Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 38
Morgunblaðið/RAX
Von Steinunn vonar að verkið fái nú að standa óáreitt í Hull um ókomna framtíð.
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Borgarstjórinn í Hull, Colin Inglis, og sendiherra
Íslands á Bretlandi, Benedikt Jónsson, munu næst-
komandi föstudag endurafhjúpa listaverkið Voyage
við hátíðlega athöfn í miðborg Hull.
Verkið var gert árið 2006 til minningar um breska
sjómenn sem hafa látist við Íslandsstrendur auk
þess sem 30 ár voru liðin frá lokum síðasta þorska-
stríðs. Upphaflega verkinu var stolið sumarið 2011.
Höfundurinn Steinunn Þórarinsdóttir segist strax
hafa fundið fyrir miklum áhuga borgaryfirvalda í
Hull á að enduskapa styttuna. „Það varð töluvert
uppnám í borginni enda hefur verkið mikið tilfinn-
ingagildi fyrir íbúa Hull en margir þar hafa misst
ættingja við Íslandsstrendur. Velunnari í borginni
sem vill ekki láta nafns síns getið styrkti verkefnið,
auk þess sem tryggingar borgarinnar greiða kostn-
að við endurgerð verksins.“
Stendur við höfnina í Hull
Endursköpun verksins hefur staðið yfir síðan í
ágúst í fyrra þegar sílíkonmót var tekið af hinum
hluta verksins sem er í Vík í Mýrdal. „Kollegi minn
Pétur Bjarnason hefur unnið að verkefninu með
mér. Það þurfti að steypa og vinna frummyndina
aftur í gifs og síðan í brons. Verkið var síðan flutt til
Englands í lok mars.“
Verkið í Hull mun eftir sem áður standa við höfn-
ina. Það samanstendur af fjögurra metra hárri
stuðlabergssúlu og ofan á henni er manneskja úr
bronsi. „Sem betur fer slapp stuðlabergssúlan
ósködduð því súlur í þessari lengd er erfitt að fá í
dag. Verkið var og verður áfram við höfnina í mið-
borg Hull, nálægt frægu sjávarsafni sem heitir The
Deep og stendur við mynni árinnar The Humber
sem skipin sigldu á.“
Verkið Voyage var upphaflega samstarfsverkefni
borgarstjórnarinnar í Hull, breska utanríkisráðu-
neytisins, íslensku ríkisstjórnarinnar og sveitar-
stjórnarinnar í Vík í Mýrdal. „Það er ánægjulegt að
Colin Inglis afhjúpi verkið nú en hann var einn af
upphafsmönnum verkefnisins. Á sínum tíma bað þá-
verandi sendiherra Breta hér á landi mig að gera til-
lögu að verki til minningar um breska sjómenn.
Hugmynd mín var að gera eitt verk í tveimur lönd-
um og úr varð að annar hluti þess var settur upp í
Hull og hinn í Vík í Mýrdal,“ sagði Steinunn um
uppruna hugmyndarinnar.
Endurskapa
stolið verk
Systurverk Voyage er staðsett annars vegar í Hull og hins vegar í Vík í Mýrdal. Mikil
mildi þykir að stuðlabergssúlan hafi ekki skemmst þegar verkinu í Hull var stolið.
Listaverkið Voyage end-
urafhjúpað í Hull í vikulok
Ljósmynd/Þórir Kjartansson
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012
Einn áhrifamesti og virtasti barna-
bókahöfundur liðinna áratuga,
bandaríkjamaðurinn Maurice Sen-
dak, er látinn 83 ára að aldri. Sen-
dak var þekktur fyrir að skrifa og
myndskreyta á annan tug bóka en
sú lang frægasta, Where the Wild
Things Are, kom út árið 1963.
Sagan fjallar um ímyndunarafl
barnæskunnar og hefur verið
endurgerð í ýmsum miðlum, meðal
annars sem teiknimynd, ópera og
síðast sem kvikmynd sem Spike
Jonze leikstýrði árið 2009. Yfir tíu
milljón eintaka
hafa selst af bók-
inni en verk Sen-
daks hafa ekki
verið þýdd á ís-
lensku þótt bæk-
urnar séu til víða
á íslenskum
heimilum og æv-
intýraskepnur
höfundarins hafi
birst á skjám landsmanna. Margir
höfundar hafa sagt Sendak meðal
sinna helstu áhrifavalda.
Maurice Sendak látinn
Mauric Sendak
Bogi Haraldsson heldur út-
skriftartónleika sína á
blokkflautu í Þjóðmenning-
arhúsinu annað kvöld kl. 20.
Á efnisskránni verða
verk eftir Dario Castello,
G.F. Händel, Ryohei Hi-
rose, J.S. Bach, William Ba-
bell, Jacques Hotteterre le
Romain og Giuseppe Sam-
martini.
Á tónleikunum koma
fram auk Boga þær Nína Margrét Grímsdóttir
á píanó, Guðrún Óskarsdóttir á sembal og
Kristín Lárusdóttir á viola da gamba. Kennari
Boga við Listaháskóla Íslands síðustu ár hefur
verið Helga Aðalheiður Jónsdóttir.
Tónlist
Blokkflaututónar
Bogi
Haraldsson
Himmel ohne Sterne frá
árinu 1955 verður sýnd í
Kamesi Borgarbóka-
safnsins í dag kl. 15 og 17.
Myndin fjallar um Önnu
Kaminski sem býr rétt
austan við þýsku landa-
mærin. Handan þeirra býr
ungur sonur hennar, en til
að vitja hans þarf Anna að
leggja í háskaför yfir landamærin. Á leiðinni
hittir hún fyrir landamæravörðinn Carl Alt-
man, Vestur-Þjóðverja sem hrífst af Önnu og
hjálpar henni að koma syninum ólöglega yfir
til A-Þýskalands. Brátt taka þau upp hættu-
legt ástarsamband í skugga járntjaldsins.
Kvikmyndir
Stjörnulaus himinn
Gréta Gísladóttir listamað-
ur opnar sýningu á verk-
um sínum í Mjólkurbúðinni
í Listagili á Akureyri á
laugardaginn kemur kl. 14.
„Royal Ísland, hvítt gull.
Lýður lyftir lóðum, hann
ætlar í samband eða hugsa
um það. Drottningin átti
einu sinni krónu og kóng
en nú á hún bara leg. Gosi
er góður drengur, ég er að meina það! Áttu
áttu? Nei ekkert, gefðu aftur!“ segir m.a. í
fréttatilkynningu um sýninguna þar sem
húmor og pólitík í spilastokkum verður alls-
ráðandi.
Myndlist
Húmor og pólitík
Eitt verka Grétu.
NÝ
www.avon.is
Glæsileg heimasíða og vefverslun
Frábær opnunartilboð
Skráðu þig á póstlista
www.avon.is
Þú gætir dottið í lukkupottinn
og unnið Avon Gjafabréf að
verðmæti 10.000 kr.
Nýjir sölufulltrúar velkomnir!
Þær sem gerast sölufulltrúar
fyrir 11. maí fá glæsilegar gjafir.
Sjá nánar á www.avon.is
Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Baðolían frá AVON er komin aftur.
Baðolían sem beðið
hefur verið eftir!