Morgunblaðið - 09.05.2012, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012
Það hefur tekið langan tíma fyrir skvísuskruddurnar
(chick lit) að ná fótfestu á Íslandi. Nokkrar tilraunir hafa
verið gerðar og heppnast misvel. Það mætti segja að með
Korteri nái þetta bókmenntaform loksins landfestum hér
og fer vonandi ekki neitt.
Líkt og með glæpareyfara er söguuppbyggingin í
skvísuskruddum nokkuð fastheldin, nánast sömu persón-
urnar eru í hverri bók og aðstæður þeirra oft keimlíkar.
Gildir þá einu hvort bókin er samin hér á landi eða ekki.
Korter bregður ekkert út af skvísuskrudduhefðinni. Í
henni segir frá fjórum stúlkum sem eru að nálgast þrí-
tugt. Þær búa allar eða starfa í miðbæ Reykjavíkur-
borgar og eiga í nokkrum vandræðum með líf sitt og þá
sérstaklega karlpeninginn sem hefur orðið á vegi þeirra.
Stúlkurnar fjórar þekkjast ekki neitt en líf þeirra skarast
nokkuð. Á kaffihúsinu Korter vinnur Hervör og það er í
gegnum það kaffihús sem sögupersónurnar tengjast. All-
ar eiga þær sameiginlegt að vera á ákveðnum tímamót-
um í lífi sínu, útskrifaðar úr háskóla og leitandi að staðn-
um sem þær vilja vera á í lífinu. Velta fyrir sér hvað þær
vilja vinna við, hvernig karlmanni þær vilja enda með.
Hvort sem manni líkar betur eða verr snýst lífið dálítið
mikið um ástina. Það er alveg sama hversu margar há-
skólagráður manneskjan hefur, hún er ekki hafin yfir
ástina og löngun til að finna hana. Korter er saga um ást-
ina og hvernig hún getur farið með fólk, á bæði góðan og
slæman hátt. Það er mikið um tilfinningar í sögunni en
þær eru sannfærandi og lesandinn finnur til með sögu-
persónunum. Stúlkurnar fjórar, Mía, Silja, Karen og
Hervör, eru ólíkar persónur en harðar af sér og kunna að
bjarga sér. Þær eiga allar í veseni með karlmenn sem
koma nú ekki vel út úr þessari sögu, þeir eru flestir skít-
hælar. En það má ekki gleyma að þetta er skáldsaga, það
verður að vera svolítið drama í gangi til að halda sögunni
gangandi.
Þetta er fyrsta bók Sólveigar Jónsdóttur og hefur hún
vandað vel til verka. Sagan er grípandi alveg í gegn þótt
aðeins dragi af henni í seinni helmingnum. Málfarið er
gott og persónusköpunin sannfærandi, fléttan gengur
upp og skiptingin í fjórar sögur stúlknanna heppnast vel.
Af endalokum bókarinnar má vænta að framhaldssaga sé
í bígerð og bíð ég spennt eftir henni.
Korter er hin fínasta skvísuskrudda, bregður ekki út
af hefðinni og brást mér ekki sem lesanda.
Skáldsaga
Korter bbbmn
Eftir Sólveigu Jónsdóttur.
Mál og menning 2012.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Fjórar fræknar í fínni sögu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ástin „Korter er saga um ástina og hvernig hún getur
farið með fólk, á bæði góðan og slæman hátt.“
Barnahátíð í Reykjanesbæ verður
sett með formlegum hætti á morgun
í Duushúsum þegar sýningin Sögur
og ævintýri verður opnuð. Leik-
skólabörn bæjarins hafa unnið með
sögur og ævintýri stóran hluta úr
vetri og má sjá afraksturinn á sýn-
ingunni. Síðari hluti formlegu setn-
ingar hátíðarinnar verður á föstu-
daginn kl. 14:00 þegar sýningin
Listaverk í leiðinni verður opnuð í
Nettó, en þar gef-
ur að líta verk
eftir grunn-
skólabörn bæj-
arins.
Barnahátíðin
stendur til sunnu-
dagsins kemur,
en dagskrána má
sjá á barnahatid-
.is. Meðal viðburða má nefna nýjar
sýningar í Víkingaheimum, opn-
unarhátíð í landnámsdýragarðinum,
fjölskyldusmiðjur þar sem m.a.
verður hægt að búa til víkingaklæði
á bangsann sinn, lifandi sögustund
með Þór Tulinius, krílasund í sér-
staklega upphitaðri sundlaug og
heimboð hjá Skessunni í hellinum
þar sem boðið verður upp á lummur,
blöðrur og sögustund. Frítt er á alla
viðburði hátíðarinnar.
Boðið til barnahátíðar í Reykjanesbæ
568 8000 | borgarleikhus.is
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Mið 9/5 kl. 20:00 aukas Lau 19/5 kl. 17:00 aukas Fös 1/6 kl. 20:00 aukas
Fim 10/5 kl. 20:00 aukas Sun 20/5 kl. 20:00 10.k Lau 2/6 kl. 20:00 17.k
Fös 11/5 kl. 20:00 6.k Þri 22/5 kl. 20:00 aukas Sun 3/6 kl. 20:00 18.k
Lau 12/5 kl. 20:00 7.k Mið 23/5 kl. 20:00 11.k Mið 6/6 kl. 20:00 19.k
Sun 13/5 kl. 20:00 aukas Fim 24/5 kl. 20:00 12.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Þri 15/5 kl. 20:00 aukas Fös 25/5 kl. 20:00 13.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Mið 16/5 kl. 20:00 8.k Þri 29/5 kl. 20:00 14.k Sun 10/6 kl. 20:00
Fim 17/5 kl. 20:00 9.k Mið 30/5 kl. 20:00 15.k
Fös 18/5 kl. 20:00 aukas Fim 31/5 kl. 20:00 16.k
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Fim 10/5 kl. 20:00 Fim 17/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00
Fös 11/5 kl. 20:00 Fös 18/5 kl. 20:00
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports - hátíðarsýningar á 10 ára sýningarafmæli.
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 12/5 kl. 14:00 lokas
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma. Síðustu sýningar!
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra svið)
Lau 19/5 kl. 20:00 lokas
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 11/5 kl. 20:00 Fös 18/5 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Mið 16/5 kl. 20:00 aukas Fös 25/5 kl. 20:00
Fim 17/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Hótel Volkswagen (Stóra sviðið.)
Lau 12/5 kl. 20:00 Sun 13/5 kl. 20:00 lokas
Eftir Jón Gnarr í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Síðustu sýningar!
Bræður - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport, Malmö Stadsteater, Teater Får302. Sýnt á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Lau 12/5 kl. 20:00 2.k Sun 20/5 kl. 20:00 5.k Fös 1/6 kl. 20:00
Sun 13/5 kl. 20:00 3.k Mið 23/5 kl. 20:00 6.k Lau 2/6 kl. 20:00
Lau 19/5 kl. 20:00 4.k Fim 24/5 kl. 20:00 7.k Lau 9/6 kl. 20:00
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Lau 12/5 kl. 13:00 Lau 12/5 kl. 14:30 aukas Sun 20/5 kl. 13:00
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fim 10/5 kl. 19:30 AUKAS. Fös 18/5 kl. 19:30 Lau 26/5 kl. 15:00
Fös 11/5 kl. 19:30 24.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 Fös 1/6 kl. 19:30
Lau 12/5 kl. 15:00 AUKAS. Sun 20/5 kl. 19:30 Lau 2/6 kl. 19:30
Lau 12/5 kl. 19:30 25.sýn Fim 24/5 kl. 19:30
Sun 13/5 kl. 19:30 26. sýn Fös 25/5 kl. 19:30
Aukasýningar komnar í sölu - aðeins sýnt fram í júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Fös 18/5 kl. 19:30 24.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 Sun 20/5 kl. 19:30 Síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar
Afmælisveislan (Kassinn)
Mið 9/5 kl. 19:30 8.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 11.sýn Mið 30/5 kl. 19:30 15.sýn
Fim 10/5 kl. 19:30 9.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 12.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn
Fös 11/5 kl. 19:30 AUKAS. Fös 25/5 kl. 19:30 13.sýn Fös 1/6 kl. 19:30
Lau 12/5 kl. 19:30 10.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 14.sýn Lau 2/6 kl. 19:30
Uppselt í maí - örfá sæti laus í júní.
Bliss (Stóra sviðið)
Mán 21/5 kl. 12:00
Á Listahátíð í Reykjavík 2012
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Sun 20/5 kl. 17:00 Frumsýn. Þri 22/5 kl. 19:30
Mán 21/5 kl. 19:30 Lau 26/5 kl. 17:00
Á Listahátíð í Reykjavík 2012
Pétur Gautur (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 19:30
Á Listahátíð í Reykjavík 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 23/5 kl. 20:00 Frumsýn. Fös 1/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Fös 25/5 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30
Á Listahátíð í Reykjavík 2012
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mán 14/5 kl. 19:30 Lau 19/5 kl. 16:00 Sun 20/5 kl. 16:00
AUKASÝNINGAR Í MAÍ
TRYGGÐU
ÞÉR SÆTI
112 Grafarvogi - Sími: 586 1000 - www.husgogn.is
Kojur íbjarga málunum
Margar stærðir og gerðir af kojum og rúmum,
litlum og stórum, breiðum og mjóum
fyrir barnaherbergið og sumarbústaðinn!
Sérverslun með kojur og fylgihluti
Vefverslun
husgogn.is
erum á
Facebook
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is