Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 20

Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 Dalvegi 6-8 201 Kópavogur S. 535 3500 www.kraftvelar.is kraftvelar@kraftvelar.is Kraftvélar bjóða breitt vöruúrval atvinnubifreiða frá Iveco Kraftvélar í samvinnu við Iveco leggja áherslu á skjóta og góða varahluta- og viðgerðarþjónustu. Hafið samband varðandi þjónustu eða ósk um tilboð í nýja atvinnubifreið. Vegfarandi í Kíev í Úkraínu virðir fyrir sér styttu af sovéska harðstjór- anum Jósef Stalín. Styttan á að líkjast Manneken Pis, frægri styttu af pilti sem pissar í gosbrunni í Brussel. Úkraínskur þjóðernisflokkur, Bratstvo (Bræðralag), setti Stalínstyttuna upp í úkraínsku höfuðborginni í fyrradag. Í Úkraínu og fleiri fyrrverandi sovétlýðveldum er þess minnst í dag að 67 ár eru liðin frá því að þýskir nasistar gáfust upp í síðari heimsstyrjöldinni. Úkraínski þjóðernisflokkurinn tekur ekki þátt í hátíðahöldunum og mót- mælir þess í stað innlimun Úkraínu í Sovétríkin. Reuters Sovésku hernámi mótmælt Stalín skvettir úr skinnsokknum Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Leiðtogi gríska vinstriflokksins Syr- iza, Alexis Tsipras, kvaðst í gær stefna að því að mynda nýja sam- steypustjórn sem myndi hafna sparnaðaraðgerðum sem Evrópu- sambandið og Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn settu sem skilyrði fyrir neyðarlánum til að afstýra greiðslu- þroti gríska ríkisins. Tsipras sagði í sjónvarpsávarpi að grískir kjós- endur hefðu „augljóslega ógilt lána- samninginn“. Tsipras er 37 ára að aldri og yngsti flokksleiðtoginn í Grikklandi. Flokkur hans fékk næstmest fylgi í þingkosningunum á sunnudaginn var og fékk umboð til stjórnarmynd- unar eftir að leiðtoga stærsta flokks- ins, Nýs lýðræðis, tókst ekki að mynda nýja stjórn. Tsipras hvatti Nýtt lýðræði og jafnaðarmannaflokkinn PASOK, sem hafa skipst á um að stjórna landinu síðustu áratugi, að falla frá stuðningi sínum við lánasamninginn. „Borgararnir hafa hafnað villi- mennskunni í neyðarlánasamning- num með miklum meirihluta at- kvæða,“ sagði hann. „Þeir bundu enda á áform um 77 nýjar sparnaðaraðgerðir í júní, áform um að segja upp 150.000 opinberum starfsmönnum, og viðbótaraðgerðir að andvirði 11,5 milljarða evra [1.800 milljarða króna].“ Meirihlutastjórn ólíkleg Talið er ólíklegt að Tsipras takist að mynda meirihlutastjórn. Flokk- arnir sem hafna skilmálum neyðar- lánanna algerlega fengu samtals 151 þingsæti af 300 og meirihluti þeirra yrði því mjög naumur. Einn þeirra, Kommúnistaflokkurinn, sem fékk 26 þingsæti, hefur þegar hafnað aðild að næstu ríkisstjórn. Grískir fjölmiðlar höfðu þó eftir nokkrum stjórnarskrársérfræð- ingum að hugsanlega gæti sam- steypustjórn komist af með stuðning 120 þingmanna. Það færi eftir því hversu margir þingmenn væru við- staddir atkvæðagreiðslur um van- traust á stjórnina. Vill að stuðningur við evruna verði lágmarkið Tsipras fékk þrjá daga til að mynda nýja stjórn. Takist honum það ekki fær leiðtogi jafnaðar- mannaflokksins PASOK stjórnar- myndunarumboðið. Evangelos Ven- izelos, leiðtogi PASOK og fyrrverandi fjármálaráðherra, sagði að Syriza og Lýðræðislegi vinstri- flokkurinn þyrftu að eiga aðild að næstu ríkisstjórn. „Nauðsynlegt er að mynda breiða samsteypustjórn með aðild allra aflanna sem styðja aðildina að Evrópusambandinu,“ sagði Venizelos. „Lágmarkið er að flokkarnir séu sammála um að Grikkland haldi evrunni.“ Gríska blaðið Ethnos, sem styður jafnaðarmenn, sagði að eina leiðin til að afstýra því að boða þyrfti til þing- kosninga strax væri að Syriza og Lýðræðislegi vinstriflokkurinn kæmu sér saman um forsætisráð- herraefni sem PASOK gæti stutt. Stjórnin hafni skilmálum ESB  Leiðtogi næststærsta flokksins reyn- ir að mynda ríkisstjórn í Grikklandi AFP Næststærstur Alexis Tsipras fagn- ar kosningasigri Syriza. Evran kvödd? » Gríska íhaldsblaðið Eleft- heros Typos sagði í gær að flest benti til þess að stjórnar- myndunarviðræðurnar færu út um þúfur og efna þyrfti til nýrra þingkosninga í næsta mánuði. » Fréttaveitan AFP hafði eftir fréttaskýrendum að stjórnar- kreppan gæti orðið til þess að Grikkland segði skilið við evr- una fyrir lok ársins. Tókýó. AFP. | Japönsk kona um sex- tugt lét ekki innbrotsþjóf vaða yfir sig í íbúð sinni í Tókýó. Þjófurinn flúði af vettvangi tómhentur, og án eins fingurs, sem konan beit af hon- um. Innbrotsþjófurinn réðst að kon- unni þegar hún kom heim til sín í borginni Sapporo í norðurhluta Jap- ans og reif af henni veskið hennar, að sögn lögreglunnar í gær. Maður- inn ætlaði að stinga af á reiðhjóli en konan hljóp á eftir honum, reif þýfið úr höndunum á honum og beit hann í litlafingur. „Fórnarlambið náði töskunni sinni aftur í átökunum og grunaði maður- inn missti hluta af fingri áður en hann slapp burt,“ sagði lögreglu- maður sem sendur var á staðinn. Af- bitni fingurinn fannst á vettvangi og mun vera af hægri hönd þjófsins. Talsmaður lögreglunnar neitaði að svara því hvort fingrafar hefði verið tekið af fingrinum við rannsókn málsins. Beit fingur af þjófnum Benjamin Net- anyahu, forsætis- ráðherra Ísraels og leiðtogi Likud- flokksins, náði í gær óvæntu sam- komulagi við Kadima-flokkinn um að mynda nýja sam- steypustjórn. Með aðild Kadima nýt- ur ríkisstjórnin stuðnings 94 þing- manna af 120. Leiðtogi Kadima, Shaul Mofaz, verður aðstoðarforsæt- isráðherra. Samkomulagið kom á óvart þar sem Netanyahu hafði til- kynnt að hann hygðist óska eftir því að þingkosningar færu fram í sept- ember. Hann hafði þá sætt harðri gagnrýni Kadima. Kjörtímabilinu lýkur í október á næsta ári. ÍSRAEL Netanyahu myndar stjórn með Kadima Benjamin Netanyahu Lömuð bresk kona, Claire Lomas, lauk við London-maraþonið í gær, sextán dögum eftir að það hófst. Konan notaðist við sérstakan búnað byggðan á líftækni sem gerir henni kleift að ganga en hún lamaðist fyrir neðan brjóstkassa þegar hún féll af hestbaki árið 2007. Lomas, sem er 32 ára gömul, var hvött áfram alla leiðina af eigin- manni sínum, móður og dóttur. Hún komst aðeins stutta vegalengd á hverjum degi. Hún er fyrst til þess að ljúka maraþoni með því að nota slík- an búnað að því er fram kom á frétta- vef breska dagblaðsins Telegraph. BRETLAND Lömuð kona lauk London-maraþoni Júlía Tymo- sjenko, fyrrver- andi forsætisráð- herra Úkraínu, ætlar að hætta mótmælasvelti sínu í dag eftir að samkomulag náð- ist um að hún færi á sjúkrahús þar sem þýskur læknir á að ann- ast hana. Skýrt var frá þessu í gær, nítján dögum eftir að Tymosjenko hóf mótmælasveltið eftir að hafa sakað fangaverði um að hafa barið hana. Hún var dæmd í sjö ára fang- elsi í október í fyrra fyrir að misnota vald sitt þegar hún var forsætisráð- herra á árunum 2005 og 2007-2010. ÚKRAÍNA Tymosjenko hættir mótmælasvelti Júlía Tymosjenko

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.