Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 27

Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 ✝ Andrés Ólafs-son fæddist á Ísafirði 22. ágúst 1921. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ 27. apríl 2012. For- eldrar hans voru Ólafur Jón Gests- son húsa- míðameistari á Ísa- firði og kona hans Guðrún Guðna- dóttir. Bróðir Andrésar var Gunnar, arkitekt og síðar skipulagsstjóri í Reykjavík, f. 1915, d. 1959. Kona hans var Þorbjörg S. Sigurbergsdóttir, f. 1915, d. 1991. Andrés kvæntist árið 1949 Arndísi Stefaníu Benedikts- 1946, starfsmann Icelandair, kvæntan Sjöfn Sóleyju Sveins- dóttur, þau eiga tvö börn, Ölmu Maríu og Svein Benedikt. Móð- ir Rögnvaldar var Sigríður Jensína Þóroddsdóttir, f. 1915, d. 1999. Andrés ólst upp í foreldra- húsum á Ísafirði, lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Akureyri og guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1947. Skipaður sóknarprestur í Stað- arprestakalli 1948 sem síðan varð Hólmvíkurprestakall. Pró- fastur í Strandaprófastsdæmi 1951-71. Andrés þjónaði lengst af einnig Árnesprestakalli. Hann lét af prestskap 1982 og flutti til Reykjavíkur. Kirkju- vörður var hann í Dómkirkj- unni frá 1982 til ársloka 1997. Útför Andrésar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 9. maí 2012, kl. 13. dóttur, f. 31.10. 1919, hún lést 3.4. 1994. Foreldrar hennar voru Bene- dikt Finnsson, bóndi og versl- unarmaður á Hólmavík, og kona hans, Guðrún Ingi- mundardóttir. Þau eignuðust tvo syni, Hlyn, f. 21.3. 1950, tannlækni, kvænt- an Björgu Sigurðardóttur, þau eiga þrjú börn, Hörpu, Andrés Arnar og Sigurð Bjarka. Bene- dikt viðskiptafræðing, f. 11.7. 1953, kvæntan Evgeniiu Bi- letska, þau eiga eina dóttur, Maríu. Fyrir átti Andrés soninn Rögnvald Reinharð, f. 2.4. Hlýja, virðing og gleði eru þau orð sem mér detta fyrst í hug þegar ég hugsa um hann afa minn. Hann var einstakur maður sem auðvelt var að bera virðingu fyrir. Það stafaði af honum mikil hlýja og ég man hann bara bros- andi og glaðan. Fyrstu minningar mínar um afa og ömmu eru frá Hólmavík. Ég man eftir stóra fallega hús- inu, garðinum og stóru kisunni sem ég var svo hrifin af. Ferð- irnar til Hólmavíkur voru ævin- týraferðir. Ég dáðist alltaf að fallegu sambandi ömmu og afa. Þau báru mikla virðingu hvort fyrir öðru og ástin skein af þeim. Þau töluðu alltaf svo fallega hvort til annars og mér leið alltaf svo vel í návist þeirra. Mér fannst einnig svo fallegt hvernig afi tók andláti ömmu sem lést allt of snemma. Trú þeirra var svo einlæg. Þau vissu að þau væru ekki að kveðja hvort annað heldur yrði aðskiln- aður þeirra tímabundinn og þannig varð sorgin eftir að amma fór bærilegri. Þó svo að afi hafi látið af prestskap 1982 gaf hann okkur hjónin saman og skírði börnin okkar og er ég óendanlega þakk- lát fyrir að eiga þær minningar. Eftir að afi og amma fluttu til Reykjavíkur störfuðu þau bæði í Dómkirkjunni og ósjaldan kom ég við í kirkjunni þegar ég átti leið í bæinn. Það var svo gott að heilsa upp á þau og fá faðmlag og bros. Þegar ég var fermd kom því ekki annað til greina en að fermast í Dómkirkjunni hjá afa. Í dag verða skrefin til kirkjunn- ar þyngri en áður en þó er hugg- un harmi gegn að athöfnin verð- ur nákvæmlega eins og afi var búinn að ákveða hana. Ég veit að afi er nú alsæll í faðmi ömmu eftir 18 ára aðskiln- að og þakklátur fyrir gott og gæfuríkt líf. Fagna þú sál mín. Allt er eitt í Drottni, eilíft og fagurt – dauðinn sætur blundur. Þótt jarðnesk dýrð og vegsemd visni’ og þrotni, veit ég, að geymast handan stærri undur, þótt stórtré vor í byljum jarðar brotni, bíður vor allra’ um síðir Edenslundur. Alma María Rögnvaldsdóttir. Það koma góðar minningar upp í hugann þegar ég hugsa um Andrés afa. Minningar um Hólmavík að sumri til, í garðin- um hjá afa og ömmu, í kirkjunni hjá afa og ferðirnar með afa í Volvónum hans. Eftir að þau fluttu til Reykjavíkur bjuggu þau í Ásgarði, svo síðar í Árskóg- um og var alltaf gott að heim- sækja þau. Alltaf leið manni vel hjá Andrési afa og Öddu ömmu. Afi glímdi við veikindi síðustu sex ár ævi sinnar og er það mikil synd að börnin mín skyldu ekki fá að kynnast honum fullfrískum. Við kveðjum góðan mann í dag sem ég sá aldrei skipta skapi. Hann var alltaf brosandi og hlýr. Elsku afi, ég vona sannarlega að barnabörnin mín muni minnast mín með sama hætti og ég minn- ist þín. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Sveinn Benedikt Rögnvaldsson. Í dag þegar við kveðjum Andrés afa rifjast upp góðar minningar frá liðnum árum. Fyrstu minningarnar um afa og Arndísi ömmu eru frá Hólmavík, en þangað fór ég með mömmu og pabba á sumrin, í jólafríum og páskafríum fyrstu árin mín og man ég vel eftir því að hafa verið dregin af afa á sleða í miklum snjó út í kaupfélag til að kaupa jólaöl og einnig fékk ég að hjálpa til í garðinum við prestsbústað- inn á sumrin. Það er gaman að rifja upp góðar minningar þaðan. Eftir að amma og afi fluttu til Reykjavíkur í Ásgarðinn vorum við tíðir gestir þar og oft fengum við Andrés bróðir minn að gista þar og koma svo einnig með í Dómkirkjuna þar sem þau bæði störfuðu sem kirkjuverðir. Uppi á kirkjulofti voru nær alltaf ein- hverjar kræsingar til að hætti Arndísar ömmu og af kirkjuloft- inu fékk ég að fylgjast með nokkrum brúðkaupum og þar skipulagði ég alveg í huganum hvernig mitt brúðkaup ætti að vera. Það var því einstaklega gaman að Andrés afi skyldi fyrir tæpum átta árum gefa okkur Begga saman í Dómkirkjunni, þá 83 ára gamall, og svo þar á eftir skíra eldri dóttur okkar. Þetta þykir okkur einstaklega vænt um. Andrés afi hafði einstaklega gaman af því að ferðast, og voru þau ófá ferðalögin sem við fjöl- skyldan fórum með ömmu og afa til útlanda. Hann var einnig dug- legur að ferðast einn eftir að amma féll frá og má þar einna helst minnast ferðarinnar til Jerúsalem, en það var hans síð- asta utanlandsferð, sem hann var einstaklega stoltur af að komast í. Ég veit að það hefur verið vel tekið á móti afa þegar hann kvaddi þennan heim. Ég er þess viss að hvíldin hefur verið honum afar kærkomin. Minnig þín mun ætíð lifa, elsku Andrés afi minn. Harpa Hlynsdóttir. Langur vetur er loksins liðinn. Himinninn grét fögrum og nær- andi regndropum þegar góður maður kvaddi. Vorið er fallegur tími, íslenska sumarið rétt hand- an við hornið. Það er alveg í takt við ágæti þess manns sem nú er kominn í faðm ástkærrar eigin- konu sinnar, sem hann saknaði mikið. Þeir endurfundir hljóta að vera jafn fagrir og undursamleg- ir og hjónin sjálf voru. Ég var ekki svo heppinn að fá að kynn- ast Arndísi, hún lést áður en ég kynntist Hörpu minni, en mikið hefur hún verið yndisleg kona. Andrési Ólafssyni kynntist ég þegar við Harpa, sonardóttir hans, hófum samband okkar fyr- ir sautján árum. Við Andrés urð- um strax góðir vinir. Hann var fróður um alla hluti, alltaf stutt í yndislegan smitandi hláturinn, oft fékk ég hann til þess að slá á læri sér og nánast gráta úr hlátri. Það var alltaf svo gaman að spjalla við Andrés. Hjartahlýjan sem streymdi frá honum var mikil, ánægjan af því að lifa og njóta svo sterk. Í fjölskylduboð- unum vorum við Andrés ávallt þeir sem síðastir stóðu upp frá borðinu, við nutum hvers bita og vorum lengi að borða. Það eru þessar góðu stundir sem rifjast upp, þegar maður í sorg sinni skrifar þessi fátæklegu orð um yndislegan mann. Nú í júní eru átta ár síðan hann gifti okkur Hörpu. Árin sem við fengum með honum eru ómetanleg. Ég er þakklátur og hrærður. Það tekur gríðarlega á þegar maður sér að lífsgleðin og viljinn til að lifa er horfinn. Líkaminn, þótt sterkur hafi verið, hefur gefist upp og endirinn, endastöð okkar á þessari jörð, er nálægur. En hvað tekur við? Ég ræddi það oft við Andrés. Báðir trúðum við á Guð almáttugan og upprisuna, hið eilífa líf. Ég trúi því að minn kæri vinur og afi konu minnar sé nú hamingjusamur á ný, í faðmi ástvina sinna á himnum. Arndís, Finnur og fleiri umvefja hann nú þeirri ást og hlýju sem við þurf- um þegar við förum úr einni til- veru yfir í aðra. Ég bið þess að Andrés hafi kvatt okkur sáttur maður með tilveru sína hér, ævi- starf hans mikið og óeigingjarnt, dáður og elskaður af öllum. Ég kveð hann með sorg og miklum söknuði, þrátt fyrir að ég viti að hvíldin hafi verið honum kær- komin. Ég mun borða purusteik og drekka bjór með, honum til heiðurs. Við elskuðum báðir pur- usteik og nutum þess ætíð þegar Björg, tengdadóttir hans og elskuleg tengdamóðir mín, eld- aði fyrir okkur slíka stórmáltíð. Hlynur, Bensi og Röggi, miss- ir ykkar er mikill sem og okkar hinna sem elskuðum föður ykk- ar. Ég samhryggist ykkur inni- lega, sendi öllum í fjölskyldunni, vinum og þeim sem Andrés snerti á einhvern hátt með visku sinni og góðmennsku mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Þegar við hittumst á ný, sem við gerum, þá býð ég í mat og drykk, hlátur, gleði og hamingju. Hvíldu í friði elsku Andrés og Guð blessi þig. Minning þín mun lifa að eilífu. Friðjón Björgvin Gunnarsson. Í dag er kvaddur frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík séra Andr- és Ólafsson, fyrrverandi prófast- ur á Hólmavík. Hann var giftur móðursystur okkar, Arndísi Benediktsdóttur, og voru þau gefin saman í Dómkirkjunni árið 1949. Þau bjuggu lengst af á æskuslóðum Öddu á Hólmavík eða allt til ársins 1982 þegar Andrés lét af störfum. Þau hjón- in fluttu á þeim tímamótum til Reykjavíkur og gerðust kirkju- verðir við Dómkirkjuna. Andrés sinnti lengst af stóru prestakalli þar sem samgöngur voru oft erfiðar. Stundum þurfti að fara sjóleiðina frá Hólmavík til að sinna prestsverkum og gátu ferðirnar tekið nokkra sól- arhringa. Strax og Andrés hóf störf byrjaði hann að húsvitja og má segja að hann hafi þekkt hvert einasta mannsbarn í allri norðanverðri Strandasýslu. Andrés beitti sér fyrir byggingu kirkju á Hólmavík og var hún byggð eftir teikningu Gunnars Ólafssonar, arkitekts og bróður Andrésar. Þegar fjölskyldan kom saman var Andrés hrókur alls fagnaðar. Hann hafði fallega söngrödd og eftirminnilegt var að heyra hann tóna fyrir altari. Þrátt fyrir heilsubrest á síðari árum gat hann alltaf sungið og kunni alla texta. Á uppvaxtarárum okkar á Hólmavík voru tengsl fjöl- skyldna okkar mjög mikil og hafa haldist þannig alla tíð. Margar góðar minningar eigum við um skemmtilegar samveru- stundir, þar á meðal dagsferðir til Reykhóla og út á Gálma- ströndina og stundum var skroppið með nesti upp í Kálfa- nes. Andrés skírði okkur systkinin og fermdi og hélt áfram að sinna prestsverkum fyrir fjölskylduna og Strandamenn eftir flutning til Reykjavíkur. Síðasta prestsverk sitt innti hann af hendi árið 2005. Það var skírn lítillar stúlku sem fæddist í Kína og var gefið nafn- ið Sara Xiao Reykdal. Adda og Andrés voru einstak- lega samhent hjón. Í störfum sínum á Hólmavík naut Andrés stuðnings konu sinnar og í Dóm- kirkjunni nutu þau sín afskap- lega vel hlið við hlið. Heimili þeirra einkenndist af gestrisni og hlýju og alltaf var jafngott að koma til þeirra. Adda lést árið 1994 eftir erfið veikindi og sakn- aði Andrés konu sinnar mjög. Naut hann góðs stuðnings sona sinna og fjölskyldna þeirra eftir fráfall hennar. Við þökkum Andrési sam- fylgdina og erum ekki í vafa um að Adda, móðursystir okkar, hef- ur tekið á móti honum í nýjum heimkynnum. Sigrún, Guðrún og Ólafur Reykdal. Árið 1982 þurfti að fá nýja kirkjuverði að Dómkirkjunni. Er ég kom úr sumarleyfi það ár, lágu margar umsóknir fyrir, m.a. annars frá sr. Andrési og konu hans Arndísi Benediktsdóttur. Ég var þá að því spurður, hvort ekki yrði erfitt fyrir okkur sr. Hjalta að fá prest sem kirkju- vörð, mann sem væri eldri en við, fyrrverandi prófastur og trúlega fastur í formum. Vegna margra ára kynna minna af margþættum mannkostum sr. Andrésar og raunar þeirra beggja gat ég vís- að öllu slíku á bug. Þau komu því þarna til starfa, sem hún gegndi til dauðadags 1994, en hann til 76 ára aldurs, 1997. Ég er oft búinn að segja það síðan, að við höfum fengið þarna bestu kirkjuvarðarhjón í heimi. Því hefur enginn treyst sér til að mótmæla. Það varð svo í senn hamingja þeirra og gleði okkar, sem nutum, hve þetta tókst allt vel. Það var einstakt að fá kirkjuvörð, sem sameinaði svo vel þekkingu og þjónustulund sem sr. Andrés. Og Arndís var honum algerlega samstiga. Kór- óna þessara hluta var svo ein- lægni þeirra og trúargleði sem þátttakenda í helgihaldinu. Þó að undirritaður sé í senn nokkuð stjórnsamur og ráðríkur, þá kom það aldrei að sök. Ástæð- an var ekki bara ljúflyndi þeirra hjóna, heldur, eins og sr. Andrés sagði oft, að skoðanir okkar á guðfræði, helgisiðum og kirkju- pólitík fóru nákvæmlega saman. Við vorum í þessu eins og sterk tvennd, þar sem aldrei bar neitt á milli. Það hlýtur líka að vera einsdæmi, þegar dómkirkju- presturinn þurfti að fara til sjúkrahússvistar, en búinn að taka að sér útvarpsmessu næsta sunnudag, að geta þá öruggur beðið kirkjuvörðinn að annast hana fyrir sig og njóta þess svo á spítalanum, hve það var gert með miklum glæsibrag. Þetta eru aðeins leiftur frá lið- inni tíð, en þau eru í senn þema og samhljómur minninga, sem ég hlýt að þakka fyrir hönd okk- ar Dagbjartar fyrir allt sem við áttum sameiginlegt í starfinu fyrir Dómkirkjuna og á góðum stundum á heimilum okkar. Ég veit, að þar taka allir undir, sem nutu þeirra sr. Andésar og Arn- dísar með okkur. Á páskadag árið 1949, kl. 7 að morgni, settu þau Arndís og sr. Andrés upp hringa til þess að opinbera unnin heit um ævi- tryggð. Síðan gengu þau saman til morgunguðsþjónustunnar, þar sem fagnaðarerindi lífsins var boðað og lofsöngvar sungnir vegna vissunnar um, að Kristur er sannarlega upprisinn. Það er enn páskatíð, gleðidag- ar. Og nú eru heitin endurnýjuð. Sr. Andrés er endanlega geng- inn Kristi á hönd, æðsta presti mannlífsins. Trú okkar segir, að hjá honum hafi ævitryggðir fengið eilífðargildi og ástin, sem hringarnir þeirra stóðu fyrir, sameini þau á ný. Ég sé þau því ganga saman til himneskrar guðsþjónustu. Þeirri hugsýn fylgir einlæg þökk mín og minna. Þórir Stephensen. Andrés Ólafsson ✝ Elskulegur sambýlismaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR EINARSSON, Blikaási 40, Hafnarfirði, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 1. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Við fjölskyldan viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til starfsfólks krabbameinsdeilar 11-E og göngudeildar 11-B. Aðalheiður Árnadóttir, Einar Þórðarson, Rósa Þórðardóttir, Elfar Helgason, Þórður Þórðarson, Anna Sigrún Hreinsdóttir, Jórunn Þórðardóttir, Þórarinn M. Eldjárnsson, Hafdís Þórðardóttir, Trausti Magnússon, Gunnar Þórðarson, Dagbjört M. Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, sonur, bróðir, tengda- faðir og afi, RÚNAR SMÁRASON, Álfaskeiði 64e, Hafnarfirði, lést á hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 13. mars. Útförin fór fram í kyrrþey hinn 22. mars frá kapellunni í Hafnar- fjarðarkirkjugarði. Fyrir hönd vandamanna, Marta Sigurlilja Rúnarsdóttir, Úlfur Ingi Jónsson, Einar Geir Rúnarsson, Marzena Burkot, Eygló Rúnarssdóttir, Smári Guðlaugsson, Anna Þorsteinsdóttir, Ómar Bjarki Smárason, Katrina Downs-Rose, Edda Sjöfn Smáradóttir, Erlendur Árni Hjálmarsson, Guðrún Hrönn Smáradóttir, Hörður Þór Harðarson, Lára Byrns, Gary Kent, Ingvar Sigurjón Garðarsson, Anna Ósk Ragnarsdóttir, Friðgeir Garðarsson, Garðar Oddur Garðarsson, Sigmundur Freyr Garðarsson, Ragnheiður Samúelsdóttir, Ragnhildur Marta, Lolita Úlfsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LAUFEY BJARKADÓTTIR, Hafrafellstungu, lést á sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 6. maí. Jarðarför auglýst síðar. Karl Sigurður Björnsson, Hulda Hörn Karlsdóttir, Stefán Leifur Rögnvaldsson, Ingiríður Ásta Karlsdóttir, Robert Duane Boulter, Birna María Karlsdóttir, Einar Sigurjónsson, Bjarki Fannar Karlsson, Eyrún Ösp Skúladóttir og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG HELGA STEINÞÓRSDÓTTIR, Skólahúsinu, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi þriðjudaginn 1. maí. Útförin fer fram frá Þingeyrakirkju laugardaginn 12. maí kl. 15.00. Ólöf G. Jóhannsdóttir, Halldór Jóhann Grímsson, Þorgrímur Jóhann Halldórsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.