Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 22

Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 22
FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Við höfðum rætt saman ogkynnt þessar kröfur, enþað kom mér á óvart þeg-ar ég las í Morgunblaðinu að ekkert yrði af hvalavertíð í sumar þar sem ekki hefðu náðst samningar við Sjómannafélag Íslands um kaup og kjör,“ segir Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar félags- ins. Í samtali við Morgunblaðið í gær er haft eftir Kristjáni Loftssyni, framkvæmdastjóra Hvals hf., að fyr- irtækið geti ekki gengið að kröfum félagsins um að greiða bætur vegna skerðingar sem orðið hefur á sjó- mannaafslætti. Jónas segir að bætur vegna skerðingar sjómannaafsláttar hafi einnig verið ein meginkrafa félags- ins í viðræðum við ríkið fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar í vetur. Eft- ir um átta vikna verkfall hafi verið fallist á kröfur um þessar bætur og í heildina hafi laun undirmanna á rannsóknaskipum hækkað um yfir 40%. Aðspurður hvort slíkar bætur hefðu fengist í kjarasamningum við Eimskip og Samskip sagðist Jónas ekki geta greint frá efnisatriðum að baki þeim samningum. Lengi umdeildur Steingrímur J. Sigfússon, þá- verandi fjármálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi um ráðstafanir í skattamálum í byrjun desember 2009 og sagði þá m.a. um sjó- mannaafsláttinn: „Sjómannaafsláttur hefur lengi verið umdeildur og gagnrýni á hann hefur vaxið á undanförnum árum af ýmsum ástæðum. Forsendur fyrir honum hafa breyst mjög frá því sem upphaflega var og erfitt að rökstyðja hann gagnvart ýmsum hópum sem að einhverju leyti eru í sambærilegri stöðu eða starfa við sambærilegar aðstæður. Þá hafa vaknað spurn- ingar um sjómannaafsláttinn með tilliti til samkeppnisstöðu og ríkisað- stoðar við atvinnurekstur. Rök fyrir sjómannaafslætti á sínum tíma voru m.a. langar fjar- vistir frá heimili, slæmar vinnuað- stæður og þörf á sérstökum vinnu- fatnaði. Öll þessi atriði hafa breyst eða dregið hefur úr gildi þeirra í samanburði við aðra launþega. Af- skipti ríkisins af kjörum einstakra starfsstétta heyra nú sögunni til og er eðlilegt að þau ráðist í sam- skiptum launþega og vinnuveitenda og eðlilegt er að hver atvinnugrein beri launakostnað af starfseminni þar sem annað veldur misræmi á kostnaði og óhagkvæmni. Hluti af þeim störfum sem nú eru unnin á sjó voru áður unnin í landi án þess að því fylgdi nokkur skattaívilnun. Sambærileg störf eru einnig unnin í landi og felst því mismunun í sjó- mannaafslættinum milli fólks eftir vinnustað. Erfitt hefur reynst að ná sam- stöðu um þetta mál og því fer ríkis- stjórnin nú þær leiðir að láta sjó- mannaafsláttinn fjara út í áföngum á fjórum árum frá og með tekjuárinu 2011.“ Hvalveiðar stranda á sjómannaafslætti Morgunblaðið/RAX Breytingar Sjómannaafsláttur fellur niður í lok næsta árs, en hann hefur verið skertur í áföngum. Myndin var tekin í Grindavík fyrir tveimur árum. 22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ LeiðtogumESB líkarekki kosn- ingaúrslitin í Grikklandi. Þeim er raunar ekki vel við kosningar almennt, en minnst þykir þeim til þeirra kosninga koma sem fara ekki blindandi eftir tilskip- unum. Þegar Papandreo, for- sætisráðherra Grikklands, boð- aði óvænt til þjóðaratkvæða- greiðslu í sínu heimalandi um samninga vegna evrukrísu gerði hann það í heimildarleysi. Búrókratarnir urðu æfir enda augljóst að málið kom grísku þjóðinni ekki við. Þeir þvinguðu því hinn kjörna leiðtoga úr sæti sínu, blésu þjóðaratkvæða- greiðsluna af og sendu Grikkj- um grískan embættismann úr Seðlabanka evrunnar sem hafði jafnan gert allt sem honum var sagt möglunarlaust. Sá var því einkar vel til þess fallinn að stjórna uppgjöfinni fyrir hönd Grikkja. En Brussel gat ekki frestað kosningum til eilífðar, þótt það hefði auðvitað verið best. Því fóru kosningarnar fram. Og at- kvæðin komu öfug upp úr köss- unum. Úrslit kosninganna um síðustu helgi voru fjarri því að fara eftir tilskipunum, sem er afleitt og eru því búrókratarnir í Brussel þegar farnir að dreifa þeim hugmyndum að Grikkir verði látnir kjósa aftur, senni- lega strax í júní. Þetta þekkja þær þjóðir vel sem hefur orðið það á að greiða atkvæði um ESB-mál öðruvísi en ætlast var til. Þær hafa að sjálfsögðu verið látnar kjósa aftur. Hefðu þær kosið rétt strax hefðu þær aldrei fengið að kjósa aftur um það viðfangs- efni. Þetta eru hinar nýju og einföldu reglur lýðræðisins inn- an ESB, sem reynast prýðilega. Enn liggur ekki fyrir hve oft Grikkir verða látnir kjósa í þessari lotu en reynslan sýnir að tvennar til þrennar kosn- ingar séu iðulega nægilega margar til að láta evrópskan al- menning gefast upp. Og af því að Grikkland og Aþena eiga í hlut, þá viðurkennir Brussel auðvitað að þar standi vagga lýðræðisins, en tekur fram að þá vöggu megi auðvitað nota til að svæfa lýðræðið, í samræmi við almenna notkun slíkra gripa og 400 síðna tilskipun sem um þá gildir í álfunni. En ekki er víst að áframhald- andi þvingunaraðgerðir gagn- vart Grikkjum verði lausn, þótt þeir verði að lokum beygðir, rúnir sjálfsvirðingu, niður í svörðinn. Evruveiran breiðist út og bóluefni björgunarsjóð- anna virka ekki. Þannig fjallar Gunnar Rögnvaldsson, sem einn fylgist betur með þróun- inni en fjölmennar fréttastofur ríkisins, um nýj- ustu tíðindi: „Þriðji stærsti banki Spánar, Bankia, hefur skyndilega beðið um að uppstillingu sól- stóla bankans á sólþilfari ESB- Titanic verði breytt, þannig að sólin skíni betur niður á botn bankakerfis þessa evruríkis. Þá finnist sólstóll herra Franco fyrr og áður en geislar evr- unnar ná að skína úr sér allri birtunni ofan í fólkið í landinu. Ríkisstjórn Spánar neitaði því harðlega fyrir aðeins nokkr- um dögum síðan að bankakerfi Spánar þyrfti á nokkurri frek- ari rosalegri björgun frá ríkinu að halda. En nú verður pen- ingum almennings á Spáni í 25 prósent „depression“ atvinnu- leysi hent inn í þennan banka sem stýrt var af herra Rodrigo Rato, fyrrverandi forstjóra Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann hefur nú sagt af sér og er farinn heim að grenja, eftir aðeins tveggja ára lífslengd bankans, sem búinn var til sem þjónandi steypuklessulok ofan á bruna- rústir nokkurra annarra banka og sparisjóða landsins. Þetta er byrjunin á Spáni, 99 af 100 hlut- um evrusprengjunnar sitja þar tifandi eftir.“ Og það eru fleiri sprengjur í jörðu. Nýlega tilkynnti ríkis- stjórn Hollands að grundvöllur hennar væri brostinn. Og vand- inn er ekki bundinn við Hol- land. Herra Holland tekur við sínum lyklum í næstu viku og þessi tilvonandi forseti stórrík- is við Ermarsund lofaði ýmsu upp í ermina á sér. Búrókrat- arnir geta ekki auðveldlega rekið óþægan mann úr svona stóru ríki. Þeir eiga létt með þrjóskan samningamann um makríl og ráðherra sem gætir „of vel“ hagsmuna eigin þjóðar. Í tilviki hinna norrænu hand- langara sinna nægir búrókröt- um í Brussel að senda SMS. Viðtakendur gera allt fyrir stækkunarstjórann sinn og spyrja einskis. Grikkland, Slóvakíu og Ung- verjaland og jafnvel Ítalíu í ógöngum má hrista til öndvert lýðræðislegum leikreglum. En snúið að segja Frökkum að kjósa sér nýjan forseta. Kannski gætu þeir skipt um nafn á embættinu eins og þegar þeir kölluðu föllnu stjórnar- skrána bara Lissabonsáttmál- ann? Varla. Það verður að finna enn nýja leið fyrst ESB-þjóð hefur misnotað „heimabrúks“- lýðræði, þannig að það skaði ráðagerðir sem hinir andlits- lausu og umboðslausu herrar Evrópu höfðu gert. Það verður fróðlegt að fylgjast með næstu skrefum á þessari afturgöngu, en það verður ekki skemmti- legt. Það eru víða stuttir kveikiþræðir}Sprengjur tifa Þ egar ég fer í frí verð ég alltaf jafn hissa á því að Morgunblaðið skuli koma út þó ég sé ekki í vinnu. Á hverjum frídegi fletti ég blaðinu stórundrandi yfir því að samstarfs- menn mínir skuli komast af án mín – hvernig má það vera? spyr ég sjálfan mig og velti því fyrir mér hvort ég sé kannski ekki svo ómiss- andi eftir allt saman. Þá sjaldan ég hugsa til dauðans koma upp ámóta hugrenningar: Mun ekki allt hætta að vera til þegar ég er allur? Hvernig gæti heimurinn komist af án mín? Í ritgerðinni Hverfulleiki mannlegra afreka lýsir Daniel Defoe (1661-1731) því að hann hafi um nokkurn tíma dundað sér við að lesa ævi- sögur mikilmenna sögunnar langt aftur í aldir. „Á leið minni hef ég rekist á Skíþíumanninn Ta- merlane, Egyptann Tomombejus, Solyman hinn mikla og aðra af kynþætti múhameðstrúaðra eða Ott- ómana; og þegar rakið er allt það stórbrotna sem þeir hafa áorkað, hef ég rekið mig á að sama er um þá sagt, hvern af öðrum; OG SÍÐAN DÓ HANN, allir dauðir, dauðir! Hie jacet er lokin á þeirra sögu.“ Í ljóðinu Einn kemur þá annar fer eftir Davíð Stefáns- son (1895-1964) segir skáldið: Það heldur allur fjöldinn, sem hefur mörgu að sinna, að hætta sé á ferðum, ef breytt er gömlum sið, að gæfa heimsins hvíli á verkum sem þeir vinna, og vonlaust sé um allt - ef þeirra missti við. Sigurður Pétursson, sýslumaður og skáld (1759-1827), orti þessi eftirmæli um sjálfan sig: Hans sál á himni að flestra von hann át og drakk og svaf og svo dó hann. 1934 tók Rita Abadzi (1914-1969) upp harm- sönginn Gazeli Neva Sabah, Stund dauðans: „Allir staldri við og hugleiði stund dauðans / Í svartan jarðveginn munu þeir hverfa og nöfn þeirra gleymast.“ Öll hugleiddu þau dauðann, hvert á sinn hátt, en komust að sömu niðurstöðu. Nú má ekki skilja þetta svo, kæri lesandi, að ég sé sífellt að hugsa um dauðann; það kemur ekki oft fyrir að ég hugsi um minn dauða, ef svo ólíklega myndi fara að hann bæri að, en samkvæmt nýlegri rannsókn bandarískra sálfræðinga (Personality and Social Psychology Review 5. apríl 2012) er öllum hollt að hugsa um dauðann, og þá ekki bara dauða annarra, eins og alsiða er, heldur sinn eigin dauða. Vitneskja um að maður sé dauðlegur getur nefnilega orðið til þess að fólk beini lífi sínu í aðra og betri átt, gæti betur að heilsu sinni og sækist eftir því sem gefur lífinu fyllingu og gildi, til að mynda auknum og bættum samskiptum við ættingja, vini og ástvini. Staldraðu því við, kæri lesandi, og hugleiddu dauðann, nema náttúrlega þú sért í senn ómissandi og ódauðlegur. Eins og ég. Árni Matthíasson Pistill Mundu dauðann STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi í lok árs 2009 var ákveðið að afnema sjómannaafsláttinn á fjórum árum. Hann hefur nú verið skertur tvívegis um 25% og er nú helmingur þess sem hann var áður. Í lok árs 2013 verður hann að fullu afnuminn. Sjómannaafsláttur var rúmar 900 krónur á dag. Sjómannasamband Íslands fer með kjarasamninga undirmanna á fiskiskipaflotanum gagnvart viðsemj- endum. Samningar við Landssamband íslenskra útvegsmanna hafa verið lausir frá ársbyrjun 2011 og ekki eru í gildi samningar við Landssamband smábátaeigenda. Gagnvart LÍÚ var í vetur gerður samningur um kaupliði, en eldri samningur gildir að öðru leyti. Sjómannasambandið lítur þannig á að ríkið hafi vísað kjaraskerðingu sem felst í afnámi sjómannaafsláttar til LÍÚ. Þar á bæ hefur óvissan um framtíð fiskveiðistjórnunar skyggt á annað og formlegar viðræður um kjarasamninga sjómanna ekki átt sér stað á þessu ári og því síðasta. ENGAR VIÐRÆÐUR SJÓMANNA OG LÍÚ Óvissa um fiskveiðistjórnun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.