Lífeyrissjóðir Fer út um greiðslujöfnuð Illseljanleg eign Verður seljanlegt Seljanlegt} í milljörðum Erlendur Magnússon Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Þorsteinn I. Sigfússon, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands og forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Ís- lands, fer fyrir rannsóknarverkefni í Rússlandi sem fékk 650 milljónir króna í styrk frá menntamálaráðu- neytinu þar í landi. Markmið rann- sóknanna er búa til efnarafal sem býr til hita og rafmagn úr gasi fyrir mun minna verð en þekkist. Þetta er umhverfisvænni máti til að framleiða orku en nú er nýttur í Rússlandi. „Ég held að það gæti verið skyn- samlegt að stofna sprotafyrirtæki um verkefnið,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið, en háskólinn í Tomsk á verkefnið. Þorsteinn hlaut Alheimsorkuverðlaunin árið 2007 sem oft eru kölluð rússnesku nób- elsverðlaunin í orku sem ætlað er meðal annars að styðja alþjóðlega samvinnu við lausn brýnustu orku- vandamála samtímans. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, afhenti verðlaunin. Þorsteinn hefur í kjölfar- ið unnið mikið að orkumálum þar í landi og var því boðið að leiða um- rætt rannsóknarverkefni. Verkefnið tók þátt í samkeppni hjá mennta- málaráðuneytinu rússneska og hlaut styrk. Hann hefur stýrt því frá byrj- un ársins 2011 og í lok apríl var það kynnt í Þýska- landi á Hannover Messe, sem er risastór iðnsýning og ráðstefna. Þar var sérstakur Rússlandsdagur. Verkefnið var kynnt þar fyrir áhuga- sömum fyrirtækjum og fjárfestum. Rannsóknirnar fara fram þar gerðar voru kjarnorkurannsóknir við Tomsk-háskóla „Þar er gott safn af tækjum sem við höfum notað til að búa til íhluti í rússneskan efnarafal sem getur unnið hita og rafmagn í einu vetfangi úr gasi frá Gasprom. Þetta hefur gengið rosalega vel. Við náum betri árangri nú en áður hefur sést,“ segir Þorsteinn. 650 milljóna króna styrkurinn fer í að byggja upp aðstöðu í háskólanum enda þarf að smíða sérstaka hluti og tæknibúnað fyrir efnarafalinn. Igor Lobovsky, segir að eftirspurn eftir vetnisorku geti skapast ef verðið lækkar úr fimm evrum í tvær. Nýsköpun í orkumálum Þorsteinn I. Sigfússon GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 STURTU- OG BAÐHURÐIR með hertu öryggisgleri STAR STURTUHORN ÁN BOTNS OASIS STURTUHURÐ ÁN BOTNS FLIPPER BAÐHURÐ 85X140 CM Aukið vöruúrval af sturtu- og baðhurðum. Íslenskt fjölskyldufyrirtæki í 30 ár MJÖG GÓÐ VERÐ! PRÓFAÐU LINSUR Í HEILAN MÁNUÐ Allir geta notað linsur – óháð styrk eða sjón- skekkju. Það vitum við því að við erum sér- fræðingar í að finna linsur sem passa einstakl- ingnum. Prófaðu mánaðarlinsur í 30 daga. SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 Gæði í þjónustu – lágir í verðum í 30 daga Prófaðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.