Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 23

Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 Upp Ungviðið á það til að vilja upp þegar eitthvað verður á vegi sem býður upp á það. Þessi börn voru ekki lengi að taka til við prílið þar sem þau voru á ferð við Knarrarósvita á suðurströndinni. Golli Össur Skarphéð- insson er útsmoginn og staðráðinn í því að koma Íslandi inn í ESB. Hann kann tvennt mjög vel það er annars vegar að „daðra“, og hins vegar að erta viðsemjendur sína. Uppeldi hans átti sér stað á kalda- stríðsárunum og hann er vel lærður í karphúsi heims- valdastefnunnar. Og óskaplega leikur hann ráðherra Vinstri grænna grátt, hann lét ESB snupra Jón Bjarnason, fyrrv. sjáv- arútvegs og landbúnaðarráðherra, hvað eftir annað af því að aumingja Jón vildi ekki sætta sig við aðlög- unarferlið. Jón taldi það brigður og andstætt því samningaferli sem boðað var með umsókninni. Og svo var Jóni ýtt út í kuldann og þeir ályktuðu í Brussel hvað íslenska ríkisstjórnin væri miklu betri eftir að Jón var settur af. Og Íslend- ingar í sínu sakleysi trúa því að Jón hafi orðið sér til skammar. Nú er aðeins ein fyrirstaða í rík- isstjórninni eftir í ESB-ferlinu það er Ögmundur Jónasson innanrík- isráðherra. Hann lætur öðru hvoru eins og hann sé að ávarpa útifund og mótmælir þá hinu og þessu og veldur Samfylkingunni skaða á vegferð sinni til ESB. Ögmundur tekur t.d. ekki þátt í leikritinu um Nubo á Grímsstöðum og vildi þar fara að íslenskum lögum og stjórn- arskrá. Össur fer sínu fram Grímsstaðaævintýrin sem nú ganga yfir eru samkvæmt mínum heimildum sviðsett að hluta til. Össur kann vel að leika tveimur skjöldum. Leikritið er sett á svið til að kalla fram viðbrögð og erta ESB og Stefán fúla í Brussel til að narra út úr þeim undanþágur í ESB- ferlinu. Ekki er það síst hvað sjáv- arútveginn og auðlindir okkar varð- ar, þar sem andstaða Íslands er hvað mest. Nubo er auðvitað að hugsa um heimsvaldastefnu Kína að koma löpp síns rík- is inn á landakortið hér eins og víða í Evr- ópu. Þar eru norð- urslóðirnar jafn of- arlega í huga hans og Kínverjanna eins og Brusselmanna og svo spilar valdapólitík í eigin landi stórt, hann gerir allt í nafni þess. Nubo gortar sig svo af afrekum sínum og stórbrotnum „lands- ölusamningi,“ í formi leigu og seg- ist hafa komið þessum Ögmundi frá málinu. Já, inngripin koma nú utan frá og ráðherrar vorir sem malda í móinn eru settir til hliðar í leiknum við stórveldin. Svona er hin nýja Íslandssaga en hvar fiskurinn liggur undir steini vita allir landsmenn. Samfylkingin ætlar inn í Evrópusambandið og leikur marga furðuleiki til þess að ná því fram. Nú er framundan nýtt inngrip, sérstök gleðivika ESB á Íslandi (auðvitað óháð allri aðild- arumsókn) svona hátíð eins og ung- mennafélögin stóðu fyrir hér áður fyrr. Öðruvísi mér áður brá þegar við vinstrimenn girtum Kanana af í Miðnesheiðinni og lokuðum Kana- útvarpinu. En í þá daga vildu menn ekki inngrip í sjálfsákvörðunarrétt Íslands. Nú er öldin önnur og Öss- ur „glaði,“ spyr Steingrím J. Sig- fússon okkar gamla landvörslu- mann ekki leyfis í einu eða neinu þótt það sé nú blessaður Stein- grímur einn sem ber ríkisstjórnina áfram. Eftir Guðna Ágústsson »Nú er aðeins ein fyr- irstaða í ríkisstjórn- inni eftir í ESB-ferlinu það er Ögmundur Jón- asson innanríkisráð- herra. Guðni Ágústsson Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra. Útsmoginn er Öss- ur Skarphéðinsson Fréttin á Stöð 2, um möguleika kræklinga- bænda til að afla sér lífs- viðurværis, vakti ekki beinlínis með manni von- ir um að hér færi að birta til í atvinnumálum. Eftir að umhverfis- og mat- vælastofnanir hafa farið sínum óblíðu höndum um vonir þeirra og vænt- ingar má ætla að jafnvel þrælarnir í þvottahúsum Beijing hafi það betra. Þeir fá í það minnsta súpu- skál og grjónakorn í laun fyrir dags- verkið sem nærir betur en skuldasúp- an sem stjórnvöld hafa skammtað þessum grunlausu einfeldningum sem hafna atvinnuleysisbótum og lögðu tóg í sjó til að sjá sér farborða. Og búrókratarnir í stofnunum sem enginn veit tölu á láta ekki þar við sitja heldur rukka nú eitt ólánsgreyið um 38 þúsund kall fyrir að móttaka bréf sem aldrei átti að senda. Einn stjórnarþingmaður sem innt- ur var álits á fréttinni taldi að hugs- anlega hefði eftirlitsárátta stjórn- arherranna farið dálítið framúr sér. En bara hugsanlega. Engum kemur til hugar að leggja þessar stofnanir niður eða sameina öðrum og því síður dettur nokkrum í hug að fækka mætti þessum „autopilot“ skriff- innum sem fylla hverja holu sem troða má rassi og heilalaust senda reikninga fyrir ekkert. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurð- ardóttur verður seint vænd um að rýra hlut stofnananna sem bólgnað hafa úr öllu hófi, enda hlýðin tilskip- ununum að ofan. Tiltekt og aðhald nær helst til stofnana sem almenn- ingur stólar á þegar á bjátar, s.s. heil- brigðisþjónustu og löggæslu, sem enn eru aflögufærar að mati ríkisstjórn- arinnar, þrátt fyrir tuga prósenta nið- urskurð. Þar má skera inn að beini og beri einhver skaða af má úrvinda starfsfólk taka skellinn. Í millitíðinni heldur stjórnin ótrauð áfram að sinna velferð stofnana sinna og starfsmanna þeirra. Og allt er það gert í nafni endurskipulags og sparn- aðar. Breytingarnar á stjórnarráðinu sem nú eru til umræðu eru einmitt ein slík sparn- aðaraðgerð. Þar er rösklega tekið til hendi og ráðuneytum sem við upphaf stjórn- artíðar Jóhönnu voru 12 skal nú fækkað í 8. Og nú skyldi maður spyrja: er það ekki hið besta mál? Jú, vissu- lega, ef ekki fylgdi sá böggull skammrifi að um leið og nýju nafnplöturnar fara í slátt mun fjölföldunarvélin spýta út röð af nýjum ráðherrum. Tilkoma yf- ir og undir og undirundir ráðherra munu kalla á sæg nýrra blýantsnag- ara svo friðþægja megi kröfum ESB um „enn öflugri“ eftirlitsstofnanir. Ekki dugar að láta kræklingabændur eina lúta eftirliti. Nú þarf að sauma kerfið að katöflubændum, berja- bláum fjörulöllum og öllum þeim sem enn eru svo einfaldir að halda að auð- lindir á eigin landi lúti einkaeign- arrétti. Slík lausung skal ekki liðin. Það sem hér er stefnt að er nokk- urs konar Grikklandsvæðing sam- kvæmt bestu Evrópustöðlum. Án að- stoðar ESB hefði Grikkjum ekki tekist að koma sér í þessa holu sem þeir nú eru í. Ódýr lán flæddu inn í landið frá ESB-ríkjunum með sér- sniðnum vöxtum þýska hagkerfisins. Til að viðhalda innstreyminu var bók- haldið barið til hlýðni og endalaus Vaðlaheiðargöng fengu forgang utan fjárhagsáætlana. Virðing Grikkja fyr- ir ríkiskassanum var ámóta og Jó- hönnustjórnarinnar. Stjórn- málamenn notuðu atkvæði sem hverja aðra skiptimynt. Hver ný rík- isstjórn sem við völdum tók greiddi fyrir greiðann með nýjum stofnunum og starfsmönnum og búrókratarnir í Brussel fögnuðu dátt og hvöttu til enn frekari dáða. Eftirlitsiðnaðurinn blés út eins og blöðrur í gleðigöngu. Vottorð og fylgiskjöl urðu hverjum þeim sem stofna vildi fyrirtæki jafn nauðsynleg og andardrátturinn. Dugði ekkert minna en 200 blaðsíður af stimplum og „tilbehör“, svo opna mætti sjoppu á horninu. Starf í eft- irlitsstofnun var hins vegar falt fyrir andvirði eins símtals. En nú er komið að skuldadögum. Lífeyrir hefur verið skertur um 25% og laun opinberra starfsmanna um 60%, það er að segja þeirra sem ekki hafa þegar misst vinnuna. Almennt vonleysi ríkir; eng- ar atvinnuleysisbætur og heilsugæsl- an í molum. Í dag er vagga vestrænn- ar menningar í gjörgæslu hins þríhöfða þurs: ESB, AGS og ECB. Þessi dýrkeypta lífsreynsla Grikkja stendur Íslendingum nú til boða. Ríkisstjórn „jafnaðar“ keyrir á öllum strokkum til að koma okkur þangað, því nú þarf batteríið í Brussel nýtt blóð. Líkt og Drakúla forðum, nærist þýsk-franska sambandið á lífs- blóði annarra. Aldrað og ófrjótt getur það ekki lengur staðið undir loforð- unum sem á sínum tíma fylltu augu Grikkja, Íra og Spánverja stjörnum. Nú er að opinberast að völd og pen- ingar ráða öllu. Þetta er nýtt afbrigði af gamla sovéska kerfinu, þar sem peningar eru færðir frá þeim sem enn geta aflað til þeirra sem ekki kunna. Óarðbær verkefni eru fjármögnuð með framlögum ríkja sem á degi hverjum þrengja mittisólina. Grikk- land, sem tæpast brauðfæðir sig, er t.d. gert að greiða í ár 41 milljón evra til viðhalds ríkisstyrktum stofnunum ESB (NGOs), sem bruðla með 2 millj- arða á ári og ólíkt öðrum lúta ekki að- haldi heldur hafa þanið útgjöld sín um 33% á síðustu tveimur harðræð- isárum. Eftirlitsiðnaður ESB kæfir sjálf- stæða hugsun og gerir menn að þræl- um. Fyrstu fórnarlömbin sitja nú í ríkisstjórn á Íslandi og taka við boð- um frá Brussel. Eftir Ragnhildi Kolka » Stofnanavæðing rík- isstjórnarinnar er helstefna sem kæfir hinn náttúrulega vilja mannsins til að lifa af; frumkvæði hans og sjálfsbjargarviðleitni. Ragnhildur Kolka Höfundur er lífeindafræðingur. … þar sem lífsþrekið er barið niður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.